Morgunblaðið - 08.02.2002, Page 4
JÜRGEN Röbers, þjálfari
Herthu Berlín, hefur verið látinn
tapa pokann sinn fimm mánuðum
áður en samningur hans við liðið er
úti. Liðinu hefur ekki gengið vel og
hefur leikið þrjá leiki án sigurs síð-
an deildakeppnin hófst á ný í
Þýskalandi eftir vetrarfrí.
FALKO Götz, unglingaþjálfari
hjá Herthu, mun stjórna liðinu þar
til Huub Stevens, þjálfari Schalke,
tekur við stjórninni í júní. Götz fær
aðstoð hjá Andreas Thom, fyrrver-
andi landsliðsmanni Þýskalands.
RÖBER er fimmti þjálfarinn í
Þýskalandi í vetur, sem missir
starf sitt. Áður hafa hætt þeir
Friedhelm Funkel, Hansa Rostock,
Werner Lorant, 1860 München,
Ewald Lienen, Köln, og Frank
Pagelsdorf, Hamburger SV. 260
þjálfarar hafa misst starf sitt í
þýsku fyrstudeildarkeppninni síð-
an hún hófst með núverandi fyr-
irkomulagi 1963.
ÍTALSKA liðið Lazio mun gera
allt til að fá Argentínumanninn Ju-
an Sebastián Verón á ný til liðs við
sig, en liðið seldi hann til Man. Utd.
sl. sumar. Verón var í heimsókn í
Róm á dögunum. Lazio er tilbúið að
láta Man. Utd. fá ítalska landsliðs-
manninn Alessandro Nesta í skipt-
um, auk þess að greiða peninga.
JUAN Sebastián Verón, 26 ára,
og fjölskylda hans, hafa ekki náð að
aðlagast lífinu í Manchester.
ÍRSKI landsliðsmaðurinn Lee
Carsley, sem Everton er að kaupa
frá Coventry á tvo milljarða ísl.
króna, mun leika með liðinu gegn
Arsenal um helgina.
ROBERT Lee, leikmaður með
Newcastle, er á leið til Derby og
mun þessi 36 ára miðjuleikmaður fá
peysu nr. sjö. Hann er annar leik-
maðurinn sem John Gregory, nýi
knattspyrnustjórinn hjá Derby,
kaupir á stuttum tíma – hinn er
Warren Barton, sem lék með Lee
hjá Newcastle.
ÍTALSKI sóknarleikmaðurinn
Benito Carbone hjá Bradford hef-
ur neitað að fara að láni til Middl-
esborough. Steve McClaren, knatt-
spyrnustjóri „Boro“, á í erfiðleikum
með að fá menn til liðs við sig – hef-
ur áður reynt að krækja í Andy
Cole, Dwight Yorke og Argentínu-
manninn Diego Forlan, sem fór til
Man. Utd.
PAOLO di Canio, 33 ára, ætlar
ekki að skrifa undir nýjan samning
við West Ham, eftir að núverandi
samningur hans við liðið rennur út í
sumar. Man. Utd. hætti við að
kaupa Di Canio á dögunum og hef-
ur hann hug á að fara á ný til Ítalíu.
BOLTON er að ganga frá samn-
ingi við danska landsliðsmanninn
Stig Tofting frá Hamburger SV í
gær – þessi 32 ára miðvallarleik-
maður, sem var Íslendingum erf-
iður á dögunum í Kaupmannahöfn,
mun skrifa undir samning til ársins
2004. Þá hefur Bolton hug á að fá
franska landsliðsmanninn Youri
Djorkaeff til liðs við sig, en hann
vill fá að hugsa málið nánar.
TOFRING hittir fyrir þrjá
danska leikmenn hjá Bolton, þá
Per Fradsen, Bo Hansen og Hen-
rik Pedersen.
CLAUDIO Caniggia, Glasgow
Rangers, er kominn á ný í lands-
liðshóp Argentínu. Þjálfarinn
Marcelo Bielsa kallaði á hann fyrir
leik gegn Wales, en Caniggia hefur
ekki leikið landsleik síðan 1996.
LEEDS er tilbúið að kaupa
Barry Ferguson, fyrirliða Glasgow
Rangers, og er sagt að David
O’Leary, knattspyrnustjóri Leeds,
sé tilbúinn með tilboð í hinn 24 ára
miðjumann – kaupverð 1,5 milljarð-
ar ísl. kr. Arsenal og Liverpool
hafa einnig sýnt Ferguson áhuga.
FÓLK
LÁRUS Orri Sigurðsson, knatt-
spyrnumaður hjá WBA, hefur tekið
ákvörðun um að vera úti í tvö ár til
viðbótar en hann hugðist flytja
heim í sumar ásamt fjölskyldu sinni
eftir margra ára dvöl erlendis í at-
vinnumennsku. Samningi Lárusar
við WBA lýkur í sumar en félagið
hefur lagt mikla áherslu á að halda
honum og hefur boðið honum að
framlengja samninginn. Lárus hef-
ur þegar hafnað tveimur tilboðum
frá WBA en í samtali við Morgun-
blaðið í gær sagði hann að samn-
ingaviðræður væru í gangi og
framhaldið ætti að skýrast fljót-
lega.
Lárus hefur átt góðu gengi að
fagna með WBA á leiktíðinni. Hann
hefur átt fast sæti í byrjunarliðinu
og einungis misst úr einn leik á leik-
tíðinni en þá tók hann út leikbann.
Lárus Orri verður
áfram hjá WBA
Næsta skref hjá okkur er aðkanna hvort fyrrgreind félög
hafi ótvíræðan áhuga á að taka sæti í
deildinni. Það er
stjórnarfundur hjá
KSÍ á morgun [í dag]
og þá þarf það að
liggja fyrir hvaða lið
tekur sæti Þróttar,“ sagði Halldór
ennfremur.
Í greinargerð sem aðalstjórn
Þróttar sendi út vegna óskar sinnar
um að vera dregin úr keppni í efstu
deild kvenna segir m.a.: „Stjórn
Þróttar skorar á KSÍ að fara vand-
lega yfir stöðu kvennaknattspyrn-
unnar. Stjórnin óttast að núverandi
fyrirkomulag þar sem örfá félög
draga til sín alla bestu leikmennina
og eru í algjörum sérflokki komi í
veg fyrir eðlilega uppbyggingu.
Ljóst er að taka verður málefni
kvennaknattspyrnunnar öðrum tök-
um en knattspyrnu karla eins og
sagan sýnir.“
Áhugi stúlkna er
minni en pilta
Halldór segir að margt sé hægt að
taka undir í bréfi Þróttar. „Þetta er
sennilega rétt lýsing á staðreynd-
um,“ segir Halldór. „Á liðnum árum
hef ég eytt miklum tíma að spá í
kvennaknattspyrnuna og skipulag
hennar. Það er ekki hægt að skipu-
leggja sig út úr svona vanda nema að
litlu leyti. Ef áhuginn fyrir knatt-
spyrnu kvenna væri nægur þá væri
fjölbreytnin meiri en nú er. Fram
hjá því verður ekki horft að mínum
dómi að áhugi stúlkna á knattspyrnu
er minni en áhugi pilta. Þar af leið-
andi hefur breiddin ekki verið næg í
kvennaknattspyrnunni. Vissulega er
hægt að hafa áhrif á þróunina en
áhrifin verða frekar minniháttar en
hitt. Þannig að margt af því sem
Þróttur segir í greinargerð sinni eru
staðreyndir sem margir höfðu áttað
sig á fyrr. Því má segja að sá sem
getur komið fram með lausnir á
þessum málum eigi skilið viðurkenn-
ingu,“ segir Halldór.
Þróttarar segja ennfremur í
greinargerð sinni að þeir telji ekki
tímabært að vera með keppnislið í
efstu deild þar sem leikmannahóp-
urinn sé ekki nægilega stór til þess
að takast á við verkefnið. Ennfremur
að félagið hafi ekki fjárhagslegt bol-
magn til þess að leita út fyrir land-
steinana eftir leikmönnum. Orðrétt
segir í greinargerð Þróttar: „Bilið á
milli 1. deildar og efstu deildar er
alltof stórt og innan deildarinnar er
getumunur milli liða einnig mikill.
Við það bætist að sterkustu liðin
draga til sín alla bestu leikmennina,
leikmenn sem kannski verma þar
varamannabekki en eru fyllilega
gjaldgengir í önnur lið í deildinni.
Stjórn Þróttar telur að afleiðingar
af þátttöku í efstu deild muni skaða
mjög þá uppbyggingu sem unnin
hefur verið í kvennaknattspyrnunni í
félaginu undanfarin ár, allt frá 6.
flokki og upp í meistaraflokk. Stjórn-
in óttast að meistaraflokkurinn muni
flosna upp í kjölfar þátttöku í efstu
deild, eins og raunin hefur orðið hjá
nokkrum félögum undanfarin ár.“
Eins og fram kemur hjá Þróttur-
um þá er þetta ekki í fyrsta sinn á
liðnum árum sem félag dregur sig úr
keppni í efstu deild kvenna áður en
keppnistímabilið hefst og oft hefur
illa gengið að fá lið í staðinn í deild-
ina, að sögn Halldórs.
Hrífst ekki af fækkun liða
„Það eru ekki mörg ár síðan lið
dró sig úr keppni og þriðja liðið sem
mótanefnd bauð þátttöku í staðinn
tók boðinu. Af þessu leiðir að keppni
í efstu deild verður ekki nógu jöfn,
mikið bil er á milli liðanna. Það þýðir
að ekki verður um nógu marga jafna
leiki að ræða sem landsliðskonur
þurfa á að halda,“ segir Halldór, sem
ekki hrífst af þeirri hugmynd að
fækka liðum í efstu deild. „Ég held
að það sé ekkert skemmtilegri
keppni þar sem liðin væru að mætast
margoft yfir sumarið. Menn verða
bara að láta reyna á núverandi fyr-
irkomulag og vonast eftir að fram-
farir verði í kvennaknattspyrnunni.
Að vissuleyti má segja að það hafi
hillt undir það á síðasta sumri þegar
fimm lið skáru sig úr í Símadeild
kvenna. Það er hins vegar ekki til
nein töfralausn sem leiðir til þess að
á einum til tveimur árum verði hægt
að fjölga þeim liðum sem eru sam-
keppnisfær við þau allra bestu hér á
landi,“ segir Halldór B. Jónsson.
KSÍ fellst á beiðni Þróttar, en óvíst er hver
tekur sæti í efstu deild kvenna í knattspyrnu
Það er engin
töfralausn til
„KSÍ hefur fallist á beiðni Þróttar um að kvennalið þess verði dregið
úr keppni í Símadeild kvenna næsta sumar. Nú liggur fyrir að
ákveða verður hvaða félagi verður boðin þátttaka í efstu deild í
staðin og þá eru það Haukar eða Þór/KA/KS,“ sagði Halldór B.
Jónsson, formaður mótanefndar KSÍ, um þá ósk aðalstjórnar Þrótt-
ar að draga kvennalið sitt úr keppni í efstu deild kvenna á næstu
leiktíð. Þróttur vann sér sæti í deildinni eftir einvígi við Hauka sl.
haust en Þór/KA/KS féll úr deildinni.
Eftir
Ívar
Benediktsson
Reuters
Fall er fararheill … gæti þessi skautamaður hafa hugsað þegar hann féll við æfingu í skautahöll-
inni í Salt Lake City, þar sem vetrarólympíuleikarnir verða settir í dag.
TAÍLENDINGURINN Praw-
at Nagvajara er alveg viss
um að hann muni koma síð-
astur í mark í 30 kílómetra
skíðagöngu á vetrarólymp-
íuleikunum í Salt Lake City,
en honum er nokk sama um
það. Nagavajara er 43 ára
gamall prófessor í tölv-
unarfræðum við Drexel-
háskólann í Bandaríkjunum,
verður fyrsti Taílending-
urinn til að keppa á vetraról-
ympíuleikum. „Vetrar-
íþróttir eru ekki algengar í
Taílandi. Ég kynntist skíða-
göngu þegar ég hóf nám í
Boston og hef síðan gengið
töluvert mér til skemmt-
unar,“ segir prófessorinn og
bendir á að þegar leikarnir
voru í Nagano hafi ekkert
verið fjallað um þá í Taí-
landi. „Ég verð örugglega
síðastur í mark en ég ætla
samt að ná viðunandi tíma,“
segir hann um þátttöku sína
í göngunni á vetrarleikunum.
Þar sem Taílendingar hafa
ekki lið sem tekur þátt í leik-
unum þurfti hann aðeins að
taka þátt í fimm alþjóðlegum
mótum til að komast á leik-
ana. „Það var fyrir þremur
árum sem mér datt í hug að
stefna á Ólympíuleikana – og
nú er ég kominn með keppn-
isnúmer og allt,“ segir kapp-
inn. Hann er kominn til Salt
Lake ásamt konu sinni og
tveggja ára syni, sem hann
segir að viti hvað á að gera
þegar pabbi keppir: „Áfram
Taíland, áfram!“
Verð
örugglega
síðastur