Morgunblaðið - 17.04.2002, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.04.2002, Qupperneq 3
LAXNESSÞING, SUNNUDAGUR 21. APRÍL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2002 B 3 HALLDÓR var alltaf að skálda, sagði Pétur Gunnarsson í sjónvarps- viðtali fyrir nokkrum árum. Svo mik- ið er víst að afstaða Halldórs til lygi og sannleika var ekki að öllu leyti einföld og um það fjallar Vésteinn Ólason í fyrirlestri sínum „Undur mikið hversu mart þú kant ljúga“ – Lygi og sannleikur í verkum Halldórs Laxness Vésteinn leggur annarsvegar áherslu á Sölku Völku og ferðalýs- ingar Halldórs frá Sovétríkjunum, hinsvegar á skrif hans um breytt viðhorf sín í Skáldatíma og Kristnihaldi undir jökli. Í þessum verkum má finna fyrir togstreitu á milli sannleika, lygi og skáldskap- ar. Vésteinn veltir fyrir sér hvernig hún kemur fram og þróast í þessum verkum. Ein kenningin er sú að á fjórða áratugnum hafi skáldið Lax- ness skilið hið pólitíska hlutverk rit- höfundar og rækt það. Hann hafi þó ekki skynjað það svo vegna trúar sinnar á hið vísindalega rétta sam- félag sem var leiðarljós hans í póli- tískum skrifum. Síðar verður spurn- ingin um skáldskapinn og hlutverk hans áleitnari. Dagný Kristjánsdóttir fjallar um vonbrigðin sem koma fram í skáld- sögunni Paradísarheimt í fyrirlestri sínum Að missa og finna aftur sína Paradís. Dagný sér Paradísarheimt sem eins konar framhald af Gerplu, eða að minnsta kosti verk sem er ná- tengt Gerplu og nauðsynlegt að lesa þannig. Halldór er að áliti Dagnýjar fyrst og fremst að takast á við valdið í þessum verkum: Gagnrýni Halldórs á mormónatrúna er nístandi fram- hald af uppgjöri hans við hernaðar- hyggju í Gerplu. Fleira hangir á þeirri spýtu: Uppgjör við mormóna- trú fer að kjarna spurningarinnar um misnotkun valds, spurningum um kynferði, siðferði og fleira. Efa- semdir Halldórs í Paradísarheimt eru efasemdir menntamannsins og uppgjör við drauminn um að útópían geti orðið að veruleika á þessari jörð. Þær lýsa líka djúpri togstreitu Hall- dórs við sjálfan sig. Í verkum Halldórs má frá upphafi finna fyr- ir tveimur megin- straumum þar sem annar rífur niður en hinn byggir upp. Organistinn í Atómstöðinni er umfjöllunarefni Ármanns Jakobs- sonar í fyrirlestri sem hann nefnir Nietzsche í Grjóta- þorpinu: Siðferði manns og heims í Atómstöðinni. Ármann skýrir per- sónu og hlutverk organistans sem andófspersónu. Útlit hans villir manni sýn: Hann virðist svo frið- samlegur. Mönnum hættir til að taka ekki eftir því hvað hann heldur fram róttækum og öfgafullum skoðunum. Ármann telur að Atómstöðin hafi verið misskilin talsvert og vanmetin. Þetta sé dýpri og áhugaverðari bók en oftast er talið. Hliðstæða org- anistans við Nietzsche er mikilvæg: Organistinn kappkostar eins og Nietzsche að koma á óvart, að snú- ast gegn og rífa niður hefðbundna sýn á samfélagið. Með því að brjóta í bága við siðferðið birtir hann heil- steypt persónulegt siðferði og sið- ferðilega sýn. Sigríður Þorgeirsdóttir stýrir mál- stofunni. 13.30–14.30 Glæpur og dygð – Siðferði Morgunblaðið/ Einar Falur Halldór Laxness í vinnustofunni á Gljúfrasteini, 1980. Í ÞESSARI málstofu verður tekist á við umdeildasta hlutann af ferli Laxness: Stjórnmálaskoðanir hans á fjórða og fimmta áratugnum, ferðir hans til Sovétríkjanna og ferðabæk- ur hans um Sovétríkin. Jón Ólafsson heldur því fram í fyrirlestri sínum Laxness í Sovét- ríkjunum. Hin pólitíska ferðabók, nokkur samtímaverk að það sé lítils virði að skoða Sovétbækurnar, Í austurvegi og Gerska ævintýrið öðruvísi en að bera þær saman við bækur annarra höfunda sem gerðu sama og Halldór: Fóru til Sovétríkj- anna og reyndu að miðla af reynslu sinni þar með verkum sem einnig höfðu ríkan áróðurstilgang. Á fjórða áratugnum fóru margir rithöfundar til Moskvu, sumir skrifuðu mikil lof- rit um landið og þjóðir þess, aðrir gáfu ófegurri lýsingu af því sem fyr- ir þá hafði borið. Gerska ævintýrið tilheyrir þeirri bókmenntagrein sem varð til við þetta. Sérkenni Sovét- bóka Halldórs, einkum þá Gerska ævintýrisins, eru meistaraleg tök á list áróðursins. Bækur Halldórs eru ekki lofrit um Sovétríkin heldur vönduð áróðursrit. Jón tekur einnig stuttlega saman íslenska umræðu um Sovétbækurnar og gagnrýnir hana. Hannes Hólmsteinn Gissurarson kallar fyrirlestur sinn Myrkur heimsins. Hann rekur þar skoðanir Halldórs á Sovétríkjunum eins og þær koma fyrir í bókunum Í aust- urvegi og Gerska ævintýrinu. Einn- ig ræðir hann um stjórnmálabaráttu Halldórs á Íslandi 1930–1960 og hvernig skoðanir hans koma fram í skáldverkum á borð við Sjálfstætt fólk, Sölku Völku, Heimsljós og Ís- landsklukkuna og hvernig þær hafa mótað viðhorf tveggja eða þriggja kynslóða íslenskra menntamanna. Hannes gagnrýnir skýringar Hall- dórs á því hversvegna hann sagði ósatt um Sovétríkin áratugum sam- an og setur fram aðrar skýringar á því sem hann sækir meðal annars í heimspeki og félagsfræði. Morten Thing fjallar um kynni Halldórs af kommúnismanum í gegnum danska rithöfunda auk fær- eyska rithöfundarins William Heine- sen í fyrirlestri sínum Laxness og danskir kommúnistar: Nexø, Gel- sted, Kirk og Heinesen. Morten er höfundur ritsins Kommunismens Kultur sem kom út fyrir tæpum tíu árum en hún fjallar um kommúnis- mann í Danmörku frá þriðja áratug aldarinnar og fram á síðustu áratugi. Morten bendir á að Laxness hafi orðið fyrir margvíslegum pólitískum áhrifum af skáldbræðrum sínum í Danmörku og að þau tengsl skýri margt um pólitískar skoðanir hans. Guðmundur Hálfdánarson stýrir málstofunni. Halldór Laxness í Moskvu 1954 en þá vann hann að rússneskri þýðingu Silfurtunglsins með þýðandanum Valentinu Morosovu. 9.30–10.30 „Samvirk framníng þjóðreisn- ar“ – Pólitískar skoðanir HELGA Kress bendir á það í fyrirlestri sínum „Á hverju liggja ekki vorar göfugu kell- íngar.“ Halldór Laxness og Torfhildur Hólm að Halldór hafi í riti eftir riti tengt bæk- ur og bókmenntir við konur. Bókmenntir kvennanna verða andstæða bókmennta- stofnunarinnar, jafnvel konur sem ólæsar eru tala klassískt mál. Í fyrirlestrinum ræðir Helga sérstaklega um rithöf- undinn Torfhildi Hólm og tengsl Halldórs við verk hennar. Fyrirlestur Hjartar Páls- sonar Eru Vikivaki Gunnars Gunnarssonar og Kristnihald undir Jökli eftir Halldór Lax- ness hliðstæðar táknsögur? byggist á þeirri grundvallar- hugmynd að þessar skáldsög- ur tveggja höfuðskálda Ís- lendinga á 20. öld megi lesa sem eins konar „dæmisögur“ um eðli og samþættingu lífs og skáld- skapar og vanda og vild höfundarins. Tilganginn segir Hjörtur vera þann að láta á það reyna með rök- semdafærslu og dæmum til skýring- ar hvort þessi túlkunarleið stenst og hvort líta megi á nefndar skáldsögur Gunnars og Halldórs sem þematísk- ar hliðstæður eða „samlokur“ með áratuga millibili. Báðar hafa þær býsna mikla sér- stöðu í höfundarverki þeirra, hafa ekki þótt auðskýrðar á einn veg og hafa löngum notið mismikilla vin- sælda hjá lesendum. Soffía Auður Birgisdóttir beinir sjónum að sjálfsmynd skáldsins í fyrirlestri sínum Skálduð ung- sjálf: Sjálfsmyndir Lax- ness og Þórbergs í skáldævisögulegum verkum þeirra. Soffía Auður greinir skáldævi- söguleg áhrif Þórbergs á Halldór sem hún telur aðallega felast í tvennu: Annarsvegar í forminu, að leyfa sér að láta lög- mál skáldskaparins ráða frekar en að binda sig við staðreyndir. Hinsvegar hinni írón- ísku sýn sem er svo áberandi hjá Þórbergi en kemur líka glögglega fram hjá Halldóri, til dæmis í því hvernig hann lýsir sjálfum sér fullum af monti. Þannig er viðfangsefnið mynd- ir þeirra Þórbergs og Halldórs af sjálfum sér sem ung- skáldum. Lars Lönnroth talar síðastur í mál- stofunni en hann nefnir fyrirlestur sinn Laxness revolterade mot saga- traditionen. Sveinn Yngvi Egilsson stýrir mál- stofunni. 11.00–12.15 „Hvor í annars draumi“ – Samband bóka og bóka – höfundar og höfundar Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness við Skriðu- klaustur í Fljótsdal, sumarið 1947. STÍLL Halldórs Laxness, jafnt í skáldverkum hans sem öðrum ritverk- um og þýðingum skar sig úr frá upp- hafi. Hann vakti deilur: Fjölmargir urðu til að fordæma mál og stíl Lax- ness. Þegar þýðing hans á Vopnin kvödd eftir Ernest Hemingway kom út var jafnvel gerð tilraun til að út- hýsa bókinni alfar- ið úr skólabóka- söfnum. Í fyrirlestri sín- um Orðaforðinn í skáldverkum Hall- dórs Laxness talar Guðrún Kvaran um skrif Laxness um tungumálið og skoðar jafnframt hvernig hann beit- ir tungumálinu í nokkrum verkum sínum. Hluti af orðaforða Hall- dórs er óvanalegt og staðbundið mál en einnig eru all- mörg dæmi um orð sem koma aðeins fyrir hjá honum. Laxness safnaði orð- um á ferðum sínum um landið og not- aði í bókum sínum. Dæmi um orð sem Guðrún fjallar um í fyrirlestrinum er fjölmúlavíl sem kemur nokkrum sinn- um fyrir í skáldsögum hans en er ekki þekkt úr textum annarra. Einnig orð á borð við drymbini og að eypska. Guð- rún nýtir sér orðstöðulykil að verkum Laxness sem er að koma út í þessum mánuði hjá Vöku-Helgafelli. Þorleifur Hauksson fjallar um stíl Íslandsklukkunnar og Gerplu í fyrir- lestri sínum sem hann nefnir Að hugsa í öðrum myndum. Þorleifur rannsakar stílbreytingar Laxness á tímabili þessara verka, hvernig hann notar ákveðnar stílfyrirmyndir, hvernig hann víkur frá þeim og hvernig hann fjallar sjálfur um stíl. Þorleif- ur nefnir sér- staklega nokk- urs konar stefnuyfirlýs- ingu sem er að finna í rissbók Halldórs frá þeim tíma er hann var að semja Íslands- klukkuna. Þar talar hann um „nauðsyn þess að uppræta kellingar- hjartað – viðkvæmnina, tilfinninga- eðjuna – sem gagnsýrir nútímastíl ís- lenskan“. Helena Kadeckova er einn helsti þýðandi Laxness á tékknesku, hún hefur á undanförnum 30 árum þýtt Brekkukotsannál og fleiri bækur hans. Helena nefnir fyrirlestur sinn einfaldlega Að þýða Laxness. Valgerður Benediktsdóttir stýrir málstofunni. 15.00–16.00 „Ekkert orð er skrípi“ – Mál og stíll Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Blýantar Halldórs Laxness.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.