Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA 4 B ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ  ÞÓRÐI Guðjónssyni var skipt út af á 70. mínútu í liði Preston þegar það lagði Rotherham, 2:1, á heima- velli.  HEIÐAR Helguson tók út leik- bann þegar Watford lagði Crystal Palace á útivelli, 2:0, á laugardaginn.  ÍVAR Ingimarsson lék allan tím- ann í vörn Brentford er liðið lagði Wrexham, 3:0, á útivelli í ensku 2. deildinni. Brentford er nú komið í 3. sæti í deildinni.  HELGI Valur Daníelsson kom inn á sem varamaður á 46. mínútu þegar lið hans, Peterborough, vann Col- chester, 3:1 í 2. deildinni ensku.  HELGI Kolviðsson lék allan leik- inn með Kärnten sem tapaði, 2:0, fyrir Rapid Wien í austurrísku úr- valsdeildinni.  STEFÁN Gíslason lék allan leik- inn með Grazer AK sem gerði jafn- tefli, 0:0, við Salzburg í sömu deild.  CELTIC heldur tíu stiga forskoti á Rangers í skosku úrvalsdeildinni eft- ir jafntefli, 1:1, í slag stórveldanna á sunnudaginn. Stilian Petrov kom Celtic yfir en Arthur Numan jafnaði fyrir Rangers með miklum þrumu- fleyg.  KNATTSPYRNUSAMBAND Evrópu, UEFA, tilkynnti fyrir helgi að heimaleikur Hapoel Tel Aviv frá Ísrael gegn AC Milan í UEFA-bik- arnum verði leikinn í Nikósíu, höf- uðborg Kýpur, fimmtudaginn 13. mars. Áður hafði verið ákveðið að hann færi fram á hlutlausum velli vegna stríðsástandsins í Ísrael.  FYRR í vetur hafði UEFA heim- ilað Hapoel að leika heimaleiki sína gegn Parma og Chelsea í keppninni á sínum heimavelli, þrátt fyrir ótryggt ástand í landinu. „Við mun- um meta ástandið frá leik til leiks,“ sagði Gerhard Aigner, fram- kvæmdastjóri UEFA.  LEIKMENN Hapoel hafa ekki far- ið varhluta af stríðsátökunum. Tveir þeirra, Yossi Abuksis og Asi Domb, voru staddir á veitingastað í Tel Aviv fyrr í þessari viku þegar palest- ínskur byssumaður réðst þar inn og banaði þremur Ísraelsmönnum. Knattspyrnumennina sakaði ekki.  TEITUR Þórðarson, knatt- spyrnustjóri Brann frá Noregi, mátti horfa upp á enn eitt tap sinna manna fyrir helgi. Brann beið þá lægri hlut fyrir Malmö frá Svíþjóð, 2:0, í æfingaleik á La Manga á Spáni. Þetta er sjöundi leikur Brann í röð án sigurs gegn liðum úr efstu deild- um í Noregi og Svíþjóð. FÓLK Leikmenn Fulham áttu mun meiraí leiknum, en leikmenn WBA áttu sína spretti og hefðu með heppni getað klórað í bakkann. Þetta er í fyrsta sinn í 27 ár sem Fulham kemst í undanúrslit ensku bikarkeppninnar, en andstæðingur liðsins í undanúrslitunum verður Chelsea með Eið Smára Guðjohnsen innanborðs. Gary Megson, knattspyrnustjóri WBA, var allt annað en ánægður með tapið og þá einkum hvernig sig- urmark Fulham bar að. Sendi hann mönnum sínum tóninn og sagði að þeir hefðu ekki verið með á nótunum þegar Fulham tók aukaspyrnuna. „Það eru vonbrigði að tapa með þess- um hætti fyrir vel skipuðu og dýru liði Fulham,“ sagði Megson. „Við lærðum sömu lexíuna í þessum leik og á móti Gillingham, Preston og Millwall fyrr í vetur. Hún er sú að ef menn eru ekki á tánum í vörninni þegar kemur að föstum leikatriðum þá fá þeir á baukinn,“ bætti Megson við. John Collins, miðvallarleikmað- ur Fulham, var í sjöunda himni. „Þessi sigur færir okkur skrefi nær bikarúrslitaleiknum,“ sagði Collins og lauk lofsorði á liðsmenn WBA, sagði þá hafa veitt Fulham verðuga keppni. „Við gátum ekki bókað sigur fyrr en dómarinn flautaði til leiks- loka. Leikmenn WBA héldu okkur við efnið allt þar til yfir lauk.“ McClaren var orðlaus „Ég vissi ekkert hvað ég átti að segja við menn í hálfleik, ég hef bara aldrei verið í þessarri stöðu áður,“ sagði Steve McClaren, knattspyrnu- stjóri Middlesbrough, eftir 3:0 sigur liðsins á máttlitlu liði Everton. Öll mörkin komu á sjö mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks og því staða liðsins býsna góð í hálfleik og óvenju- leg eins og glöggt má lesa út úr orð- um McClarens. Mörk „Boro“ skor- uðu Noel Whelan á 35. mínútu, Szilard Nemeth tveimur mínútum síðar og loks Paul Ince á 42. mínútu. Síðari hálfleikur var tilþrifalítill og Everton gerði fátt til þess að klóra í bakkann. Newcastle og Arsenal skildu jöfn, 1:1, í 8-liða úrslitum bikarkeppninn- ar á laugardaginn á St. James’ Park. Verða þau að mætast á nýjan leik til þess að fá úr því skorið hvort liðið glímir við Middlesbrough í undanúr- slitum. Sú viðureign fer fram á High- bury laugardaginn 23. marz. Mörkin tvö á St. James’ Park komu hvort í sínum hálfleiknum. Edu kom Arsenal yfir á 14. mínútu eftir fyrirgjöf frá Sylvain Wiltord en Laurent Robert jafnaði fyrir New- castle á 52. mínútu með skoti af 20 metra færi. Megson var ekki hress LÁRUS Orri Sigurðsson og samherjar urðu að bíta í það súra epli að falla úr ensku bikarkeppninn á sunnudaginn er WBA tapaði, 1:0, fyrir Fulham á útivelli. Lárus Orri kom mikið við sögu í WBA og þótti standa sig allvel, m.a. bjargaði hann liði sínu frá því að lenda undir í fyrri hálfleik er hann varði á marklínu. Eina mark leiksins skoraði Steve Marlet með skalla úr miðjum vítateig eftir sendingu úr auka- spyrnu sem tekin var rétt utan vítateigs eftir að Lárus Orri hafði gerst brotlegur. Lárus kom í humátt á eftir Marlet er hann skoraði sigurmarkið, en kom ekki við vörnum. Bayern með í baráttunni BAYERN München er enn með í baráttunni um þýska meistaratitilinn í knatt- spyrnu eftir sigur á ná- grönnunum, 1860 München, 2:1, á laugardaginn. Varn- armaðurinn Thorsten Fink skoraði sigurmark Bayern á síðustu mínútu leiksins en í lið meistaranna vantaði átta leikmenn sem ýmist voru meiddir eða í leikbanni. „Við vissum að eitt stig myndi duga okkur skammt, þá væru möguleikarnir á titlinum ekki miklir, og við náðum að knýja fram þetta sigurmark,“ sagði Oliver Kahn, fyrirliði og markvörð- ur Bayern. „Nú vita keppinautar okk- ar að við erum á lífi á ný, við erum með í baráttunni og þurfum að halda okkar striki og sjá til þess að hin liðin ótt- ist okkur,“ sagði Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern. Dortmund og Leverkusen unnu sína leiki og eru áfram í tveimur efstu sætunum. Hertha Berlín burstaði Hamburger SV, 6:0, og skor- aði belgíski miðjumaðurinn Bart Goor fjögur markanna. Eyjólfur Sverrisson sat á varamannabekknum hjá Herthu og kom ekki við sögu. AP Eiður Smári Guðjohnsen fagnaði tveimur mörkum fyrir Chelsea á sunnudaginn. Á myndunum þremur hér á síðunni til hliðar sést hann skora annað mark sitt – sendi knöttinn framhjá Neil Sullivan, markverði Tottenham. AP Eiður Smári Guðjohnsen á hér í höggi við enska landsliðsmanninn hjá Tottenham, Darren Anderton, í bikarleik á sunnudaginn. BERTI Vogts, landsliðs- þjálfari Skotlands, er að safna liði þessa dagana, en Skotar koma til Reykjavík- ur í undankeppni EM næsta haust og leika á Laugardalsvellinum. Fyrir helgina tilkynnti Gary McAllister að hann gæfi kost á sér í landsliðið og um helgina ræddi Vogts við Paul Lambert, miðvall- arleikmann hjá Celtic, og óskaði eftir kröftum hans. Lambert, 32 ára, ætlar að ræða við fjölskyldu sína og Martin O’Neill, knatt- spyrnustjóra Celtic, áður en hann gefur Vogts svar. Vogts ræddi við Lambert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.