Morgunblaðið - 21.06.2002, Side 2
KNATTSPYRNA
2 C FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna, Símadeild:
Grindavík: Grindavík – KR ......................20
1. deild karla:
Valbjarnarv.: Þróttur R. – Valur .............20
ÍR-völlur: ÍR – Stjarnan...........................20
Ólafsfj.: Leiftur/Dalvík – Víkingur R. .....20
2. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Léttir ...........20
Sauðárkrókur: Tindastóll – HK...............20
3. deild karla:
Tungubakkav.: Deiglan – Grótta .............20
Þorlákshöfn: Ægir – Bruni.......................20
Ásvellir: ÍH – Úlfarnir ..............................20
Laugavöllur: Efling – Hvöt ......................20
Hofsós: Neisti H. – Vaskur ......................20
Fáskrúðsf.: Leiknir F. – Neisti D............20
Í KVÖLD
Í DAG verður dregið til 1. um-
ferðar í UEFA-bikarnum í knatt-
spyrnu. Tvö íslensk lið eru með í
keppninni, Fylkir og ÍBV, og
Fylkismenn eiga 20 prósent
möguleika á að dragast gegn
Hermanni Hreiðarssyni og fé-
lögum í Ipswich. ÍBV á hins-
vegar 75 prósent möguleika á að
fara til Skotlands eða Norð-
urlanda en liðunum í keppninni
hefur verið raðað upp í riðla og
síðan er dregið innan þeirra.
Fylkir getur mætt fimm liðum
og þar yrði besti kosturinn fyrir
utan Ipswich að fá Moeskroen
frá Belgíu. Hinir þrír möguleik-
arnir eru ekki spennandi fyrir
Árbæingana en það eru Sartid
frá Júgóslavíu, Koba Senec frá
Slóvakíu og National Búkarest
frá Rúmeníu. Sennilega ætti
Fylkir helst möguleika á að
komast áfram gegn slóvakíska
liðinu.
ÍBV getur mætt fjórum liðum
og af þeim eru þrír kostir góðir.
Það eru Aberdeen frá Skotlandi,
AIK frá Svíþjóð og HJK frá
Finnlandi en fjórða liðið er Vart-
eks frá Króatíu. Ef litið er á
möguleikana á að komast áfram
yrði HJK líklega besti kosturinn.
Moreno
svarar Ítölum
fullum hálsi
KNATTSPYRNUDÓMARINN Byron
Moreno frá Ekvador hefur svarað fullum
hálsi þeirri gagnrýni sem hann fékk frá
Ítölum í kjölfar leiks Ítalíu og Suður-
Kóreu í 16-liða úrslitum HM, þar sem
Ítalir féllu úr keppni. Moreno segir að
Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA,
hafi haft samband við sig og hrósað sér
fyrir frammistöðuna í leiknum, þó svo að
honum hafi reyndar verið tilkynnt að
hann muni ekki dæma fleiri leiki í
keppninni. Hann er þess þó fullviss að
hann muni verða á meðal þeirra dómara
sem dæma í Þýskalandi eftir fjögur ár.
„Það er ekki rétt að kenna mér um það
hvernig fór fyrir ítalska liðinu á HM. Það
er leikmönnunum að kenna, því þeir
skoruðu ekki nægilega mörg mörk til
þess að komast áfram. Ég skil ekki þá
Ítali sem eru mér svo reiðir sem raun ber
vitni. Ég hafði ekkert út á þá að setja.
Vandamálið er að allir töldu að Ítalir
ættu að sigra Suður-Kóreu en þegar á
hólminn var komið þá tókst þeim aldrei
að halda andstæðingum sínum í skefj-
um.“
Moreno vísaði Francesco Totti af leik-
velli í framlengingunni. „Það var aug-
ljóst að Totti lét sig falla í vítateignum og
gögn frá FIFA hafa staðfest það. Totti
lét sig falla áður en S-Kóreumaðurinn
kom við hann. Í slíkri aðstöðu ber mér að
áminna hann og þar sem þetta var hans
önnur áminning í leiknum þá varð ég að
reka hann af velli,“ sagði Moreno.
Sigurvin Ólafsson var ekki í liðiKR að þessu sinni vegna
meiðsla og er útlit fyrir að hann
verði frá fram í lok
júlí. Þorsteinn Jóns-
son kom inní liðið í
hans stað og lét
strax að sér kveða á
3. mínútu er hann skaut rétt framhjá
marki Fram. Þorbjörn Atli Sveins-
son, framherji Fram, tók við keflinu
frá Þorsteini og rak endahnútinn á
þrjár vænlegar sóknir en hafði ekki
erindi sem erfiði. Hinn 18 ára og
bráðefnilegi leikmaður KR, Jón
Skaftason, átti skot í slá en hann var
mættur í vörnina á 44. mínútu er
hann bjargaði á síðustu stundu skoti
frá Andra Fannari Óttóssyni.
Eins og áður segir skoraði Sig-
urður Ragnar eina mark fyrri hálf-
leiks á besta tíma fyrir KR-liðið sem
gat haldið fengnum hlut „að ítölsk-
um hætti “ í síðari hálfleik.
Miðjuþóf var allsráðandi í síðari
hálfleik eftir að að Einar Þór Daní-
elsson tók nokkrar syrpur upp
hægri vænginn í upphafi síðari hálf-
leiks. Leikmenn beggja liða náðu
aldrei að skapa færi með réttum
tímasetningum í sendingum og
hlaupum án bolta og er vel hægt að
færa rök fyrir því að leikurinn hafi
þróast í þá átt að vera hreinlega leið-
inlegur á að horfa.
Á síðasta stundarfjórðungi leiks-
ins spýttu Framarar aðeins í lófana
og reyndu hvað þeir gátu. Andri
Fannar Óttósson fékk besta færi
þeirra á 86. mínútu en skaut
framhjá. Arnar Jón Sigurgeirsson,
KR, fékk hinsvegar besta færi leiks-
ins á 75. mínútu en hann nýtti tæki-
færið illa.
Bæði lið náðu sér aldrei uppúr
meðalmennskunni og á stundum
jaðraði við að mönnum þætti of vænt
um knöttinn er þeir fengu að gæla
við hann með fótunum stutta stund.
Í fjölmörgum tilfellum vantaði að
menn væru tilbúnir að gefa eina
sendingu í viðbót út á vængina þar
sem samherjar þeirra höfðu gert sig
líklega til þess að hlaupa inní opin
svæði.
KR-liðið sýndi í þessum leik að lið-
ið er ekki með yfirburði í Símadeild-
inni þrátt fyrir að vera í efsta sæti
þessa stundina. Stöðugleika, festu
og áræðni skortir enn í leik liðsins –
sem segir aðeins eitt, að liðið á enn
mikið inni. Veigar Páll Gunnarsson
hefur enn ekki skorað í sumar en
hann fékk í raun ekki mörg tækifæri
til þess gegn Fram. Veigar er hins-
vegar ávallt ógnandi en hefur enn
ekki fundið réttu augnablikin í sam-
spili sínu við samherja sína hjá KR.
Ungu leikmennirnir í KR, hafa
staðið sig vel það sem af er og náði
Jökull Elísabetarson sem leikur í
stöðu vinstri bakvarðar að halda
Ómari Hákonarsyni í skefjum og við
það riðlaðist sóknarleikur Framara.
Styrkleiki Framliðsins er hraður
sóknarleikur og að þessu sinni náði
liðið ekki að nýta hann sem skyldi.
Markið sem skildi liðin að í lok leiks
reyndist þeim dýrkeypt og er liðið
nú aðeins einu stigi frá fallsæti.
KR beitti kunnulegri aðferð gegn
Fram að þessu sinni. Liðið hóf ekki
varnarvinnu sína fyrr en á eigin vall-
arhelming og leyfði varnarlínu Fram
að senda knöttinn á milli án þess að
gera tilraun til þess að setja pressu á
þá. Þar með er mesti broddur úr
sóknarleik Fram horfinn því lítið
rými er þá fyrir vængmenn liðsins til
þess að stinga sér í og að auki verður
þröngt á þingi fyrir eldfljóta fram-
herja liðsins.
Sigurður skaut
KR á toppinn
Ágúst Gylfason, fyrirliði Fram, ke
EFLAUST hafa margir stuðn-
ingsmenn KR og Fram vænst
þess að líf og fjör yrði að-
alsmerki í grannaslag liðana í
lokaleik sjöttu umferðar Síma-
deildar í knattspyrnu í gær.
Leikmenn liðanna náðu aldrei
að skemmta rúmlega 1.600
áhorfendum með leiftrandi og
kraftmiklum sóknarleik og að-
eins Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son náði að koma knettinum í
markið undir lok fyrri hálfleiks
og tryggði KR sigur á heima-
velli. KR er þar með í efsta sæti
deildarinnar með 13 stig, tveim-
ur fleiri en Fylkir. Fram er í sjö-
unda sæti með sex stig, einu
meira en ÍA og ÍBV sem eru í
fallsætunum tveimur.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
!"#
$ %
&
!'()#
*
!)
!
$
!
$+
#
, -&
.&%
/0
/
12)3
)
.
4
1)3
5
/ %#
#% / / 67)% 8' !
* 9 "
$ % &
:;
/<77<
+% '()
#=
* /% ''*
+
%
4
'
<> 2
=
?
&
: 4 /
(
8 @
*
/A !
0
$-A
@% 4
.&
0)@
12)3
:" &
+ &%
/
, &
.B; % =1)3
*
/
C
$
'
*8
.
71)3
&
'/
'/ <>,-./
.=3
2
<
.<3
ÚRSLIT
Fylkir getur mætt Ipswich
KNATTSPYRNA
Símadeild, efsta deild karla
KR – Fram .................................................1:0
Staðan:
KR 6 4 1 1 9:4 13
Fylkir 6 3 2 1 11:7 11
KA 6 2 3 1 5:5 9
Grindavík 6 2 2 2 11:11 8
Keflavík 6 2 2 2 9:10 8
FH 6 2 2 2 8:10 8
Fram 6 1 3 2 9:9 6
Þór 6 1 3 2 8:10 6
ÍA 6 1 2 3 8:10 5
ÍBV 6 1 2 3 7:9 5
Markahæstir:
Grétar Ólafur Hjartarson, Grindavík........ 4
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 4
Jóhann Þórhallsson, Þór............................. 4
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR .............. 4
Steingrímur Jóhannesson, Fylkir ............. 4
2. deild karla
Víðir – Selfoss ...........................................1:0
Guðmundur Þór Brynjarsson
Staðan:
HK 5 5 0 0 11:3 15
Njarðvík 5 4 0 1 15:2 12
Víðir 6 4 0 2 10:7 12
KS 5 3 1 1 12:7 10
Tindastóll 5 3 0 2 13:9 9
Selfoss 6 2 1 3 10:12 7
Völsungur 5 1 2 2 9:10 5
Leiknir R. 5 1 0 4 9:15 3
Léttir 5 1 0 4 5:15 3
Skallagr. 5 0 0 5 2:16 0
3. deild karla D
Huginn/Höttur – Fjarðabyggð...............1:4
1. deild kvenna A
HK/Víkingur – Þróttur R. ......................1:6
HSH – RKV................................................0:4
Staðan:
Þróttur R. 4 4 0 0 23:1 12
RKV 4 3 0 1 14:9 9
Haukar 4 3 0 1 10:5 9
HK/Víkingur 5 2 0 3 11:15 6
Fjölnir 4 1 0 3 7:9 3
ÍR 4 1 0 3 5:22 3
HSH 3 0 0 3 1:10 0
KÖRFUKNATTLEIKUR
Kvennalandsliðið á móti smáþjóða,
Promotion Cup, í Andorra:
Ísland - Albanía.....................................71:83
Stig Íslands: Helga Þorvaldsdóttir 20,
Anna María Sveinsdóttir 13, Birna Val-
garðsdóttir 13, Guðbjörg Norðfjörð 12,
Kristín Björk Jónsdóttir 6, Hildur Sigurð-
ardóttir 3, Signý Hermannsdóttir 2, Kristín
Blöndal 2.
GOLF
Opna Kumho-mótið
Golfklúbbur Kiðjabergs, 15. júní:
Hörður Már Gylfason, GÖ........................ 41
Heiðar Davíð Bragason, GKJ .................. 40
Gylfi Héðinsson, GÖ.................................. 40
Eyjólfur Eyjólfsson, GR........................... 39
Aron Gauti Mahoney, GR ......................... 39
ÍSÍ styrkir
þjálfara
ÁTTA þjálfarar fengu 50.000
kr. styrk frá Íþrótta- og ól-
ympíusambandi Íslands á
þriðjudaginn. Það eru Ágúst
Sigurður Björgvinsson,
körfuknattleiksþjálfari hjá
Val, Árni Þór Eyþórsson,
danskennari hjá ÍR, Edgar
Konráð Gapunay, danskenn-
ari við Dansskóla Sigurðar
Hákonarsonar. Friðrik Ingi
Rúnarsson, körfuknattleiks-
þjálfari hjá Grindavík og
landsliðsþjálfari karla, Júlíus
Jónasson, handknattleiks-
þjálfari hjá ÍR, Jökull Jörg-
ensen skvassþjálfari, Magnús
Tryggvason, sundþjálfari á
Selfossi og Stefán Arnarson,
landsliðsþjálfari kvenna í
handknattleik.
SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson
hefur tryggt KR sigur í síðustu
tveimur leikjum liðsins í Síma-
deildinni og hafa bæði mörkin ver-
ið keimlík – skot með hægri rétt
utan vítateigs. Sigurður sagði að
Framliðið hefði verið erfitt við-
ureignar. „Það var ekki mikið um
færi í þessum leik og þar sem við
lékum undir getu í fyrri hálfleik
var gott að skora mark rétt fyrir
leikhlé. Ég var ánægður með það.“
Sigurður játti því að KR-liðið hefði
ekki náð að sýna þann stöðugleika
sem stefnt væri að. „Það er slæmt
að missa Sigurvin Ólafsson í
meiðsli en hann hefur leikið vel í
sumar. Auðvitað kemur maður í
manns stað en í þessum leik var of
mikið bil milli sóknarmanna og
miðjumanna. Leikskipulag okkar
slitnaði í sundur án þess að við
gætum lagað það. Við uppskárum
þrjú stig og erum á toppnum þrátt
fyrir að leika frekar illa og það er
jákvætt,“ sagði Sigurður.
Ágúst Gylfason, fyrirliði Fram,
var óánægður með uppskeru
kvöldsins.
„Við ætluðum okkur að pressa á
varnarmenn KR og ná hraðanum
upp í leiknum frá upphafi. Það
gekk vel af og til en við náðum
aldrei takti hver við annan. Send-
ingar, fyrirgjafir og hlaup voru
illa tímasett og það leiðir af sér að
við fáum ekki marktækifæri. Það
hefði verið gaman að vinna leikinn
og fá enn meiri spennu í Íslands-
mótið en það gekk ekki nógu vel
hjá okkur. Ég veit ekki af hverju
við náum okkur ekki á strik í
grannaslag sem þessum en svona
er knattspyrnan – óútreiknanleg,“
sagði Ágúst.
„Lékum undir getu“