Morgunblaðið - 21.06.2002, Qupperneq 4
MARÍA Ágústsdóttir, markvörður
kvennaliðs Stjörnunnar í knatt-
spyrnu og varamarkvörður lands-
liðsins, leikur ekki meira með Garða-
bæjarliðinu í sumar. Hún er á förum
til náms í Bandaríkjunum.
PÉTUR Kristjánsson, sóknarmað-
ur úr Þór á Akureyri, hefur verið
lánaður til 1. deildarliðs Leifturs/
Dalvíkur. Pétur hefur leikið tvo leiki
með Þórsurum í úrvalsdeildinni í
sumar.
HREIÐAR Bjarnason var í fyrsta
skipti í leikmannahópi Fylkis í ár
þegar Árbæingar unnu Grindavík,
2:0, í úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
fyrrakvöld. Hreiðar sleit hásin í vet-
ur en er kominn á fulla ferð á ný.
Hann kom þó ekki við sögu í leikn-
um.
KÁRI Steinn Reynisson, Pálmi
Haraldsson og Hálfdán Gíslason
léku allir sinn fyrsta leik með ÍA á
tímabilinu, auk Bjarka Gunnlaugs-
sonar, þegar liðið vann Keflavík, 5:2,
í fyrrakvöld. Þeir hafa allir verið frá
vegna meiðsla. Þar með hefur Ólafur
Þórðarson, þjálfari ÍA, teflt fram 22
leikmönnum í fyrstu sex umferðum
Íslandsmótsins, mun fleirum en aðr-
ir þjálfarar í deildinni.
ÖLL önnur lið í deildinni hafa not-
að 16-18 leikmenn í fyrstu sex leikj-
unum. Grindavík, Fylkir og KR hafa
notað fæsta, 16 leikmenn hvert.
HILMAR Þórlindsson, landsliðs-
maður í handknattleik, sem lék með
Modena á Ítalíu sl. keppnistímabil,
er genginn til liðs við 1. deildarliðið
Cangas á Spáni. Grótta/KR lánaði
hann í eitt keppnistímabil. Cangas
hafnaði í 13. sæti af 16 liðum á síð-
ustu leiktíð og er Hilmar þriðji er-
lendi leikmaðurinn í herbúðum liðs-
ins en fyrir eru Rússi og Ungverji.
BIRGIR Leifur Hafþórsson, GL,
tekur þátt í atvinnumannamóti sem
fram fer á De Vere Slaley Hall vell-
inum á Englandi, en mótið er hluti af
Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur
lék á þremur höggum yfir pari í gær
og er sem stendur í 111. sæti og þarf
að leika mun betur í dag til þess að
sleppa í gegnum niðurskurðinn.
LANDON Donovan ein helsta
stjarnan í spútnikliði Bandaríkjanna
mun í sumar ganga að nýju í raðir
þýska liðsins Bayer Leverkusen.
Donovan gerði samning við þýska
liðið árið 1999 en hann ákvað að snúa
til baka og leika með liði San Jose
Earthquakes í MLS-deildinni þar
sem hann fékk fá tækifæri með Lev-
erkusen. Þjóðverjarnir lánuðu Don-
ovan til San Jose Earthquakes en nú
hafa þeir náð samkomulagi við leik-
manninn um að hann komi til Þýska-
lands í sumar.
DONOVAN er 20 ára gamall og
hefur skorað tvö mörk fyrir Banda-
ríkjamenn á HM. Hann tryggði sín-
um mönnum sigurinn á Mexíkó í 16-
liða úrslitunum þegar hann skoraði
annað markið og átti þar með stóran
þátt í að koma Bandaríkjamönnum í
8-liða úrslit keppninnar í fyrsta sinn
í 72 ár.
PETER Velappan, formaður as-
íska knattspyrnusambandsins,
vandar ítalska félaginu Perugia ekki
kveðjurnar en félagið sagði sem
kunnugt er upp samningi s-kóreska
leikmannsins Jung-Hwan Ahn.
Hann segir vinnubrögð Ítalanna
vera barnaleg. „Heimsbyggðin hlær
að viðbrögðum Perugia, Ítölum al-
mennt og samsæriskenningum
þeirra vegna tapsins gegn Suður-
Kóreu.“
RIVALDO hefur útilokað að hann
sé á leið til Newcastle á Englandi
eða ítalska liðsins Lazio. Brasilíu-
maðurinn, sem á eitt ár eftir af
samningi sínum við Barcelona, seg-
ist ætla vera um kyrrt í herbúðum
Börsunga, endi kunni hann mjög vel
við sig hjá Barcelona.
FÓLK
Síðari leikur liðanna verður íKaplakrika annan laugardag en
liðið sem kemst áfram mætir Vill-
arreal frá Spáni í 2. umferð keppn-
innar.
FH-ingar hafa ekki tekið þátt í
Evrópukeppni í sjö ár, eða frá 1995
þegar þeir léku við Glenavon frá
Norður-Írlandi í UEFA-bikarnum.
Þá töpuðu þeir 1:0 í Kaplakrika en
gerðu 0:0 jafntefli á Norður-Írlandi.
Mótherjarnir, Cementarnica, hafa
aldrei unnið til titla í Makedóníu en
náðu sínum besta árangri á nýliðnu
tímabili. Þá varð liðið í þriðja sæti
deildakeppninnar og komst í bikar-
úrslitin en beið þar lægri hlut fyrir
Pobeda. Áður hafði félagið aldrei
komist ofar en í fimmta sæti í deilda-
keppninni.
Cementarnica hefur aldrei leikið í
hefðbundinni Evrópukeppni en tók
þátt í Intertoto-keppninni árið 1999.
Þá vann liðið Kolkheti frá Georgíu,
4:0 og 4:2, en beið síðan lægri hlut
fyrir Rostselmash frá Rússlandi,
gerði 1:1 jafntefli heima en tapaði 2:1
í Rússlandi.
Lið Cementarnica er ungt og at-
hyglisverðustu leikmenn þess eru
Dragan Grozdanovski, 19 ára miðju-
maður, sem var valinn efnilegasti
leikmaður Makedóníu á síðasta tíma-
bili, og Riste Naumov, 21 árs sókn-
armaður. Þjálfarinn, Zoran Stratev,
var valinn þjálfari ársins í Makedón-
íu 2001–2002.
ÖNNUR umferð Íslandsmeist-
aramótsins fer fram á morgun á
og við Höfn í Hornarfirði og verð-
ur forvitnilegt að sjá hvernig
keppnin verður á milli Baldurs
Jónssonar og Jóns Ragnarssonar,
sem aka á Subaru Legacy, og
Gunnars Viggóssonar og Björns
Ragnarssonar, sem aka á Ford
Escort. Þeir Gunnar og Björn
hafa gert nokkrar breytingar á
bílnum frá síðustu keppni og hafa
meðal annars farið yfir fjöðrun
og sett ATS (antilac) sem heldur
túrbínunni á stöðugum snúningi
og gefur meira afl. Þeim gekk vel
í fyrra á Höfn þrátt fyrir ýmis
vandræði. „Það voru bæði já-
kvæðir og neikvæðir punktar hjá
okkur í fyrra. Við lentum í bleytu-
vandamálum en fórum hins vegar
mjög hratt á tímabili. Í þessu ralli
er ein hraðasta sérleið landsins,
Stokksnesið á Höfn. Rúnar sló
þar Íslandsmet í fyrra þegar hann
sló meðalhraðamet á sérleið og
ók þessa sérleið á rúmlega með-
alhraðanum 153 km, sem er eins
og það gerist best erlendis. Við
ætlum að komast nær Subaru í
þessari keppni, við vitum að við
eigum inni bæði í afli og eins líka
höfum við verið að bæta okkur og
þarna eru tvær til þjár sérleiðir
sem okkur líður vel á. Við vorum í
okkar annarri keppni í fyrra og
núna erum við búnir að ná fimm
keppnum í viðbót þannig að við
erum reynslunni ríkari. Þarna
eru margar skemmtilegar leiðir
þannig að við hlökkum til að fara
austur. Veðrið getur ekki verið
verra en í fyrra þar sem það snjó-
aði á okkur þannig að við erum
bara mjög bjartsýnir,“ sagði
Gunnar, sem er ákveðinn í að láta
til sín taka og ætlar ekki að gefa
Baldri neitt eftir.
Þessar fréttir um Rúnar slógualla þátttakendur og áhuga-
fólk um íslenskt mótorsport þegar
þær bárust. Þrátt
fyrir þessi tíðindi
hefur Baldur ákveð-
ið að halda áfram
keppni og með aðstoð föður síns er
stefnan sett á að verja Íslands-
meistaratitilinn, sem Rúnar og
Baldur eru handhafar að. „Þetta
eru náttúrlega ekki þær aðstæður
sem ég hefði viljað setjast undir
stýri aftur. Rúnar hefur greinst
með æxli í höfði, sem er sem betur
fer talið 99% öruggt að sé góð-
kynja. Hann þarf að fara í lækn-
ismeðferð til Svíþjóðar seinna í
sumar,“ sagði Baldur þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum.
Markmiðið að halda áfram
að vera á toppnum
Baldur mun aftur taka við stýr-
inu, en hann ók þessum sama bíl
síðustu ár þar til nú í sumar að
ákveðið var að einungis skyldi vera
keppt á einum bíl í stað tveggja og
tók Baldur því við sem aðstoðar-
ökumaður. Við þessa breytingu í
vor ákvað Jón Ragnarsson að stíga
til hliðar en nú hefur hann ákveðið
að setjast við hlið Baldurs það sem
eftir er af þessu tímabili. „Allar
þær áætlanir sem við vorum búnir
að setja okkur fara náttúrlega úr
skorðum en markmiðið hjá mér og
karlinum er að sjálfsögðu að halda
áfram að vera á toppnum. Ég þarf
aðeins að átta mig á að keyra með
karlinum en nóturnar eru þær
sömu þannig að þetta ætti ekki að
vera öðruvísi en fyrir Rúnar að
taka mig inn nú í vor. Ég er vanur
að keyra og allt það en ég held að
fyrst og fremst verði þetta tilfinn-
ingaleg barátta, að við séum að
setjast saman og keyra þetta á
þessum forsendum. Við þurfum
bara að yfirstíga það að þetta er
breytt staða og Rúnar sé í þeirri
stöðu að hann geti ekki tekið þátt
en ekki að hann sé búinn að fá nóg.
Maður er sleginn utanundir þegar
svona gerist og eina sem ég get
gert í raun og veru er að halda
heiðri þeirra og þessa liðs sem hef-
ur verið með sigur og það er mitt
markmið númer eitt, tvö og þrjú,“
sagði Baldur sem er að vonum
sleginn við þessi tíðindi en er
ákveðinn í að hann ætli að láta til
sín taka þrátt fyrir það. „Þeir eru
búnir að byggja upp mjög sterkan
feril, góðar nótur og gott kerfi að
öllu leyti og ég er búinn að kynn-
ast því vel og ég held að það sé
bara mitt að halda merkinu á lofti
áfram. En ég get líka lofað því að
ég bakka strax úr sætinu um leið
og Rúnar hefur kost á því að taka
það aftur, það er alveg á hreinu,“
sagði Baldur.
Önnur umferð Íslandsmótsins í ralli fer fram á morgun við Höfn
Morgunblaðið/Gunnlaugur Briem
Rúnar Jónsson er hættur keppni vegna veikinda.
ÞÆR þungu fréttir bárust í síðustu viku að Rúnar Jónsson, marg-
faldur Íslandsmeistari í rallakstri, verður frá keppni í sumar vegna
veikinda og er óljóst hvenær hann muni snúa aftur til að keppa hér
heima og erlendis eins og allar áætlanir lágu fyrir um. Í hans stað
mun bróðir hans, Baldur – sem hefur verið aðstoðarökumaður Rún-
ars, taka við stýrinu og mun faðir þeirra, Jón Ragnarsson, setjast
aftur í aðstoðarmannssætið.
Gunnlaugur
Einar Briem
skrifar
Baldur
sest aftur
undir stýri
Erum reynslunni ríkari
FH-ingar sakna
þriggja fastamanna
FH-INGAR fóru í gær til Makedóníu þar sem þeir leika á morgun
fyrri leik sinn við Cementarnica frá Skopje í 1. umferð Intertoto-
keppninnar í knattspyrnu. Þrír af fastamönnum Hafnarfjarðarliðs-
ins sátu eftir vegna meiðsla. Freyr Bjarnason er frá vegna meiðsla í
læri, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson er handarbrotinn og Jón Þorgrímur
Stefánsson meiddist í hné í leiknum við KA í fyrrakvöld.