Morgunblaðið - 21.06.2002, Qupperneq 1
2002 FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
DÓMARINN SVARAR ÍTÖLUM FULLUM HÁLSI / C3
Helgi Sigurðsson
áfram hjá Lyn
HELGI Sigurðsson, knattspyrnumaður hjá Lyn,
framlengdi í gær samning sinn við norska félagið
um eitt ár en hann gekk í raðir þess frá gríska
liðinu Panathinaikos á síðasta ári. Helgi hefur lít-
ið getað spilað með Lyn á leiktíðinni vegna
meiðsla og hefur aðeins komið inn á í tveimur
leikjum. Á síðustu leiktíð lék hann 13 leiki með
liðinu í norsku úrvalsdeildinni og skoraði 6 mörk.
„Við höfum tröllatrú á að Helgi komi sterkur
til baka eftir meiðslin og verði framherji í alþjóð-
legum toppklassa. Það er mikil ánægja í okkar
herbúðum að vera búnir að ganga frá þessum
samningi,“ sagði Ole-Ray Grödseth, fram-
kvæmdastjóri Lyn, í samtali við norska fjölmiðla
í gær. Lyn, sem Jóhann B. Guðmundsson er einn-
ig á mála hjá, trónir á toppnum í norsku úrvals-
deildinni. Liðið er með 28 stig eftir 12 umferðir,
tveimur stigum meira en Molde.
GUÐMUNDUR E. Stephensen, margfaldur Íslandsmeistari í borðtennis,
hefur gert samning við norska úrvalsdeildarliðið B-72 frá Osló. Guðmundur,
sem lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund nú í vor, heldur utan til
Noregs í sumar og mun leika með Oslóarliðinu á næsta keppnistímabili. Hann
mun dvelja í Norgi og Svíþjóð og frá því hefur verið gengið að hann muni
keppa á öllum stórmótum í Evrópu á komandi keppnistímabili.
Guðmundur hefur borið höfuð og herðar yfir aðra borðtennisleikara hér á
landi mörg undanfarin ár og verður fróðlegt að fylgjast með honum í keppni
við sterka spilara frá Evrópu á næsta hausti.
Guðmundur samdi við B-72 Ólafur, sem er fyrsti leikmað-urinn til að vera kjörinn tvö
ár í röð, fékk 79 stig í fyrra, þá var
Jan Holpert hjá Flensburg í öðru
sæti með 43 stig. Kjörið á vegum
blaðsins fór fyrst fram 1998 og var
þá kjörinn Daniel Stephan, Lemgo,
1999 var kjörinn Suður-Kóreumað-
urinn Kyung-Shin Yoon, Gummers-
bach, og Svíinn Magnus Wislander,
Kiel, var kjörinn 2000.
„Fullkominn leikmaður, sem býr
yfir mikilli kunnáttu,“ sagði Peter
Meisinger, þjálfari Grosswallstadt,
og Bob Hanning, þjálfari Willstätt/
Shutterwald, sagði að Ólafur væri
hugmyndaríkur og fljótur að fram-
kvæma hlutina.
Alfreð Gíslasyni kom útnefning
Ólafs ekki á óvart, en hann var með
hann í öðru sæti, en Peter Gentzel,
markvörð Nordhorn, í fyrsta sæti.
„Ólafur hefur allt sem góður hand-
knattleiksmaður þarf að hafa,“
sagði Stefan Lövgren. Ólafur var í
efsta sæti hjá ellefu þjálfurum, eins
og í fyrra. Hann var í öðru sæti hjá
tveimur, fimm í fyrra og þriðja sæti
hjá einum, tveimur í fyrra. Ólafur
fékk ekki atkvæði hjá sjö þjálfur-
um, en þremur í fyrra.
Níu fyrirliðar settu Ólaf nú í
fyrsta sæti, átta í fyrra. Hann var í
öðru sæti hjá fjórum eins og í fyrra,
þriðja sæti hjá einum, en tveimur í
fyrra. Ólafur fékk ekki atkvæði hjá
sex fyrirliðum nú, eins og í fyrra.
Þeir leikmenn sem fengu flest
stig, voru:
Ólafur Stefánsson.....................74
Stefan Lövgren, Kiel ................51
Peter Gentzel, Nordhorn..........23
Oleg Velyky, Essen...................16
Glenn Solberg, Nordhorn.........11
Daniel Stephan, Lemgo............10
Erik Veje Rasmussen, þjálfari Flensburg
Morgunblaðið/Golli
Ólafur Stefánsson skorar mark í landsleik gegn Portúgal á HM í Frakklandi 2001.
„Ólafur bestur
í heiminum“
„BESTI handknattleiksmaður heims í ár,“ sagði Daninn Erik Veje
Rasmussen, þjálfari þýska handknattleiksliðsins Flensburg, þegar
hann gaf Ólafi Stefánssyni einkunn í kjöri handknattleiksmanns
ársins í Þýskalandi, sem þjálfarar 1. deildarliða, landsliðsþjálfari og
fyrirliðar tóku þátt í á vegum þýska handknattleiksblaðsins Hand-
ball magazin. Ólafur var kjörinn leikmaður ársins með miklum yf-
irburðum, fékk 74 stig, en Svíinn Stefan Lövgren hjá Kiel kom í öðru
sæti með 51 stig.
Á HEIMASÍÐU tímaritsins Playboy
í Bandaríkjunum stendur yfir val á
kynþokkafyllstu knattspyrnukonu
landsins og hafa tæplega 30 þúsund
manns tekið þátt í valinu.
Íslenska knattspyrnukonan Rak-
el Ögmundsdóttir er þessa stundina
í öðru sæti í kjörinu með um 11% at-
kvæða á bak við sig en bandaríska
stúlkan Heather Mills er með mikla
yfirburði, hefur fengið um 53% at-
kvæða.
Mills, sem er varnarmaður, leik-
ur með Philadelphia Charge í at-
vinnumannadeildinni vestanhafs en
Rakel leikur einnig með því liði.
Mills hefur verið með sína eigin
sjónvarpsþætti í Philadelphiu og að
auki er hún fremst í flokki í auglýs-
ingaherferð sem fór af stað fyrir
skemmstu og skýrir það að nokkru
leyti yfirburði hennar.
Í kynningu vefsíðunnar er Rakel,
sem gengur undir nafninu „Ice Ice
Baby“, sögð koma næst í röðinni á
eftir tónlistarkonunni Björk er
Bandaríkjamenn eru inntir eftir
þekktum Íslendingum. Íslenska
landsliðskonan er sögð vera einkar
glæsileg á velli og ljósir lokkar
hennar veki mikla athygli hvar sem
hún komi.
Rakel hefur búið alla sína tíð í
Bandaríkjunum og á íslenska for-
eldra en hún lék með liði Breiða-
bliks fyrir tveimur árum og varð Ís-
lands- og bikarmeistari með liðinu.
Rakel skoraði 22 mörk í úrvals-
deildinni og varð næstmarkahæst á
eftir Olgu Færseth, sem skoraði 26
mörk.
Rakel hefur lítið leikið með
Charge að undanförnu þar sem hún
er að jafna sig eftir að hafa slitið
krossband í hné fyrr á þessu ári.
Rakel notar eftirnafnið Karvels-
son vestanhafs en faðir hennar heit-
ir Ögmundur Karvelsson og er
hægt að skoða stöðu mála inni á
slóðinni www.playboy.com/sports/
features/wusa/.
Íslensk val-
kyrja vekur
athygli
vestanhafs
Morgunblaðið /Arnaldur
Rakel Ögmundsdóttir