Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 C 37HeimiliFasteignir
Einbýlishús
ÁSBÚÐ - AUKAÍBÚÐ 243 fm einbýlishús á
tveimur hæðum með 70 fm 2ja herb. aukaíbúð á
jarðhæð ásamt 51 fm innbyggðum bílskúr. Sam-
tals 294 fm. Áhv. 13,0 m. í húsbréfum og lífsj.
LOGAFOLD - 2JA ÍBÚÐA HÚS Gott og vel
byggt 310 fm einbýlishús á tveimur hæðum.
Stærri íbúð er 153 fm með 3 rúmgóðum svefn-
herb. og stórum stofum með útsýni út á Voginn.
Minni íbúðin er 112 fm tveggja herb. íbúð með
mjög stórri stofu. Bílskúr er 45 fm með tveimur
hurðum. Þetta er gott hús á góðum stað í Grafar-
voginum. Áhv. 17,5 m. Verð 26,9 m.
Rað- og parhús
AKURGERÐI
Glæsilegt parhús á tveimur hæðum með 25 fm
flísalögðum bílskúr, samtals 189,4 fm, á þessum
vinsæla stað í Gerðunum. Húsið er byggt árið
1989. Snjóbræslulagnir eru í stéttum við inngang
og innkeyrslu. Áhv. 4,7 m. húsbréf og lífsj. Verð
25,7 m.
www.fasteignamidlun.is - thor@fasteignamidlun.is
Sérhæðir
MELHAGI - SÉRHÆÐ OG RIS Erum með til
sölu hæð og ris ásamt 40 fm bílskúr. Neðri hæðin
skiptist í rúmgott hol, tvennar stofur, mjög rúm-
gott eldhús sem hægt er að nota að hluta sem
herbergi og baðherb. Á efri hæð eru 2-3 rúmgóð
svefnherb., baðherbergi, þvottaherbergi og eld-
hús sem áður var barnaherb. Tvennar suður-
svalir eru í íbúðinni, garður og hægt er að nota
eignina sem tvær íbúðir. Verð 19,9 m.
5 til 7 herbergja
HRAFNHÓLAR Mikið endurnýjuð 5 herb. 113 fm
íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli ásamt 26 fm bílskúr
eða samtals 139 fm. Íbúðin er stofa og borðstofa
með vestursvölum, rúmgott nýlegt eldhús, nýtt flí-
salagt baðherb. í hólf og gólf, 4 svefnherb. og fl.
Áhv. 6,5 m. húsbréf og byggsj. Verð 13,9 m.
ÁLAKVÍSL 4ra herb. 115 fm íbúð á jarðhæð
með sérinngangi í þríbýlishúsi ásamt stæði í
lokaðri bílgeymslu. Íbúðin er m.a. stofa og
borðstofa með útgangi út á afgirta verönd,
rúmgott eldhús, 3 svefnherb., baðherb. og fl.
Parket og flísar á gólfum. Áhv. 8,5 m. húsbréf.
Verð 16,4 m.
HÖRGSHLÍÐ Góð tæplega 140 fm íbúð ásamt
25 fm bílskúr í þríbýlishúsi á þessum vinsæla
stað. Íbúðin er á fyrstu hæð með sérinngangi.
4 svefnherb., tvö baðherb., stórar bjartar park-
etlagðar stofur með suðursvölum út af. Góð
eign og miklir möguleikar. Verð 19,5 m.
LANGHOLTSVEGUR - LÆKKAÐ VERÐ Góð 5
herb. íbúð á tveimur hæðum. Tvö svefnherb. á
hvorri hæð, stór björt stofa með parketi á gólfi,
flísalagt baðherbergi með nýjum blöndunartækj-
um og rúmgott eldhús. Áhv. 6,5 m. Verð 10,5 m
SÓLVALLAGATA 6 herbergja 153 fm íbúð á 2.
hæð í reisulegu fjölbýlishúsi á þessum vinsæla
stað í vesturbænum. Íbúðin er m.a. tvær rúmgóð-
ar stofur, 4 svefnherb. rúmgott uppgert eldhús,
tvö baðherb. og fl. Þvottaherb. í íbúð. Tvennar
svalir. Örstutt í skóla. Áhv. 6,2 m. húsbréf. Verð
18,9 m. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.
4ra herbergja
ÁLAGRANDI - VESTURBÆR 4ra herb. 112 fm
íbúð á 4. hæð í fjölbýli á þessum vinsæla stað í
vesturbænum. Íbúðin er stofa með rúmgóðum
suðursvölum, þrjú svefnherb., eldhús, bað og fl.
Þvottaaðstaða í íbúð. Áhv. 6,5 m. húsbréf, veð-
deild og lífsj. Verð 13,9 m. Íbúðin getur verið laus
við kaupsamning.
3ja herbergja
BÁRUGATA Góð 80 fm íbúð í kjallara í steinhúsi.
Íbúðin skiptist í mjög rúmgott eldhús, stofu með
gegnheilu parketi á gólfi, tvö rúmgóð svefnher-
bergi og flísalagt baðherbergi. Áhv 4,2 m. Verð
9,9 m.
HRÍSMÓAR - GBÆ - LYFTUHÚS 5 herb. 112
fm íbúð á 5. hæð og í risi í lyftuhúsi ásamt
stæði í lokaðri bílgeymslu. Íbúðin er m.a. stofa
með útgangi út 45 fm hellulagðar þaksvalir,
eldhús, 4 svefnherb., flísalagt baðherb.,
þvottaðaðstaða í íbúð og fl. Áhv. 1,7 m. byggsj.
Verð 15,9 m.
Til sölu vandaðar og rúmgóðar 122 fm 4ra
herbergja íbúðir með sérþvottherbergi, í 8
hæða álklæddu 29 íbúða fjölbýli ásamt stæði
í bílgeymsluhúsi. Í húsinu eru tvær lyftur.
Stórar suðursvalir. Glæsilegt útsýni. Góð
staðsetn. og stutt í alla þjónustu. Innangengt
er úr bílgeymsluhúsi. Afh. í ágúst nk. Bygg-
ingaraðili er Bygging ehf. Einungis 5 4ra
herb. íbúðir, á 2. til 6. hæð frá kr. 15,9 m. með
stæði í bílgeymsluhúsi, óseldar.
GLÓSALIR 7 - KÓPAVOGI
Glæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús
sem skiptist í hæð og ris ásamt bílskúr. Hús-
ið er m.a. stofa, borðstofa, sjónvarpsstofa,
eldhús, 5 svefnherb. og fl. Nýlegir gluggar,
gluggafög, hitalagnir, raflagnir, innihurðir og
fl. Húsið stendur innst í botnlanga við óbyggt
svæði. Miklir sólpallar og suðurgarður í mik-
illi rækt. Skoðið 22 ljósmyndir á netinu.
LANGAGERÐI - EINBÝLI
575 8500
Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Sverrir Kristjánsson, lögg. fasteignasali
Brynjar Baldursson
sölumaður,
sími 698 6919.
Erla Waage
ritari
sölumaður.
Jón Ellert Lárusson
viðskiptafræðingur
sölumaður
lögg. fasteignasali
Sverrir Kristjánsson
lögg. fasteignasali
sölumaður
sími 896 4489.
Þór Þorgeirsson
lögg. fasteignasali
sölumaður
sími 866 2020.
Brynjar Fransson
sölumaður
samn./skjalagerð
sími 575 8503.
Tölvunotendur
- aukin þjónusta
Viltu fá sent söluyfirlit yfir eignir áður
en þær eru auglýstar? Sendu okkur
veffang þitt og óskir og við munum
senda þér söluyfirlit reglulega.
OPIÐ VIRKA DAGA
FRÁ KL. 9-18
HVERFISGATA Góð 3ja herb. 67 fm íbúð á fyrstu
hæð í tvíbýlishúsi. Íbúðin er töluvert endurnýjuð
og eru t.d. í henni nýtt gler og rafmagn. Nánari
upplýsingar á skrifstofu.
2ja herbergja
FROSTAFOLD
2ja herb. 75 fm endaíbúð á jarðhæð í sex-íbúða
húsi. Íbúðin er stofa með útgangi út á suðurver-
önd, rúmgott eldhús með eldunareyju og háfi,
svefnherb, baðherb. Þvottaherb. í íbúð. Ekkert
áhv. Verð 10,5 m. Íbúðin getur verið laus við kaup-
samning. Stutt í alla þjónustu og skóla.
SKELJAGRANDI 2ja herb. 68 fm íbúð á 3. hæð í
fjölbýlishúsi ásamt stæði í bílgeymslu. Íbúðin er
stofa með vestursvölum, stofa, rúmgott eldhús,
svefnherb. bað og fl. Þvottaaðstaða í íbúð. Verð
9,2 m.
FELLSMÚLI - LAUS 3ja herbergja íbúð á 2.
hæð í fjölbýli. Íbúðin er stofa með suðursvöl-
um, tvö svefnherb., eldhús, bað og fl. Íbúðin á
hlutdeild í tveimur íbúðum sem eru í kjallara
hússins og gefa af sér leigutekjur. Íbúðin er
laus. Verð 11,7 m.
Sumarbústaðir
SUMARHÚSALAND Sumarbústaðaland í ná-
grenni Laugarvatns, ca 3 km frá Laugavatni. Land-
ið er eignarland um 0,4 hektarar að stærð við Selj-
aland sem er skipulagt og girt sumarhúsasvæði.
Aðgengi að rafmagni og vatnsveitu er til staðar á
lóðarmörkum. Landið er endalóð við svæðisveg
og er afmarkað með trjágróðri. Gott land í þjóð-
braut allan ársins hring. Verð 750.000.
ARKARHOLT - BORGARNESI Fallegur 42 fm
sumarbústaður við Arkarholt, Galtarholti í Borgar-
firði. Bústaðurinn skiptist í forstofu, stofu, eldhús,
salerni og tvö svefnherbergi. Innbú og garðáhöld
fylgja með í kaupum. Nýtt rafmagn og parket.
Verð 5,2 m.
Atvinnuhúsnæði
VIÐ MIÐBÆINN - VERSLUNARHÚSNÆÐI Til
sölu lítið en snoturt verslunarhúsnæði á 1. hæð og
í kjallara ca 117 fm. Þetta húsnæði gefur marga
möguleika.
LYNGHÁLS - VERKSTÆÐISHÆÐ Til sölu 131
fm á 1. hæð í nýlegu steinhúsi. Stór innkeyrslu-
hurð ca 3,5m. Lofthæð 4,0m. Plássið er nánast
einn salur. Allar lagnir. Í dag er í plássinu bíla-
verkstæði og getur lyfta fylgt. Laust fljótt.
Vantar eignir
Seljendur fasteigna athugið!
Erum með margar óskir frá
væntanlegum kaupendum
- hringið og kannið málið.
Það er aftur tekið til virðingar 29.
ágúst sama ár, þar er sagt að búið
sé að klæða allt húsið að utan og
setja í það ofna.
Hinn 27. janúar 1885 er húsið full-
gert og er í brunavirðingu kallað
Sjúkrahús Reykjavíkur. Segir að í
húsinu séu tveir uppgangar upp á
efra loftið, tveir kjallarar og gangur
eftir endilöngu húsinu á báðum
hæðum. Gamlar virðingar á Þing-
holtsstræti 25 eru ófullnægjandi þar
sem hvergi er sagt frá einangrun
eða þiljum innan á veggi o.s.frv.
Sama dag var tekið til virðingar
líkskurðarhús sem byggt var á lóð-
inni. Grunnflötur þess er 10 x 8 áln-
ir, hæð 4 álnir. Það er byggt af múr-
uðum bindingi, klætt utan með
borðum og þiljað að innan. Í því eru
tvö herbergi. Þak er klætt járni á
langböndum.
Þegar búið var að byggja húsið
heyrðust óánægjuraddir um að það
væri ófullkomið fyrir þá starfsemi
sem þar fór fram. Schierbeck land-
læknir fann að húsinu, og var eftir
honum haft að í því sé ekki nein loft-
ræsting og ekki hægt að opna
glugga á sjúkrastofunum. Honum
fannst heldur ekki nógu bjart í
sjúkraherbergjum og ýmislegt ann-
að var haft eftir honum í blöðum um
galla spítalabyggingarinnar. Einnig
var fundið að því að ekki væri neinn
ofn til þess að eyða sóttnæmi eða
hreinsa föt.
En Þingholtsstræti 25 var eini
spítalinn í Reykjavík þar til Landa-
kotsspítali tók til starfa árið 1902.
Og þó að uppi væru aðfinnsluraddir
um húsnæðið var það stökkbreyting
frá spítalanum sem rekinn var í
Klúbbhúsinu.
Kennsla læknanema fór fram í
húsinu og árið 1906 tók Læknaskól-
inn húsið á leigu en sagði leigunni
upp árið 1912. Eftir það gaf stjórn
Sjúkrahúsfélagsins bæjarstjórn
Reykjavíkur húsið og aðrar eigur
félagsins. Gjöfinni fylgdi það skil-
yrði að stofnaður yrði sjóður er
nefndist „Sjúkrahússjóður Reykja-
víkurbæjar“. Tilgangur sjóðsins var
að gera öllum jafnt undir höfði, rík-
um sem fátækum sem á sjúkrahús-
vist þurftu að halda.
Eftir að Reykjavík eignaðist hús-
ið gekk á ýmsu og stóð til að selja
það. Af því varð þó ekki. Um tíma
voru íbúðir í húsinu. Jón Hj. Sig-
urðsson héraðslæknir í Reykjavík
kom með þá tillögu 1917 að húsið
yrði gert að farsóttarsjúkrahúsi. Á
þeim tíma var talsvert um að tauga-
veiki styngi sér niður í Reykjavík,
auk þess skarlatssótt og barnaveiki.
Til þess að hefta mætti útbreiðslu
þessara sjúkdóma varð að einangra
sjúklingana.
Það var ekki fyrr en um vorið
1919 sem bæjarsjóður keypti eign-
ina af Sjúkrarsjóði. Þá var húsið
gert upp sem og lóð og girðing í
kringum hana. Til er kostnaðaráætl-
un sem Jón Þorláksson gerði og
nemur upphæðin kr. 48.000 sem þá
voru engir smápeningar.
Farsóttarhúsið stofnað
Farsóttarsjúkrahúsið í Þingholts-
stræti 25 tók til starfa 25. septem-
ber 1920. Jón Hj. Sigurðsson var
ráðinn þar læknir og forstöðumað-
ur, en hjúkrunarkona María Maack.
Starfsemi sjúkrahússins bar fljótt
Morgunblaðið/Sverrir
Á suðurhlið hússins eru tvöfaldar dyr.
Morgunblaðið/Sverrir
Helgi Helgason, trésmiður og tónskáld, teiknaði húsið, en það var fullgert í
janúar 1885. Þetta er tilkomumikið hús enn í dag og setur mikinn svip á um-
hverfi sitt.
María Maack var yfirhjúkrunar-
kona á Farsóttarhúsinu í Þing-
holtstræti í aldarfjórðung.