Morgunblaðið - 08.02.2002, Blaðsíða 1
2002 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
TVÖFÖLD BIKARÚRSLIT HJÁ KR OG NJARÐVÍK / C2, C3
FYLKISMENN ætla að hafa tilboði norska liðs-
ins Molde í landsliðsmanninn Ólaf Stígsson sem
Árbæjarliðinu barst frá Molde í fyrrakvöld. Að
sögn Kjartans Daníelssonar, formanns knatt-
spyrnudeildar Fylkis, var tilboðið frá Norð-
mönnunum lélegt og ekki um annað að ræða en
að hafna því. Molde hefur verið með Ólaf í sigt-
inu um nokkurt skeið og var hann við æfingar
hjá liðinu í vikutíma á La Manga á Spáni fyrir
skömmu. „Við viljum leggja ofurkapp á að
halda Ólafi í okkar herbúðum. Við höfum orðið
fyrir skakkaföllum og megum alls ekki við því
að missa Ólaf,“ sagði Kjartan við Morgunblaðið
í gær.Tveir leikmenn Árbæjarliðsins hafa
meiðst illa að undanförnu. Hreiðar Bjarnason
sleit hásin á Íslandsmótinu innanhúss og Elmar
Ásbjörnsson, einn af ungu leikmönnum liðsins,
sleit krossbönd í hné á æfingu í vikunni.
Fylkir hafnar
tilboði Molde
ÓLAFUR Gottskálksson, knatt-
spyrnumarkvörður, samdi í gær
við enska félagið Brentford um
að fá frjálsa sölu þaðan. Þar með
má hann strax byrja að ræða við
önnur félög um skipti, þótt hann
eigi tæplega hálft annað ár eftir
af samningi sínum við Brentford.
Ólafur sagði við Morgunblaðið í
gær að hann myndi halda áfram
sínu striki hjá Brentford þar til í
ljós kæmi hvert hann færi.
„Ég er að jafna mig eftir
sprautumeðferð og byrja að æfa
á ný í næstu viku. Það virðast
mörg lið hér í Englandi vera á
höttunum eftir markvörðum
þannig að ég hef engar áhyggjur.
Mér liggur heldur ekkert á, aðal-
málið sem stendur er að fá sig
góðan af meiðslunum.“
Fram kom fyrr í vikunni að
Ron Noades, eigandi Brentford,
vildi losa sig við Ólaf vegna þess
að hann væri félaginu of dýr.
„Brentford er að skera niður all-
an launakostnað og það má því
segja að ég hafi legið vel við
höggi. Ég vil komast héðan sem
fyrst, allavega áður en samning-
urinn rennur út. Mér finnst allan
metnað vanta og andrúmsloftið
hjá félaginu hefur versnað að
undanförnu. Lykilmenn eru seld-
ir, ekki samið við þá sem eru með
lausa samninga, þar á meðal Ívar
Ingimarsson, það er verið að
selja völlinn og fleira í þeim dúr.
Ég stefni að því að spila með fé-
lagi þar sem metnaðurinn er
meiri,“ sagði Ólafur.
Hann var á dögunum orðaður
við Wigan og Stoke, sem bæði
leika í 2. deild eins og Brent-
ford. „Stoke er vissulega félag
með mikinn metnað en annars
get ég lítið tjáð mig um þetta,
þessi mál eru öll í höndunum á
umboðsmanninum mínum. Ég
bíð rólegur eftir rétta tækifær-
inu,“ sagði Ólafur Gottskálks-
son.
Ólafur fær frjálsa sölu frá Brentford
Það er í það minnsta ljóst að þessirausnarlega söfnun breytir
miklu fyrir okkur og nú verður þetta
enn meira gaman,“ sagði Guðumund-
ur í samtali við Morgunblaðið. „Við
erum að fara ofan í þessi mál og kort-
leggja hvernig við ætlum að nýta
þessa peninga þannig að við fáum
sem mest út úr þeim. Ég get því ekki
á þessari stundu nefnt neina upphæð,
en auðvitað breytir þetta gríðarlega
miklu fyrir okkur,“ segir formað-
urinn.
„Árangur liðsins í Svíþjóð og þessi
fjársöfnun hér heima setur handbolt-
ann hjá okkur á allt annað plan og
þetta gjörbreytir einnig starfsum-
hverfi okkar. Það hefur verið gaman
að starfa við þetta en nú verður það
enn þá skemmtilegra,“ segir hann.
Vegna HM hé heima 1995 þurfti
HSÍ að greiða um 11 milljónir í svo-
kallaðan vörsluskatt vegna miðasölu-
mála. Guðmundur sagði að búið væri
að leiða það mál til lykta. „Staðan hjá
okkur á síðasta ársþingi var sú að
brúttóskuldir námu um 40 milljónum.
Ég á ekki von á að skuldirnar hafi
lækkað fyrr en núna að við fáum
þessa miklu peninga. Við höfum verið
með dýr verkefni í tengslum við þær
vonir um árangur, sem náðist í Sví-
þjóð þannig að það var talsvert lagt
undir,“ segir Guðmundur.
Spurður um hversu mikið hafi
safnast sagði hann: „Það söfnuðust
rúmar 30 milljónir og það gæti bæst
við enn því það hafa nokkur fyrirtæki
haft samband. Eins og gengur í svona
söfnun skilar sér ekki allt í hús þann-
ig að við teljum að þetta verði um 30
milljónir sem við fáum í kassann, sem
er auðvitað ekkert annað en frábært.
Mér fannst menntamálaráðherra
og ríkisstjórnin sýna íþróttalífinu
mikinn velvilja og taka drengilega og
mannalega á þessu.“
Guðmundur sagði að vissulega
hefði verið gaman að starfa innan
sambandsins þótt inni á milli kæmu
auðvitað dagar þar sem menn fengju
sig fullsadda. Ársþingið verður haldið
um mánaðamótin og sagði Guðmund-
ur mjög freistandi að halda áfram og
fylgja eftir þessum árangri. „Ég var
raunar að hugsa um að hætta, en það
er óneitanlega freistandi að halda
áfram, en ég á eftir að ræða þetta við
konuna og fjölskylduna,“ sagði for-
maður HSÍ.
Guðmundur Ingvarsson, formaður
HSÍ, um styrki og fjársöfnun
Gjörbreytt
starfs-
umhverfi
hjá okkur
GUÐMUNDUR Ingvarsson, formaður Handknattleikssambands Ís-
lands, segir stöðu sambandsins óneitanlega mun betri eftir árang-
ur landsliðsins á Evrópumótinu. Hann segir að menn séu að átta sig
á stöðu mála þessa dagana og því erfitt að segja nákvæmlega til um
hverju fjárframlögin, sem söfnuðust á meðan á keppninni stóð,
breyttu fyrir sambandið.
Reuters
Vetrarólympíuleikarnir í Salt Lake City verða settir í dag. Sex íslenskir skíðamenn taka þátt í leik-
unum að þessu sinni. Hér á myndinni má sjá Ítalann Roberto Cecon æfa sig í skíðastökki.