Alþýðublaðið - 29.10.1972, Side 3

Alþýðublaðið - 29.10.1972, Side 3
AKONAN að lúta föstum venjum, og þar með takmarka frelsi hennar. Hún mundi óðara gera uppreisn gegn sliku og krefjast réttar sins til að helga sig sinum eigin áhugamál- um. Hann er oft smámunalegur i aðfinnslum sinum is ambandi við allan heimilisrekstur og mundi þvi skipta sér af verkum hennar innanhúss. Og þar sem hann að auki er mjög hlédrægur og litt fyrir það gefinn að láta i ljós til- finningar sinar, er mjög hætt við að hann auðsýndi henni ekki þann yl, sem með þyrfti til að viðhalda ást hennar. Og jafnvel þótt þau eignuðust einhver sameiginleg áhugamál, er hætt við þau yrðu að leysa erfið vandamál áður en hjónaband þeirra gæti kallazt beinlinis farsælt. Vatnsberakona og karl- maður fæddur undir VOGARMERKI 23. sept. — 22. okt. Það er Vogarmerkið sem bezt á við Vatnsberamerkið, og þvi er óhætt að fullyrða að það yrðu ekki mörg vandkvæði sem Vatnsbera- kona og karlmaður fæddur undir Vogarmerki þyrftu að sigrast á til þess að sambúð þeirra gæti orðið hin farsælasta. Enda þótt sá karl- maður kunni oft að virðast frem- ur fálátur og hlédrægur, er hann oft mjög ástrikur og ástriðuheitur og fyrir bragðið mundi hann kynda svo elda hennar að ekki mundi standa á endurgjaldinu. Karlmaður fæddur undir þessu merki er oft mjög vel gefinn og vinmargur. en þó mun áhugi hennar á öðru fólki öllu ópersónu- legri en hans. Eigi að siður er hann haldinn næmri réttlætis- kennd og vill að enginn sé beittur misrétti eða ranglæti, og fyrir það er ekki óliklegt að hann mundi taka þátt i störfum hennar að ein- hverju leyti, hvað það snertir að bæta kjör hinna bágstöddu i heiminum. Þeim gæti og verið sameiginleg aðdáun á öllu fögru, og þvi samhent um að gera heimili sitt sem glæsilegast. Hæfileikar hans til að finna og efla samræmi og samstillingu mundu auðvelda honum að lita jákvætt á starfsemi hennar að mannúðarmálum, og sambúð þeirra þvi verða hin friðsælasta. Hann gæti og eflaust haft áhrif á hana i sambandi við störf hennar að vissu marki, en fljótt komast að raun um neikvæð viðbrögð hennar ef hann reyndi að segja henni fyrir verkum. Hyggni hans og tillitsemi mundi gera honum kelift að njóta mikillar hamingju i sambúð við slika konu. Vatnsberakona og karl maður fæddur undir SPORDDREKAMER KI, 23. okt. —22. nóv. Slikur maður mundi sizt af öll- um karlmönnum, fæddum undir hinum tólf merkjum dýrahrings- ins, liklegur til þess að geta gert Vatnsberakonuna hamingjusama i hjónabandi. Þau eru á margan hátt algerar andstæður, og það yrðu miklar fórnir sem hún yrði að færa áður en likur yrðu til að sambúð þeirra gæti blessazt. Henni mundi til dæmis veitast erfitt að skilja hann, svo gerólik- ur mundi hann henni að eðlisfari. Hann lætur oft og tiðum stjórnast algerlega af tilfinningum sinum og skapsmunum, og ástriðuhiti hans og fýsn mundi krefja hana um meira en hún gæti I té látið. Yfirleitt er hann eigingjarn og ráðrikur, og þvi sennilegt að hann yrði mjög afbrýðisamur vegna áhuga hennar á öðru fólki og ópersónulegum málefnum. Hann mundi gera kröfur til að öll hennar athygli beindist að honum einum, og gerast ærið skapstygg- ur og óþægilegur i sambúð, ef hanri fengi þvi ekki framgengt. Og jafnvel þótt hún vildi allt til vinna að halda friði, færi ekki hjá þvi að oft mundi slá i brýnu með þeim. Hann mundi verða of kröfuharður og ráðrikur, og henni yrði með öllu ókleyft að gera hon- um til hæfis, þó að hún sparaði engar fórnir. Eini möguleikinn erað likamleg ást þeirra reyndist nógu sterk, en harla óliklegt samt. Vatnsberakona og karl maður fæddur undir BOGAMANNSMERKI, 23. nóv. — 20. des. Slikur maður og Vatnsbera- kona ættu að eiga m jög vel saman og óliklegt að til greina kæmu mörg vandamál, sem þau yrðu að sigrast á til þess að hjónaband þeirra yrði hamingjuasmt. Þar eð þau hefðu bæði mjög sterka löng- un til að njóta persónulegs frjáls- ræðis, er harla óliklegt að annað hvort þeirra mundi sýna hinu of mikinn yfirgang og eigingirni. Þar sem þeim er báðum oft gefið mikið ástriki, er ekkert liklegra en að þeim mundi reynast auðvelt að lifa saman i sátt og samlyndi. Bæði eru þau venjulega vel gefin BÆÐI OG og liklegt að þau gætu eignazt ýmiss sameiginleg áhugamál. Hann er undantekningarlitið vin- sæll og þekkir margt af áhuga- verðu fólki, og þvi er liklegt að þau mundi ekki skorta sameigin- lega vini. Hann er ekki sérstak- lega kröfuharður um heimilis- hald, mundi láta sér nægja að hún byggi honum þægilegt og þokka legt heimili og verja tómstundum sinum að einhverju leyti henni til aðstoðar i þvi skyni. Bæði eru þau likleg til að eiga mörg áhugamál utan heimilisins, og þó að slikt kunni að skapa nokkra fjarlægð þeirra á milli, þá mundi þau ekki skorta umræðuefni. Vafalaust 'mundi hvort þeirra um sig lika hafa mikinn áhuga á strfi og starfsemi hins. Bæði eru þau frjálslynd og friðsöm, og þvi harla liklegt að heimili þeirra yrði friðsælt. Það er óliklegt að það reyndist miklum vandkvæð- um bundið fyrir þau að lifa saman i ástriku hjónabandi. Vatnsberakonan og karl maður fæddur undir STEINGEITARMERKI 21. des—19. jan. EITTHVAD fvrir EINSETIIMENN? Þvi miður er persónugerð karl- manns, sem undir þessu merki er fæddur, harla ólik persónugerð Vatnsbarakonunnar, en ef þau skyldu nú samt dragast svo hvort að öðru að þau gengju i hjóna- band, þá er hata liklegt að sam- búð þeirra mundi reynast miklum erfiðleikum háð. Hann er oft mjög hlédrægur og feiminn, og liklegt er að honum mundi veitast erfitt að láta tilfinningar sinar i ljós við eiginkonu sina. Hin hljóða og hóf- stillta ást hennar þarfnast hins vegar hvatningar, og það er ærið hætt við að allt i þá áttina færist honum klaufalega. A hinn bóginn er hann oft kröfuharður og ætlast til mikils af eiginkonu sinni. Hún mundi sennilega draga sig i sina skel, ef hann vildi bera hana ráð- um, og þar sem gagnrýni hans yrði að llkindum kaldranaleg, mundi hún vekja hjá henni minni- máttarkennd. Þá er og liklegt að hann mundi lita á áhuga hennar á hramhald á 7. siðu. NÆST VATNS- BERA- KARL Danska blaðið Politiken skýrði svo frá fyrir skömmu, að læknar á rikissjúkrahúsinu i Vording- borg i Danmörku væru um þessar mundiraðgera tilraunir með nýj- ar kynróandi pillur, sem á dönsku kallast að sjálfsögðu ,,anti-sex” pillur. Tilraunir fóru fram með eftir- farandi hætti: Tveimur karl- mönnum, sem hættulegir voru umhverfi sinu, var gefin ný teg- und hormónalyfja, sem framleitt er I Vestur-Þýzkalandi. Eftir nokkra daga voru „tilraunadýr- in” orðin róleg og mennirnir tveir gátu umgengizt annað fólk án þess að þvi stafaði hætta af þeim, — segja læknarnir Kjeld A. Lock Halvorsen, Finn Kobbenhagel og Björn Kaldan i danska læknarit- inu „Ugeskrift forlæger”. Niðurstöður rannsókna á siðari árum hafa leitt i ljós, að ákveönar miðstöðvar heilans ákveða kyn- orkuna og ennfremur að hafa má áhrif á þessar heilastöðvar með hormónalyfjum. Karlmaður, sem draga vill úr kynorku sinni, getur það nú með þvi að neyta efna, sem virka á karlkynhormóna hans. Hér er ekki um p-pillur fyrir karlmenn að ræða, heldur lyf, sem kemur i veg fyrir að beita þurfi ómanneskjulegum læknis- aðferðum við kynferðisglæpa- menn. Notkun sérstakra hormónalyfja við læknismeðferð á kynferðis- glæpamönnum, sem gefið hefur góðan árangur utan Danmerkur, vakti áhuga læknanna þriggja á rikissjúkrahúsinu i Vordingborg á kynróandi lyfjum. Læknarnir létu sjúkling einn, sem um langt skeið hafði dvalið á sjúkrahúsinu, taka hina nýju kyn- róandi pillu. Að fjórum vikum liðnum, heyrði maðurinn ekki kvenmannsraddir lengur óma fyrir eyrum sér, sem iðulega hafði orðið þess valdandi, að hann brauzt inn á kvennadeild sjúkra- hússins. Pillan var einnig reynd á þritugum manni, en öll hegðan hans hafði einknnzt af óeðlilegri árásarþörf. Maðurinn hafði verið undir eftirliti frá 18 ára aldri, er hann gerðist sekur um nauð- gunartilraun. Hann hlaut nú meðferð á lok- aðri deild sjúkrahússins og eftir að hafa neytt „anti-sex” pillunn- ar i eina viku, var honum treyst til að umgangast annað fólk. Maðurinn losnaði jafnframt við slæman höfuðverk, sem lengi hafði þjáð hann áður. — Maðurinn virtist nú vera i fyllsta máta eðlilegur, — segja læknarnir þrir i „Ugeskrift for læger”. —■ MAN EFTIR Þannig hefur Sósialski verka- lýðsflokkurinn boðið fram allt frá árinu 1892. Núna býður flokkurinn fram fyrrverandi verkamann i þvottahúsi, Louis Fisher. Hann er 59 ára gamall Sósialski verkamannaflokk- urinn er róttækari flokkur og aðhyllist trotskýsma. Hann býð- ur fram 31 árs gamla konu, Lindu Jenoss. Aldur hennar sýnirreyndar vonleysi flokksins um árangur i kosningunum. Kommúnistaflokkur Banda- rikjanna býður fram að vanda. Nú eins og áður getur banda- riska þjóðin kosið flokksforingj- ann Gus Hall, 62 ára gamlan mann. Ameriski flokkurinn býður fram John Schmitz og Flokkur fólksins barnasálfræðinginn fræga Benjamin Spock. Sterkustu pólitisku andstæð- urnaru eru á milli sósialistisku flokkanna og Frjálslyndra. Þessi flokkur er nýr af nálinni og hefur aðsetur i Colorado. Framboðsefni flokksins er heimspekiprófessor við Kali- forniuháskóla, John Hospers. Hann studdi Goldwater i kosn- ingunum 1964 og eitt af stefnu- málum hans er algert afskipta- leysi rikisins. Hann er t.d. hlynntur þvi, að slökkviliðs- stöðvar séu i einkaeign. Og enn eru til i Bandarikjun- um menn, sem eru fylgjandi al- geru vinbanni. „Vinbannsflokk- urinn” býður fram fyrrverandi skólastjóra, sem kominn er á ellilaun og boðorðið er: þurrt land;hamingjusamt land. Nú og svo eru i hópi frambjóð- enda menn, sem vilja láta ljós sitt skina og telja forsetafram- boð einmitt réttu leiðina til þess að koma boðskap sinum á fram- færi. Flokkurinn „Tryggð við Bandarikin” hefur aðeins ein- um meðlim á að skipa og hann er reyndar einnig stofnandi hans. Hann heitir Billy Joe Clegg og er fyrrverandi liðþjálfi i bandariska hernum. Hann hefur skipað Guð sem yfirmann kosningabaráttunnar, Jesúm Krist sem blaðafulltrúa og hinn heilagi andi semur ræð- urnar fyrir hann. Þá annast englahópur dagleg störf kosn- ingabaráttunnar. Einasta sann- færing Clegg er sú, að Banda- rikin kunni að vera óviðbúin verulega kristnum manni i Hvita húsinu. Fyrrverandi ráðuneytis- starfsmaður frá Washington DC, James Boren, hefur stofnað flokk, sem heitir Rikissamtök atvinnuskriffinna. Eitt af eink- unnarorðum hans er: Þegar þú ert i vafa, skaltu muldra. Hann hefur hafið kosningabaráttuna og einkennt hana með orðunum „skapandi aðgerðarleysi gagn- vart fólkinu”. Boren hefur þeg- ar ferðazt til 28 rikja innan Bandarikjanna og hann hefur kallað Nixon „harðasta keppi- naut sinn á sviði ógnarlegs að- gerðarleysis”. I bandariska timaritinu Newsweek er þessum frambjóð- endum likt við Don Quixotes en jafnframt látin i ljósi undrun yf- ir þvi, að þessi Quixotar skuli þó ekki vera fleiri. SUMIR ERU GRINISTAR AÐRIR ERU MEÐ TOPPSTYKKIÐ í ÓLAGI, — MENNIRNIR SEM KEPPA VIÐ NIXON OG MCGOVERN UM FORSETASESSINN Sunnudagur 29. október 1972 o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.