Morgunblaðið - 25.07.2002, Page 2
KNATTSPYRNA
2 C FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hið árlega hraðmót í knattspyrnu,
VP mótið,
verður haldið á Víkurvelli í Vík
í Mýrdal laugardaginn 10. ágúst
Mótið hefst kl. 12.00.
Leikinn er 7 manna bolti, hámark 12 í liði.
Skráningargjald er kr. 15.000 og greiðist á staðnum
áður en keppni hefst.
Skráningar þurfa að hafa borist fyrir fimmtudaginn
8. ágúst á usvs@mmedia.is, í síma 864 9579, 487 1161,
Þorgerður, eða í síma 847 1857, Atli.
Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu USVS, www.usvs.is.
USVS og Víkurprjón ehf.
Laugardaginn 27. júlí
Nesvöllur
Minningarmót Óskars H. Friðþjófssonar.
18 holu höggleikur.
Verðlaun 1., 2. og 3. sæti
m/án forgjafar
Nándarverðlaun á 2/11 og 5/14 holu.
Dregið úr skorkortum í mótslok.
Ræst er út frá 8.00-10.00
og 13.00-15.00
Þátttökugjald 2.500 kr.
Skráning á golf.is og í síma 561 1930
KNATTSPYRNA
Efsta deild karla, Símadeild:
Laugardalur: Fram - Grindavík ..........19.15
Keflavík: Keflavík - ÍBV .......................19.15
2. deild karla:
Leiknisv.: Leiknir R. - Skallagrímur........20
3. deild karla:
Djúpivogur: Neisti D. - Hug./Höttur........20
1. deild kvenna B:
Fáskrúðsf.: Leiknir F. - Sindri .................20
Í KVÖLD
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
ÍA - Zeljeznicar 0:1
Akranes, 1. umferð í forkeppni Meist-
aradeildar Evrópu, seinni leikur, mið-
vikudagur 24. júlí 2002.
Aðstæður: Suðaustan strekkingur, blautt
og 10 stiga hiti.
Mark Zeljeznicar: Almir Gredic 32.
Dómari: Romans Lajuks, Lettlandi.
Áhorfendur: Um 400.
Skot að marki: ÍA 9 (4) - Zeljeznicar 9 (3)
Hornspyrnur: ÍA 4 - Zeljeznicar 12
Rangstaða: ÍA 5 - Zeljeznicar 5.
Lið ÍA: Ólafur Þór Gunnarsson - Stur-
laugur Haraldsson (Guðjón Sveinsson
54.), Gunnlaugur Jónsson, Reynir Leós-
son, Andri Karlvelsson - Ellert Jón
Björnsson, Pálmi Haraldsson (Jón Þór
Hauksson 66.), Grétar Rafn Steinsson -
Bjarki Gunnlaugsson (Garðar Gunnlaugs-
son 46.), Hjörtur Hjartarson, Kári Steinn
Reynisson.
Lið Zeljeznicar: Miroslav Kruzik - Adin
Mulaosmanovic, Edis Mulalic, Haris Ali-
hodzic, Sead Seferovic - Bulend Biscevic
(Sanjin Megsic 81.), Denis Karic, Almir
Gredic, Sergeij Tica (Dacibor Silic 63.),
Almir Cosic (Emir Hadzic 76.) - Jure
Guvo.
Aðrir leikir
Feitletruð lið áfram, samanlögð úrslit
innan sviga:
Zhenis Astana - Sherif Tiraspol ..3:2 (4:4)
Pyunik - Tampere United.............2:0 (6:0)
Belshina - Portadown ....................3:2 (3:2)
Vardar - Dudelange.......................3:0 (4:1)
Tirana - FBK Kaunas ...................0:0 (3:2)
Apoel Nicosia - Flora Tallinn.......1:0 (1:0)
B36 Þórshöfn - Torpedo Kutaisi..0:1 (2:6)
Barry Town - Skonto Riga ...........0:1 (0:6)
Shelbourne - FC Hibernians.........0:1 (2:3)
Þýskaland
Deildarbikarkeppnin:
Bayer Leverkusen - Werder Bremen..1:0
Zoltan Sebescen 63. mín.
Leverkusen mætir Schalke í undan-
úrslitum Í hinum undanúrslitaleiknum
mætir Dortmund sigurvegaranum úr við-
ureign Bayern Munchen og Herthu Berl-
ín.
Ég held þetta sé afleiðing þessmikla þrýstings sem er kom-
inn á félögin um að ná árangri. Svo
er þetta líka spurning um peninga
allt saman. Nærtækasta dæmið er
til dæmis hjá okkur. Lillestrøm
fékk Heiðar Helguson fyrir tiltölu-
lega litla peninga og seldi hann svo
til Englands fyrir um 20 milljónir
norskar. Sama má segja um Ástr-
alann Clayton Zane sem við keypt-
um fyrir ágætt verð frá Molde en
hann er síðan seldur til Anderlecht
fyrir tæpar 20 milljónir.
Félögin sjá að það er möguleiki
að fá peninga út úr þessu og
freistast því til að reyna þó svo að
það fylgi þessu auðvitað áhætta
því það standa ekki allir undir því
að verða góð söluvara,“ segir Logi.
Hann segist sammála því að
norskir leikmenn séu verðlagðir
allt of hátt. „Það sést til dæmis á
því að fáir norskir leikmenn voru
seldir til útlanda eftir síðasta
keppnistímabil og það held ég að
sé fyrst og fremst vegna þess
hversu mikið þeir kosta.“
Logi segir það allra hag að verð
á leikmönnum sé ekki of hátt,
heldur sé samið þannig að móð-
urfélagið fái hlut af næstu sölu,
komi til hennar. „Það góða við að
peningarnir eru að minnka í knatt-
spyrnunni á ný er að þá leggja fé-
lögin meiri rækt við og áherslu á
að búa til góða leikmenn innan fé-
laganna.
Landslagið hefur breyst gríðar-
lega í Noregi og raunar um alla
Evrópu. Fyrir nokkrum árum voru
leikmenn keyptir fyrir lægra verð
og til þess að gera þá að betri
knattspyrnumönnum. Nú er verðið
hærra og leikmenn verða að vera
nógu góðir þegar þeir koma til fé-
laganna, það er enginn tími til að
gera þá að betri leikmönnum áður
en þeir komast í liðið,“ segir Logi.
Hann segir erlenda leikmenn
ekki draga úr aðsókn, þvert á
móti, þeir séu margir hverjir mjög
vinsælir meðal stuðningsmanna fé-
laganna. „Það er þó alveg ljóst að
það er erfitt að vera erlendur leik-
maður í Noregi því að til þeirra
eru gerðar miklar kröfur. Þeir
verða að vera betri en norskir leik-
menn til þess að vera samþykktir,“
sagði aðstoðarþjálfari Lillestrøm.
Logi Ólafsson, þjálfari Lillestrøm,
um erlenda leikmenn í Noregi
Þrýst
á um
árangur
„ÉG veit eiginlega ekki hvað skal segja um þetta, því þetta er nokk-
uð tvíbent,“ sagði Logi Ólafsson, aðstoðarþjálfari norska liðsins
Lillestrøm, í samtali við Morgunblaðið vegna umræðunnar um
fjölda erlendra leikmanna í efstu deild þar í landi.
Heimamenn hófu leikinn undanstrekkingnum og hafi þeir ein-
hvern tíma haft trú á að þeir ættu
möguleika á að kom-
ast áfram þá sást það
varla á leik þeirra.
Byrjunin var þó allt í
lagi, Sturlaugur Har-
aldsson átti fínt langtskot á 11. mín-
útu sem markvörðurinn varði en hélt
ekki boltanum. Hann var þó sneggri
en Hjörtur Hjartarson og náði að
handsama knöttinn áður en illa fór.
Besti maður vallarins, Almir Gre-
dic (nr. 9) átti mjög gott skot frá víta-
teig á 23. mínútu en Ólafur Þór mark-
vörður varði vel.
Sex mínútum síðar fékk Kári
Steinn Reynisson besta færi leiksins,
fékk boltann á markteigshorni
vinstra megin en hitti hann ekki
nægilega vel, hefði ef til vill átt að
nota hægri fótinn, og skot hans fór
rétt framhjá markstöng gestanna.
Það er aldrei að vita hvað hefði
gerst ef Kári Steinn hefði skorað en
þess í stað var það Almir Gredic sem
skoraði á 32. mínútu. Boltinn var
sendur af vinstri kanti, hátt í loft upp
á móti vindinum. Ólafur Þór ætlaði út
á móti til að handsama boltann en
vindurinn stöðvaði hann í loftinu,
Ólafur hikaði og bakkaði en Gredic
spyrnti viðstöðulaust yfir Ólaf og í
markið. Rúmlega 40 bosnískir áhorf-
endur fögnuðu innilega og kveiktu á
blysi í tilefni marksins.
Þar með má segja að allur vindur
hafi verið úr heimamönnum enda
hefði leikur þeirra þurft að taka virki-
legum stakkaskiptum til að liðinu
tækist að gera fimm mörk.
Um síðari hálfleik er best að hafa
sem fæst orð því hann var einn sá
leiðinlegasti sem undirritaður hefur
séð hér á landi lengi.
Skagamenn komust frá leiknum
eins og þeir virtust vilja, án þess að
meiðast og án þess að leggja allt of
mikið á sig. Hjá þeim var Gunnlaugur
lengstum sterkur í vörninni, Hjörtur
líflegur frammi og Garðar lífgaði
verulega upp á leik liðsins eftir að
hann skipti við Bjarka bróður sinn í
leikhléi.
Gestirnir virkuðu þungir enda er
mánuður þar til deildarkeppnin hefst
hjá þeim. Leikmenn eru þó flestir
færir með knöttinn og létu hann
ganga manna á milli enda þremur
mörkum yfir við komuna til landsins.
Bestu menn þeirra voru Gredic
(nr.9), Bicevic (nr.2), Alihodzic (nr.5)
og varamaðurinn Silic (nr.10).
Ætluðum að skora snemma
„Þetta fór nú ekki alveg eins og við
vonuðumst til. Þeir komu að því er
virtist værukærir til leiks og ætluðu
að halda fengnum hlut og komast
sem léttast frá leiknum,“ sagði Gunn-
laugur Jónsson, fyrirliði Skaga-
manna, eftir leikinn.
„Við lögðum í hann með það að
markmiði að skora snemma en það
tókst því miður ekki þó svo við fengj-
um færi til þess. Eftir að þeir skoruðu
var ljóst að við urðum að gera fimm
mörk og þar sem það er mjög erfiður
leikur í deildinni á laugardaginn var
talað um það í hálfleik að komast frá
leiknum með sæmd. Ég hefði nú samt
viljað fá eitt mark frá okkur, við feng-
um tækifæri til þess,“ sagði Gunn-
laugur.
Hann sagði leikinn talsvert öðru-
vísi
ákveð
mjög
að þa
tveim
um v
þanni
þá,“ s
E
Lo
norsk
með
liðið m
umfer
ir sko
Skagi
mark
byrja
breyt
Mé
um k
vinna
lega n
á von
í fyrr
eru „
fram
Þa
gengi
koma
andlit
ingar
áfram
Hjörtur Hjartarson á fullri ferð og varnarmaðurinn Edis Mulalic fylgis
Fátt sem ylja
á Akranes
ÞAÐ var hálf napurt á Akranesi í gærkvöldi þegar ÍA tók á móti
bosníska liðinu Zeljeznicar í síðari leik liðanna í forkeppni Meist-
aradeildar Evrópu. Leikmenn liðanna náðu ekki að ylja þeim fáu
áhorfendum sem lögðu leið sína á völlinn að þessu sinni og virtust
Skagamenn með hugann að einhverju leyti við deildarleikinn við
KR um helgina. Gestirnir höfðu betur, gerðu eina mark leiksins í
fyrri hálfleik og unnu því samanlagt 4:0.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar