Morgunblaðið - 16.07.2002, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 C 23HeimiliFasteignir
Grensásvegi 22 • Sími 533 1122
Þröstur Þórhallsson, löggiltur fasteignasali,
Valþór Ólason, sölumaður, Júlíus Jóhannsson, sölumaður.
Einbýli
BREIÐAGERÐI - LAUST
Fallegt og mikið endurnýjað einbýli, 164 m², sól-
stofa með nuddpotti 25,7 m² ásamt bílskúr 25 m²,
samtals 215,4 m². Fallegur gróinn garður. Nýjar
glæsilegar innréttingar. Parket og flísar á gólfum.
Verð 24, 9 m². Húsið laust til afhendingar strax.
SÓLVALLAGATA -
FJÁRFESTAR
Einbýli með fjórum íbúðum í góðri leigu. Leigutekj-
ur um 200 þús á mán. Samtals 174,6 m² á þremur
hæðum. 2 stúdíóíbúðir m. sameiginlegum
inngangi. Allt nýstandsett. Sérinngangur í kjallara-
íbúð. Sérinngangur í risíbúð. Þakjárn, rennur og
gler nýtt. Tilvalið fyrir sniðuga sem vilja láta leigu
borga eignina fyrir sig. V. 19,8 m.
SKÓLAVÖRÐUHOLT
Mikið endurnýjað einbýli á þremur hæðum m. 4
svefnherb. efst í Skólavörðuholtinu, 123,8 m²,
ásamt að sögn eiganda bílskúr 44 m², samtals
167,8 m². Var einu sinni tvær íbúðir. Risið er með
tveimur kvistum. Verð 20,7 m²
RAUÐAGERÐI - EINBÝLI
Mjög glæsilegt einbýli á þremur pöllum 297 m²
ásamt 46,6 m², samtals 343,6 m², en að sögn eig-
anda er heildin um 400 m². Parket og flísar á gólf-
um. Fallegar eikarinnréttingar í eldhúsi. Arinnstofa.
Falleg lóð. Áhv. 1 m. Verð 35 m.
Sæbólsbraut - Kópav.
Seljendur athugið!
VANTAR ALLAR TEGUNDIR EIGNA Á SKRÁ.
SKOÐUM SAMDÆGURS - EKKERT SKOÐUNARGJALD.
KAUPENDALISTI VIÐSKIPTAVINA OKKAR
Höfum ákveðna kaupendur að stóru einbýlishúsi með tveimur íbúðum í Grafar-
vogi, Fossvogi, Árbæ eða Hólum í Breiðholti. 5 svherb. skilyrði, helst tvöf. bílsk. (Þ.Þ.)
Vantar sérhæð, einbýli, par- eða raðhús á svæði 104, 105, 107 eða 170. (V.Ó.)
Vantar 3ja-4ra herb. íbúð í vesturbæ Reykjavíkur eða á Seltjarnarnesi. (Þ.Þ.)
Vantar 3ja-4ra herb. íbúðir á svæði 103, 104, 105 og 108. (V.Ó.)
Vantar 3ja-4ra herb. íbúðir í Grafarvogi og neðra-Breiðholti. (V.Ó.)
Vantar 4ra herb., 90 m² lágmark, neðri hæð á höfuðborgarsvæðinu. (Þ.Þ.)
Vantar sérhæð eða eign með sérinngangi á svæði 108. (V.Ó.)
Bráðvantar fyrir ábyggilegan kaupanda tveggja íbúða hús í Garðabæ, lámark 300 m².
Vorum að fá í einkasölu fallegt ca. 310 m² rað-
hús með bílskúr á þessum eftirsótta stað. Góður
garður í suðvestur. Fjögur góð svefnherbergi á
efri hæð og þrjár stórar fallegar stofur á jarð-
hæð með útgangi út í garð. Arinn í stofu. Í kjall-
ara er íbúð með sérinngangi. Tilvalið fyrir sam-
hentar fjölskyldur.
3ja herb.
STÓRAGERÐI
Góð 3ja herb. íbúð á 4. hæð, 82,7 m², með frá-
bæru útsýni í suður. Íbúðin skiptist í rúmg.
svefnherb. og tvær stórar stofur. Baðherbergi
flísalagt með baðkari. Eldri snyrtileg eldhúsinnr.
Í kjallara er herbergi með aðgangi að wc sem er
tilvalið til útleigu. Mögulegur bílskúrsréttur.
Verð 9,9 m.
Athugið! Aukin þjónusta, opið til kl. 20 þriðjudaga.
Aðra virka daga frá kl. 9-18, laugardaga frá kl. 13-15.
BREKKUGERÐI - EINBÝLI
Vorum að fá í einkasölu fallegt ca 300 m² einbýli á
þessum eftirsótta stað. Á jarðhæð er góð 3ja her-
bergja 85 m² íbúð með sérinngangi. Efri hæðin er
glæsileg með stórum stofum og arni sem er hlaðinn
með Drápuhlíðargrjóti. Góðar ca 30m² svalir. Bíl-
skúr 39m². Áhv. 4, 5 millj. lífeyrissj. Verð tilboð.
VIÐ ELLIÐAVATN
Vatnsendablettur - Kóp. Mjög vandað, uppgert ein-
býli á góðum stað í sveitasælunni við borgarmörk-
in. Húsið er á þremur hæðum. Hæð, ris og kjallari,
samtals 160 m². 4-5 svefnherb. Möguleiki að gera
aukaíbúð í kjallara. Innréttingar og tæki eru nýleg
og vönduð. Gólfefni eru parket og flísar. Suðurver-
önd með heitum potti. Verð 17,9 m. Áhv. 8 m.
3000 m² lóð.
Sérbýli
VIÐARÁS - ÁRBÆ
Glæsilegt raðhús með tveimur íbúðum eða ein
heild. Neðri hæð 87,1 m², efri hæð 97,6 m² ásamt
bílskúr 23,3 m², samtals 208 m². Neðri hæð með
furugólfborðum og flísum. Tvö svefnh. á efri hæð
með parketi og flísum og glæsilegum kirsuberja-
innréttingum. Stórar suðursvalir. Stutt í alla þjón-
ustu og skóla. Áhv. 11,9 m. Verð 35,4 m.
BRAUTARÁS - ÁRBÆ
Glæsilegt 213 m² endaraðhús á tveimur hæðum,
þ.a. 42 m² tvöfaldur bílskúr, á frábærum stað í Ár-
bænum. Íbúðin skiptist í (efri hæð) fimm svefnher-
bergi, baðherbergi og sjónvarpshol gluggalaust.
Neðri hæð: Stofa, borðstofa, eldhús, lítið salerni,
forstofa, hol, þvottaherbergi og geymsla. Glæsileg-
ur arinn í stofu, hlaðinn úr stuðlabergi og ísl.
hrauni, hreint listaverk. Hellulagðar verandir í vest-
ur og austur. Snjóbræðslukerfi í hluta af plani. Gólf-
efni eru flísar, parket, teppi og dúkur. Verð. 22,5 m.
Skipti möguleg á minni eign.
Hæðir
NÝBÝLAVEGUR - KÓP.
Góð 5 herb. efri hæð, 133,8 m², ásamt byggingar-
rétti fyrir tvo 45 m² bílskúra. Sérinngangur. Parket,
flísar og teppi á gólfum. Ný viðarinnrétting í eld-
húsi. Stórar suðursvalir. Íbúð sem á eftir að full-
klára. Þarf að skipta um hurðar í íbúðinni og gólf-
efni í stofu. Verð 14,9 m.
4ra-6 herb.
HÁALEITISBRAUT
Glæsileg 4ra herb. íbúð sem er öll endurnýjuð. Nýtt
eldhús og nuddbaðkar. Verð 14,9 millj. Áhv. 7 millj.
húsbréf.
HVASSALEITI - GLÆSILEG
Falleg nær alveg endurnýjuð 6 herb. íbúð á 3ju
hæð, 139 m², ásamt 22 m² bílskúr, samtals 161 m².
Amsterdam-parket og flísar á gólfum. Eldhús með
nýlegri eikarinnréttingu. Baðherb flísalagt í hólf og
gólf. Útgengt úr stofu á vestursvalir með góðu út-
sýni. Búið að endurnýja innréttingar, þak, rennur og
gler. Öll þjónusta aðkeypt sorp, þrif og garður. Verð
18,5 m.
3ja herb.
ÁLFHÓLSVEGUR - KÓPAV.
Góð 80 fm² íbúð ásamt bílskúr 23,4 fm². Flísalagt
hol. Eldhús með flísum og góðri innréttingu. Stór
og björt stofa með miklu útsýni, suðursvalir. Flísa-
lagt baðherbergi í hólf og gólf. Rúmgott hjónaher-
bergi með parketi. Parketlagt barnaherbergi. Sam-
eiginl. þvottahús. Bílskúr með hita og rafmagni/
möguleiki að opna frá íbúð. Góð eign við Álfhóls-
veginn. Skólar og þjónusta rétt hjá. V. 12,5 m.
MOSARIMI - GRAFARVOGI
Mjög snytileg 4ra herb. íbúð með sérinng. af svöl-
um, 100,3 m². Forstofa með háglansandi flísum og
fataskáp. Þvottaherb. í íbúð. Eldhús með fallegum
innrétt. Sér afgirt lóð með hellulagðri verönd. Stórt
leiksvæði við hlið húss. Allir skápar og innréttingar
eru úr kirsuberjaviði. Áhv. 7,5 m. Verð 13,3 m.
2ja herb.
NÖKKVAVOGUR - RVÍK
Mjög vönduð og glæsileg íbúð í þessu vinsæla
hverfi. Forstofa með nýjum flísum á gólfi og fata-
skáp. Hol með nýju mahóní-parketi á gólfi og arinn
við inngang í stofu. Baðherbergið er allt nýtt, flísar
á gólfi og veggjum. Stofan er með nýju parketi. Eld-
hús er með nýju parketi og nýlegri fallegri innrétt.
Borðkrókur við glugga. Svefnherb. er með nýju
parketi og fataskáp. Allar hurðar og skápar í íbúð-
inni eru nýjir úr mahóní. Nýlega er búið að laga
jarðveg (dren) upp við húsið og klæðningu. Verð
9,5 m. Áhv. 5 m.
RAUÐARÁRSTÍGUR - RVÍK
Góð 64 fm² íbúð á 2. hæð. Sérinngangur og stæði í
bílageymslu. Parket á gólfum. Rúmgóð stofa. Flísar
í hólf og gólf á baði. Áhv. 5,6 í byggingarsj. Ekkert
greiðslumat. Góð íbúð á góðum stað. V. 10,2 m.
ÞVERHOLT - REYKJAVÍK
Góð 2ja herbergja íbúð á besta stað. Parketlagður
gangur. Eldhús er snyrtilegt. Rúmgóð stofa m. út-
gengt á svalir. Svefnherb. er parketlagt með góðum
skápum. Baðherb er nýtt með glerhleðsluvegg og
flísum í hólf og gólf. Góð geymsla og sameginl.
þvottahús. Lyfta er í húsinu.
Nýbyggingar
BJARNASTÍGUR - MIÐBÆR
Lítið, fallegt, nýtt 100 m² einbýlishús á tveimur
hæðum á frábærum stað í miðbænum við litla ein-
stefnugötu. Eignin skiptist í forstofu, gang, tvö
svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og
geymslu, ásamt 29 fm palli (milliloft) sem liggur yf-
ir herbergjum og baði. Húsið afhendist full frágeng-
ið að utan með grófjafnaðri lóð en fokhelt að inn-
an. Húsið er fokhelt í dag og er hægt að fá það af-
hent mjög fljótlega. Möguleiki að fá húsið lengra
komið ef um semst. Sérbílastæði. Teikningar á
skrifstofu og á netinu. Verð 15,9 m.
VÆTTABORGIR - GRAFARV.
Mjög falleg og nánast alveg fullbúin 145,7 m² par-
hús á tveimur hæðum ásamt bílskúr, 31,9 m², sam-
tals 177,6 m². Flísar, parket og filtteppi á gólfum.
Steinlögð sólverönd. Verð 22,5 m.
Atvinnuhúsnæði
LÁGMÚLI - FRÁBÆRT ÚTSÝNI
375 m² skrifstofuhúsnæði á 6. hæð með frábæru
útsýni yfir Reykjavík. Áhv. 21 millj. til 25 ára með
7% vöxtum. Laust strax. Leiga kemur til greina.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR -
VINNUSTOFUR
Gott ca 120 m² húsnæði í kjallara neðst á Skóla-
vörðustíg. Hentar vel fyrir t.d. vinnustofur, lager-
húsnæði eða jafnvel netkaffihús. Laust strax. Lyklar
á skrifstofu. Verð 8,5 millj. Áhv. 4,8 millj. Greiðslu-
byrði ca kr. 50 þ. pr. mán.
Sumarbústaðir
SYÐRI REYKIR Í BISKUPS-
TUNGUM
Vorum að fá mjög fallegan sumarbústað í grónu
landi á þessum eftirsótta stað. Bústaðurinn er ca
80m² með svefnlofti. Heitur pottur. Einstök eign.
SUMARBÚSTAÐUR -
SKORRADAL.
Fallegur c.a 50 m² sumarbústaður í landi Fitja við
vatnið með bátabryggju. 3 svefnherbergi. Stór
verönd með heitum potti. Frábært útsýni yfir
vatnið. Áhv. 2,7 c.a. 18-20 þús á mán. Verð 6,5 m
JÓN Loftsson, sem fóstraði Snorra
Sturluson, bjó síðustu ár sín að
Keldum á Rangárvöllum og er talið
að þar sé hann grafinn. Á Keldum
er nú safn.
Keldur eru kunnur sögustaður
úr Njáls sögu. Þá bjó þar Ingjaldur
Höskuldsson sem frægur varð m.a.
fyrir að bregðast Flosa í aðförinni
að Bergþórshvolsfeðgum, þeim
Njáli, Skarphéðni og fleirum.
Vitað er að Jón Loftsson stofnaði
klaustur á Keldum en það var ekki
lengi við lýði.
Á Keldum er forn skáli, elsta
bygging sinnar gerðar á Íslandi.
Þar eru og jarðgöng sem talin eru
geta verið frá söguöld.
Kirkja er á Keldum og var reist
1875. Áður stóð þar m.a. kirkja
sem helguð var Páli postula.
Á árunum 1956 til 1957 voru
framkvæmdar verulegar endur-
bætur á núverandi kirkju og hún
máluð og skreytt af Grétu og Jóni
Björnssyni.
Keldur standa undir hraunbrún
og er talið að bærinn dragi nafn
sitt af uppsprettum sem þar koma
fram.
Mikið land hefur blásið upp fyrir
innan Keldur og var þó mikið gert
til þess að varna uppblæstri, það
gerði Skúli Guðmundsson sem var
bóndi þar fram undir miðja síðustu
öld.
Kynning á fornfrægum höfuðbólum
Keldur á Rangárvöllum
Morgunblaðið/Gísli Sig
Elsta hús á Íslandi. Hinn forni bær á Keldum. Næst á myndinni er skálinn, þá
Stóra skemma, Litla skemma, smiðjan og hjallurinn. Svartbikuð bæjardyra-
hurðin er úr Staðarkirkju. Hana keypti Skúli Guðmundsson á Keldum árið 1913
og þá var hún 59 ára.