Morgunblaðið - 16.04.2002, Page 12
Röð fyrstu fjögurra á mark varð súsama og í ræsingunni en þriðji
varð Ralf Schumacher hjá BMW
Williams og fjórði félagi hans Juan
Pablo Montoya. Eftir kappaksturinn
sagði Ralf að hann hefði ekki getað
gert betur en hann vann jómfrúar-
sigur sinn í Formúlu-1 í Imola fyrir
ári og hafði vonast til að vinna aftur
nú. Hafði hins vegar aldrei við Ferr-
arifákum bróður síns og Barrichello
og varð á endanum tæpum 20 sek-
úndum á eftir bróður sínum. „Það er
ekkert gaman að sjá menn vinna með
svo miklum mun og hringa McLaren-
bíl í þokkabót,“ sagði hann.
Ralf er nú 14 stigum á eftir bróður
sínum í stigakeppni ökuþóra og
Montoya 17. Þá komst Ferrari fram
úr Williams-liðinu í stigakeppni bíl-
smiða, þar munar þremur stigum,
40:37.
Schumacher hélt forystunni frá
fyrstu sekúndu og jók bilið jafnt og
þétt fram undir miðjan kappakstur og
sigur hans var með öllu fyrirhafnar-
laus; aksturinn eins og þægilegur
sunnudagsrúntur. Barrichello missti
Ralf fram úr sér í ræsingunni en end-
urheimti annað sætið í þjónustu-
hléunum. Með þessu lauk Barrichello
sínu fyrsta móti á árinu en hann féll
úr leik í þremur fyrstu vegna árekst-
urs og bilana. Virtist hann ná mjög
miklu út úr 2002-bílnum sem hann
var að keppa á í fyrsta sinn og setti
hraðasta hring mótsins, 1:24,170 mín-
útur.
Fimmti varð Jenson Button hjá
Renault sem vann sig fram úr David
Coulthard hjá McLaren í þjónustu-
stoppunum. Má Coulthard muna fífil
sinn fegurri en hann varð að hleypa
Schumacher fram úr sér þegar 7
hringir voru eftir í mark af 62. Segir
Button aksturinn hafa verið sinn
besta frá því hann hóf keppni árið
2000 þótt tvisvar hafi hann áður orðið
í fjórða sæti, en þetta er þriðja mótið í
röð sem hann hlýtur stig. McLaren-
menn fóru af vettvangi sem væng-
brotnir fuglar en kveðast ætla bíta í
skjaldarrendur og draga á toppliðin
tvö aftur.
Er leið að lokum kappakstursins í
Imola í gær varð allt í einu uppi fótur
og fit í bílskúr Ferrari-liðsins, ekki
vegna þess að liðsmenn reyndu að
flýta sér á brautarvegginn til að fagna
Michael Schumacher á mark, heldur
vegna ótta um að til sigurs hans kæmi
ekki. Komið hefur í ljós að Schumach-
er átti við vandamál í bíl sínum að
stríða undir lok kappakstursins og
um tíma var talið að kalla þyrfti hann
inn að bílskúr á lokahringjunum til að
skipa um stýrishjól. Aukastopp af því
tagi hefði án efa kostað hann sigur.
Með samstarfi við tæknistjórann
Ross Brawn gegnum talstöðina tókst
Schumacher hins vegar að koma far-
kosti sínum í heila höfn án þess að til
aukastopps kæmi.
Miklir yfirburðir
MICHAEL Schumacher sigraði í San Marínó-kappakstrinum í Imola
á Ítalíu á sunnudag við mikinn fögnuð heimamanna sem þustu inn á
brautina og hylltu hetju sína á verðlaunapalli. Annar varð félagi
hans Rubens Barrichello og var þetta í fyrsta sinn í 20 ár sem Ferr-
ari á fyrstu tvo bíla á mark í Imola. Var þetta þriðji sigur Schumach-
ers á árinu í fjórum mótum og hans 56. á ferlinum.
Þetta var í þriðja sinn sem Woodssigraði á Masters og 31. sigur
hans á PGA mótaröðinni, þar af hef-
ur hann sjö sinnum sigrað á „þeim
stóru“ þrívegis á Masters, einu sinni
á Opna bandaríska, einu sinni á
Breska meistaramótinu og einu sinni
á PGA meistaramótinu. Þess ber að
geta að Woods hefur aðeins keppt í
sex ár á mótaröðinni og árangur
hans því mjög góður. Enginn hefur
sigrað jafnoft á „stóru mótunum“
jafn ungur og Woods en hann var 26
ára, þriggja mánaða og 15 daga gam-
all á sunnudaginn þegar hann
tryggði sér sigurinn. Jack Nicklaus
var hins vegar 25 dögum yngri en
Woods þegar hann sigraði þriðja
sinni á Masters.
Síðasti Masters hjá Norman?
Greg Norman, Ástralinn knái, hef-
ur aldrei leikið eins og hann á að sér
á Masters og í ár vann hann sér ekki
einu sinni rétt til að vera með en fékk
boð frá klúbbnum um að keppa og
þáði það. Það er sagt um þátttöku
hans á Masters að Hákarlinn, Mast-
ers og sunnudagur geti ekki farið
saman og er þá vitnað til þess þegar
hann klúðraði síðasta hring árið 1986
og aftur áratug síðar þegar hann átti
sex högg á næsta mann. Í ár lenti
hann í 36. sæti en ætlaði sér að vera
meðal 16 efstu til að komast á næsta
Masters. „Ég verð með á næsta ári
ef ég vinn mér rétt til þess eða ef mér
verður boðið. Héðan á ég frábærar
minningar og völlurinn er stórkost-
legur,“ sagði Norman.
Kylfuvalið misjafnt
John Daly notaði þrjá drævera á
Masternum og átti í vandræðum
með að finna þann rétta en hann
grýtti drævernum sínum í vatn í
móti á dögunum eftir að hafa slegið
illa með honum. Nokkrum holum síð-
ar braut hann trékylfu númer þrjú
og varð að notast við járnin það sem
eftir var. Á Masters voru púttin hans
sterkasti þáttur aldrei þessu vant en
hann endaði í 32. sæti á fjórum yfir
pari.
Svíinn Jesper Parnevik sendi
kylfusvein sinn inn í klúbbhús rétt
áður en hann lagði í síðasta hringinn.
Sveinninn kom hlaupandi út með
pútter og Parnevik fórnaði járni
númer þrjú til að geta tekið með sér
tvo púttera í síðasta hringinn. Hann
notaði nýja pútterinn í fyrra púttið á
fyrstu braut, tók síðan þann gamla
og lauk holunni með honum og not-
aði hann síðan það sem eftir var
hringsins. „Ég var bara að prófa
þann nýja,“ sagði Parnevik sem not-
aði 34 pútt til að ljúka leik á pari.
„Mér varð fjórum sinnum hugsað til
járnsins númer 3 sem var heima í
skála, en ég varð að sætta mig við að
vera ekki með það,“ sagði Svíinn.
Daninn Thomas Björn mun
örugglega reyna að leika jafnar á
næstunni en hann er þekktur fyrir
miklar sveiflur milli daga. Síðasta
daginn lék hann á 77 höggum, fékk
sex skolla á hringnum en þegar hann
lék annan daginn notaði hann aðeins
67 högg, tíu færri en síðasta daginn.
Þá setti hann met með því að fá fugl
á fimm fyrstu holunum, en það hefur
enginn gert í Masters-móti.
Woods varði tit-
ilinn á Masters
Reuters
Hootie Johnson, forseti Augusta National-golfklúbbsins, klæðir Tiger Woods í græna jakkann en
þetta er sá þriðji sem hann vinnur til á 6 árum. Woods er þriðji kylfingurinn til að vinna tvö ár í röð.
TIGER Woods lék fyrst og
fremst af öryggi á síðasta degi
Masters-golfmótsins í Banda-
ríkjunum á sunnudaginn. Með
því tókst honum að verja titil
sinn frá því í fyrra og það hafa
aðeins tveir kylfingar leikið áð-
ur. Jack Nicklaus, sem vann sex
sinnum, 1965 og aftur ári síðar
og Nick Faldo, sem á þrjá græna
jakka, vann 1989 og aftur 1990.
Woods lék síðasta hringinn á
einu höggi undir pari og lauk
leik á 276 höggum, eða tólf und-
ir pari og þremur höggum á
undan Retief Goosen sem varð í
öðru sæti.
FÓLK
ÞORBJÖRN Atli Sveinsson lék
sinn fyrsta leik á tímabilinu með
Frömurum á laugardaginn, þegar
þeir unnu stórsigur á Dalvík, 9:1, í
deildabikarnum. Þorbjörn Atli var
fljótur að láta til sín taka og skoraði
þrennu í leiknum.
GRINDVÍKINGAR tryggðu sér
sigur á æfingamótinu í Candela á
Spáni á sunnudaginn þegar þeir
sigruðu FH, 2:0. Fylkir vann KR, 2:1.
Sævar Þór Gíslason skoraði bæði
mörk Fylkis en Þorsteinn Jónsson
svaraði fyrir KR. Grindavík fékk 7
stig, Fylkir 4, FH 3 og KR 3 stig.
ÍSLAND sigraði Moldavíu, 2:0, í
leik um 7. sætið á alþjóðlegu móti
drengjalandsliða í knattspyrnu sem
lauk á Spáni á laugardaginn. Hjálm-
ar Þórarinsson og Ívar Björnsson
skoruðu mörk Íslands. Áður hafði ís-
lenska liðið tapað fyrir Georgíu og
gerði síðan jafntefli við Aserbaídsjan
en beið lægri hlut í vítakeppni.
SPÁNN sigraði Rúmeníu, 3:1, í úr-
slitaleik mótsins en í næstu sætum
voru Georgía, Pólland, Slóvenía og
Aserbaídsjan.
PLS og Flakkarar urðu um
helgina bikarmeistarar í keilu. PLS
lagði ÍR-a 2367:2209 þar sem Jón
Bragason (627) og Halldór R. Hall-
dórsson (619) áttu góðan dag fyrir
PLS. Flakkarar sigruðu Valkyrjur
og var þetta annar titill þeirra á
nokkrum dögum en þær sigruðu
Valkyrjur í úrslitum Íslandsmótsins.
Leikurinn fór 1975:1925.
GUÐMUNDUR E. Stephensen úr
Víkingi varð Reykjavíkurmeistari í
einliðaleik karla í borðtennis á laug-
ardaginn með því að sigra Markús
Árnason úr Víkingi, 3:1, í úrslitaleik.
Þeir Guðmundur og Markús sigruðu
saman í tvíliðaleik.
HALLDÓRA Ólafs úr Víkingi
sigraði Kristínu Hjálmarsdóttur úr
KR, 3:2, í úrslitaleik í meistaraflokki
kvenna. Kristín og Aldís Lárusdótt-
ir úr KR sigruðu í tvíliðaleik.
GUÐMUNDUR Kr. Gíslason úr
SR sigraði í karlaflokki á meistara-
móti Skotfélags Reykjavíkur í loft-
skammbyssu sem fram fór í Laug-
ardalshöllinni á laugardaginn. Hann
fékk 555 stig, jafnmörg og Hannes
Tómasson, SR, sem varð í öðru sæti.
KRISTÍN Röver úr SR sigraði í
kvennaflokki með 346 stig en önnur
varð Ragnheiður Sigurðardóttir,
SR, með 328 stsig.
SILJA Úlfarsdóttir varð í 10. sæti
í 400 m grindahlaupi á 61,18 sek., á
háskólamóti í Knoxville í Tennessee
um síðustu helgi.
HARALDUR Ingólfsson skoraði
fyrra mark Raufoss sem vann góðan
útisigur á Strömsgodset, 2:1, í fyrstu
umferð norsku 1. deildarinnar í
knattspyrnu á sunnudaginn.
HELGI Kolviðsson lék allan leik-
inn með Kärnten sem vann mikil-
vægan útisigur á Salzburg, 1:0, í
austurrísku úrvalsdeildinni. Helgi
og félagar eru fimmtu og eiga góða
möguleika á UEFA-sæti. Stefán
Gíslason var á varamannabekk
Grazer AK sem vann Bregenz, 4:1.
GUÐMUNDUR Viðar Mete lék
allan leikinn í vörn Malmö FF sem
vann Norrköping, 3:0, á útivelli í
annarri umferð sænsku úrvalsdeild-
arinnar á laugardaginn. Atli Þórar-
insson var ekki í liði Örgryte sem
vann Kalmar, 2:0 og Hjálmar Jóns-
son lék ekki með Gautaborg sem
vann Sundsvall, 2:1.
RAKEL Ögmundsdóttir kom ekki
við sögu hjá Philadelphia Charge
sem vann Atlanta Beat á útivelli, 2:0,
í fyrstu umferð bandarísku atvinnu-
deildarinnar á laugardagskvöldið.
ARNAR Þór Viðarsson, Rúnar
Kristinsson og Arnar Grétarsson
léku með Lokeren sem gerði 0:0
jafntefli við Antwerpen í belgísku 1.
deildinni á laugardagskvöldið. Rún-
ar átti sláarskot á síðustu mínútunni.