Morgunblaðið - 12.03.2002, Blaðsíða 8
HANDKNATTLEIKUR
8 B ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
FYRIR leik Vals og Hauka á Ís-
landsmóti kvenna í handknattleik á
laugardag voru flutt stutt minningar-
orð um Ellert Sölvason, Lolla í Val,
fyrrverandi landsliðsmanns í knatt-
spyrnu, sem lést á föstudag. Að þeim
loknum risu áhorfendur úr sætum og
vottuðu minningu Lolla í Val virðingu
sína með stuttri þögn.
HALLDÓR J. Sigfússon, leik-
stjórnandi KA, fékk högg á nefið á 39.
mínútu leiksins við Aftureldingu á
laugardaginn. Skurður kom á nefið
en Brynjólfur Jónsson, læknir ís-
lenska landsliðsins, var á meðal
áhorfenda og saumaði hann skurðinn
saman í snatri. Halldór kom því að
nýju til leiks tíu mínútum síðar og lék
til leiksloka.
SÆVAR Árnason skoraði fimm
mörk fyrir KA í fyrri hálfleik gegn
Aftureldingu. Sævar skoraði öll
mörkin eftir hraðaupphlaup. Ekkert
þeirra þriggja marka sem hann skor-
aði í síðari hálfleik var úr hraðaupp-
hlaupi.
BJARKI Sigurðsson, leikmaður og
þjálfari Afttureldingar, skoraði sjö af
átta mörkum sínum í leiknum við KA
í síðari hálfleik, þá skoraði hann sjö af
tólf mörkum liðsins.
HEIÐMAR Felixson hefur greini-
lega ekki náð sér af axlarmeiðslum
sem hrjáðu hann fyrir áramót. Heið-
mar átti aðeins eitt skot á mark Aft-
ureldingar og það var með hægri
hendi eftir gegnumbrot. Heiðmar er
örvhentur og því ekki vanur að skjóta
með hægri hendi.
ATLI Hilmarsson, þjálfari KA, hef-
ur aldrei stýrt liðinu til sigurs á Aft-
ureldingu að Varmá og á því varð
engin breyting að þessu sinni þótt
litlu hafi munað. Atli hættir sem
kunnugt er í vor, en hann gæti fengið
eitt tækifæri enn hið minnsta til þess
að vinna að Varmá ef liðin mætast í
úrslitakeppninni.
EGIDDIUS Petkevicius, mark-
vörður KA, varði þrjú af átta víta-
köstum sem leikmenn Aftureldingar
fengu í leiknum. Félagi hans í marki
Aftureldingar, Reynir Þór Reynis-
son, varði hins vegar tvö af sex víta-
köstum leikmanna KA.
AFTURELDING nýtti 13 af 25
sóknum sínum í fyrri hálfleik og skor-
aði 12 mörk úr 22 sóknum í síðari hálf-
leik, sóknarnýting liðsins var því 53%.
Leikmenn KA nýttu helming sókna
sinna í fyrri hálfleik, þ.e. skoruðu 13
mörk úr 26 upphlaupum. Í síðar hálf-
leik skoruðu þeir 12 mörk í 22 sókn-
um. Sóknarnýtingin þar með 52% í
leiknum.
GÚSTAF Bjarnason skoraði 3
mörk fyrir GWD Minden er liðið gerði
jafntefli, 30:30, við Wallau Massen-
heim á útivelli í þýsku 1. deildinni í
handknattleik. GWD Minden er í átt-
unda sæti deildarinnar með 27 stig.
PATREKUR Jóhannesson var með
fimm mörk fyrir Essen í 36:27 sigri
liðsins á Bad Schwartau. Guðjón Val-
ur Sigurðsson gerði þrjú mörk fyrir
Essen í leiknum. Essen er nú í fjórða
sæti deildarinnar, hefur 34 stig,
tveimur stigum minna en Lemgo sem
trónir á toppnum. Nordhorn er með
35 stig og Kiel hefur 34 stig. Lemgo,
Nordhorn og Essen hafa leikið 23
leiki hvert félag en Kiel 22 leiki.
GYLFI Gylfason skoraði átta mörk
og Róbert Sighvatsson fjögur þegar
lið þeirra HSG Düsseldorf vann stór-
sigur, 37:18, á EHV Aue í suðurhluta
þýsku 2. deildarinnar í handknattleik
á sunnudaginn. Düsseldorf er í fjórða
sæti deildarinnar með 34 stig, átta
stigum færra en Östringen sem er á
toppnum.
GUNNAR Berg Viktorsson skor-
aði 2 mörk fyrir PSG í 23:22 sigri á
Créteil í frönsku 1. deildinni í hand-
knattleik. PSG er í 5. sæti deildarinn-
ar.
RAGNAR Óskarsson skoraði sjö
mörk úr 11 skotum þegar Dunkerque
vann Angers, 23:18, á útivelli í
frönsku 1. deildinni. Þar með er
Dunkerque í öðru sæti deildarinnar,
10 stigum á eftir Montpellier.
Fyrri hálfleikur einkenndist afgóðum varnarleik en þeim mun
slakari sóknarleik. Liðin skiptust á
um forystuna en
með því að skora tvö
síðustu mörkin fyrir
hlé tókst heima-
mönnum að jafna,
10:10. Síðari hálfleikur var framan af
í svipuðum dúr og sá fyrri en um
hann miðjan dró til tíðinda. Þá hrökk
Aleksandr í gang svo um munaði,
Valsmenn réðu ekkert við hann og
reyndu að setja hann í stranga gæslu
en það stóð stutt yfir. Þegar tæpar 8
mínútur voru til leiksloka hafði hann
skorað síðustu 7 mörk Gróttu/KR og
komið liðinu í 20:17 forystu og sig-
urinn var síðan í öruggri höfn.
„Mér fannst þessi leikur hafa allt
sem þarf í handknattleik; hasar, mik-
inn hraða, góðan varnarleik og góðar
sóknir í bland, sem sýnir að íslensk-
ur handknattleikur er í góðu lagi,“
sagði Ólafur Lárusson, þjálfari
Gróttu/KR, eftir leikinn. „Vörn okk-
ar stóð sig vel ásamt Hlyni í markinu
en við nýttum ekki nægilega okkar
möguleika á að fara í afgerandi for-
ystu. Við höfðum möguleika á að
komast í jafnvel fjögur mörk en vor-
um ekki alveg nógu yfirvegaðir.
Hinsvegar var ljóst að það myndi
smella saman fyrr eða síðar og það
gerðist þegar líða tók á leikinn. Þá
varð allt erfiðara fyrir Val því lengi
vel skiptust mörkin á að hafa yfir eitt
til tvö mörk en þegar þau verða þrjú
og stutt til leiksloka verður það til að
brjóta ísinn.“ Sem fyrr segir átti
Aleksandr mjög góðan síðari hálf-
leik. Hlynur Morthens og Atli Þór
Samúelsson voru einnig góðir.
„Við spilum ekki vel en erum samt
inni í leiknum og náum að komast yf-
ir,“ sagði Geir Sveinsson, þjálfari
Vals, þungur á brún eftir leikinn.
„Við erum tvö mörk yfir í seinni hálf-
leik og ég vildi þá sjá liðið fylgja því
eftir en í staðinn hleypum við þeim
aftur inn í leikinn og síðan gefumst
við upp í lokin. Það er alltaf slæmt að
tapa og mér fannst óþarfi að gera
það núna en í þessum leik eiga of
margir slakan dag og við höfum ekk-
ert efni á því.“ Lengi vel náði enginn
Valsari sér á strik. Ef einhverjir
gerðu það mætti helst nefna Bjarka
Sigurðsson og Snorra Stein Guð-
jónsson.
Grótta/KR lagði Valsmenn
SPENNAN var mikil þegar leið á leik Gróttu/KR og Vals á Seltjarn-
arnesi á sunnudaginn. Leikmenn voru á nálum og munaði aldrei
meira en tveimur mörkum. Það var því nokkuð víst að liðið, sem yrði
fyrra til og tækist að auka bilið, myndi öðlast sjálfstraust til sigurs
en hitt gerðist örvæntingarfullt. Sú varð raunin þegar Aleksandr
Petersons hóf að raða inn mörkum og átti mestan þátt í 23:21 sigri
Gróttu/KR.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Það var ljóst á fasi Valsstúlknafyrir leikinn að þær vildu gjarn-
an sýna að tap þeirra gegn KA/Þór
fyrir norðan í síðustu
umferð var að þeirra
mati slys, talsvert
meira byggi í liðinu
og nú var tækifæri til
að sýna það og sanna. En Haukar eru
ekkert lamb að leika sér við og þrátt
fyrir einbeittan vilja til góðra verka
áttu Valsstúlkur ekkert erindi í Hafn-
firðinga. Haukar náðu sjö marka for-
skoti í fyrri hálfleik og höfðu mest 13
marka forystu í síðari hálfleik. En
undir lok leiksins náðu Valsstúlkur að
minnka muninn. Þegar síðari hálf-
leikur var hálfnaður skipti Gústaf A.
Björnsson lykilleikmönnum útaf sem
varð til þess að Haukar skoruðu ekki
mark síðustu 14 mínútur leiksins en
Valur minnkaði muninn úr 16:29 í
24:29, sem urðu lokatölur leiksins.
Hrafnhildur Skúladóttir átti ágæt-
an leik í liði Vals í fyrri hálfleik og
skoraði þá 5 mörk en hún fann sig
ekki í þeim síðari en þá tóku þær
Árný B. Ísberg og Berglind Hans-
dóttir markvörður við merkinu. Árný
skoraði 6 mörk í síðari hálfleiknum og
var markahæst í liði Vals.
Hanna G. Stefánsdóttir kom
Haukum á bragðið í fyrri hálfleik
með virkilega góðum leik, Hanna G.
Stefánsdóttir og Thelma B. Árna-
dóttir unnu sig inní leikinn jafnt og
þétt og skiluðu góðu dagsverki.
Stjarnan heldur öðru sæti
Stórskemmtilegt lið ÍBV vann
öruggan og sanngjarnan sex marka
sigur á Stjörnunni, 20:26, í uppgjöri
þessara liða á sunnudag. Liðin berj-
ast um 2. sæti deildarinnar og með
þessum sigri eiga Eyjastelpur betri
möguleika á að ná því. Stjarnan held-
ur þó enn um sinn 2. sætinu í deild-
inni en liðið er nú með 21 stig eftir 15
leiki en ÍBV hefur 20 stig eftir 14
leiki.
„Þetta var gríðarlega mikilvægur
sigur fyrir okkur,“ sagði Dagný
Skúladóttir, leikmaður ÍBV, eftir
leikinn. „Ef við höldum haus og sigr-
um í þeim leikjum sem eftir eru í
deildinni þá eigum við 2. sætið víst og
það tryggir okkur heimaleiki í úr-
slitakeppninni. Það er góð stemmn-
ing í liðnu, erlendu leikmennirnir
hafa smollið vel inní liðið á ótrúlega
stuttum tíma og þetta er virkilega
gaman,“ sagði Dagný.
Það var ljóst á öllum tilburðum
Eyjastelpna allt frá byrjun að þær
ætluðu sér sigur og ekkert annað í
þessum leik. Einbeitingin skein úr
hverju andliti, leikmenn unnu vel
hver fyrir annan og skynsamur leikur
var dagskipunin. Þetta skilaði líka lið-
inu þægilegu forskoti strax í byrjun
leiks en þegar fyrri hálfleikur var
hálfnaður hafði liðið 4 marka forskot
sem það hélt út næstum allan hálf-
leikinn, Stjarnan skoraði síðasta
mark fyrri hálfleiks og í leikhéi var
staðan 10:13.
ÍBV hóf seinni hálfleikinn af mikl-
um krafti, skoraði fyrstu þrjú mörkin
og eftir aðeins 10 mínútur hafði liðið
náð 8 marka forskoti og ljóst var á
öllu að Stjarnan myndi ekki hafa það
sem þurfti til að brjóta niður slíkt for-
skot. Það var merkilegt að sjá hversu
lítil stemmning var í liði Stjörnunnar
og var eins og leikmenn hefðu enga
trú á því að þeir gætu lagt lið ÍBV að
velli. Af 26 sóknum liðsins í fyrri hálf-
leik, skoraði liðið aðeins 10 mörk en
fékk dæmt á sig sóknarbrot eða tap-
aði boltanum 9 sinnum. Ekki lagaðist
leikur Stjörnunnar í fyrri hluta seinni
hálfleiks en í fyrstu 13 sóknum liðsins
skoraði það aðeins 3 mörk en fékk
dæmt á sig sóknarbrot eða tapaði
boltanum 7 sinnum. Þetta nýttu
Eyjastúlkur sér vel og skoruðu 4
mörk á fyrstu 11 mínútum hálfleiks-
ins úr hraðaupphlaupum.
„Það er einkennilegt að það skuli
ekki vera rétt hugarfar í leik sem
þessum,“ sagði Siggeir Magnússon,
þjálfari Stjörnunnar. „ÍBV mætti
betur stemmt en við til þessa leiks og
þær voru betri á öllum sviðum. Vörn-
in virkaði alls ekki hjá okkur og leik-
menn gerðu ekki það sem lagt hafði
verið upp með fyrir leikinn. ÍBV náði
góðu forskoti í byrjun og það tekur á
að þurfa að elta og snúa slíkum leik
sér í hag,“ sagði Siggeir.
Teoclona Cisokate og Dagný
Skúladóttir léku best í heilsteyptu og
samheldnu liði ÍBV en hjá Stjörnunni
var Herdís Sigurbergsdóttir sú eina
sem sýndi sitt rétta andlit, hún skor-
aði 4 mörk og var eins og klettur í
vörninni.
Víkingastúlkur unnu sinn þriðja
leik í röð, er þær lögðu Gróttu/KR,
22:18.
FH átti ekki í vandræðum með
KA/Þór, 27:20.
Morgunblaðið/Ásdís
Anna Bryndís Blöndal, leikmaður Stjörnunnar, reynir hér að stöðva Eyjastúlkuna Theodoru Visockaile, sem skoraði átta mörk.
Haukar og Eyjastúlk-
ur komnar á fulla ferð
HAUKASTÚLKUR unnu öruggan fimm marka sigur á Val, 24:29, í 1.
deild kvenna í handknattleik á laugardag en þá fór fram 14. umferð
deildarkeppninnar. Með sigrinum festu Haukastúlkur sig enn frek-
ar á toppi deildarinnar. Hið stórskemmtilega lið Eyjastúlkna gerði
góða ferð í Garðabæ, þar sem þær fögnuðu sigri á Stjörnunni,
26:20. Haukar, Stjarnan og ÍBV eru í þremur efstu sætunum og eins
og liðin leika í dag koma þau til með að berjast um Íslandsmeist-
aratitilinn, eins og undanfarin ár.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar