Morgunblaðið - 23.07.2002, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hefurendurskoðað áætlanir sínarum húsbréfa- og húsnæð-isbréfaútgáfu. Ný endur-
skoðuð áætlun er til tólf mánaða og
mun sjóðurinn framvegis birta slík-
ar tólf mánaða áætlanir á þriggja
mánaða fresti.
Hin nýja áætlun gerir ráð fyrir
að heildarútgáfa húsbréfa- og hús-
næðisbréfa verði svipuð og gert var
ráð fyrir í fyrri áætlunum fyrir árið
2002. Hins vegar eru nokkrar
breytingar á milli útlánaflokka.
Þetta þýðir að ekki er ástæða til
aukinna affalla á húsbréfum vegna
útgáfu Íbúðalánasjóðs.
Leiða má rök að því að há afföll
um þessar mundir megi fyrst og
fremst rekja til gríðarlegrar aukn-
ingar í skuldabréfaútgáfu banka og
fyrirtækja á síðustu mánuðum.
Meiri útgáfa húsbréfa
Í nýrri áætlun Íbúðalánasjóðs
fyrir tímabilið júlí 2002 til júlí 2003
kemur fram að útgáfa húsbréfa á
seinni hluta ársins 2002 verði tæpir
15,7 milljarðar króna. Það þýðir að
heildarútgáfa á árinu verður um
31,2 milljarðar króna á árinu sem
er aukning um 2 milljarða frá fyrri
áætlunum Íbúðalánasjóðs.
Reiknað er með um 1,3 milljarða
króna samdrætti í útgáfu fyrri
hluta árs 2003 miðað við fyrri hluta
árs 2002.
Endurskoðuð áætlun gerir ráð
fyrir aukinni húsbréfaútgáfu á
árinu 2002 annars vegar vegna þess
að útgáfa fyrri hluta ársins varð
um milljarði hærri en gert var ráð
fyrir og reiknað er með að hægar
dragi úr fasteignaviðskiptum seinni
hluta árs en áður var spáð.
Hins vegar er reiknað með hrað-
ari tilflutningi fólks úr gamla fé-
lagslega kerfinu yfir í hús-
bréfakerfið en í fyrri áætlunum.
Minni útgáfa húsnæðisbréfa
Hin nýja áætlun gerir ráð fyrir
að útgáfa og sala húsnæðisbréfa á
seinni hluta ársins 2002 verði um 2
milljörðum minni en áður var áætl-
að. Nú er gert ráð fyrir að árs-
útgáfa húsnæðisbréfa verði ein-
ungis 15,5 milljarðar. Áætlað
söluverð húsnæðisbréfa næstu 12
mánaða er 16 milljarðar króna.
Ástæður minni húsnæð-
isbréfaútgáfu á árinu tengjast með-
al annars fyrrgreindum hraðari til-
flutningi fólks úr gamla félagslega
kerfinu yfir í húsbréfakerfið sem er
tilkominn vegna þess að kaup-
skyldu sveitarfélaga var aflétt af
félagslegu húsnæði.
Við sölu á félagslegu húsnæði
eru gömlu félagslegu lánin greidd
upp, en vextir þeirra voru nið-
urgreiddir. Íbúðalánasjóður fjár-
magnaði niðurgreiðslu lána í fé-
lagslega kerfinu með sölu
húsnæðisbréfa, en vegna upp-
greiðslna lánanna minnkar þörfin á
fé til niðurgreiðslu vaxta.
Þá er nú ljóst að framkvæmda-
hraði í byggingu leiguíbúða er
minni en gert var ráð fyrir þannig
að afgreiðsla útlána til leiguíbúða
verður hægari en gert var ráð fyr-
ir. Því dregur úr áætlaðri láns-
fjárþörf Íbúðalánasjóðs vegna
leiguíbúða, en sjóðurinn fjármagnar
leiguíbúðalán sín með sölu húsnæð-
isbréfa.
Heildarútgáfa húsbréfa og
húsnæðisbréfa í jafnvægi
Markaðurinn
eftir Hall Magnússon,
yfirmann gæða- og markaðsmála
Íbúðalánasjóðs/hallur@ils.is
Morgunblaðið/Þorkell
Efnisyfirlit
Austurbær .................................. 35
Ás ............................................. 16–17
Ásbyrgi ........................................ 27
Berg ............................................... 41
Bifröst ............................................. 9
Borgir ........................................... 23
Brynjólfur Jónsson .................. 48
Eign.is ........................................... 18
Eignaborg ....................................... 4
Eignamiðlun ........................ 24–25
Eignaval ....................................... 44
Fasteign.is .................................. 34
Fasteignamarkaðurinn ............ 45
Fasteignamiðlunin .................... 40
Fasteignamiðstöðin ................... 17
Fasteignasala Mosfellsbæjar .. 14
Fasteignasala Íslands ................. 11
Fasteignastofan ........................... 5
Fasteignaþing ............................... 4
Fjárfesting ................................... 12
Fold ............................................... 37
Foss ................................................ 13
Garðatorg ....................................... 6
Gimli .............................................. 19
Híbýli ............................................ 24
Holt ............................................... 20
Hóll .................................................. 3
Hraunhamar ......................... 30–31
Húsakaup ....................................... 7
Húsavík .......................................... 8
Húsið ............................................. 15
Húsin í bænum ........................... 38
Höfði ............................................. 32
Höfði Hafnarfirði ....................... 33
Kjöreign ....................................... 47
Lundur ..................................... 10–11
Lyngvík ........................................... 9
Miðborg ........................................ 39
Óðal ................................................. 2
Skeifan .......................................... 21
Stakfell ......................................... 14
Valhöll .................................. 42–43
Þingholt ....................................... 29