Morgunblaðið - 29.08.2002, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Húsatóftavöllur er í frábæru ástandi!
Keppnisfyrirkomulag: Punktakeppni 3/4 forgjöf.
Hámarksforgjöf 24 hjá körlum og 28 hjá konum.
Ræst út frá kl. 9.00.
Góð verðlaun fyrir 1.-6. sæti
Nándarverðlaun á 4/17 og 13. holu.
Þátttökugjald er 2.500 krónur.
Skráning í síma 426 8720.
Golfklúbbur Grindavíkur
- Húsatóftavöllur
Opna Hampiðjumótið
Laugardaginn 31. ágúst
„Við verðum
að sækja“
„ÞAÐ verður óneitanlega á brattann
að sækja fyrir okkur en við setjum
stefnuna á að skora í fyrri hálfleik
og halda hreinu, ef það tekst er aldr-
ei að vita hvað gerist í framhaldinu,“
sagði Njáll Eiðsson þjálfari ÍBV í
gær er hann var inntur eftir áform-
um ÍBV-liðsins gegn AIK frá Stokk-
hólmi í síðari viðureign liðanna í
UEFA-keppninni í knattspyrnu en
Svíarnir unnu fyrri leik liðanna, 2:0.
Njáll sagði lið AIK skipað vel
þjálfuðum knattspyrnumönnum og
að lið þeirra væri óvenju hávaxið.
„Það eru mjög stórir varnarmenn í
miðvarðarstöðunum hjá þeim en
þeir leika 4-4-2, á miðjunni er svipað
uppi á teningnum. Frammi er Andr-
eas Andreason, lék áður með New-
castle. Liðið er gott og í því eru 12
leikmenn sem hafa leikið með A-
landsliði Svía. Það er ekki gott að
meta styrkleika sænska liðsins á
þessum eina leik okkar gegn þeim til
þessa en þetta eru allt atvinnumenn
og liðið er að ná ágætum árangri í
sænsku úrvalsdeildinni. Af því má
draga þá ályktun að þeir verði erf-
iðir viðureignar.“
Uppselt er á leikinn sem fram fer
á Hásteinsvelli í dag og hefst leik-
urinn kl. 17:30. Aðeins um 530 áhorf-
endur fá miða á leikinn þar sem ein-
göngu er selt í sæti en Njáll bjóst
ekki við að „gamlir jaxlar“ fengju
undanþágu til þess að standa á sín-
um stað á hólnum fræga. „Við verð-
um að sækja og hafa trú á því að við
getum skorað, en jafnframt verðum
við að halda ákveðnu skipulagi í leik
okkar. Ef það tekst er ég bjartsýnn.
Við fengum færi í fyrri leiknum og
eigum að geta gert slíkt hið sama í
þessum leik. Það er ljóst að bakverð-
irnir Hjalti Jóhannesson og Unnar
Hólm Ólafsson leika ekki með vegna
meiðsla og veikinda en aðrir leik-
menn eru tilbúnir í verkefnið,“ sagði
Njáll Eiðsson, þjálfari ÍBV.
Í hópnum eru fyrirtæki á Akureyrisem vilja auðvelda Vernharði að
ná markmiðum sínum í íþróttinni.
Fyrirtækin greiða fasta upphæð til
hans mánaðarlega.
Nú er um hálft ár þangað til úr-
tökumótin fyrir Ólympíuleikana
2004 hefjast. Undirbúningur Vern-
harðs fyrir þau mót er forgangsverk-
efni næstu mánaða og munu allar
hans æfingar miðast við úrtökumót-
in og síðan í beinu framhaldi heims-
meistaramótið sem haldið verður í
Japan á næsta ári, en þar hefur
Vernharð sett stefnuna á verðlauna-
sæti.
Vernharð, sem tók þátt í Ólympíu-
leikunum í Atlanta árið 1996, sagði á
fundi með blaðamönnum, þegar bak-
hjarlahópurinn var kynntur, að hann
hafi í mörg ár staðið í betli meðal fyr-
irtækja á Akureyri. Hann taldi að
eftir heimsmeistaramótið í fyrra, þar
sem hann hafnaði í 7. sæti, myndi
ganga betur að afla sér stuðnings.
Hann komst þá á A-hóp hjá Afreks-
mannasjóði ÍSÍ og að þar fengi hann
dágóða upphæð en hins vegar væri
viðurkenningin enn meiri.
„Ég þarf hins vegar að geta stund-
að æfingar á sama grunni og þeir
sem ég er að keppa við og því leitaði
ég eftir frekari stuðningi. Það er al-
gjör draumur að fá þennan stuðning
og árangurinn er reyndar mun betri
en ég þorði að vona. Til viðbótar hef
ég góða aðstöðu til æfinga í Svíþjóð.
Ég bý að 15 ára reynslu í íþróttinni
og hef náð góðum árangri. Nú get ég
ekki sagt að ég hafi ekki fengið tæki-
færi – ég hef tvö ár til að undirbúa
mig á sama grunni og aðrir,“ sagði
Vernharð.
Í bakhjarlahópi Vernharðs eru
Bónus, Hagkaup, 10–11, Greifinn,
Íslensk verðbréf, KEA, Sparisjóður
Norðlendinga, Útgerðarfélag Akur-
eyringa, Blikkrás og Norðurmjólk.
Auk þessara fyrirtækja koma Kj.
Kjartansson hf., Skrín, Radionaust
og Fremri kynningarþjónusta að
verkefninu.
Nokkur önnur fyrirtæki á Akur-
eyri hafa stutt Vernharð með þjón-
ustu við hann en það eru Myndrún,
Ásprent/POB og Pedromyndir. Loks
fær Vernharð fjárstyrk frá Akureyr-
arbæ en auk þess er hann í efsta
styrkþegaflokki hjá Afrekssjóði
Íþrótta- og ólympíusambands Ís-
lands (ÍSÍ).
Morgunblaðið/Kristj
Vernharð Þorleifsson júdómaður með myndir af sér sem prýða mun
veggi þeirra fyrirtækja sem standa að baki honum.
STOFNAÐUR hefur verið bakhjarlahópur Vernharðs Þorleifssonar
júdókappa frá Akureyri með það að markmiði að gera honum kleift
að einbeita sér að íþrótt sinni næstu tvö árin og æfa og keppa við
bestu aðstæður fram yfir Ólympíuleikana í Aþenu árið 2004.
Vernharð
styrktur
fram að ÓL
í Aþenu
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
UEFA-bikarkeppnin:
Hásteinsvöllur: ÍBV – AIK Solna ........17.30
Í KVÖLD
Staðan er náttúrulega 0:0 núnaog markmiðið hjá okkur verð-
ur að loka leiðinni að okkar marki
og reyna að hrekkja þá með okkar
fljótu mönnum í framlínunni, nýt-
um okkur hraða framherja okkar.
Við munum leggja töluverða
áherslu á að verjast til að byrja
með og sjá hvort þeir verða ekki
óþolinmóðir og pirraðir ef þeir ná
ekki að setja á okkur mark,“ sagði
Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari
Fylkis, þegar Morgunblaðið innti
hann eftir dagskipuninni í leiknum.
Ómar Valdimarsson, Gunnar Þór
Pétursson og framherjarnir Stein-
grímur Jóhannesson og Sævar Þór
Gíslason eiga við smávægileg
meiðsli að stríða og sagði Aðal-
steinn að það kæmi í ljós í dag
hvort þeir gætu leikið. Hann átti
þó frekar von á að þeir yrðu klárir
í slaginn.
Um styrk Moeskroen hafði Að-
alsteinn þetta að segja: „Fram-
herjarnir Mpenza og Zewlakov eru
geysilega góðir og spil liðsins
byggist að miklu leyti í kringum
þá. Þeir senda boltann mikið á þá
en koma svo með fjögurra manna
miðlínu á fullri ferð á eftir. Við
þurfum því að loka á það á sama
hátt og við náðum að gera heima.
Þetta er mjög sterkt lið sem við
mætum en okkur langar áfram og
við erum í fínu formi og klárir í
slaginn.“
Aðalsteinn sagði enn fremur að
það væri gjörólíkt að leika við er-
lend lið heima og á útivelli. „Það er
alltaf meiri stemmning í þessum
liðum á heimavelli og það er þegar
uppselt á leikinn,“ bætti hann við.
Því má búast við að tæplega átta
þúsund áhangendur Moeskroen
muni styðja dyggilega við bakið á
sínum mönnum á Le Canonnier-
vellinum í kvöld.
Aðspurður sagði Aðalsteinn völl-
inn vera fyrsta flokks enda er
hann talinn einn af betri völlum
Belgíu í dag. „Þeir væru stoltir af
flötunum á Grafarholti ef þær
væru jafnsléttar og völlurinn hér,“
sagði Aðalsteinn í léttum tón en
lærisveinar hans hefja leik í dag
kl. 18 að íslenskum tíma.
Nýtum okkur
hraða fram-
herjanna
FYLKISMENN leika seinni leik sinn gegn belgíska liðinu Moeskroen
í forkeppni UEFA-bikarsins í Belgíu í kvöld. Árbæingar komu tölu-
vert á óvart í fyrri leiknum á Laugardalsvelli og náðu jafntefli, 1:1,
en Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari Fylkis, á von á að belgíska liðið
verði erfiðara viðureignar á heimavelli sínum, Le Canonnier.
Morgunblaðið/Sverrir
Steingrímur Jóhannesson
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu:
Forkeppni, 3. umferð, síðari leikir:
Dynamo Kiev - Levski Sofia....................1:0
Florin Cernat 42.
Dynamo Kiev áfram, 2:0 samanlagt.
Lokomotiv Moskva - Grazer AK.............3:3
Sergei Ignashevitsj 6., Vadim Evseev 32.,
Julio Cesar 43. - Ilco Naumoski 37., Mario
Bazina 48., Rene Aufhauser 63.
Lokomotiv áfram, 5:3 samanlagt.
Stefán Gíslason var ekki í leikmannahópi
Grazer AK.
Legia Varsjá - Barcelona........................ 0:1
Gaizka Mendieta 67. (víti)
Barcelona áfram, 4:0 samanlagt.
AEK Aþena - Apoel Nicosia ................... 1:0
Demis Nikolaidis 56.
AEK áfram, 4:2 samanlagt.
Auxerre - Boavista .................................. 0:0
Auxerre áfram, 1:0 samanlagt.
Basel - Celtic............................................. 2:0
Christian Gimenez 8., Hakan Yakin 22.
Jafnt, 3:3, Basel áfram á marki á útivelli.
Club Brugge - Shakhtar Donetsk.......... 1:1
Nastja Ceh 75. - Andrei Vorobey 13.
Jafnt, 2:2, samanlagt. Club Brugge sigr-
aði í vítaspyrnukeppni, 4:1.
Sturm Graz - Maccabi Haifa................... 3:3
Eddy Bosnar 11., Imre Szabics 58., Günth-
er Neukirchner 71. - Giovanni Rosso 27.,
Aduram Keisi 77., Walid Badir 90.
Haifa áfram, 5:3 samanlagt.
Bröndby - Rosenborg.............................. 2:3
Mattias Jonson 82., Mads Jörgensen 84. -
Frode Johnsen 28., 71., Harald Brattbakk
79.
Rosenborg áfram, 4:2 samanlagt.
Liberec - AC Milan................................... 2:1
Miroslav Slepicka 46., David Langer 88. -
Filippo Inzaghi 20.
Jafnt, 2:2, AC Milan áfram á marki á úti-
velli.
Newcastle - Zeljeznicar .......................... 4:0
Kieron Dyer 23., Tresor Lua-Lua 37.,
Hugo Viana 74., Alan Shearer 80.
Newcastle áfram, 5:0 samanlagt.
Sigurliðin fara í riðlakeppni meistara-
deildarinnar en tapliðin í 1. umferð UEFA-
bikarsins.
England
Úrvalsdeild:
Aston Villa - Manch.City......................... 1:0
Darius Vassell 64. - 33.494.
Leeds - Sunderland ................................. 0:1
Jason McAteer 46. - 39.929.
Southampton - Chelsea........................... 1:1
Fabrice Fernandes 51. - Frank Lampard
80. - 31.208.
Blackburn - Liverpool............................. 2:2
David Dunn 16., Corrado Grabbi 83. -
Danny Murphy 31., John Arne Riise 77. -
Everton - Birmingham............................ 1:1
David Unsworth 90. - Stern John 50. (víti). -
Staða efstu liða:
Arsenal 3 2 1 0 9:4 7
Liverpool 3 2 1 0 6:2 7
Tottenham 3 2 1 0 4:2 7
Leeds 3 2 0 1 6:2 6
Chelsea 3 1 2 0 6:5 5
Everton 3 1 2 0 4:3 5
Blackburn 3 1 2 0 3:2 5
Fulham 2 1 1 0 6:3 4
1. deild:
Nottingham Forest - Wimbledon ........... 2:0
Noregur
Bikarkeppnin, 8 liða úrslit:
Aalesund - Tromsö ....................................2:0
Odd Grenland - Strömsgodset ................ 4:3
Vålerenga og Viking mætast í kvöld en
Lyn og Stabæk 11. september.