Morgunblaðið - 16.04.2002, Side 5

Morgunblaðið - 16.04.2002, Side 5
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 B 5 . Utandeildarkeppni 2002 Félag Utandeildarliða, Knattspyrnufélagið Þróttur og Knattspyrnudeild Hauka, halda utandeildarkeppnina 2002. Keppnin hefst um miðjan maí. Þátttökugjald er kr. 70.000. Skráning og staðfestingargjald kr. 10.000 verður að berast fyrir 22. apríl. Ef gjaldið er ekki greitt á réttum tíma ganga þau lið, sem greitt hafa, fyrir. Þátttökugjaldið greiðist eigi síðar en 6. maí. Takmarkaður fjöldi liða, 50 lið. Upplýsingar veittar hjá Knattspyrnufélaginu Þrótti í síma 580 5907 á milli kl. 14 og 16 virka daga og með tölvupósti; sigurdur@trottur.is. Skráning á sama stað. VIGGÓ Sigurðsson, þjálfari Hauka, segir óskiljanlegt hversu lítinn tíma liðin fá til þess að búa sig undir úrslitakeppnina, ekki síst þegar horft er til þess að vika leið á milli síðustu umferðanna tveggja. Flest liðin hafi þurft að tefla fram sínum sterkustu liðum allt fram í síðustu umferð og því ekkert hægt að hlífa lykilleik- mönnum. „Það er hreint óskilj- anlegt af hverju menn fá ekki nema fjóra daga til þess að búa sig undir úrslitakeppnina eftir að deildakeppnin hefur tekið átta mánuði,“ sagði Viggó í samtali við Morgunblaðið. „Þetta er alltof lítill tíma og ég skil ekki hvað þeir menn hugsa sem standa á bak við þetta skipulag. Flest lið hafa orðið að leika með sínn besta mannskap í öllum leikjum síðustu umferðanna til þess að tryggja sér sæti í keppninni og þar af leið- andi hefur verið mikið álag á leik- mönnum. Því hefði ekki verið ósanngjarnt að gefa lengri tíma þar til úrslitakeppnin fer af stað þar sem allt er lagt undir. Ég hef notið þeirra forréttinda að geta dreift álaginu undir það síðasta, en sömu sögu er ekki hægt að segja af flestum öðrum. Úrsltitakeppnin verður mjög jöfn og spennandi þar sem allir enginn getur bókað sigur fyr- irfram. Ég held að allar við- ureignirnar geti farið í oddaleiki og eitt marks munur ráði úrslit- um, en mitt mat er það að liðin hefðu mátt fá nokkra daga til við- bótar til þess að safna kröfum og skipuleggja sig,“ segir Viggó Sig- urðsson. Aron er meiddur Aron Kristjánsson, leikstjórn- andi Íslands- og bikarmeistara Hauka, var á meðal áhorfenda á leik Vals og Hauka í lokaumferð Íslandsmótsins. Aron hefur lítið leikið með Haukum upp á síðkast- ið vegna meðsla í hægri nára og þar sem Haukar höfðu fyrir all nokkru tryggt sér deildarmeist- aratitilinn var ákveðið að Aron fengi að hvíla sig á laugardaginn. „Ég vonast til þess að vera með gegn FH á miðvikudaginn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar,“ sagði Aron í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn á Hlíðarenda á laug- ardaginn. Hann sagðist alls ekki hafa jafnað sig að fullu. Alltof stuttur undirbúningur inn nema í þrjú mörk um tíma lengra komust þeir ekki. Eftir því sem á leið var uppgjöf Hauka greinilegri því flestir helstu leikmenn liðsins voru kallaðir af velli og varamenn í meira mæli en oft áður látnir halda leiknum uppi. Bjarki reyndist Haukum óþægur ljár í þúfu, þá helst markvörðum liðs- ins sem gekk illa að verjast hniðmið- uðum skotum hans. Fór svo að mörk Bjarka urðu tíu. Snorra óx ásmegin eftir því sem á leið og skoraði níu mörk og síðan var Eradze frábær í markinu, sérstaklega í síðari hálf- leik. Kórónaði hann frammistöðu sína með því að gera næstsíðasta mark Vals. Leikmenn Hauka tóku það rólega í leiknum og greinilegt var á uppstill- ingu liðsins á tíðum að þeir sóttu stigin ekkert sérlega stíft. Líkt og í undanförnum leikjum fengu þeir óreyndari að leika stórt hlutverk og öðlast mikilvæga reynslu fyrir átök- in sem framundan eru í titilvörninni. Geir væntir spennandi leikja „Mér líst vel á að mæta Þór í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Viðureignir okkar við þá á keppn- istímabilinu hafa verið skemmtileg- ar,“ sagði Geir Sveinsson, þjálfari Vals, um leikina við Þór sem fram- undan eru. „Báðir deildarleikirnir enduðu með jafntefli, en okkur tókst að leggja þá í bikarkeppninni. Þórsliðið hefur komið á óvart í vet- ur, fyrirfram var því ekki spáð væn- legu gengi en víst er að þar á bænum hafa menn spilað vel úr sínum mann- skap og verðskulda fyllilega að hafa unnið sér sæti í úrslitakeppninni. Fyrst og femst á ég von á skemmti- legum og tvísýnum leikjum,“ sagði Geir ennfremur. Jafnir leikir framundan „Ég bý mig og mitt lið undir jafna og spennandi leiki enda hafa viður- eignir þessara liða alltaf verið þann- ig,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, um baráttuna við FH í úr- slitakeppninni. „Í raun held ég að úr- slitakeppnin í heild verði afar jöfn þar sem lítill munur er á liðum og ekkert þeirra getur fyrirfram bókað sig gegn andstæðingi sínum.“ Stórsigur Fram dugði skammt Stórsigur Fram á Stjörnunni íSafamýrinni á laugardaginn dugði skammt því Framarar þurftu að treysta á tap eða jafntefli í öðrum leikjum til að komast á meðal átta efstu liða. Engu að síður kvöddu þeir deildina með sóma og 28:16 sigri á Garðbæingum, sem sjálfir luku keppni í 13. og næst- neðsta sæti. Heimamenn byrjuðu betur og þegar gestirnir úr Garðabænum fóru að feta sig inn í leikinn hertu Fram- arar tökin á vörninni, sem skilaði þeim 12:6 forskoti. Á fyrstu sjö mín- útum síðari hálfleiks varði Sebastian Alexandersson 7 skot Stjörnu- manna, þar af tvö vítaskot og á með- an juku félagar hans forskotið upp í tíu mörk, 18:8. Þar með var útséð um úrslit því hvorki gekk né rak hjá gestunum, sem þó reyndu hvað þeir gátu. Það kostaði einungis brottvís- anir og voru Garðbæingar í 12 mín- útur einum færri á vellinum. Þegar leið að leikslokum fóru fréttir að ber- ast úr öðrum leikjum og ljóst að Fram yrði af úrslitakeppninni þetta árið. „Við vissum að það yrði ekki bara í okkar höndum að komast í úrslita- keppnina en vorum ákveðnir í að selja okkur dýrt og sjá til hvernig aðrir leikir myndu þróast,“ sagði Heimir Ríkarðsson, þjálfari Fram, eftir leikinn. „Úrslit í síðustu um- ferðum hafa ekki verið okkur í hag en sjálfur er ég sáttur við stígandann hjá okkar liði. Við fáum tíu stig úr fyrstu fjórtán umferðunum en sautján eftir áramót og ég held að það með því besta í deildinni eftir áramót,“ bætti þjálfarinn við og reiknar með að vera áfram við stjórnvölinn. „Við ætluðum að hafa gaman af þessu og höfum reynt það í vetur. Við getum verið sáttir við vet- urinn í heild, komumst í bikarúrslit og náum góðum úrslitum í Evrópu- keppni. Það þjappaði okkur saman og við höfum verið að sækja á hin lið- in. Við erum með unga stráka og vonandi verða flestir leikmenn áfram hjá liðinu. Við kvíðum því ekki fram- tíðinni.“ „Það koma nokkrir vafasamir dómar um miðjan hálfleik og í fram- haldi af því fá Framarar öll vafaat- riðin og þá missum við þá fram úr okkur,“ sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari Stjörnunnar. „Ég er ánægð- ur með sumt en óánægður með ann- að eftir veturinn. Við erum auðvitað ekki sáttir við stöðuna og vissum að það yrði á brattann að sækja en við getum miklu meira en staða okkar segir. Næsta ár ætlum við okkur að vera ofar. Yngri stákarnir eru búnir að fá eldskírn í efstu deild og við er- um komnir með ágætiskjarna.“ Óskar Elvar kvaddi með sigri Óskar Elvar Óskarsson, fyrirliði HK um árabil, kvaddi með sigri á ÍBV í Digranesinu á laugardaginn, 31:25, en hann hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna eftir langan feril. Óskar Elvar, sem er 35 ára, hefur leikið með meistaraflokki HK frá árinu 1985, að einu tímabili undanskildu, og á því 17 keppnis- tímabil að baki með Kópavogsfélag- inu. „Það var nauðsynlegt að enda á sigri og lyfta okkur úr næstneðsta sætinu en ég hefði viljað enda mun ofar í deildinni því við höfðum burði til að gera miklu betur en þetta í vet- ur. Annars get ég hætt sáttur, þetta hefur verið skemmtilegur tími og HK hefur á síðustu árum komist í bikarúrslit og Evrópukeppni. Það vantar bara titil en það verður ekki á allt kosið,“ sagði Óskar Elvar við Morgunblaðið. Jaliesky Garcia skoraði 11 mörk fyrir HK í leiknum og varð marka- hæsti leikmaður 1. deildar í vetur. KA í fimmta sætinu KA-menn tryggðu sér fimmta sætið með öruggum sigri á Víkingum í Víkinni, 29:24. KA náði strax undir- tökunum og lét þau aldrei af hendi, en norðanmenn létu varamenn sína spila stóran hluta síðari hálfleiks. Tólf mörk Guðlaugs Haukssonar dugðu Víkingum skammt og þeim tókst ekki að fylgja eftir eina sigri sínum á tímabilinu. Morgunblaðið/Kristján Leikmenn Þórs, Árni Sigtryggsson og Páll V. Gíslason, fagna hér ásamt stuðningsmönnum sigri á Aftureldingu og sæti í úrslitakeppninni í fyrsta skipti. Stefán Stefánsson skrifar Ólafur og Sigurður í liði um- ferðar- innar Ólafur Stefánsson og Sig-urður Bjarnason voru báðir valdir í lið 27. umferðar þýska handknattleiksins af netmiðliðnum sport1 eftir leiki helgarinnar en þeir áttu báðir framúrskarandi leiki með liðum sínum Magdeburg og Wetzlar. Ólafur og félagar í Magdeburg skutu nýkrýnda bikarmeistara Lemgo af toppi þýsku 1. deildarinnar í handknattleik á sunnudaginn með góðum sigri, 31:23 og Sigurður skoraði 9 mörk þegar Wetzlar vann Göpp- ingen, 28:26, á útivelli. Með sigrinum á sunnudag kom Magdeburg fram hefnd- um fyrir tapið í bikarúrslita- leiknum á dögunum og sáu um leið til þess að Nordhorn væri efst í deildinni að lokn- um 27 umferðum. Ólafur var í miklum ham í leiknum og skoraði 9 mörk, þar af tvö úr vítakasti. Leikmenn Magdeburg voru í miklum ham frammi fyrir 7.000 áhorfendum í Börderlandhöllinni, náðu strax forystunni og létu hana aldrei af hendi. Auk Ólafs var Christian Gaudin, markvörð- ur, besti leikmaður Magde- burg en hann varði hvað eftir annað með tilþrifum. Nordhorn vann stórsigur á Flensburg á útivelli, 27:20, og hefur nú fengið 27 stig af 28 mögulegum í síðustu 14 leikj- um sínum. Aðeins mark- varsla Jans Holperts forðaði Flensburg frá verri útreið. Peter Gentzel nánast lokaði marki Nordhorn í síðari hálf- leiknum. Essen er enn með í topp- slagnum eftir útisigur á Wal- lau-Massenheim, 30:26. Pat- rekur Jóhannesson skoraði 3 mörk fyrir Essen og Guðjón Valur Sigurðsson 2. Vegna meiðsla lék Gústaf Bjarnason ekki með Minden sem vann Willstätt/ Schutterwald á útivelli, 26:25. Var þetta annar leik- urinn í röð sem Gústaf missir af vegna meiðsla. Hann var einnig fjarri góðu gamni þeg- ar Minden lagði meistara Magdeburg á heimavelli í lið- inni viku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.