Morgunblaðið - 16.04.2002, Page 2

Morgunblaðið - 16.04.2002, Page 2
ÍÞRÓTTIR 2 B ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK  INTER er í efsta sæti ítölsku knattspyrnunnar eftir 2:1-sigur á Brescia á sunnudaginn. Roma er næst, vann Parma 3:1, og Juventus er áfram í þriðja sæti eftir sigur á AC Milan, 1:0. Danski miðjumaður- inn Martin Laursen skoraði sjálfs- mark sem réð úrslitum í þeim leik.  FIORENTINA féll úr ítölsku 1. deildinni á sunnudaginn en aðeins 7 þúsund áhorfendur mættu til að sjá liðið tapa, 1:0, fyrir Lazio.  VALENCIA náði forystunni í spænsku 1. deildinni með því að gera jafntefli, 1:1, við Mallorca á Miðjarðarhafseynni á laugardag- inn. Ruben Baraja skoraði fyrir Valencia, jafnaði í seinni hálfleikn- um.  REAL Madrid átti möguleika á að ná tveggja stiga forystu en tapaði óvænt fyrir Osasuna, 3:1. Ivan Helguera hjá Real var rekinn af velli í lok fyrri hálfleiks.  ROY Makaay skoraði tvívegis fyrir Deportivo La Coruna og Diego Tristan einu sinni þegar liðið vann Espanyol, 3:1. Deportivo er þar með komið í baráttuna á ný, tveimur stigum á eftir Valencia.  ALDO Duscher, miðjumaður De- portivo sem var valdur að meiðslum Davids Beckhams í síðustu viku, óskaði eftir því að leika ekki með liði sínu um helgina.  JAVIER Saviola skoraði tvö mörk fyrir Barcelona sem sigraði Alavés, 3:2.  JÓHANNES Karl Guðjónsson lék síðustu 13 mínúturnar með Real Betis þegar liðið tapaði, 2:1, fyrir Tenerife á Kanaríeyjum á sunnu- daginn.  ROY Hodgson skrifaði á laugar- daginn undir tveggja ára samning sem landsliðsþjálfari Sameinuðu arabísku furstadæmanna í knatt- spyrnu. Hodgson er þrautreyndur þjálfari en hefur verið atvinnulaus síðan í desember þegar honum var sagt upp störfum hjá Udinese á Ítalíu.  MARTIN Max, hinn 33 ára gamli sóknarmaður 1860 München, var á sunnudag kallaður inn í landsliðs- hóp Þýskalands fyrir vináttulands- leik gegn Argentínu í næstu viku. Max skoraði tvívegis í sigri 1860 á Freiburg, 5:2, á laugardaginn og er markahæstur í 1. deildinni með 16 mörk og hefur samtals gert 43 deildamörk fyrir félagið síðustu þrjú tímabil.  RUDI Völler, landsliðsþjálfari Þýskalands, er í miklum vandræð- um þar sem helstu sóknarmenn landsliðsins eru ýmist meiddir eða í lægð. Oliver Neuville og Marco Bode meiddust báðir um helgina. Völler segir að Max verðskuldi tækifærið því hann hafi sýnt mikinn stöðugleika og skori jafnt og þétt.  NILS Arne Eggen tilkynnti í gær að hann myndi hætta sem þjálfari norsku meistaranna í Rosenborg eftir þetta tímabil. Åge Hareide, sem sagði starfi sínu lausu hjá Bröndby í Danmörku í gær, var þegar orðaður við stöðuna og sagði við norska fjölmiðla að hann gæti vel hugsað sér að taka við Rosen- borg.  KLAUS Toppmöller, þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Leverku- sen, vill fá Brasilíumanninn Kaká til liðs við sig fyrir næsta tímabil en hann leikur með liði Sao Paulo. Kaká, sem skoraði eitt af sex mörk- um Brasilíumanna í 6:1-sigri á Ís- lendingum í síðasta mánuði, er mið- vallarleikmaður og sér Toppmöller hann fyrir sér sem arftaka Michaels Ballacks en hann gengur í raðir Bayern München í sumar.  DEMETRIO Albertini, miðvallar- leikmaður AC Milan, meiddist á há- sin í leik með liði sínu á móti Juven- tus um helgina. Við læknisskoðun í gær kom í ljós að leikmaðurinn þarf að gangast undir uppskurð og leik- ur hann því ekki með ítalska lands- liðinu á HM í sumar. Guðlaug meiddist GUÐLAUG Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, fór meidd af velli eftir aðeins 20 mínútur þegar lið hennar, Bröndby, vann Hors- ens, 1:0, á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Hún varð fyrir meiðslum í læri og óvíst er hvort hún geti leikið með liðinu í kvöld þegar það mætir Vejle í undanúrslitum bikarkeppninnar. Bröndby hefur unnið alla leiki sína eftir vetrarfríið og fylgir Fort- una fast eftir í toppbaráttunni. Fortuna vann Erlu Hendriksdóttur og stöllur hennar í FV Köbenhavn, eins og lið hennar heitir núna, 2:1. Andri Sigþórsson skoraði fyrstamark norsku úrvalsdeildar- innar í knattspyrnu á þessu ári. Andri skoraði eftir 13 mínútna leik þegar Molde sigraði Brann, 2:0, í opnunarleik deildarinnar á laug- ardagskvöldið – fylgdi vel á eftir þegar markvörður Brann hélt ekki boltanum eftir aukaspyrnu frá Karl Oskar Fjörtoft. „Andri er mjög góður fyrir framan markið. Hann þefar uppi svona marktækifæri og er yfirveg- aður í vítateignum,“ sagði fyrirlið- inn Daniel Berg Hestad við Verd- ens Gang eftir leikinn. Andri var orðinn heill í tæka tíð fyrir leikinn en tvísýnt var hvort hann gæti hafið tímabilið með Molde eftir að hann meiddist á öxl í æfingaleik fyrir skömmu. Þetta var fyrsti leikur hans eftir það. Andri fór af velli 20 mínútum fyrir leikslok en skömmu síðar komu bæði Ólafur Stígsson og Bjarni Þorsteinsson inn á sem varamenn hjá Molde. Báðir léku þeir sinn fyrsta deildaleik fyrir félagið en Bjarni missti mikið úr í fyrra vegna meiðsla og náði aldrei að spila með Molde í deildakeppninni. Lilleström vann Viking, 2:0, og þar lék Indriði Sigurðsson allan leikinn með Lilleström og Gylfi Einarsson síðustu 7 mínúturnar. Gylfi náði að spila þrátt fyrir handleggsbrotið sem hann varð fyrir á dögunum. FH-ingarnir ungu, Davíð Þór Viðarsson hjá Lilleström og Hannes Þ. Sigurðs- son hjá Viking, komu ekki við sögu í leiknum. Óvænt tap Rosenborg á heimavelli Meistarar Rosenborg töpuðu óvænt á heimavelli fyrir Odd Grenland, 1:0, og þetta er í fyrsta skipti sem félagið tapar fyrsta heimaleiknum frá því það hóf að spila á Lerkendal-leikvanginum í Þrándheimi fyrir 17 árum. Árni Gautur Arason lék í marki Rosen- borg en hafði lítið að gera. Lyn vann Bryne, 1:0, á útivelli. Jóhann B. Guðmundsson lék með Lyn en fór af velli á 77. mínútu. Helgi Sigurðsson er frá vegna meiðsla. Stabæk gerði jafntefli við Start á útivelli, 1:1. Tryggvi Guðmunds- son lék allan leikinn með Stabæk og Marel Jóhann Baldvinsson síð- asta hálftímann. Ljósmynd/Verdens Gang Andri Sigþórsson skoraði fyrsta mark leiktíðarinnar í Noregi þegar Molde mætti lærisveinum Teits Þórðarsonar hjá Brann. Hér er Andri að kljást við Knut Walde, varnarmann Brann, í leiknum. Andri skoraði fyrsta mark tímabilsins ÍSLENSKIR skylmingamenn náðu góðum árangri á Norð- urlandamótinu í skylmingum með höggsverði sem haldið var í Helsinki um helgina. Guðrún Jóhannsdóttir varð í öðru sæti í opnum flokki kvenna eftir að hafa tryggt sér gull í kvennaflokki. Sig- ríður María Sigmarsdóttir sigraði í unglingaflokki kvenna og varð önnur í kvennaflokki. Andri Heiðar Kristinsson stóð uppi sem sig- urvegari í unglingaflokki karla eftir að hafa mætt Hróari Hugossyni í viðureign um gullið. Hróar varð því annar og tvöfaldur íslenskur sigur því staðreynd. A-lið Íslands sigraði í liða- keppninni þar sem A-sveit Finna varð önnur og B-sveit Íslands tókst að krækja í bronsið. Skylmingafólkið kemur því heim með fjögur gull, þrjú silfur og eitt brons. Næst fer Norðurlandamótið fram hér á landi eftir tvö ár. Skylminga- menn stóðu í ströngu á NM í Helsinki ÖRN Arnarson, sundmaður úr Hafnarfirði, bætti um helgina eigið Íslandsmet í 50 m baksundi á Opna Sjálands- mótinu í Danmörku um helgina. Örn kom fyrstur í mark á 26,32 sek., og bætti eigið met um 55/100 úr sek- úndu, en það var sett á Evr- ópumeistaramótinu í 50 m laug í Helsinki sumarið 2000. Örn vann einnig 200 m bak- sund á 2.01,43 mínútum og vann með miklum yfirburð- um, var 7 sekúndum á undan næsta keppanda. Einnig sigr- aði Örn í 100 m baksundi á 55,71 sek. og hreppti annað sæti í 50 m skriðsundi á 23,66. Lára Hrund Bjargardóttir, SH, tryggði sér farseðilinn á Evrópumeistaramótið í 50 m laug í Berlín í sumar er synti 200 m skriðsund á 2.06,78 mínútum. Þá hlaut Lára sjö- unda sætið í 100 m skriðsundi á 1.00,58 mín. Lára varð þar með fimmti íslenski sund- maðurinn sem nær lágmarki fyrir EM, hinir eru Örn, Jak- ob Jóhann Sveinsson, Hjörtur Már Reynisson og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir. Íris Edda Heimisdóttir, ÍRB, varð önnur í 200 m bringusundi á 2.38,26 og hlaut fimmta sætið í 50 m bringusundi á 35,01 sek. Jón Oddur Sigurðsson, ÍRB, kom þriðji í mark í 200 m bringusundi á 2.27,50 og varð annar í 50 m bringu- sundi á 29,64. Í því sundi varð Guðlaugur Guðmundsson, ÍRB, áttundi á 30,41. Jón Oddur sigraði í 100 m bringusundi á 1.06,03 en Guðlaugur varð fimmti á 1.09,78. Í 100 m flugsundi kvenna kom Sigurbjörg Gunn- arsdóttir, ÍRB, sjöunda í mark á 1.08,83 og Magnús Jónsson, ÍRB, hreppti sjötta sætið í 200 m fjórsundi á 2.19,17. Íslands- met hjá Erni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.