Morgunblaðið - 12.03.2002, Síða 6
KNATTSPYRNA
6 B ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Að koma til Brasilíu slær öllu öðruvið hvað knattspyrnuna varðar.
Hún er íbúum landsins nánast heilög
og allir þeir sem við var rætt, hvort
sem þeir voru úti á gangi úti á götu,
vinna í verslunum eða götusalar töl-
uðu um knattspyrnuna beint frá
hjartanu.
Brasilía er sjötta fjölmennasta ríki
heims. Íbúafjöldi er um 173 milljónir
eða 629 sinnum fleiri en við Íslend-
ingar og þegar flatarmál landanna er
borið saman þá kemur í ljós að Bras-
ilía er 82 sinnum stærð Íslands.
Portúgalska er obinbert mál í landinu
en önnur algeng tungumál í landinu
eru þýska, ítalska, japanska og kór-
eska og á síðari árum hefur spænska,
enska og franska verið að breiðast út.
Það tók landsliðið 35 klukkustundir
að ná áfangastað í borginni Cuiabá.
Flogið var frá Keflavík til London og
eftir 11 klukkustunda bið í Englandi
var ferðiðinni haldið áfram til Sao
Paulo, næst fjölmennustu borg heims
en íbúafjöldinn er um 17 milljónir.
Eftir tveggja stunda stopp í flugstöð-
inni í SaoPaulo og stuttri millilend-
ingu í Capogrande lenti íslenski hóp-
urinn í Cuiabá, borg sem er 1.250 km
norðan við Sao Paulo og búa um
700.000 manns í borginni. Cuiabá er
hátt uppi í landinu, nálægt aðalregn-
skógum Brasilíu og aðeins 300 km frá
landamærum Bólivíu. Á þessum slóð-
um er hitinn að jafnaði mikill og þann
tíma sem landsliðið dvaldi í Cuiabá
fór hann aldrei undir 24 gráður og
mest fór hann upp í 38 stig. Við kom-
una í flugstöðina í Cuiabá tók mikill
fjöldi frétta- og blaðamanna á móti ís-
lenska liðinu og þar með var tónninn
gefinn um það sem koma skyldi. Í
mjög svo öflugri lögreglufylgd, sem
fygldi liðinu sem eftir var ferðinnar,
kom liðið á hótelið í Cuiabá. Þar fyrir
utan voru saman komnir enn fleiri
fjölmiðlamenn og fullt af öðru fólki
sem búið var að stilla sér upp fyrir
framan hótelið til að berja Íslend-
ingana augum.
Fjölmennt á æfingunum
Næstu dagar sem fóru í að und-
irbúa liðið fyrir átökin á móti Bras-
ilíumönnum voru svipaðir. Æft var
tvívegis á dag og í hvert skipti sem
liðið ferðaðist á milli hótelsins og vall-
arins var það ferjað á milli staða und-
ir miklu eftirliti lörgeglumanna á bif-
reiðum og mótorhjólum og þeirra
verk var að stöðva umferð og veita
rútbifreiðinni sem flutti liðið greiðan
aðgang um götur borgarinnar. Æf-
ingarnar voru frábrugðnar því sem
íslensku leikmennirnir eiga að venj-
ast. Hitinn var mikill og sólin sterk og
á hverri æfingu voru mættir sjón-
varps- og fréttamenn í tugatali. Ekki
var minni áhuginn hjá íbúum Cuiabá
því yfirleitt voru nokkur hundruð
manna mætt til að fylgjast með æf-
ingunum og ekki nema eðlilegt að
margir þeirra ungu stráka sem skip-
uðu íslenska landsliðshópinn hafi ver-
ið undrandi og nánast agndofa yfir
áhuga fólkisins, bæði á leiknum,
knattspyrnunni almennt og ekki síst
af ágangi íbúanna að fá að nálgast Ís-
lendingana.
Lögreglumennirnir báðu
um eiginhandaráritanir
Ekki hefur maður tölu á öllum
þeim eiginhandaráritunum sem ís-
lensku leikmennirnir gáfu í ferðinni
og undirritaður ásamt Arnari Björns-
syni, íþróttafréttamanni á Stöð 2,
voru ekki undanskildir. Hvert sem Ís-
lendingarnir fóru, hvort sem það var
fyrir utan hótelið á gangi niðri í bæ
eða á æfingum, komu elskulegir íbúar
Cuiabá að máli við eyjarskeggana úr
norðri og vildu fá þá til að rita nöfnin
sín og taka af þeim ljósmyndir. Fyrir
utan hótelið lét fólk sig ekki muna um
að bíða í margar klukkustundir til að
sjá leikmennina og fá hjá þeim eig-
inhandaráritanir og jafnvel lögreglu-
mennirnir, sem vöktuðu hótelið dag á
nótt, vildu fá nöfn Íslendinganna í
minnisbækur sínar. Ég man ekki eftir
að hafa upplifað annan eins hlýhug og
þó hef ég komið til margra landa. Við-
mót fólksins var einstaklega hlýtt og
flestir íbúar borgarinnar voru sér
meðvitandi um að landsliðið þeirra og
þjóðarstolt var að fara að mæta Ís-
lendingum í landsleik í knattspyrnu.
Upp til hópa eru Brasilíumenn ákaf-
lega myndarlegt fólk sem gefur mikið
af sér og er kurteisin uppmáluð. Áður
en haldið var af stað til Brasilíu átti
maður von á öllu og ekki síst að sjá fá-
tækt fólk á götum úti. En þá fimm
daga sem við Íslendingarnarnir
dvöldum í Cuiabá urðum við aldrei
varir við betlara á götum úti eða fólk
sem illa var til reika. Nánast hvert
sem var litið voru íbúarnir snyrtileg-
ir, alúðlegir og með bros á vör.
Tveir Íslendingar
mættu á leikinn
Með hverjum deginum sem nær
dró leiknum mátti vel greina á ís-
lensku leikmönnum að spennustig
þeirra fór vaxandi. Kannski ekki
nema von enda voru þeir að mæta
einu af stórveldum heims í knatt-
spyrnunni. Brassarnir eiga glæsilega
sögu á sviði knattspyrnunnar og
íþróttin er mörgum íbúum landsins í
blóð borin. Engri þjóð hefur tekist að
vinna heimsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu oftar en í fjórgang hefur titill-
inn hafnað í höndum Brasilíumanna,
síðast árið 1994 en einn liður í loka-
undirbúningi Brassanna fyrir þá
keppni, sem fram fór í Bandaríkjun-
um, var að mæta Íslendingum. Brass-
arnir sigruðu, 3:0, og voru nokkrum
vikum síðar krýndir heimsmeistarar.
Hvort þeir endurtaki það í Japan og
S-Kóreu í sumar skal ósagt látið, ger-
ist það held ég að víst megi telja að ís-
lenska landsliðinu verði boðið aftur til
leiks í sambalandinu að fjórum árum
liðnum.
Einum degi fyrir leik var spennan
farin að magnast. Öll blöð ásamt sjón-
varps- og útvarpsstövðum voru full af
efni um leikinn og eins og ávallt þegar
íslenska landsliðið leikur á erlendri
grundu voru mættir á leikstaðinn Ís-
lendingar sem ætluðu sér að fylgjast
með leiknum. Ólafur Ólafsson lagði á
sig 2000 km ferðalag frá Sao Paulo,
ásamt brasilískum félögum sínum, í
bifreið og tók ferð þeirra félaga tvo
daga. Hjalti Þór Guðmundsson var
mættur til Cuiabá frá Campogrande
en borgin er um 300 km frá Cuibaá.
Ólafur, sem er Kópavogsbúi, hefur
verið búsettur í Brasilíu í 5 ár og rek-
ur ásamt eiginkonu sinni leikskóla í
Sao Paulo. 100 nemendur á aldrinum
2–7 ára dvelja í skólanum sem er í
eigu Ólafs og eiginkonu hans og
starfsfólkið sem vinnur í skólanum er
um 20 manns. Hjalti Þór er skipti-
nemi og kemur frá Hafnarfirði. Hann
er búinn að vera í landinu í sjö mánuði
en flytur aftur heim í sumar.
Ólýsanleg stemmning
á vellinum
Stuðningur þeirra Ólafs og Hjalta
Þórs til íslensku leikmannanna á
áhorfendabekkjunum komst lítið til
skila á Estádio Jose Fragelli leik-
vanginum í Cuibaá. 50.000 manns
voru saman komnir á völlinn og
Byrjunarlið Íslendinga í leiknum á móti Brasilíumönnum á Estadío Jose
hannsson, Gunnlaugur Jónsson, Ólafur Örn Bjarnason, Baldur Aðals
vinstri: Einar Þór Daníelsson, Sævar Þór Gíslason, Árni Gau
Tveir Íslendingar voru á áhorfendapöllunum og reyndu að berjast á
móti 50.000 brasilískum áhorfendum. Til vinstri er Ólafur Ólafsson
sem hefur verið búsettur í Brasilíu í 5 ár og við hlið hans er Hjalti Þór
Guðmundsson sem hefur verið skiptinemi í Brasilíu í sjö mánuði.
Fimm nýliðar fengu að spreyta sig í leiknum. Hér eru þeir frá vinstr
mundur Steinarsson, Grétar Hjartarson, Grétar Rafn Steinsson og Þo
Íslensku landsliðsmennirnir í knattspyrnu,
sem dvöldust í Brasilíu í fimm daga í sl.
viku, kynntust því að knattspyrnan er
íbúum landsins hrein trúarbrögð og óhætt
er að segja að Mekka þessarar vinsælustu
íþróttagreinar heimsins sé í Brasilíu.
Guðmundur Hilmarsson, blaðamaður
Morgunblaðsins, fór með landsliðinu í
ævintýraferðina, sem seint mun gleymast
þeim sem í fóru.
Ævintýra-
för í Mekka
knattspyrn-
unnar