Morgunblaðið - 29.08.2002, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2002 C 3
n
“
l
-
ján
nu
Ólafur Þórðarson hefur valið ung-mennalandslið skipað leik-
mönnum 21 árs og yngri sem mætir
Ungverjum í æfingaleik á Vilhjálms-
velli á Egilsstöðum 7. september
næstkomandi. Fimm atvinnumenn
eru í hópnum að þessu sinni en þeir
voru átta í leiknum gegn Frökkum á
dögunum. Ellefu leikmenn hafa leik-
ið í efstu deild í sumar við góðan
orðstír en einn leikmaður, Ármann
Smári Björnsson, hefur leikið með
Val í 1. deildinni.
Hópurinn er skipaður eftirtöldum
leikmönnum: Ómar Jóhannsson,
Keflavík, Valþór Hilmar Halldórs-
son, KR, Indriði Sigurðsson, Lille-
ström, Helgi Valur Daníelsson, Pet-
erborough, Grétar Rafn Steinsson,
ÍA, Guðmundur Viðar Mete, Malmö,
Ármann Smári Björnsson, Val,
Hannes Sigurðsson, Viking Stav-
angri, Haraldur Guðmundsson,
Keflavík, Magnús Sverrir Þorsteins-
son, Keflavík, Sigmundur Kristjáns-
son, Utrecht, Björn Viðar Ásbjörns-
son, Fylki, Ellert Jón Björnsson, ÍA,
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV,
Hjálmur Dór Hjálmsson, ÍA, Jökull
I. Elísabetarson, KR.
Kallað á fimm
atvinnumenn
FÓLK
ÍSLENSKA kvennalandsliði í golfi
hóf keppni á Evrópumóti einstak-
linga í Svíþjóð í gær. Kristín Elsa Er-
lendsdóttir og Ólöf María Jónsdóttir
úr Keili léku hvor um sig á 75 höggum
og eru í 29.–37. sæti. Anna Lísa Jó-
hannsdóttir, GR, og Nína Geirsdótt-
ir, GKj, léku á 83 höggum og eru í 97.–
99. sæti, en 105 keppendur taka þátt.
Þrír keppendur eru með forystu, léku
á 69 höggum eða þremur undir pari.
TBR tapaði í gær 7-0 fyrir rúss-
neska liðinu Lokomotiv-Record í
Evrópukeppni liða í badminton en
mótið er haldið í Berlín. Auk þessara
liða eru í riðlinum lið frá Þýskalandi
og Noregi.
ORRI Freyr Hjaltalín lék í 105 mín-
útur með Tromsö í gær þegar lið hans
tapaði, 2:0, í framlengdum leik gegn
Aalesund í átta liða úrslitum norsku
bikarkeppninnar í knattspyrnu. Orra
var skipt af velli í upphafi síðari hálf-
leiks framlengingarinnar.
NEIL McGowan, skoski knatt-
spyrnumaðurinn sem hefur leikið
með KA í sumar, er farinn heim til
Skotlands og spilar ekki með KA í
síðustu þremur umferðunum í úrvals-
deildinni.
SPÆNSKA liðið Real Betis, sem
Jóhannes Karl Guðjónsson leikur
með, gekk í gær frá sex ára samningi
við miðvallarleikmanninn Fernando
Fernandez. Fernandez kemur frá
Evrópumeisturum Real Madrid, en
hann hefur verið í láni hjá þriðja
spænska liðinu, Valladolid, síðastliðin
tvö keppnistímabil. Talið er að Betis
hafi greitt um 250 milljónir fyrir
Fernandez, sem er 23 ára, en hann er
álitinn einn af efnilegustu leikmönn-
um Spánar og skoraði 15 mörk á síð-
ustu leiktíð með Valladolid.
WBA, lið Lárusar Orra Sigurðs-
sonar, styrkti leikmannahóp sinn fyr-
ir átökin í ensku úrvalsdeildinni í gær
þegar liðið gekk frá kaupum á velska
miðvallarleikmanninum Jason Koum-
as frá Bítlaborgarliðinu Tranmere
Rovers. WBA greiðir um 160 milljónir
króna nú fyrir Koumas og annað eins
eftir ár auk þess sem liðið þarf að
reiða fram 33 milljónir þegar leik-
maðurinn hefur spilað 75 leiki fyrir
félagið. Þorlákur Árnason, þjálfari 1.deildarliðs Vals í knattspyrnu,
glímir við mikla manneklu þessa dag-
ana og ljóst er að hann verður að
kalla á marga leikmenn í 2. flokki inn
í leikmannahópinn fyrir síðustu þrjá
leiki liðsins í deildinni.
Hvorki fleiri né færri en sjö leik-
menn sem að jafnaði hafa verið í
byrjunarliði Valsmanna eru frá
vegna ýmissa ástæðna. Guðni Rúnar
Helgason og Ármann Smári Björns-
son hafa verið leigðir til félaga í
norsku úrvalsdeildinni, Sigurður Sæ-
berg Þorsteinsson og Stefán Helgi
Jónsson eru farnir til náms erlendis
og Arnór Gunnarsson, Hjörvar Haf-
liðason markvörður og Benedikt
Hinriksson eru frá vegna meiðsla.
„Ég þarf líkast til að fá sjö leik-
menn úr 2. flokki inn í hópinn í loka-
baráttuna og hver veit nema ég þurfi
að taka fram skóna. Við hefðum eðli-
lega ekki látið Guðna Rúnar og Ár-
mann Smára fara frá okkur nema
vegna þess að við erum búnir að
tryggja okkur sigur í deildinni og
eins kemur þetta félaginu vel fjár-
hagslega,“ sagði Þorlákur við Morg-
unblaðið en lærisveinar hans, sem
eru fyrir löngu búnir að tryggja sér
sæti í deild þeirra bestu á næsta ári,
sækja Hauka heim annað kvöld í 1.
deildinni.
Mannekla hjá
Völsurum
Fyrir leik Sunderland og Leedshafði fyrrnefnda liðinu ekki
tekist að skora á leiktíðinni en
Leeds hafði hins vegar skorað sex
mörk í fyrstu tveimur leikjum sín-
um. Það var hins vegar írski lands-
liðsmaðurinn Jason McAteer sem
skoraði eina mark leiksins fyrir
Sunderland þegar hálf mínúta var
liðin af síðari hálfleik og þrátt fyrir
harða hríð að marki Sunderland
tókst framherjum Leeds ekki að
koma boltanum í netið. Niðurstað-
an varð því sögulegur sigur hjá
Sunderland og Peter Reid, knatt-
spyrnustjóri liðsins, gat andað létt-
ar.
Aston Villa vann Manchester
City með sömu markatölu, 1:0, en
líkt og Sunderland skoraði Birm-
ingham-liðið sitt fyrsta mark á leik-
tíðinni í gær. Þar var að verki enski
landsliðsmiðherjinn Darius Vassell.
Á Ewood Park í Blackburn kom
David Dunn Blackburn Rovers yfir
gegn Liverpool á 15. mínútu, en
þetta var fyrsta markið sem Liver-
pool fær á sig á leiktíðinni. Danny
Murphy kom fram hefndum fyrir
Liverpool stundarfjórðungi síðar
þegar hann varð fyrstur til að
skora fram hjá Brad Friedel á
keppnistímabilinu. Fjórtán mínút-
um fyrir leikslok skoraði John
Arne Riise svo fyrir Liverpool en
Ítalinn Corrado Grabbi sá hins veg-
ar til þess að liðin skildu jöfn þegar
hann jafnaði fyrir Blackburn sex
mínútum síðar, en hann var nýkom-
inn inn á. Með jafnteflinu fór Liver-
pool engu að síður upp í annað sæti
deildarinnar, en liðið er með sjö
stig eins og Arsenal sem er efst.
Eiður Smári Guðjohnsen lék síð-
ari hálfleikinn með Chelsea gegn
Southampton og fékk nokkur mjög
góð marktækifæri en fór illa með
þau öll. Liðin skildu jöfn, 1:1, og
jafnaði Frank Lampard metin fyrir
Chelsea tíu mínútum fyrir leikslok
en Southampton hafði komist yfir á
52. mínútu með marki Fabrice
Fernandes, en þetta var fyrsta
mark liðsins á leiktíðinni.
Á Goodison Park í Liverpool
bjargaði David Unsworth stigi fyr-
ir Everton gegn nýliðum Birming-
ham, en hvort lið skoraði eitt mark.
Stern John kom Birmingham yfir á
49. mínútu með marki úr víta-
spyrnu sem dæmd var þegar Alan
Stubbs brá John en Stubbs var
sendur af leikvelli í kjölfarið. Ein-
um leikmanni færri tókst Everton
engu að síður að jafna en mark
Unsworths kom á 90. mínútu.
Reuters
Stephen Wright hjá Sunderland sækir hér að Nick Barmby,
leikmanni Leeds, en þeir léku um tíma saman með Liverpool.
SUNDERLAND vann sinn fyrst sigur í ensku úrvalsdeildinni og
Leeds tapaði sínum fyrsta leik þegar liðin mættust á Elland Road í
gærkvöldi. Lokatölur urðu 1:0, en þetta var í fyrsta sinn í 41 ár sem
Sunderland sigrar á Elland Road. Aston Villa vann einnig sinn fyrsta
sigur þegar liðið lagði Manchester City í Birmingham og í Black-
burn mátti Liverpool sætta sig við jafntefli.
Sögulegur sigur
Sunderland
Skráning er hafin í utandeild
Keilusambands Íslands
Leikið verður einu sinni í mánuði frá sept. 2002 til maí 2003.
Utandeildin er tilvalið tækifæri fyrir fyrirtækjahópa
og klúbba til að hittast einu sinni í mánuði
og taka þátt í skemmtilegri keilukeppni.
Skráningargjald er 7.500 kr.
Nánari upplýsingar gefur Ásgrímur,
aki@keila.is og einnig eru
upplýsingar um mótið
á www.keila.is
Utandeild KLÍ 2002
ÍÞRÓTTIR