Morgunblaðið - 08.02.2002, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„BIKARDAGURINN“ hefst kl.
15.00 með leik KR og Njarðvíkur í
kvennaflokki og kl. 17.00 hefst karla-
leikurinn. Báðir leikirnir verða í
beinni útsendingu á sjónvarpsstöð-
inni Sýn.
Þetta er í annað sinn í sögu bik-
arkeppni KKÍ að lið frá sömu fé-
lögum eigast við í karla- og kvenna-
flokki. KR var í sömu stöðu árið 1997
þar sem karla- og kvennalið félags-
ins töpuðu viðureignum sínum gegn
Keflavík.
NJARÐVÍKINGAR munu bjóða
stuðningsmönnum sínum upp á
sætaferðir frá heimabænum kl. 14.00
á laugardaginn. KR-ingar treysta
hins vegar á að almenningssam-
göngutæki borgarinnar og einkabíl-
ar skili þeirra stuðningsmönnum í
Laugardalshöllina.
ÞEIR sem vilja fylgjast með báð-
um viðureignum þurfa að greiða
1.200 kr. ef þeir teljast fullvaxta en
börn greiða 500 kr. Áhorfendur sem
ætla aðeins að fylgjast með karlalið-
unum sem leika á eftir kvennaleikn-
um greiða 1.000 kr.
ÞAÐ eru fyrstu Íslandsmeistarar
KR og Njarðvíkur í karlaflokki sem
verða sérstakir heiðursgestir á bik-
arleik karlaliðanna.
RÖGNVALDUR Hreiðarsson og
Rúnar Gíslason dæma kvennaleik-
inn og eftirlitsdómari verður Erling-
ur Snær Erlingsson. Leifur Garð-
arsson og Kristinn Óskarsson dæma
karlaleikinn og Bergur Steingríms-
son verður eftirlitsdómari.
FYRST var leikið í bikarkeppni
karla árið 1970 og árið 1975 í kvenna-
flokki.
KR-INGAR hafa oftast sigrað í
karlaflokki eða níu sinnum og síðast
árið 1991, en þeir hafa leikið fimmtán
sinnum til úrslita. Njarðvíkingar
hafa leikið tólf sinnum til úrslita.
Þeir töpuðu fimm fyrstu leikjunum
en hafa sigrað alls sex sinnum og síð-
ast árið 1999.
KR hefur þrettán sinnum komist í
úrslit í kvennaflokki og fagnað sigri í
átta skipti og síðast fyrir ári. Njarð-
vík hefur afrekað að komast í úrslit í
tvígang, 1983 og 1996, auk þess sem
liðið er í úrslitum í ár. Njarðvík hef-
ur ekki enn fagnað sigri í kvenna-
flokki.
BIKAR-
PUNKTAR
„
l
þ
l
a
t
s
l
T
o
S
þ
i
í
v
m
a
n
m
t
v
a
v
a
n
s
l
g
v
s
Fjölgun
í efstu
deild
2006?
STARFSHÓPUR sem skip-
aður var á árþingi Knatt-
spyrnusambands Íslands í
fyrra sem skoða átti mögu-
leika til að fjölga liðunum í
efstu deild karla úr 10 í 12
hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að ekki sé unnt að
fjölga liðum í deildinni án
þess að lengja tímabilið, það
er að hefja það fyrr á vorin.
Hins vegar telur starfshóp-
urinn að fjölgun um tvö lið
sé æskilegt markmið til
lengri tíma litið og leggur
hann til að stjórn KSÍ vinni
áfram að undirbúningi máls-
ins og hafi það að markmiði
fjölgun í efstu deild sumarið
2006.
Álit starfshópsins verður
rætt á ársþingi KSÍ sem
haldið verður um helgina en
fyrir þinginu liggja að venju
nokkrar athyglisverðar til-
lögur. Grindavík, FH og
Keflavík leggja fram sam-
eiginlega tillögu þess efnis
að undanúrslitaleikirnir í
bikarkeppni KSÍ fari fram á
hluthlausum velli og verði
spilaðir á Laugardalsvell-
inum.
KFS úr Vestmannaeyjum
leggur fram tillögu að meina
U-23 ára liðum þátttöku í
bikarkeppni KSÍ þannig að
félögum verði aðeins heim-
ilað að senda eitt lið til
keppni í bikarkeppninni.
ÍBV leggur fram tillögu
að stofnaður verði jöfn-
unarsjóður í deildabik-
arkeppninni þar sem félög
sem taka þátt í keppninni
greiða ákveða upphæð til
þess að jafna ferðakostnað
félaga.
Þá leggja Breiðablik og
KR tillögu til álykta um Ís-
landsmót 40 ára og eldri þar
sem keppt verður í 7 manna
liðum.
Vassell
á hvorum
tveggja
vígstöðv-
unum
KEITH Vassel, þjálfari
kvennaliðs KR, er jafnframt
einn af lykilmönnum karla-
liðsins sem leikur strax á
eftir kvennaliðinu. Það er
harla óvenjulegt að sami
einstaklingur gegni svo
veigamiklu hlutverki í báð-
um úrslitaleikjunum. „Satt
best að segja veit ég ekki
hvernig ég á að undirbúa
mig fyrir laugardaginn. Ég
hef aldrei lent í þessu áður.
Það eina sem ég hef ákveð-
ið er að lifa í núinu á leik-
dag, ekki hugsa um það
sem hefur gerst og á eftir
að gerast, enda er það það
eina sem ég get gert.
Vandamálið verður að fara
úr þjálfarahlutverkinu og
beint inn í hlutverk leik-
mannsins, en það eru góðir
menn sem eiga eftir að
hjálpa mér,“ sagði Vassel.
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, ESSO-deild:
Austurberg: ÍR–Víkingur ........................20
Digranes: HK–FH ....................................20
Akureyri: Þór A.–Grótta/KR ...................20
Selfoss: Selfoss–Valur ..............................20
1. deild kvenna, ESSO-deild:
Kaplakriki: FH–Valur ..............................20
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Afríkukeppnin, undanúrslit:
Senegal - Nigería...................................... 2:1
Mali - Kamerún ........................................ 0:3
England
1. deild:
Crystal Palace - Wolves........................... 0:2
Frakkland
París SG - Bordeaux ................................ 1:0
Holland
Bikarkeppni:
Ajax - Groningen ...................................... 4:0
Ítalía
Bikarkeppnin:
Brescia - Parma........................................ 2:1
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Boston–Sacramento............................85:102
Cleveland–Houston...........................111:109
New Jersey–Dallas ...........................100:112
Minnesota–Portland ........................113:103
Seattle–Phoenix ....................................90:79
LA Lakers–Chicago..............................89:97
1.deild karla
Valur - ÍA ............................................ 108:66
ÚRSLIT
KR er með sterkara lið fljótt álitið, mikla breidd og einstak-
linga sem hafa leikið lengi saman
og farið í marga úr-
slitaleiki. Reynsla er
gríðarlega mikilvæg
í slíkum leikjum og
þar sem þær eru
með eitt besta varnarlið deildar-
innar eru þær líklegri á laugardag-
inn,“ sagði Anna en hún sagðist
ekki hafa séð til bandarísku stúlk-
unnar Carrie Coffman. „Hún er
hávaxin og getur ekki annað en
styrkt gott lið enn frekar.“
Um möguleika Njarðvíkinga
sagði Anna að koma Ebony Dick-
inson til liðsins breytti miklu en
ljóst væri að Njarðvíkingar hefðu
ekki mikla reynslu í slíkum leik.
„Ég sá Dickinson leika gegn
Grindavík um sl. helgi og hún á
eftir að leysa mörg verkefni vel af
hendi. Hún getur leikið allar stöð-
ur á vellinum og verður líkast til í
hlutverki leikstjórnanda með
Njarðvík. Svæðisvörn verður
þeirra vopn enda fá lið eins hávax-
in og Njarðvíkurliðið.“
Anna sagði ennfremur að eini
veikleiki KR þegar í leikinn kæmi
væri að vanmeta Njarðvík þegar
hún var beðin um að setja sig í
spor þjálfara liðanna. „Ég veit að
KR ætlar sér ekki að vanmeta
andstæðingana en undir niðri vita
þær að þær eiga að vinna. Það hef-
ur oft komið fyrir íþróttamenn að
falla í þessa gryfju þótt þeir ætli
sér það ekki og ég myndi hamra á
því að fara í leikinn af krafti frá
upphafi. Njarðvíkurliðið hefur aft-
ur á móti engu að tapa. Þær ættu
að leggja áherslu á að njóta dags-
ins og leiksins til hins ýtrasta og
ekki hugsa of mikið um umstangið
og umgörð leiksins. Nú þegar ég
er að tjá mig um þetta finn ég
hvað mig dauðlangar til þess að
vera í sporum liðanna sem leika en
ég mæti þá bara á svæðið í stað-
inn,“ sagði Anna María.
Anna María Sveinsdóttir spáir í viður-
eign kvennaliða KR og Njarðvíkur
Dickinson
breytir
miklu
ÞAÐ er ólíkur bakgrunnur kvennaliðanna sem leika til úrslita í bik-
arkeppni KKÍ og Doritos á laugardaginn. Þrefalt meistaralið sl. árs.
KR, sem skipað er reyndum leikmönnum mætir þar lítt reyndu liði
Njarðvíkur. Morgunblaðið fékk Önnu Maríu Sveinsdóttur til að meta
möguleika liðanna en Anna María hefur oftar en ekki verið í sömu
aðstöðu sem leikmaður og þjálfari kvennaliðs Keflavíkur.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
„VIÐ þurfum að vera duglegri en
Njarðvíkingar á öllum sviðum og
takist okkur það vinnum við leikinn.
Auk þess þurfum við að fækka töp-
uðum boltum gegn Njarðvík,“ sagði
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari
karlaliðs KR, er hann var inntur eft-
ir því hvað þyrfti til að KR hampaði
bikarnum í Laugardalshöllinni.
Ingi sagði að sögusagnir um að
nýr leikmaður yrði eftir vill í leik-
mannahóp Njarðvíkinga truflaði
ekki einbeitingu KR-inga.
„Auðvitað skiptir það einhverju
máli hvort þessi leikmaður, Pete
Philo, verður með eða ekki en við
undirbúum okkur fyrir leik gegn
því liði sem við höfum mætt að und-
anförnu. Við vitum ekkert um Philo
og ætlum ekki að láta það trufla
okkur.“ Ingi sagði að vissulega væri
það álitamál hvort lið ættu að fá til
sín erlenda leikmenn á seinni stig-
um keppnistímabilsins þegar búið
væri að loka á félagsskipti íslenskra
leikmanna.
„Það eru mismunandi ástæður að
baki í hvert sinn sem erlendur leik-
maður er fenginn til að styrkja lið.
Stundum eru menn meiddir og þá
þarf að fá aðra í staðinn en Njarð-
víkingar eru í þeirri stöðu að þeir
geta fengið til sín erlendan leik-
mann og það er ekkert við því að
segja.“
Ingi var spekingslegur þegar
hann var spurður um leynnivopn
KR-inga. „Við höfum tekið tæknina
með í okkar lið og að undanförnu
hef ég verið að klippa niður mynd-
skeið af leikkerfum Njarðvíkinga,
með hjálp íslensks tölvuforrits sem
er hannað fyrir þjálfara. Þetta er al-
veg nýtt fyrir okkur og vonandi sí-
ast þetta inn hjá leikmönnum liðsins
og ég vænti að þeir verði með hreyf-
ingar andstæðinganna á hreinu þeg-
ar í leikinn er komið,“ sagði Ingi.
Tæknin
í lið með
KR-ingum
Keith Vassell hefur nóg að gera – stjórnar kvennaliði KR gegn UMFN í b
úrslitaleik strax á eftir. Hér á hann í höggi við Njarðvíkingana Loga Gu