Vísir - 02.05.1980, Síða 3
3
sjonvarp
Föstudagur
2. mai
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Práöu leikararnirGestur
aö þessu sinni er söngvarinn
John Denver. Þýöandi
Þrdndur Thoroddsen.
21.05 Kastljós Þáttur um inn-
lend mdlefni. Umsjdnar-
maöur Ingvi Hrafn Jónsson.
22.10 Gróöur i gjósti (A Tree
Grows in Brooklyn) Banda-
ri'sk sjónvarpsmynd frá ár-
inu 1974, byggö á sögu eftir
Betty Smith.
Laugardagur
3. mai
16.30 tþróttirUmsjónarmaöur
Bjarni Felixson.
18.30 Fred Flintstone I nýjum
ævintýrum Nýr, bandarísk-
ur teiknimyndalokkur um
gamla kunningja, stein-
aldarmennina. Fyrsti þátt-
ur. Þýöandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
18.55 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Lööur Gamanmynda-
flokkur. Þýöandi Ellert
Sigurbjörnsson.
21.00 Þrjú lög frá Suöur-Ame-
riku Tania Maria og Niels
Henning Orsted Pedersen
leika. Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.20 Blóöugt er hljómfail f
dansi Heimildamynd um
skáldiö og söngvarann Lin-
ton Kwesi Johnson. Hann er
fæddur á Jamaica, en býr
nii i Lundúnum og yrkir
gjarnan um hlutskipti
svartra manna i þeirri borg.
Þýöandi Guöni Kolbeinsson.
22.05 ófullgert tónverk fyrir
sjálfspilandi pianó Rúss-
nesk biómynd frá árinu
1977, byggö á sögu eftir An-
ton Tsjékov.
Slónvarp kl. 22.05 ájaugardaglnn:
Ast. hatur.
sorg og gleði
í rússneskrl bíómynd frá 1974
„Þessi biómynd er byggö á
smásögu og leikriti eftir
Tsjékov. Ekki þori ég nú alveg
aö segja hvernig þessii er
blandaö saman. Mér skilst aö
hann hafi samiö leikrit er
heitir Olatonof. Þaö var eitt af
fyrstu leikritum hans og hefur
ekki veriö mikiö sýnt. Og
mynd þessi byggist á bæöi
þessu leikriti og einhverri
smásögu, sem hann geröi siö-
ar”, sagöi Hallveig Thorlacius
þýöandi rússneksrar bió-
myndar frá 1977, „Ófullgert
tónverk fyrir sjálfspilandi
pianó”, byggöri á sögu eftir
Anton Tsjékov.
Myndin segir frá, aö þaö er
sumardagur og gestkvæmt á
sveitarsetri önnu Petrovnu.
Meöal gestanna eru Platonof
og Sofia Égerovna. Þau höföu
elskast, meöan Platonof var i
háskóla. Þá höföu allir vænst
mikils af honum, en nú hefur
hann sest að i sveitinni, gerst
barnakennari og kvænst
Söshu, sem er af allt ööru
sauöahúsi en hann.
„Akaflega erfitt er aö segja
um hvaö leikrit Tsjékovs eru,
eins og allir vita sem hafa séö
þau eöa lesiö, þau eru svo
margslungin. Þessi mynd
lýsir mannlegum viöskiptum
af ýmsu tagi og allskonar til-
finningum, ást, hatri, sórg og
gleöi. — Mér finnst það eitt af
einkennum Tsjékovs eins og
kannski allra góbra rit-
höfunda, að þaö sem hann er
aö segja okkur meö leikritum
sinum á erindi viö okkur enn
þann dag i dag”, sagöi Hall-
veig.
„Myndin er afskaplega vel
leikin og ákaflega vel gerö,
allavega er ég mjög hrifin af
henni.”
Sýningin tekur eina klukku-
stund og 40 minútur.
—H.S.
Aöalleikarar myndarinnar á föstudagskvöldiö i hlutverkum
sinum, Cliff Robertson og Diane Baker.
SJónvarp kl. 22.10 á fdstudaglnn:
Gróður i gjósti
- Mynd um hagl fátækrar
frskrar fjdlskyidu
„Myndin segir frá f jölskyldu I New York I byrjun aldarinnar og f
henni eru tvö börn, þaö er tólf ára telpa og bróöir hennar, sem er
10 eöa 11 ára gamail. Foreldrarnir eru fátækir. Faöirinn er góöur
söngvari, en drykkfelldur og hefur ofan af fyrir sér og sfnum, meö
þvi aö ganga um beina og syngja f veislum og á knæpum”, sagöi
Rannveig Tryggvadóttir þyöandi bandariskrar sjónvarpsmyndar
frá árinu 1974, er ber heitiö „Gróöur I gjósti” (A tree grows in
Brooklyn).
„Sagt er frá fátækt þessarar
Irsku fjölskyldu og högum
hennar I stórborginni áriö 1912.
Einnig lýsir myndin örlögum
fööurins og hvernig vanda-
málin bjargast, J»*átt fyrir allt
andstreymiö.”
„Þaö er þessi tólf ára telpa
er segir frá og mjög llklegt er
aö myndin, sem er byggö á
samnefndri sögu Betty Smith,
sé aö einhverju leyti sjálfsævi-
saga höfundarins.
— Þaö sem rennir stoöum
undir þetta er, aö kennarinn er
látinn segja viö stúlkuna I
tlma aö mjög sennilegt sé aö
hún hafi rithöfundarhæfileika
og aö henni myndi ganga best
á þvl sviöi ef hún skrifaöi út
frá eigin reynslu”, sagöi
Rannveig.
1 helstu hlutverkum eru Cliff
Roberson og Diane Baker.
Sýningin tekur eina stund og
fimmtan mlnútur. —H.S.
i