Alþýðublaðið - 29.10.1972, Blaðsíða 7
BILAR OG UMFERD
ÞAÐ ER ÝMIS-
LEGT AÐ ATHUGA
AÐUR EN VETUR
GENGUR í GARÐ
Ætli allir bileigendur séu búnir
undir snjóinn og veturinn, sem
getur verið á næsta leiti? Þaö er
mjög óliklegt, og liklega ekki
seinna vænna að athuga sinn
gang.
Hvað þarf að gera fyrir vetur-
inn? Það sem mönnum dettur ef-
laust fyrst i hug er utbúnaðurinn
til hjólanna. Flestir aka núorðið á
negldum snjódekkjum, enda er
það nauðsynlegur útbúnaður i
hálku, — og yfirleitt nógu góður.
En nagladekk hafa sin takmörk,
ef snjóar mikið geta þau orðið al-
veg gagnslaus — þau eru að sjálf-
sögðu misjafnlega góð, en þó má
búast við þvi að svo mikið geti
snjóað, að allir verði stopp. Þegar
svo er komið seljast allar snjo-
keðjur upp á svipstundu, — og
sumir verða svo óheppnir að fá
engar. Þessvegna er gott að byrja
veturinn með þvi að kaupa snjó-
keðjurnar — séu þær ekki til fyrir.
En það þarf að huga að fleiru en
hjólaútbúnaðinum. Það er ekki
verra að bilarnir fari i gang i
frostunum, en þá þarf að hafa
nokkra fyrirhyggju, að minnsta-
kosti ef um er að ræða eldri bila.
Rafkerfið þarf fyrst og fremst
að vera i fullkomnu lagi, en fyrst
og fremst þarf þó rafgeymirinn
að vera fullhlaðinn og rafallinn að
framleiða nóg rafmagn. Það fyrr-
nefnda finnst nokkuð fljótt, þ.e.
hvort nóg rafmagn sé á geymin-
um — allavega þegar fyrstu kuld-
ar koma. Afköst rafalsins má
m.a. sjá með þvi að láta bilinn
ganga hægagang með fullum ljós-
um — og láta þau skina t.d. á
vegg. Ef þau dofna óeðlilega
mikið má búast við, að hækka
þurfi hleðsluna ( það er gert i
straumrofanum (cut out)).
Að sjálfsögðu er aldrei mikil-
vægara en ljósin séu i lagi, —
báðar perur heilar, og helzt jafn
gamlar svo þær hafi sama ljós-
styrkleika. Það er furðuleg ráð-
stöfun hjá umferðaryfirvöldum
að krefjast ljósastillingar á
meirihluta bilanna á sumrin, en
siðan er hægt að aka allan vetur-
inn með vanstillt ljós án þess að
nokkuð sé sagt eða gert. Það er
nokkurnveginn öruggt mál, að
ljós á bil, sem fór i skoðun að vor-
lagi eða fyrrihluta sumars, þarf
nauðsynlega ljósastillingu aftur
fyrir skammdegið.
En ef við vikjum aftur að gang-
setningu i kuldum getum við ekki
litið framhjá þeirri staðreynd, að
bilareru misgóðir i gang, jafnvel
þótt rafkerfið sé i lagi. Þá eru til
ýms ráð, önnur en að láta draga i
ÞAÐ ER UOTT
MEO M BREZKU
Búast má við, að fljótlega fari
að bera á varahlutaskorti i
brezka bila verði afgreiðslubann-
inu á islenzkum skipum i Bret-'
landi ekki skjótlega aflétt. Ann-
ars hafa þeir, sem flytja inn vörur
frá Bretlandi, sumir hverjir all
góða von um, að mál þetta leysist
fljótlega, eða eins og bilainnflytj-
andieinn sagði i samtali við bila-
þáttinn: ,,Ég held að þeir hafi enn
meiri áhuga á að leysa þetta mál
en við”.
En hvað sem þvi liður, er af-
greiðslubannið þegar farið að
segja til sin á bilamarkaðnum,
t.d. verða þeir, sem hafa pantað
Cortinu eða Austin, að hafa bið-
lund þar sem litið eða ekkert er til
af þessum bilum i landinu. Hins-
vegar vildi svo heppilega til, að
þeir hjá Sveini Egilssyni voru
búnir að panta 50 Escorta, sem
eru komnir til landsins.
Dragist á langinn að semja við
Breta má búast þvi, að fljótlega
fari að bera á varahlutaskorti i
brezka bila, og vafalaust seljast
þeir varahlutir mjög fljótlega
upp, sem þörfin fyrir er mest.
gang. Eitt bezta ráðið er senni-
lega að úða eterblöndu inn i
blöndunginn, en þessi blanda fæst
á brúsum á öllum benzinstöðvum.
Dugi það ekki til má gripa til þess
ráðs að skrúfa kertin inn og
„snapsa” vélina með benzini.
Og i framhaldi af þessu má
minna á frostlöginn, — hann er
ómissandi i frostum. Á sumum
velum verður að visu að vera
kælivökvi allan ársins hring, en
sé svo ekki er nauðsynlegt að
mæla frostþol kælivatnsins, en
það er hægt að láta gera á öllum
benzinstöðvum.
Hrim á rúðum er alltaf erfitt
viðureignar, en að sjálfsögðu er
til ráð gegn þvi. Á benzinstöðvum
fæst efni til þess að hreinsa hrim-
ið á utanverðum rúðunum, — en
væntanlega sér miðstöðin um
hitt.
Svo er bara að fara varlega —
þrátt fyrir nagladekk og keðjur —
eins og reykviskir bilstjórar
sýndu fyrsta hálkudaginn, að þeir
geta gert.
UMSJÓN: ÞORGRIMUR GESTSSON
Vatnsberakonan
3
öðru fólki og velferðarmálum
þess, bæði peninga- og timasóun.
Samhaldsemi hans er gagnstæð
örlæti hennar og það er liklegt að
hún yrði þess ekki umkomin að
skilja hið alvarlega og þrönga
viðhorf hans til lifsins. Ekki er
útilokað að Vatnsberakonan
mundi beita allri þolinmæði sinni
og öllu sinu umburðarlyndi i sam-
búðinni við slikan mann, án þess
þó að henni tækist að uppfylla þær
kröfur um „fullkomnun”, sem
hann gerir til annarra.
Vatnsberakona og karl
maður fæddur undir
VATNSBERAMERKI
20. jan.—18. febr.
Jafnvel þótt það sé mjög erfitt
fyrir karl og konu, sem fædd eru
undir sama stjörnumerki, að
lynda saman i hjónabandi, eru
meiri likur á að það megi takast,
þegar Vatnsbera-maður og
Vatnsberakona eiga i hlut, heldur
en tvær manneskjur fæddar undir
sama stjörnumerki öðru. Þau eru
bæði frjálslynd og telja mikilvægt
að friðsæld riki á heimili, og
mundu þvi forðast sundurþykki
og deilur af fremsta megni, en
reyna að jafna öll vandamál og
vandkvæði, sem kynnu að segja
til sin, með þvi að ræða þau af
vinsemd og skynsemi. Og þar eð
þau mundu bæði eiga mörg
áhugamál utan heimilisins, er
óliklegt að þau yrðu þreytt eða
leið hvort á öðru, einkum ef þeim
tækist að sýna skynsamlegan
áhuga hvort á annars starfi. Ekki
er heldur liklegt að þau mundu
reyna að takmarka frjálsræði
hvors annars. Astir þeirra mundu
að likindum reynast fullnægjandi
og endast vel, jafnvel þótt þar
gætti ekki samskonar ofsa og hjá
þeim sem gefinn er meiri til-
finningahiti. Hjónaband þeirra
gæti þvi orðið ástúðlegt og báðum
til hamingju.
Vatnsberakonan og karl
maður fæddur undir
FISKAMERKINU.
10. febr. — 20. marz.
Það er harla óliklegt að svo við-
kvæmur og tilfinningarikur mað-
ur falli Vatnsberakonunni vel i
geð. Laðist hún samt að honum,
er liklegt að hún komizt að raun
um að erfitt muni að öðlast ham-
ingjuna með honum. Hann er oft
harla háður eiginkonu sinni og
hefur þörf fyrir að hún styðji hann
og styrki. Venjulega er hann
mjög ástrikur og rómantiskur, og
ætlast til að þær tilfinningar séu
endurgoldnar. Hann er og mjög
heimiliskær og hefur þörf fyrir
öryggi og hamingjusamt heimili,
þar sem konan annast allt af ást-
riki hugulsemi, en hætt er við að
áhugi hennar á allskonar starf-
semi utan heimilisins veiti henni
ekki tima til slikra hluta. Ef hann
er i þeim hópi Fiskimanna, sem
hafa sterka skapgerð og nota
drauma sina til að koma sér
áfram i héiminum', er ekki úti-
lokað að þau geti orðið hamingju-
söm án mikilla örðugleika. Um
ósamkomulag ætti ekki beinlinis
að verða að ræða, en hún mundi
verða að láta sér lynda að sinna
heimilinu meira en henni þætti
hóf að.
neinu. Jaínvel það, sem þú kannt
sjálfur að telja harla smávægileg
atriði i þvi sambandi, getur einmitt
orðið til þess að þið komizt sameigin-
lega á sporið.
Við getum nefnt eitt dæmi. Læknir-
inn spyr þig ef til vill: „hvernig er
það, lyftirðu þér ekki eitthvað upp,
endrum og eins?” Þú verður dálitið
undrandi við spurninguna... nei, þú
lyftir þér ekki neitt upp, endrum og
eins. Og hvers vegna ekKi: pu veizi
það ekki. Og svo tekurðu að hugleiða
þetta nánar...
Þreytan
5
hverfi, ferðalög, jafnvel að horfa á
kvikmynd. Og ef þú ferð i sólbað á
ströndinni, þá áttu ekki að liggja þar
og maka á þig olium, þú átt að synda
— taka ærlegan sundsprett, eins þótt
þér finnist þú allt of þreyttur til þess.
Þú átt að neyða þig til að hafast eitt-
hvað að, en ekki að hvila þig.
Þetta orð, að neyðasig, er lausnar-
orðið i flestum tilvikum. Að risa gegn
leiðanum og brjóta af sér viðjar hans
i athöfn og áreynslu, andlegri — en
þó fyrst og fremst likamlegri. En ef
það dugar ekki samt sem áður, þá á
viðkomandi sizt af öllu að fara að
notast við hinar lyffræðilegu hækjur,
sem ekki leysa neinn vanda, heldur
ræða málið af einlægni og hreinskiln-
islega við lækni sinn.
Og þar er hreinskilnin mikils virði.
Læknirinn er fyrst og fremst að svíd-
ast um eftir likamlega sjúklegum or-
sökum leiðans og þreytunnar. Og
þær þurfa alls ekki að vera alvarleg-
ar, að minnsta kosti ekki ef þar eru
um byrjunarstig að ræða, og þá auð-
velt að ráða þar bót á. En hafi verið
gengið úr skugga um að sllkum lík-
amlegum orsökum sé ekki til að
dreifa, þá þarf að gera viðtækari leit
og til þess að sú leit beri tilætlaðan
árangur, máttu ekki leyna lækninn
Tilkynning
til símnotenda
Að gefnu tilefni skal simnotendum, sem fá simareikninga
á giróseöluin, vinsamlegast bent á eftirfarandi:
1. Aö nauðsynlegt er aö framvisa öllum eintökum
reikningsins viö greiösiu, cinnig þegar grciðsla fer fram i
afgreiösiu iiinheimtunnar i Reykjavik og Hafnarfirði.
2. Að tekiö er á móti greiðsium fyrir simareikninga i inn-
lieitnum Póst og sima, bönkum og sparisjóðuin.
:í. Aö greiða reikninginn fyrir 10 dag. innheimtumánaðar-
ins til þess að losna við óþægindi.
Góðfúslega takið framvegis tillit til
þessara atriða til hagræðis fyrir báða
aðila.
Póstur og slmi
Innheimta simareikninga.
Sunnudagur 29. október 1972