Morgunblaðið - 26.02.2002, Side 7
FIMLEIKAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 B 7
Björk Óðinsdóttir er ein efnileg-asta fimleikakona landsins.
Björk, sem er 13 ára, hefur sér-
stöðu meðal jafn-
aldra sinna í fim-
leikum að því leyti
að hún er búsett á
Akureyri og hefur
þar mikla yfirburði yfir aðrar fim-
leikastúlkur. Hún er því iðulega í
keppni við sjálfa sig og hefur að því
leyti dálítið aðra sýn á fimleikana
en stöllur hennar á höfuðborgar-
svæðinu.
„Ég hef æft fimleika frá því ég
var 8 ára en þá flutti ég til Akureyr-
ar frá Noregi,“ sagði Björk. „Ég
hef mjög góða þjálfara og stefni að
því að standa mig sem best í hverju
móti. Þetta er samt dálítið erfitt því
ég er sú eina sem er í þriðja þrepi
fyrir norðan. En ég hef reynt að
komast hingað suður eins oft og ég
get og fæ að æfa með Björkunum í
Hafnarfirði,“ sagði Björk.
„Ég stefni að því að komast í
landsliðið og vona að ég nái Sif
Pálsdóttur, en hún er mín fyrir-
mynd,“ sagði Björk og tók undir
orð blaðamanns um að það vantaði
fyrirmyndir fyrir fimleikastelpurn-
ar, líkt og Rúnar Alexandersson er
fyrir fimleikastrákana.
Erfitt að vera ein
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
STAÐA fyrir fimleika út um land
tti víða vera betri. Viðmælendur
ðamanns á bikarmótinu um helgina
u sammála um það. Guðrún Alda
ingsdóttir, móðir Bjarkar Óðins-
tur, og Anna Möller, framkvæmda-
ri Fimleikasambandsins sögðu að
rtur á þjálfurum stæði framþróun
leika á landsbyggðinni fyrir þrifum.
ðrún Alda, sem býr á Akureyri,
ti þó á að tilkoma Háskólans á Ak-
yri hefði verið til góðs hvað það
ðar. Fimleikaþjálfarar fyrir norðan,
m að öllu jöfnu hefðu haldið til fram-
haldsnáms til Reykjavíkur, hefji nú
nám fyrir norðan og nái því að miðla af
reynslu sinni til áhugasamra iðkenda.
Þá benti Anna Möller á að breytingar
hefðu verið gerðar á námsbraut fim-
leika í Íþróttakennaraháskólanum á
Laugarvatni þannig að útskrifaðir
íþróttakennarar hafa nú þekkingu til
að kenna fimleika. Þó er skortur á fim-
leikaþjálfurum hjá félögum úti á landi,
sem hafa áhuga á að taka upp fimleika-
kennslu, og benti hún á nokkur sveit-
arfélög sem dæmi um staði þar sem
vantar þjálfara til starfa.
Misjöfn aðstaða
á landsbyggðinni
Morgunblaðið/Jim Smart
Íris Ósk Egilsdóttir frá Akureyri.
Steinunn Thoroddsen, Stjörnunni, í æfingum á slá.
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Gerplu, Íslandsmeistari í 1. þrepi.
Sara Sif Sveinsdóttir, Íslandsmeistari í 3. þrepi.
ÉG var ekki alveg viss um að sigra en
onaði það innilega,“ sagði Gísli Ott-
sson úr Ármanni, sem var stigahæstur
Íslandsmótinu í þrepum, sem fram fór
sunnudeginum. Hann er 15 ára nemi í
Hagaskóla, hefur stundað fimleika í 7 ár
g æfir nú sex daga vikunnar, þrjá tíma í
enn. „Það er samt tími fyrir skólann en
ó mismikið. Næsta ár fer ég líklega í
menntaskóla og það verður þá eflaust
nn erfiðara en ég ætla samt að vera
áfram. Það er mikið um mót og ferðalög
í fimleikunum, sem er mjög gaman og ég
sé ekki eftir að hafa valið fimleika,“
bætti Gísli við og hefur hug á að keppa
líka á Íslandsmótinu í apríl. „Það getur
verið að maður keppi í einu áhaldi en fer
eftir því hvort þjálfarinn telur mig tilbú-
inn. Það þarf nokkrar sérkröfur í keppn-
ina þá en ég er alveg til í að keppa. Það
er mikið stress að keppa en mér finnst
það skemmtilegast.“
„Ennþá tími
fyrir skólann“
RÚNAR Alexandersson og Viktor
Kristmannsson voru ásamt Jóni
Trausta Sæmundssyni, Erlendi
Kristjánssyni og Róbert bróður
Viktors í sigurliði Gerplu á laug-
ardaginn. Rúnar hefur æft í Sví-
þjóð í nokkur ár og Viktor, sem er
17 ára, flutti þangað á síðasta ári.
„Ég ákvað að slá til, var alltaf að
tala um að fara og lét síðan verða
af því,“ sagði Viktor á laugardag-
inn. „Við æfum tvisvar á dag, einn
og hálfan tíma að morgni og síðan
allt að þrjá tíma eftir hádegi. Það
er líka þægilegra að æfa þarna,
ekki of margir, nokkrir svipaðir
og ég og svo er auðvitað gott að
hafa Rúnar,“ bætti Viktor við og
Rúnar tók undir það. „Það er gott
að hafa Viktor þarna, þá er ein-
hver til að halda manni við efnið,“
sagði Rúnar, sem kemur til Ís-
lands einu sinni til tvisvar á ári og
segist alltaf sjá einhverjar fram-
farir. „Þessir strákar, hvort sem
er í Ármanni eða Gerplu, eru allt-
af að gera eitthvað nýtt og ég sé
alltaf eitthvað. Sjálfur byrja ég að
keppa á mótum í lok mars eftir að
hafa eingöngu æft síðan í haust og
það verður mikið um mót fram á
næsta haust. Það er alltaf einhver
spenna í manni þegar keppni
hefst en svo venst það. Ég vona að
þetta verði gott ár en er samt ekki
í mínu besta líkamsformi þó að
þetta sé allt að koma en það er
sjaldnast alltaf allt í lagi,“ sagði
Rúnar.
En býst hann við að íslensku
strákarnir hafi betur um síðir?
„Vonandi ná þeir mér einn dag-
inn,“ sagði Rúnar og Viktor var
fljótur að taka undir það. „Ég býst
við að maður reyni að vinna hann
einn daginn og maður hefur þá að
einhverju að keppa.“
Rúnar
og Viktor
komu frá
Svíþjóð