Morgunblaðið - 26.02.2002, Side 12
MAGNÚS Ólafsson skoraði
þrennu fyrir KR-inga sem unnu
stórsigur á Stjörnunni, 7:1, í deilda-
bikarnum í Reykjaneshöll á sunnu-
daginn. Magnús hefur þar með skor-
að sex mörk í þremur fyrstu leikjum
KR í keppninni en eitt þeirra, gegn
Þór, strikast reyndar út þar sem KR
taldist hafa tapað 3:0 vegna ólöglegs
leikmanns.
FH lagði Íslandsmeistara ÍA, 3:2,
með mörkum Sigmundar Ástþórs-
sonar, Jónasar Grana Garðarssonar
og Jóhanns G. Möllers. Baldur Að-
alsteinsson og varnarmaður FH
skoruðu fyrir ÍA.
KA burstaði Grindavík 5:0 og hef-
ur farið mjög vel af stað í keppninni.
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson og
Elmar Dan Sigþórsson gerðu tvö
mörk hvor og Hreinn Hringsson eitt.
EYSTEINN Hauksson og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson léku með kín-
verska liðinu Xiang Xue í úrvals-
deildinni í Hong Kong um helgina
þegar lið þeirra gerði jafntefli, 3:3,
við Sun Hei. Eysteinn átti sláarskot
skömmu fyrir leikslok en Sun Hei
jafnaði með síðustu spyrnu leiksins.
ÞETTA var annar leikur Eysteins
og Vilhjálms eftir komuna til Kína
og í þeim fyrri fékk Xiang Xue einn-
ig á sig jöfnunarmark á síðustu sek-
úndunni.
GYLFI Einarsson skoraði eitt
þriggja marka Lilleström sem sigr-
aði AIK, 3:1 á norræna knattspyrnu-
mótinu á La Manga, og komst liðið
þar með í undanúrslitin. Gylfi kom
inná sem varamaður strax á 1. mín-
útu en Indriði Sigurðsson lék allan
leikinn.
VIKING gerði 1:1 jafntefli við
Halmstad frá Svíþjóð og lék Hannes
Þ. Sigurðsson 8 síðustu mínútur
leiksins fyirr Viking. Rosenborg og
rússneska liði Anji gerðu 4:4 jafn-
tefli. Árni Gautur Arason lék ekki í
marki Rosenborg sem hafði 4:1 for-
ystu þegar stundarfjórðungur var til
leiksloka.
VALA Flosadóttir sigraði í stang-
arstökki á opna danska meistara-
mótinu í frjálsum íþróttum um
helgina. Vala stökk hæst 4,30 metra.
SUNNA Gestsdóttir sigraði í lang-
stökki á mótinu. Hún stökk 5,97
metra sem er aðeins 6 sentimetrum
frá Íslandsmetinu sem hún setti á
dögunum.
FÓLK
KNATTSPYRNUSAMBAND
Íslands á í miklum erfiðleik-
um með að ná saman leik-
mannahópi fyrir Brasilíuferð-
ina en Ísland mætir sem
kunnugt er Brasilíu í vináttu-
landsleik í borginni Cuiaba
fimmtudaginn 7. mars. Reikn-
að hefur verið með því að ís-
lensku leikmennirnir í Noregi
yrðu kjarninn í liðinu en í
gærkvöldi hafði ekki einn ein-
asti þeirra fengist laus frá
sínu félagi.
Tíu íslenskir landsliðsmenn
leika í Noregi, þeir Andri Sig-
þórsson, Bjarni Þorsteinsson,
Ólafur Stígsson, Jóhann B.
Guðmundsson, Helgi Sigurðs-
son, Gylfi Einarsson, Indriði
Sigurðsson, Árni Gautur Ara-
son, Tryggvi Guðmundsson
og Marel Baldvinsson.
Deildakeppnin í Noregi hefst
ekki fyrr en um miðjan apríl
en norsku félögin eru samt
treg að láta þá af hendi.
„Ég vona að þetta mál leys-
ist farsællega því annars gæt-
um við lent í langvinnum deil-
um við Norðmennina, sem
yrði engum til góðs. Það hlýt-
ur að vera leikmönnunum til
góða að fara með okkur til
Brasilíu og æfa og spila á
grasi í stað þess að vera á
gervigrasi í Noregi á meðan,“
sagði Atli Eðvaldsson, lands-
liðsþjálfari, við Morgunblaðið
í gær.
Landsliðsmenn sem leika
annars staðar eiga ekki heim-
angengt en þó er möguleiki
að Heiðar Helguson fái sig
lausan frá Watford til að
spila. Landsliðið fer til Bras-
ilíu á sunnudaginn kemur, 3.
mars, og kemur aftur viku
síðar, 10. mars.
Það var enginn annar en AndyCole sem tryggði Blackburn
sigurinn með marki stundarfjórð-
ungi fyrir leikslok. Það var sæt
hefnd fyrir þennan fyrrum fram-
herja Manchester United því knatt-
spyrnustjóri Tottenham, Glen
Hoddle, vandaði Cole ekki kveðjurn-
ar þegar hann var við stjórnvölinn
hjá enska landsliðinu. Hoddle lét þá
hafa eftir sér að Cole þyrfti fimm
marktækifæri til að koma knettinum
í netið og Cole fékk fá tækifæri undir
hans stjórn.
Graeme Souness, stjóri Black-
burn, hrósaði Cole í hásterkt eftir
leikinn og hann mundi eftir orðum
Hoddles. „Ég lék með framherjum
eins og Ian Rush og Kenny Dalglis.
Ekki skoruðu þeir úr öllum færum
sem þeir fengu. Cole tryggði okkur
sigurinn og enn og aftur sýndi hann
hversu megnugur hann er. Ég trúi
ekki öðru en að Cole verði valinn í
enska landsliðshópinn sem leikur á
HM í sumar. Hann á það virkilega
skilið,“ sagði Souness. Skoski knatt-
spyrnustjórinn hrósaði sömuleiðis
bandaríska markverðinum Brad
Friedel sem að öðrum ólöstuðum var
besti maður vallarins. „Friedel var
hreint stórkostlegur í leiknum og ég
hef áður sagt að ég vildi ekki skipta á
honum og neinum öðrum markverði í
ensku úrvalsdeildinni.“
Matt Jansen kom Blackburn yfir á
25. mínútu en átta mínútum síðar
jafnaði Þjóðverjinn Christian Ziege.
Eftir að Cole skoraði annað mark
Blackburn lagði Tottenham allt í söl-
urnar en allt kom fyrir ekki. Friedel
sýndi stórkostleg tilþrif á milli
stanganna en á lokamínútunni urðu
dómara leiksins, Graham Poll, á
slæm mistök. Teddy Sheringham
var klárlega felldur í vítateignum en
Poll var ekki þeirrar skoðunar og
vildi meina að Sheringham hefði
reynt að fiska víti. „Ég ætlaði ekki að
trúa mínum eigin augum þegar ég
tók eftir því að Poll dæmdi ekki víta-
spyrnu. Þetta var vítaspyrna og ekk-
ert annað og ótrúlegt að svona
reyndur dómari skyldi hafa horft
framhjá þessu,“ sagði Sheringham.
Langþráð-
ur bikar til
Blackburn
ÞAÐ var söguleg stund hjá Blackburn þegar liðið fagnaði sigri í
ensku deildabikarkeppninni í knattspyrnu með því að bera sigurorð
af Tottenham, 2:1, í úrslitaleik sem leikinn var undir þaki þúsaldar-
vallarins glæsilega í Cardiff í Wales á sunnudag. Þetta var fyrsti sig-
ur Blackburn í bikarkeppni í heil 74 ár en síðasti titillinn sem liðið
vann var árið 1995 en þá hampaði Blackburn meistaratitlinum í
ensku úrvalsdeildinni.
Reuters
Graeme Souness, knattspyrnustjóri Blackburn, og Andy Cole,
sem skoraði sigurmark liðsins, með bikarinn. Norsku
félögin
erfið
ÍSLENSKA A-landsliðið í snóker
bar sigur úr býtum í Evrópu-
keppni landsliða í snóker sem
haldið var hér á landi um helgina.
Snókerspilarar frá 11 þjóðum í
Evrópu auk Íslendinga sendu lið
til keppni en spilarar frá „mekka“
íþróttarinnar, Bretlandi, voru ekki
með.
„Ef allt er með felldu og við spil-
um af eðlilegri getu eigum við að
sigra,“ sagði Kristján Helgason í
samtali við Morgunblaðið fyrir
mótið og hann reyndist sannspár.
Kristján, Brynjar Valdimarsson og
Jóhannes B. Jóhannesson, sem
skipuðu liðið, léku af miklu öryggi
og sigruðu alla andstæðinga sína,
flesta nokkuð sannfærandi. Í úr-
slitaleiknum höfðu Íslendingar
betur á móti Hollendingum en áð-
ur höfðu þeir lagt Þjóðverja að
velli í undanúrslitunum.
Íslendingar voru með þrjú lið á
mótinu en auk þeirra kepptu lið
frá Möltu, Hollandi, Frakklandi,
Gíbraltar, Ungverjalandi, Sviss,
Finnlandi, Póllandi, Austurríki,
Kýpur og Þýskalandi.
Þetta er í fjórða sinn sem Ís-
lendingar taka þátt í mótinu, sem
bar nafnið Continental Cup að
þessu sinni. Árið 1999 höfnuðu Ís-
lendingar í 5.-6. sæti, árið 2000
varð niðurstaðan 3.-4. sæti og í
fyrra biðu íslensku strákarnir
lægri hlut fyrir Hollendingum í
úrslitaleik en náðu nú að hefna
þeirra ófara.
Lið númer tvö frá Íslandi hafn-
aði í þriðja sæti í sínum riðli með 5
stig af 12 mögulegum og lið núm-
er þrjú náði sömuleiðis þriðja sæti
með 8 stig af 12 mögulegum.
Sannfærandi
sigur Íslands
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóhannes B. Jóhannesson, Brynjar Valdimarsson og Kristján Helgason.
Stúlkurnar í KA/Þór kræktu sérloks í stig í 1. deild kvenna í
handknattleik þegar þær sigruðu
FH á Akureyri í
gærkvöld, 24:20.
Staðan í leikhléi var
10:12 en heimastúlk-
ur voru mun
ákveðnari í seinni hálfleik og um leið
og þær komust yfir virtust þær finna
sigurbragð og þá varð ekki aftur
snúið.
Sigurbjörg Hjartardóttir varði
mjög vel í marki KA/Þórs, alls 17
skot og þar af 11 í seinni hálfleik. Þá
var Inga Dís Sigurðardóttir mun
grimmari en oftast áður og bæði
meiri gleði og barátta í liðinu en ver-
ið hefur. FH-stúlkur voru aftur á
móti frekar værukærar og misstu
leikinn úr höndum sér.
Hlynur Jóhannsson, þjálfari KA/
Þórs, sagði að stúlkurnar hefðu kom-
ist á bragðið þegar þær urðu bik-
armeistarar í unglingaflokki fyrir
rúmri viku. Andinn í þeim leik hefði
skilað þessum fyrsta sigri meistara-
flokksins í vetur.
Fyrstu
stigin hjá
KA/Þór
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar