Morgunblaðið - 16.07.2002, Blaðsíða 44
44 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Pálmi B. Almarsson
löggiltur fasteignsali
Guðrún Gunnarsdóttir
ritari
Jón Guðmundsson
sölustjóri
Sverrir B. Pálmason
sölumaður
VANTAR ALLAR STÆRÐIR EIGNA Á SKRÁ - FJÖLDI EIGNA SEM EKKI ERU AUGLÝSTAR - VIÐ VINNUM FYRIR ÞIG
www.fasteignasala.is
Á
Mjög vandaðar og fallega innréttaðar 100-
122 m² 3ja og 4ra herb. íbúðir í glæsilegum
álklæddum fjöleignahúsum. Tvær lyftur.
Frábær staðsetning og stutt í alla þjónustu.
Mikið útsýni. Skilast fullbúnar án gólfefna
nema á baði og í þvottahúsi en þar eru flís-
ar. Nokkrar íbúðir til afh. nú þegar. Bygg-
ingaraðili er Byggingafélag Gylfa og Gunn-
ars. Íbúðirnar eru til afh. í september nk.
Verð frá 12.950 þ. Allar nánari uppl. á skrif-
stofu Bifrastar.
Ársalir - Glæsilegar íbúðir
Sunnubraut - Einbýli
Vorum að fá í sölu stórglæsilegt 213 m² ein-
býlishús með innb. bílskúr á besta stað
neðst við Voginn. Húsið er mikið endurnýjað
og er með glæsilegum innréttingum og gólf-
efnum. Fjögur svefnherbergi. Glæsileg lóð
og frábær staðsetning. Það eru ekki mörg
svona hús til sölu og staðsetningin er ein-
stök. Þetta er eign sem þú verður að skoða.
Óskað er eftir tilboði í þessa glæsilegu eign.
Smárarimi - Sérhæð
Vorum að fá í sölu glæsilegt 150 m² sérbýli á
tveimur hæðum í tvíbýlishúsi ásamt 32 m²
bílskúr. Fjögur svefnherb. Vandaðar og fal-
legar innréttingar. Skipti á einb. koma til
greina. Áhv. 6,8 millj. Verð 20,6 millj.
Langholtsvegur - Tvær íbúðir
Vorum að fá í sölu 166 m² parhús á tveimur
hæðum með tveimur íbúðum og bílskúr.
Hvor íbúð um sig er 3ja herb. Húsið stendur
ekki út við götu og garðurinn er í góðri rækt.
Áhv. 3,6 millj. húsbréf. Verð 19,8 millj.
VANTAR - Sérbýli Höfum á skrá
marga kaupendur að einbýlishúsum, rað-
og parhúsum og sérhæðum á höfuð-
borgarsvæðinu. Hafðu samband ef þú ert
í söluhugleiðingum. Það kostar ekkert.
Seljahverfi - Raðhús Mjög gott rað-
hús á tveimur hæðum ásamt stæði í bíl-
geymslu. Fjögur svefnherbergi. Áhv. 5,2
millj. Verð 17,3 millj.
Maríubaugur - Grafarholti Mjög
skemmtil. hannað 190 m² tengihús á einni
hæð með innb. bílskúr. Afh. fullbúið að utan,
fokhelt að innan. Lóð að hluta til frágengin.
Aflokaður suðurgarður. Verð 15,9 millj.
Suðurvangur - Hf.
Vorum að fá í sölu góða 136 m² íbúð á 1.
hæð með tvennum svölum. Fjögur svefn-
herb. og þvottaherb. í íbúð. Áhv. 8 millj. Verð
14,3 millj.
Grýtubakki - Skipti Vorum að fá í
sölu rúmgóða 4ra herb. íbúð í góðu fjöl-
eignahúsi. Þrjú góð svefnherbergi. Parket.
Áhv. 5 millj. húsbréf. Verð 10,7 millj.
Kleppsvegur Góð 86 m² 3-4 herb.
endaíbúð á 4. hæð í fjöleignahúsi. Ný eld-
húsinnrétting. Parket og flísar. Góðar suð-
ursvalir, mikið útsýni. Áhv. 4,9 millj. Verð
10,5 millj.
Leirubakki Mjög góð og fallega innrétt-
uð 97 m² 3ja herb. íbúð á jarðhæð í nýlegu,
litlu fjöleignahúsi með sérinngangi. Parket
og flísar. Áhv. 7,1 millj. Verð 12,7 millj.
VANTAR - 3ja og 4ra Höfum á
skrá 40-50 aðila sem vantar 3ja og 4ra
herb. íbúðir með eða án bílskúrs, einkum
í Reykjavík og Kópavogi. Skráðu eignina
þína þér að kostnaðarlausu.
VANTAR - Stærri íbúðir Vegna
mikillar sölu að undanförnu er svo komið
að okkur vantar stærri íbúðir á öllu höf-
uðborgarsvæðinu, með eða án bílskúrs.
20-30 aðilar á skrá. Skráðu þína eign,
það kostar ekkert.
Kleppsvegur - Mjög rúmgóð
Vorum að fá í sölu fallega 108 m² 4ra herb.
íbúð á 3. hæð í litlu fjöleignahúsi. Nýleg eld-
húsinnrétting. Parket og flísar. Tvennar sval-
ir. Glæsilegt útsýni. Verð 12,5 millj.
Gullengi
Vorum að fá í sölu góða 85 m² 3ja herbergja
íbúð á 2. hæð í góðu fjöleignahúsi. Áhv. 5,2
millj. húsbréf og 1,5 millj. viðbótarlán. Verð
10,8 millj.
Seilugrandi - Stæði
Vorum að fá í sölu rúmgóða 66 m² 2ja her-
bergja íbúð á 1. hæð í góðu fjöleignahúsi
ásamt stæði í bílageymslu. Sérinngangur af
svölum.
VANTAR - 20 íbúðir Vegna mikill-
ar sölu á 2ja herb. íbúðum vantar okkur
nú þegar 20-30 íbúðir í Rvík og Kópa-
vogi. Skráðu eignina strax.
Gullsmári - Rúmgóð
Vorum að fá í sölu mjög góða 95 m² 4ra her-
bergja íbúð á 1. hæð í litlu fjöleignahúsi. Þrjú
rúmgóð svefnherb. Þvottahús og geymsla í
íbúð. Verð 13,9 millj.
Lundarbrekka - Aukaherbergi
Vorum að fá í sölu rúmgóða og fallega 102
m² 4ra herb. íbúð á 3. hæð í góðu fjöleigna-
húsi. Nýtt baðherbergi. Parket. Aukaherb. í
kjallara með aðgangi að snyrtingu. Glæsilegt
útsýni. Áhv. 6,3 millj. húsbr. og veðdeild.
Ársalir Mjög rúmgóð 4ra herb. íbúð á 2.
hæð í nýju fjöleignahúsi ásamt stæði í bíl-
geymslu. Íbúðin afh. fullbúin án gólfefna og
er til afhendingar nú þegar. Verð 15,7 millj.
Efstasund - Ris
Skemmtileg 4ra herb. risíbúð í þríbýlishúsi á
þessum eftirsótta stað. Þrjú svefnherb. Sér-
hiti og -rafmagn. Áhv. 2,7 millj. Verð 9,9 millj.
Álftahólar - Bílskúr Mjög góð og
björt 109 m² 4ra herb. íbúð á 6. hæð ásamt
26 m² bílskúr. Flísar og parket. Glæsilegt út-
sýni. Áhv. 3,5 millj. Óskað er eftir tilboði.
Suðurhólar - Mjög rúmgóð
Vorum að fá í sölu mjög rúmgóða 75 m² 2ja
herb. íbúð með sérinngangi. Rúmgóð stofa
og eldhús. Glæsilegt útsýni til Rauðavatns.
Verð 8,9 millj.
Trönuhraun - Litlar einingar
Nýtt og glæsilegt húsnæði sem má skipta
upp í þrjú 144 m² bil. Mikil lofthæð og inn-
keyrsludyr á hverju bili. Verð á bili 11,9 millj.
Nánari uppl. gefur Pálmi.
Knarrarvogur Mjög gott u.þ.b. 740 m²
verslunar-, lager- og skrifstofuhúsnæði.
Verslun og lager á 1. hæð og í kjallara og
skrifstofur o.fl. á 2. hæð. Húsið er mjög
áberandi og hefur því mikið augl.gildi. Verð
59 millj.
Hlíðasmári Sala eða leiga. Mjög gott og
fullinnréttað 146 m² skrifstofuhúsnæði á 1.
hæð á þessum frábæra stað. Aðkoma góð
og fjöldi bílastæða. Skipti á ca 10 millj. kr.
eign koma til greina. Uppl. gefur Pálmi.
Stórhöfði Í nýju og mjög vel staðsettu
húsi eru til sölu fjórar einingar, 153 m² á 1.
hæð, 426 m² á 2. hæð, 158 m² á 2. hæð og
218 m² á 4. hæð. Húsnæðið er til afhending-
ar nú þegar, fullbúið að utan og sameign
fullfrágengin með lyftu og snyrtingum, að
innan er húsnæðið tilbúið til innréttingar.
Eilífsdalur - Kjós Mjög vel innréttaður
og nýlegur 45 m² sumarbústaður með 20 m²
svefnlofti og 70 m² sólpalli. Verð 4,9 millj.
Eyrarskógur - Lóð 3.900 m² sumar-
bústaðarlóð í Eyrarskógi í Svíndal. Sökkul-
súlur komnar og búið er að planta trjám í
landið. Vatn og rafmagn komið á lóðarmörk.
Verð 390.000.
H
ÁRGREIÐSLUSTOFAN Rauð-
hetta og úlfurinn stendur við
Laugaveg 7. Þeir Ingvi Örn Þor-
steinsson, Kristján Kristjánsson og
Magni Þorsteinsson tóku sig til fyrir rúmum
tveimur árum og ákváðu að fara út í eigin
rekstur. Þeir létu ekki þar við sitja heldur
hönnuðu þeir stofuna algjörlega sjálfir. Það var
mikil vinna og rákust þeir oft á skemmtilegar
og óhefðbundnar lausnir sem nýttust þeim vel.
„Við hittumst fyrir tilviljun á Kaffibarnum
eitthvert kvöldið um haustið 1999. Þá kom upp
sú hugmynd að stofna saman stofu en við höfð-
um allir verið að vinna fyrir aðra. Fljótlega eft-
ir að ákvörðunin var tekin fórum við að leita að
húsnæði. Þetta húsnæði var laust og við slóg-
um til. Hér hafði áður verið mötuneyti fyrir
Landsbankann en undanfarin ár hafði húnæðið
staðið autt,“ segir Ingvi.
Húsnæðið bauð upp
á mikla möguleika
„Þegar við tókum við húsnæðinu var ekkert
hér inni, en á veggjunum mátti ennþá sjá móta
fyrir bekkjunum sem notaðir höfðu verið í
mötuneytinu. Hér var hvorki rafmagn né hiti.
Okkur varð því strax ljóst að mikið þurfti að
gera til þess að koma húsnæðinu í almennilegt
horf en við sáum líka mikla möguleika í því að
þurfa að byrja frá grunni. Við höfðum
ákveðnar hugmyndir um hvernig umhverfi við
vildum vinna í og þetta var kjörið tækifæri til
að hrinda þeim í framkvæmd,“ segir Ingvi.
Teiknuðu hugmyndir
á veggina
„Við fengum húsnæðið afhent um miðjan
desember 1999 og hófumst þá handa. Við vor-
um strax ákveðnir í því að gera allt sem við
gætum sjálfir, bæði til að halda kostnaði í lág-
marki og svo höfðum við allir gaman af því að
leggja hönd á plóg við að byggja upp og móta
útlitið á okkar eigin fyrirtæki,“ segir Ingvi.
„Okkar fyrsta verk eftir afhendinguna var
að setjast hér niður allir þrír og kasta fram
hugmyndum um hvernig við vildum að útkom-
an yrði. Þegar við höfðum komist að samkomu-
lagi náðum við okkur í svart túss og teiknuðum
upp hugmyndirnar á bera veggina,“ heldur
hann áfram.
„Við hrifumst allir mjög af hönnun og um-
hverfi í myndinni A Clockwork Orange og það-
an fengum við mikið af okkar hugmyndum. Við
létum til dæmis smíða afgreiðsluborðið og
vöruhillurnar eftir beinni fyrirmynd úr mynd-
inni,“ segir Ingvi.
Settu flot á gólfin
„Áður en við gátum snúið okkur að raun-
verulegu útliti stofunnar þurfti að vinna vissa
undirbúningsvinnu. Gamla kerfisloftið var rifið
niður og við ákváðum að láta allar pípur og rör
sjást en máluðum loftið hvítt. Af gólfinu rifum
við gamlar flísar. Veggirnir voru hraunaðir en
við vildum slétta þá þannig að þá þurfti að
sparsla og mála,“ segir Ingvi.
„Það sem okkur fannst hins vegar skemmti-
legast var þegar allri undirbúningsvinnu var
lokið og hafist var handa við hið eiginlega útlit
stofunnar, en það var mjög gaman að sjá hug-
myndir okkar og hönnun taka á sig mynd,“
segir Ingvi.
„Við létum setja flot á gólfin að undanskildu
baðherberginu, en þar flísalögðum við sjálfir
gólf og veggi með svörtum mósaíkflísum.
Veggina máluðum við hvíta og við fengum góð-
vin okkar Gunnar Dan Wiium smið til þess að
smíða fyrir okkur allar innréttingar.
Við notuðumst mikið við MDF en það er ein-
staklega þægilegt að vinna með það efni og er
það meðal annars í vöruhillum og afgreiðslu-
borði. Okkur fannst þó eitthvað vanta í vöru-
hillurnar og við létum því setja inn í þær ljós-
Framtakssemi
í fyrirrúmi
Þeir Ingvi Örn Þorsteinsson, Kristján Kristjánsson og Magni Þor-
steinsson tóku sig til fyrir fyrir rúmum tveimur árum og létu draum-
inn um að stofna eigin hárgreiðslustofu verða að veruleika. Þeir létu
ekki þar við sitja, heldur tóku þeir sig til og hönnuðu stofuna algjör-
lega sjálfir. Perla Torfadóttir ræddi við Ingva Örn Þorsteinsson, einn
eiganda hárgreiðslustofunar Rauðhettu og úlfsins.
Morgunblaðið/Arnaldur
Rauðhetta og úlfurinn.