Morgunblaðið - 16.07.2002, Side 36
36 C ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
Suðurlandsbraut 54 - við Faxafen - 108 Reykjavík
Sími 568 2444 - Fax 568 2446
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali.
ÞÓRÐUR JÓNSSON SÖLUM., SJÖFN ÓLAFSDÓTTIR SKJALAGERÐ,
MARÍA ÞÓRARINSDÓTTIR.
asbyrgi@asbyrgi.is www.asbyrgi.is
MARBAKKABRAUT - ÞRÍBÝL-
ISHÚS 3ja herbergja íbúð með sérinn-
gangi á 1. hæð í góðu þríbýlishúsi. Parket
á gólfum, stór stofa og 2 herb. Eldhús
með flísum. Áhv. húsbréf ca kr
6.000.000- Tilv. 15188
FERJUBAKKI Vel skipulögð 76,9 fm
3ja herbergja íbúð auk 9,2 fm geymslu í
kjallara. Gott parket er á allri íbúðinni.
Rúmgott barnaherbergi og hjónaherbergi
með skáp. Eldhús með uppgerðri innrétt-
ingu. Baðherbergi með flísaþiljum og tengi
fyrir þvottavél. Vestursvalir. Sameignin í
góðu standi. Verð 8,8 millj. tilv. 5027
BOÐAGRANDI - LYFTA Góð 72,8
fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi,
ásamt stæði í bílskýli. Sameign öll nýend-
urnýjuð úti og inni. Mjög góð staðsetning,
stutt í þjónustumiðstöð aldraðra. Verð
12,4 millj. tilv 15224
LAUFRIMI - SÉRINNGANGUR
3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinn-
gangi og hellulagðri verönd. Ca 89 fm fal-
leg íbúð, parketlögð stofa og vandaðar
innréttingar í eldhúsi. Áhv. 6,8 millj. Verð
11,8 millj. tilv. 15330
SÓLHEIMAR - LYFTA
Vorum að fá í sölu 87,5 fm íbúð í góðu
lyftuhúsi á annari hæð. Góð sameign og
gott útsýni. Laus strax. Tilv. 15332
IÐUFELL - JARÐHÆÐ Mjög falleg
mikið endurnýjuð 69 fm 2-3ja herb. íbúð á
jarðhæð í húsi sem búið er að klæða. Nýj-
ar innréttingar, nýtt baðherb. og gólfefni.
Nær viðhaldsfrítt hús. Laus fljótlega. Verð
8,3 millj. tilv. 15335
VESTURBERG - ÚTSÝNI 3ja her-
bergja 86 fm íbúð á efstu hæð í mjög
góðu fjölbýli. Parket á allri íbúðinni, góðar
innréttingar, stórar vestursvalir. Frábært
útsýni. Verð 10,9 millj. tilv. 5013
2 HERBERGJA
LAUFRIMI Mjög góð snyrtileg 76,7 fm
3ja herb íbúð á annari hæð (efstu) í litlu
fjölbýli. Verð 10,9 millj. tilv 15331
RAUÐARÁRSTÍGUR Góð 2ja herb.
ca 45 fm íbúð á 2. hæð. Endurnýjað eld-
hús og fataskápar, flísar á góflum. Tilv.
4438
Í SMÍÐUM
HAMRAVÍK - 3 ÍBÚÐIR
Erum að selja 3 síðustu íbúðirnar að
Hamravík 16-18, sem eru 2ja herb., 4ra
herb. með bílskúr og ein 5 herbergja.
Íbúðirnar seljast fullfrágengnar án gólfefna
og öll sameign frágengin. Mjög vandaður
frágangur. Til afh. fljótlega.
ATVINNUHÚSNÆÐI
TRYGGVAGATA - HAFNAR-
HVOLL
Mjög góð 386 fm skirfstofuhæð á 2. hæð
í Hafnarhvoli. Hæðin er í góðu ástandi
með tölvulgögnum. Sameign hússins er
öll nýendurnýjuð bæði að utan og innan
og nýjir gluggar. Lyfta. Verð 40,0 millj.
SÉRHÆÐIR
ÁLFHEIMAR - GLÆSLEG SÉR-
HÆÐ
Glæsileg 163 fm efri sérhæð í góðu þríbýl-
ishúsi, ásamt bílskúr. Íbúðin skiptis m.a. í
5 svefnherb. þar af eitt stórt forstofuher-
bergi, stóra stofu og borðstofu, snyrtingu,
baðherbergi og stórt eldhús með borð-
krók. Íbúðin er mjög mikið endurnýjuð. Allt
sér. Verð 18,6 millj.
STÆRRI EIGNIR
HRYGGJARSEL - 2 ÍBÚÐIR
Þetta er mjög vandað 272 fm raðhús,
kjallari og tvær hæðir, auk 54,6 fm tvö-
falds bílskúrs. Í kjallara er mjög góð 2ja
herb. íbúð auk geymslurýmis. Á 1. hæð er
m.a. stórt eldhús, stórar stofur og sjón-
varpsherbergi. Á 2. hæð eru 4 góð svefn-
herbergi og baðherbergi. Verð 24,5 millj.
tilv. 5021
ÁLFHÓLSVEGUR RAÐHÚS Um
er að ræða ca 160 fm raðhús á þremur
hæðum. Í kjallara er óinnréttað rými þar
sem hæglega er hægt að gera ca 60 fm
íbúð en hluti af rýminu er ekki inni í fm
tölu. Aðkoma er góð, búið að leggja hita í
planið og gera ráð fyrir bílskýli. Verð 17,9
millj. tilv 4974
4RA - 5 HERB.
VESTURGATA - SÉRINNG. 4ra
herbergja 112,5 fm íbúð á tveimur hæðum
með sérinngangi. Þrjú svefnherbergi, rúm-
góð stofa, eldhús og bað. Verð 12,5 millj.
tilv 15242
DALHÚS - RAÐHÚS Mjög gott
128,9 fm raðhús á 2 hæðum með stórri
suðurverönd. Barnvænt og rólegt hverfi.
Verð tilv 15250
LANGHOLTSVEGUR 5 herb. 106,6
fm íbúð er stærri) íbúð í kjallara með sér
inngangi í tvíbýlishúsi. Íbúðin skiptist í 4
svefnherbergi, stofu, eldhús bað og
geymslur. Ásett verð 11,7 millj. tilv
15219
TORFUFELL 4ra herb. 97 fm mjög vel
skipulögð íbúð á 4. hæð. 3 stór svefnher-
bergi, góð stofa. Nýtt parket, yfirbyggðar
svalir. Húsið allt nýklætt að utan. Góð
sameign inni. Tilv. 15028
3 HERBERGJA
HRINGBRAUT - TVÆR ÍBÚÐIR
Tvær glæsilegar mikið endurnýjaðar íbúðir
í þríbýli. Seljast saman eða í sitt hvoru lagi.
Annars vegar 71 fm 3ja herb. efri hæð auk
bílskúrs, hins vegar 64,6 fm 2ja herbergja
íbúð í kjallara. Nánari uppl. á Ásbyrgi. Tilv.
14876
SMIÐJUVEGUR - VERSLUN -
LAGER Mjög gott um 500 fm verslunar-
og lagerhúsnæði á besta stað í nýlegu
húsi við Smiðjuveg. Góð lofthæð, góðar
innleyrsludyr og verslunargluggar. Hús-
næðið bíður upp á mikla möguleika. Verð
46,0 millj. Tilv. 2273
TIL LEIGU
SUÐURLANDSBRAUT Gott versl-
unarpláss ca 50 fm sem er einn salur með
dúk á gólfi og góðum sýningargluggum,
húsnæðið er laust til afhendingar strax
HLÍÐARSMÁRI 19 - VIÐ
SMÁRALIND
Til leigu 100 til 400 fm mjög bjart og gott
verslunarhúsnæði á jarðhæð í sama húsi
og Sparisjóður Kópavogs. Húsnæðið
leigist í einingum frá um 100 fm Mikið
auglýsingagildi. Til afhendingar strax. Tilv.
4022
VÆTTABORGIR - 2JA ÍBÚÐA HÚS
Til sölu í Vættaborgum 84 og 86
mjög glæsileg raðhús með tveimur
íbúðum og seljast þau tilbúin til inn-
réttinga. Húsin eru að stærð 226,3
fm og 206 fm með innbyggðum bíl-
skúr. Húsin eru innréttuð þannig að
á jarðhæð er auk bílskúrs mjög góð
3ja herb. íbúð og á efri hæð er
glæsileg 4 herb. íbúð með tvennum
svölum. Lofthæð á efri hæð er mikil.
Mjög góð hönnun. Í hvoru húsi er
samþykkt ein íbúð. Að utan eru húsin kvörsuð og með aluzink-járni á þaki.
Lóð er grófjöfnuð. Til afhend. fljótlega.
ÁRIÐ 1881 fór Hilmar Finsen
landshöfðingi þess á leit við stjórn-
ina að í fjárlagafrumvarpi árið eftir
veitti landsjóður fjármagn til þess
að byggja fullkominn spítala í
Reykjavík og sæi síðan um að fjár-
magna rekstur hans.
Landshöfðinginn gerði ráð fyrir
að í hinni fyrirhuguðu byggingu
yrðu tuttugu og fjögur rúm fyrir
sjúklinga, auk þess fjögur rúm fyrir
geðveika, búningsherbergi, baðher-
bergi, líkhús, skurðlækningastofa
og herbergi fyrir læknaskólanema.
Stjórnin var treg í taumi og töldu
stjórnarmenn að Reykjavík ætti að
kosta byggingu spítalans ef af henni
yrði og sjá um fjármagn til rekstrar
hans.
Á þessum tíma var Schierbeck
landlæknir. Hann beitti sér fyrir því
að spítalinn yrði reistur og taldi að
hann þyrfti að vera mun stærri en
landshöfðinginn hafði farið fram á.
Máli sínu til stuðnings kom hann
með tölu á þeim sjúklingafjölda sem
leitað hafði til hans á fyrsta árinu
sem hann var landlæknir, hann taldi
þá vera 920, einnig fjölda þeirra
sem hann sagði að hefðu þurft á
innlögn á sjúkrahús að halda vegna
uppskurðar, þeir voru 65. Þó að
tölurnar væru sláandi og sýndu hina
miklu þörf fyrir spítala fór svo að
landsjóður veitti ekki fé til fram-
kvæmdanna.
Sjúkrahúsfélagið réðst í að
byggja hinn nýja spítala sem var
valinn staður í Þingholtunum, á
spildu úr túni Jóns Árnasonar bóka-
varðar. Hús spítalans var reist fyrir
neðan troðning þann yfir tún bóka-
varðarins sem farinn var þegar vatn
var sótt í svokallaða Skálholtslind.
Til þess að fjármagna bygg-
inguna var gamla Klúbbhúsið við
enda Aðalstrætis, á þeim slóðum
sem Herkastalinn var síðan byggð-
ur, selt fatakaupmanni að nafni
Tierney, sem hingað hafði komið í
verslunarerindum. Þar hafði verið
rekið sjúkrahús á efri hæðinni frá
árinu 1866. Niðri var samkomuhús
og þótti þar stundum æði sukksamt
og mikið ónæði fyrir sjúklingana á
hæðinni fyrir ofan. Sjúkrahúsfélag-
ið lumaði einnig á einhverjum aur-
um sem voru látnir renna í bygg-
inguna.
Byggt úr timbri á hlöðnum
kjallara
Helgi Helgason, trésmiður og
tónskáld, Þingholtsstræti 11, teikn-
aði húsið og stóð fyrir byggingu
þess. Í byggingaleyfinu kemur fram
að húsið átti að vera úr steini en það
var byggt úr timbri á hlöðnum kjall-
ara.
Bygging hússins hófst árið 1884
og var fyrsta virðingin á því gerð
26. júlí sama ár. Þar segir að grunn-
flötur hússins sé 22 x 15 álnir og
hæð undir þakbrún 111⁄2 alin. Húsið
er byggt af bindingi, múrað með
múrsteini í grind og beton, klætt á
austur- og suðurgafli með járni. Þak
er klætt járni á skarsúð.
Í húsinu eru 11 herbergi fyrir ut-
an ganga og inngang, sem öll eru í
smíðum. Að mestu leyti er búið að
ganga frá loftum og gólfum. Undir
vesturhlið hússins er kjallari. Eins
og sést af þessari lýsingu er húsið í
smíðum þegar virðingin var gerð.
Þingholts-
stræti 25,
Farsóttarhúsið
Í gegnum tíðina hefur húsinu verið haldið vel við, segir
Freyja Jónsdóttir. Unnið hefur verið að því að gamli
stíllinn fái að halda sér jafnt að utan sem innan.
Morgunblaðið/Sverrir
Að utan er húsið klætt járni á suðurstafni og austurhlið en með borðaklæðningu á norðurstafni og vesturhlið.