Morgunblaðið - 28.08.2002, Blaðsíða 1
Athygli vekur að ekkert pláss erfyrir Tryggva Guðmundsson,
framherja Stabæk, markahæsta
leikmenn norsku deildarinnar, né
Þórð Guðjónsson sem hefur leikið
vel með Bochum í þýsku úrvals-
deildinni í upphafi leiktíðarinnar.
Tryggvi og Þórður
eru inni í myndinni
„Þó svo að ég velji ekki Tryggva
annan leikinn í röð má ekki skilja
þaðsem svo að hann sé alveg út úr
myndinni. Tryggvi spilar sömu
stöðu og Eiður Smári. Hann er
markaskorari, sem hefur sín fríð-
indi og gott er að grípa til í sumum
leikjum, en ég er að reyna að byggja
upp sóknarlið í kringum Eið Smára.
Mér finnst vængstaðan ekki henta
Tryggva og þar af leiðandi valdi ég
hann ekki að þessu sinni.
Hvað Þórð áhrærir er hann varla
búinn að spila neitt í hátt á annað ár.
Það er frábært að sjá að hann er
kominn á fulla ferð á ný. Þórður er
farinn að spila stöðu sem enginn
hefði trúað að hann mundi gera, það
er að vera varnarsinnaður miðju-
maður. Við höfum verið með fastan
kjarna í þessum stöðum í landslið-
inu, eins og Rúnar og Brynjar Björn
og þá hefur Ívar Ingimarsson komið
sterkur inn í þessa stöðu. Ef Þórður
heldur hins vegar áfram því sem
hann hefur verið að gera þá er allt
opið hjá honum hvað landsliðið
varðar. Ég vill leyfa honum fyrst að
festa sig aðeins í sessi en ég sé alveg
fyrir mér að hann geti verið inni í
myndinni til framtíðar,“ sagði Atli.
Um val sitt á Birki í stað Kjartans
sagði Atli; „Ég hef sagt það áður að
Birkir er markvörður númer tvö.
Ég ákvað að gefa Kjartani tækifæri
á móti Andorra og leyfa honum að
kynnast hlutunum. Hins vegar tel
ég Birki veita Árna Gauti besta
stuðninginn og hann er alltaf tilbú-
inn þegar á reynir.“
Akureyringurinn Atli Sveinn
Þórarinsson er eins og áður segir
eini nýliðinn og þá hlaut Haukur
Ingi Guðnason, framherji Keflvík-
inga, náð fyrir augum landsliðs-
þjálfarans.
„Ég vel Hauk Inga með sama
hætti og Sævar Þór. Ég er að leita
eftir hraða og eftir að hafa séð hann
til dæmis í leiknum við KR á dög-
unum þá fer ekki á milli mála að
hann hefur yfir sprengjukrafti að
ráða. Þegar við þurfum að liggja
aftarlega á vellinum þá gætu leik-
menn á borð við Sævar og Hauk
Ingi hentað liðinu mjög vel.“
Mér finnst Atli Sveinn verðskulda
tækifæri í hópinn. Ég fór til Sví-
þjóðar gagnvart til að skoða hann í
leik með Örgryte og ég varð ekki
fyrir vonbrigðum. Hann hefur verið
fastamaður í liði Örgryte og í leikn-
um sem ég sá hann í tapaði hann
ekki skallaeinvígi og gætti marka-
hæsta leikmanns sænsku deildar-
innar einkar vel. Hann er greinilega
mikill liðsmaður og allt sem hann
gerir er einfalt. Eftir þennan leik
fékk ég mikinn áhuga á að kalla
hann heim því ég hef trú á því að
hann geti orðið á næstu árum fasta-
maður í landsliðinu,“ segir Atli.
Atli ákvað að gefa Helga Sigurðs-
syni frí að þessu sinni en hann tekur
það skýrt fram að Helgi er alveg
inni í kjarnanum.
Atli Sveinn
eini nýliðinn
ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, tilkynnti í gær 18
manna landsliðshóp fyrir vináttuleikinn á móti Ungverjum sem fram
fer á Laugardalsvelli 7. september. Þrjár breytingar eru á liðinu frá
því í sigurleiknum gegn Andorra á dögunum. Birkir Kristinsson, ÍBV,
Haukur Ingi Guðnason, Keflavík, og Atli Sveinn Þórarinsson, Ör-
gryte, koma inn í hópinn og er Atli nýliði í landsliðinu. Þeir koma inn
í hópinn fyrir Kjartan Sturluson, Fylki, og Helga Sigurðsson, Lyn.
2002 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KR-STÚLKUR MEÐ YFIRBURÐASTÖÐU Í SÍMADEILDINNI / B2
ÓSKAR Elvar Óskarsson, fyrirliði handknatt-
leiksliðs HK um langt árabil, skrifar vænt-
anlega undir tveggja ára samning við sviss-
neska 2. deildarfélagið Lyss á næstu dögum.
Óskar Elvar hafði ákveðið að leggja skóna á
hilluna eftir síðasta tímabil en fékk tilboð frá
svissneska félaginu í sumar.
„Málið virtist dottið uppfyrir á þeim tíma en
kom aftur upp fyrir nokkrum dögum og nú
bendir allt til þess að við sláum til og flytjum til
Sviss nú í haust. Lyss er með eitt af bestu 21-árs
liðum í Sviss en vantar einhverja reynslu í
meistaraflokkslið sitt til að lyfta því upp í efstu
deildina. Vonandi get ég hjálpað til og það er
fyrst og fremst skemmtilegt að fá svona tæki-
færi og prófa eitthvað nýtt,“ sagði Óskar Elvar
við Morgunblaðið í gær.
Óskar Elvar
á leið til Sviss
HÓPURINN sem mætir Ung-
verjum er þannig skipaður,
landsleikir í sviga:
Árni Gautur Arason,
Rosenborg (22)
Birkir Kristinsson, ÍBV (71)
Rúnar Kristinsson, Lokeren (94)
Hermann Hreiðarsson,
Ipswich (42)
Ríkharður Daðason, Lilleström (41)
Lárus Orri Sigurðsson, WBA (35)
Brynjar B. Gunnarsson, Stoke (31)
Arnar Þór Viðarsson, Lokeren (19)
Eiður S. Guðjohnsen, Chelsea (17)
Marel Baldvinsson, Stabæk (8)
Sævar Þór Gíslason, Fylki (6)
Jóhannes K. Guðjónsson,
R. Betis (6)
Ólafur Stígsson, Molde (6)
Gylfi Einarsson, Lilleström (5)
Ívar Ingimarsson, Wolves (5)
Haukur Ingi Guðnason, Keflavík (4)
Hjálmar Jónsson, Gautaborg (4)
Atli Sveinn Þórarinsson,
Örgryte (0)
Þeir mæta
Ungverjum
Vala Flosadóttir felldi byrjunar-hæðina, 4,08 metra, í stangar-
stökki á frjálsíþróttamóti í Gauta-
borg í gærkvöldi. Hún fygldist síðan
með þegar sænska stúlkan Kirsten
Belin bætti Norðurlandametið, sem
Vala átti, um einn sentimetra, stökk
4,51.
Þetta er í fyrsta sinn síðan keppni
í stangarstökki kvenna hófst að
Norðurlandametið er ekki í eigu Ís-
lendinga. Metið sem féll í gær setti
Vala þegar hún vann bronsverð-
launin á Ólympíuleikunum í Sydney
fyrir tæpum tveimur árum. Íslend-
ingar eiga nú aðeins eitt Norður-
landamet utanhúss í frjálsíþróttum,
það er met sem Oddur Sigurðsson
setti fyrir 18 árum í 400 m hlaupi,
45,36 sek. Þá á Þórey Edda Elís-
dóttir enn Norðurlandametið í
stangarstökki innanhúss, það einnig
4,51.
Þórey Edda varð í öðru sæti í gær
með því að stökkva yfir 4,34 metra
en felldi 4,44 m í þrígang. Eftir að
Belin setti metið reyndi hún að lyfta
sér yfir 4,60 en lánaðist það ekki.
Jón Arnar Magnússon keppti í
tveimur greinum á mótinu, sigraði í
langstökki með 7,39 metra og varð í
fimmta sæti í 110 metra grinda-
hlaupi á 14,37 sekúndum.
Magnús Aron Hallgrímsson varð
að sætta sig við fjórða sætið í
kringlukasti með því að kasta 56,54
metra. Þar sigraði hins vegar 23 ára
piltur frá Eistlandi sem Vésteinn
Hafsteinsson hefur þjálfað síðustu
tvö árin. Grand Kanter heitir hann
og mældist sigurkastið 63,95 metr-
ar.
Norðurlanda-
met Völu féll
Reuters
David Beckham og félgar í Manchester United tryggðu sér í gærkvöldi sæti í Meistaradeild Evrópu.
Grandberg
í raðir Kefl-
víkinga?
KEFLVÍKINGAR gætu
fengið góðan liðsstyrk á
næstunni fari svo að Kevin
Grandberg leiki með liðinu
í vetur. Grandberg, sem lék
með Stjörnunni sl. vetur,
fékk íslenskan ríkisborg-
ararétt á dögunum og því
geta Keflvíkingar teflt hon-
um fram ásamt Damon
Johnson. Líklega verður
gengið frá samningum við
leikmanninn á næstunni svo
fremi sem hann fái ekki
álitlegt tilboð frá erlendum
liðum. Hjörtur Hjartarson
og Þorsteinn Húnfjörð hafa
bæst í hópinn hjá Keflvík-
ingum.