Morgunblaðið - 16.04.2002, Side 4

Morgunblaðið - 16.04.2002, Side 4
HANDKNATTLEIKUR 4 B ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ  STUÐNINGSMENN ÍR gerðu hróp að Ólafi Birni Lárussyni, þjálf- ara Gróttu/KR, þegar hann gekk til búningsklefa í leikslok. Kölluðu hann öllum illum nöfnum og kváðu hann hafa sýnt óíþróttamannslega framkomu undir lok leiksins. Ein- hverjir leikmanna Ólafs svöruðu stuðningsmönnunum fullum hálsi og var þessi uppákoma engum aðila til framdráttar né sóma.  EKKI var laust við að Stefán Arn- aldsson og Gunnar Viðarsson, dóm- arar í leik Gróttu/KR og ÍR, væru fegnir því þegar óánægja stuðnings- manna ÍR beindist að varamanna- bekk og jafnvel tímavarðaborðinu í stað þess að beinast að dómurunum eins og oft vill verða í leikjum sem þessum.  STUÐNINGSMENN ÍR fullyrtu við blaðamann í leikslok að þeir hefðu séð varamenn Gróttu/KR rúlla bolta inn á völlinn þegar skammt var til leiksloka og knýja þannig fram truflun á leiknum. Ef satt reynist er þetta óþverraleikur og liðinu sannarlega ekki til sóma.  BJARNI Fritzson, hornamaður ÍR, sleit liðbönd í ökkla í leiknum við Gróttu/KR á laugardaginn og leik- ur væntanlega ekki með liðinu í úr- slitakeppninni sem hefst á morgun. Þá mæta ÍR-ingar Aftureldingu á Varmá.  SEBASTIAN Alexandersson, markvörður Fram, var í sóknarham á móti Stjörnunni á laugardaginn. Hann skaut einu sinni þvert yfir völlinn en það skot var varið. Seb- astian tók síðan vítakast, sem hann skoraði úr.  JÓN BJÖRGVIN Pétursson lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Fram á laugardaginn og skoraði 3 mörk.  ÞÝSKA handboltafélagið Tusem Essen hefur gert samning við sænska markvörðinn Jesper Lars- son til ársins 2005. Larsson leikur með Nordhorn en ætlar sem sagt að skipta fyrir næsta tímabil. Með Ess- en leika Íslendingarnir Patrekur Jóhannesson, sem er fyrirliði liðs- ins, og Guðjón Valur Sigurðsson.  RÓBERT Julian Duranona skor- aði 7 mörk fyrir N-Lübbecke sem tapaði, 26:25, fyrir Altenholz í norð- urriðli þýsku 2. deildarinnar í hand- knattleik. N-Lübbecke missti þar með efsta sætið í hendur Wilhelms- havener, en er stigi á eftir og á leik til góða.  RÓBERT Sighvatsson skoraði 4 mörk og Gylfi Gylfason tvö þegar lið þeirra Düsseldorf vann SV Con- cordia Delitzsch, 27.26, í suðurhluta þýsku 2. deildarinnar í handknatt- leik á sunnudaginn. Düsseldorf er í 5. sæti deildarinnar og á nær enga möguleika á að komast í aukaleiki um sæti í efstu deild á næstu leiktíð.  HARALDUR Þorvarðarson var ekki á meðal þeirra sem skouðu fyr- ir Stralsunder er liðið vann Biele- feld, 33:24, í norðurhluta þýsku 2. deildarinnar í handknattleik. Stral- sunder er í 7. sæti deildarinnar.  RAGNAR Óskarsson skoraði 3 mörk fyrir Dunkerque sem vann ACBB, 29:23, í frönsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Dunker- que er í þriðja sæti með 54 stig en fyrir ofan eru Montpellier með 64 stig og Chambéry með 55.  GUNNAR Berg Viktorsson skor- aði sömuleiðis 3 mörk þegar lið hans, París SG, vann Livry-Gargan, 33:23. París SG er í fjórða sæti með 50 stig.  HILMAR Þórlindsson skoraði fimm sinnum fyrir Modena er það lagði Rubiera, 28:27, ítölsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Modena er í 8. sæti í deild- inni með 37 stig.  GUÐMUNDUR Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður í handknatt- leik, var að vanda í marki Papillon þegar það lagði Cus Ancona, 24:23 í ítölsku 1. deildinni. Papillon er í fjórða sæti deildarinnar með 50 stig. FÓLK Selfyssingar mættu til leiks gegnFH-ingum afslappaðir enda áttu þeir enga möguleika á að kom- ast í úrslitakeppnina. Nokkurrar tauga- spennu gætti hins vegar í herbúðum FH-inga sem rekja mátti til þeirrar stöðu sem liðið var í fyrir leikinn en ekkert nema sigur dugði FH-ingum til að komast í úr- slitakeppnina. FH-ingar voru lengi að hrista Sel- fyssinga af sér og það var ekki fyrr en heimamenn ákváðu að setja mann til höfuðs Robertas Pauzuolis seint í síðari hálfleik að í sundur dró með liðunum. Lokakaflinn var algjör eign FH-inga, þeir skoruðu 10 mörk gegn 2 og unnu öruggan sjö marka sigur en Selfyssingar gáfust hreinlega upp á lokakafla leiksins. Hinn útsjónarsami Björgvin Rún- arsson lék best FH-inga og það var ekki síst fyrir góðan leik hans í síðari hálfleik sem FH-ingar sigu fram úr. Valur Arnarson lék einnig vel sem og Jónas Stefánsson en hann átti góða innkomu í markið og varði mörg opin færi gestanna. Í liði Selfyssinga báru tveir menn liðið uppi. Pauzuolis var FH-ingum sérlega erfiður og skoraði hvert glæsimarkið á fætur öðru og Hannes Jón Jónsson var seigur að koma knettinum í mark FH-inga með hnitmiðum smuguskotum. „Fyrsta markmiðið var að komast í úrslitin og við tökum því sem að höndum ber. Við förum óhræddir í leikina við Hauka. Pressan verður augljóslega á Haukunum. Þeir eru með sterkara lið enda Íslands-, bik- ar- og deildarmeistarar en ég held samt að við höfum leiðir til að vinna þá og það styttist í sigurleikinn,“ sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari FH, við Morgunblaðið eftir leikinn. FH og Haukar áttust við í báðum deildarleikjunum í síðasta mánuði og þar fögnuðu Haukar sigri, fyrst í Kaplakrika með eins marks mun og síðan á Ásvöllum með tveggja marka mun. „Ég neita því ekki að ég hefði kosið að fá aðra mótherja en Hauka í 8 liða úrslitunum. Ég hefði viljað mæta Val þar sem stuttur tími er liðinn síða við lékum tvo erfiða leiki við Hauka. Það sýndi sig í leikjunum við Hauka að okkur skorti kjark og trú til að geta unnið en ef okkur tekst að berja þessa hluti í okkur þá höfum við vissulega getuna til að leggja Hauk- ana að velli. Það er ljóst að bærinn fer í uppnám aftur og ég veit að það er mikil tilhlökkun hjá öllum Hafn- firðingum fyrir þetta einvígi,“ sagði Guðmundur en eins og menn rekur í minni til gerði hann Hauka að Ís- landsmeisturum fyrir tveimur árum. Æsingur á Seltjarnarnesi Leikmenn Gróttu/KR tryggðu sér4. sætið í 1. deild karla í hand- knattleik á laugardag, 24:23, þegar þeir tóku á móti ÍR í lokaumferð deildar- innar. Fyrir leikinn var ÍR í 4. sæti, en Grótta/KR í 5. sæti svo ljóst var að um hörkuleik yrði að ræða á milli þessara liða. Sú varð enda raunin og voru lokamínútur leiksins einkar magnaðar. Aleksander Petersons var hetja Gróttu/KR, hann var tekinn úr um- ferð allan síðari hálfleikinn en náði að rífa sig lausan og skora tvö virki- lega mikilvæg mörk á lokamínútum leiksins. Þegar tæpar tvær mínútur voru til leiksloka höfðu heimamenn í Gróttu/KR tveggja marka forskot 23:21, en ÍR-ingar voru ekki hættir og þeir Fannar Þorbjörnsson og Sturla Ásgeirsson skoruðu tvö mörk úr hraðaupphlaupum og jöfnuðu leikinn þegar ein mínúta lifði af leiknum. Grótta/KR tók leikhlé og lagt var upp með það að spila langa sókn og tryggja sigurinn. Aleksand- ers Petersons losnaði úr gæslu Kristins Björgúlfssonar og skoraði með laglegu undirhandarskoti. ÍR- ingar höfðu aðeins 19 sekúndur til að jafna leikinn og tryggja sér þar með 4. sætið, en þegar um 10 sekúndur voru eftir rúllaði bolti inn á völlinn, að því er virtist frá varamannabekk Gróttu/KR inga, leikurinn var stöðv- aður og upphófst mikið japl, jaml og fuður um það hver hefði sent boltann inn á. Ólafur Björn Lárusson, þjálf- ari Gróttu/KR, var einn hinna grunuðu og fékk hann að heyra það óþvegið frá starfsmönnum ÍR-liðsins og stuðningsmönnum þeirra. Ólafur gerði hins vegar það eina rétta í stöð- unni, bakkaði út úr mesta hasarnum með bros á vör, en það varð þó ekki til að draga úr æsingi þeirra Breið- hyltinga. Aðspurðir í leikslok sögð- ust dómarar leiksins ekki geta sagt til um hvaðan boltinn kom, enda gerðu þeir það eitt sem lögin segja til um, stöðvuðu leikinn og tímann, fjar- lægðu boltann og hófu leik að nýju. Þessi truflun á leiknum hafði óum- deilanlega áhrif á möguleika ÍR-inga til að stilla upp í góða sókn og ná að jafna leikinn enda þurftu þeir að byrja að nýju og höfðu nú aðeins 7 sekúndur til að ljúka sókninni í stað 19 sekúndna áður. Heimamenn fögn- uðu hins vegar góðum sigri og heimaleikjarétti í fjórðungsúrlitun- um þar sem þeir mæta KA en ÍR- ingar féllu niður í sjötta sætið og sækja Aftureldingu heim í Mos- fellsbæinn. Petersons var allt í öllu hjá Gróttu/KR í fyrri hálfleiknum og var liðinu virkilega mikilvægur á loka- mínútunum. Þá kom Dainis Tarak- anovs sterkur inn í síðari hálfleikinn. Hreiðar L. Guðmundsson, mark- vörður ÍR, var bestur í liði Breið- hyltinga ásamt Erlendi Stefánssyni. Stórleikur Þórs tryggði sætið Þórsarar áttu sannkallaðan stór-leik þegar þeir rúlluðu yfir Aft- ureldingu í lokaumferðinni og tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni. Lyktir leiksins urðu 35:27 og þessi mar- kamunur færði Þór 7. sætið á kostnað FH sem endaði í því áttunda. Þórsarar mæta því Val í úrslitakeppninni en Afturelding hélt 3. sætinu og tekur á móti ÍR. Athygli vekur að nýliðar Þórs skoruðu flest mörk í deildinni, 759 talsins eða ríf- lega 29 mörk í leik að meðaltali. „Ég sagði við strákana að vetur- inn væri ónýtur ef við ynnum ekki þennan leik því níunda sætið væri í rauninni jafn slæmt og það fjór- tánda. Þeir börðust af krafti frá fyrstu mínútu og ég er mjög stoltur af þeim. Við þurfum svona baráttu í hverjum einasta leik því hópurinn er ekki stór. Næst eru það Valsmenn og mér líst bara vel á það. Við gerðum jafntefli við þá í báðum leikjunum í vetur og þetta gæti því orðið spenn- andi rimma,“ sagði Sigurpáll Árni Aðalsteinsson, þjálfari Þórs. Óhætt er að segja að Þórsarar hafi mætt grimmir til leiks. Þeir komust í 6:2 en Afturelding nýtti sér vel að vera einum fleiri og staðan var 7:6 eftir 13 mín. leik. Eftir það skildi leiðir. Staðan í leikhléi var 17:13 og munurinn á liðunum var aldrei minni en 3 mörk þannig að segja má að Þór hafi haft nokkra yfirburði. Þórsarar léku flata en hreyfanlega vörn lengst af og Mosfellingar kom- ust lítt áleiðis, t.d. kom ekkert út úr skyttunum vinstra megin í fyrri hálf- leik. Afturelding byrjaði með flata vörn en skipti yfir í 5-1 og reyndi á köflum að taka Aigars Lazdins úr umferð en ekki dugði það, frekar en innáskiptingar og önnur úrræði. Þór keyrði á sama liðinu nánast allan leikinn. Vörnin hélt, Hafþór varði bærilega í markinu og þeir Lazdins og Árni Sigtryggsson fóru á kostum í sókninni. Lazdins skoraði 11 mörk og geigaði vart skot hjá honum en kannski vekur enn meiri athygli að Árni, sem er aðeins 17 ára og er á fyrsta tímabili sínu í meistaraflokki, skoraði 9 mörk í þessum mikilvæga leik með langskotum og eftir gegn- umbrot. Leikmenn Aftureldingar voru allt- af nokkrum skrefum á eftir andstæð- ingunum og ekki batnaði ástandið þegar Páll Þórólfsson fór meiddur af velli seint í fyrri hálfleik. Vörnin var léleg, markvarslan lítil en þeir Daði Hafþórsson, Valgarð Thoroddsen og Magnús Már Þórðarson tóku allgóð- ar skorpur í sókninni. „Við vissum að Þórsarar yrðu grimmir í þessum leik enda að duga eða drepast fyrir þá. Hins vegar ætl- uðum við að stöðva hraðar sóknir þeirra og halda þeim niðri en gerð- um okkur seka um afdrifarík mistök í vörninni. Það er allt í lagi að skora 27 mörk en að fá á sig 35 er bara skandall. Þeir voru tilbúnir í dag en ekki við, því miður,“ sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftureldingar, sem fær nú það verkefni að stappa stálinu í sína menn fyrir leikina gegn ÍR. Bjarki og Snorri fóru á kostum Ungu mennirnir í liði Vals, BjarkiSigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson, fóru á kostum þegar Valur lagði deildar- meistara Hauka, 31:25, í skemmtileg- um leik á Hlíðar- enda. Leikurinn skipti engu máli upp á röð liðanna í deildinni og bar þess greinilega merki. Haukar höfðu fyrir nokkru tryggt sér efsta sæti deildarinnar og Valsmenn annað. Viðureignin var hins vegar hin fjörugasta en heiðar- lega þar sem vettlingatökin voru meira notuð en vant er þegar þessi liðs eigast við. Greinilegt var að menn tóku enga áhættu vegna úr- slitakeppninnar sem hefst nú vik- unni. Í fyrri hálfleik var jafnt á flestum tölum, liði skiptust á að ná eins marks forystu. Valsmenn léku 6/0 vörn frá upphafi til enda á meðan Haukarnir prófuðu sig lengst af með 5/1 og síðan 5 +1 vörn þar sem þeir þreifuðu sig áfram með að hvernig best væri að gera leikstjórnanda Vals, Snorra Stein, óvirkan. Það gekk framan af en fór síðan í handa- skolum og Snorri fór mikinn, einkum í síðari hálfleik. Í hálfleik voru Vals- menn marki yfir, 15:14. Snemma í síðari hálfleik skildi leiðir, sterk vörn og góð markmarsla Roland Eradze, lagði grunninn að hraðaupphlaupum sem Valsmenn nýttu sér til þess að ná þægilegri stöðu. Haukar játuðu sig snemma sigraða, tókst ekki að minnka mun- FH og Þór áfram á kostnað Framara HÚN var súrsæt, stemningin í búningsklefa FH-inga, eftir sig- urinn á Selfyssingum, 32:25, í Kaplakrika á laugardaginn. Með sigrinum gulltryggðu FH-ingar sæti sitt í 8 liða úrslitunum en nokkrum mínútum eftir að leiknum lauk í Krikanum bárust tíðindin frá Akureyri þar sem Þór vann stærri sigur en FH. Þar með var ljóst að áttunda sæti var hlutskipti FH-inga og and- stæðingarnir í úrslitakeppninni sjálfir meistararnir og erkifjend- urnir í Haukum. Morgunblaðið/Golli Halldór Ingólfsson varð að játa sig sigraðan í baráttunni við Geir Sveinsson og Markús Mána Michaelsson í þetta sinn og í raun varð Haukaliðið að bíta í það súra epli að lúta í lægra haldi fyrir Geir og lærisveinum hans í lokaumferðinni. Guðmundur Hilmarsson skrifar Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Stefán Þór Sæmundsson skrifar Ívar Benediktsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.