Morgunblaðið - 29.08.2002, Qupperneq 4
PAUL Scholes miðvallarleikmaður
Manchester Utd meiddist á ökkla í
Evrópuleik United á Old Trafford í
fyrrakvöld og er reiknað með að hann
leiki ekki næstu tvær vikur.
GUÐNI Bergsson og félagar hans í
Bolton fengu liðsstyrk í gær en fram-
herjinn Chris Armstrong, sem verið
hefur á mála hjá Tottenham, gekk í
raðir Bolton-liðsins og freista þess að
skerpa á sóknarleik liðsins.
UMBOÐSMAÐUR Finnanns Jari
Litmanens sagði í gær að Litmanen
mundi ekki yfirgefa Liverpool áður
en fresturinn til að skipta um félag
rennur út á laugardaginn en forráða-
menn Liverpool gáfu honum leyfi til
að ræða við tyrkneska liðið Galatas-
aray. Umsboðsmaðurinn sagði að
Litmanen ætlaði að þrauka hjá Liv-
erpool og freista þess að komast að
hjá Gerard Houllier.
ALEX Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, segir að
ekkert verði af því að franski bak-
vörðurinn Julien Escude gangi í raðir
United. Upp úr viðræðum slitnaði á
milli United og Rennes, sem Escude
leikur með, og lét Ferguson hafa eftir
sér í gær að ekkert yrði af kaupunum
sem væri honum vonbrigði.
VIÐAR Olsen og áhöfn hans á Sæ-
stjörnunni varð um síðustu helgi Ís-
landsmeistari í siglingum kjölbáta.
Páll Hreinsson og áhöfnin á Sigur-
borgu varð í öðru sæti en Baldvin
Björgvinsson og félagar á seglskút-
unni Besta höfnuðu í þriðja sæti.
SVEINBJÖRN Kristinsson vann
öruggan sigur í hinu árlega
Hvammsvíkurmaraþoni Kajak-
klúbbsins, en í því er róið frá Reykja-
vík og upp í Hvammsvík í Kjós.
Sveinbjörn var 4 klst, 42 mín. og 54
sek. á leiðinni. Annar varð Baldur
Pétursson og Guðmundur Breiðdal
kom þriðji í mark.
IAN Thorpe sundstjarna frá Ástr-
alíu hefur verið sigursæll á Kyrra-
hafsleikunum sem staðið hafa yfir í
Yokohama í Japan undanfarna daga.
Thorpe vann í gær sín fimmtu gull-
verðlaun þegar hann sigraði í 100
metra skriðsundi. Sigurtími Thorpes
í 100 metra skriðsundinu í morgun
var 48,84 sek., landi hans Ashley
Callus varð annar á 49,26 sek. og
Bandaríkjamaðurinn Nate Dudin
hafnaði í þriðja sæti á 49,47 sek.
FÓLK
Samkvæmt frétt norska dag-blaðsins Dagsavisen er unnið
hörðum höndum hjá ráðgjafar- og
endurskoðunarfyrirtækinu Price-
waterhouseCoopers við að bjarga
einu úrvalsdeildarfélagi frá gjald-
þroti en hvorki talsmenn fyrirtæk-
isins né enska knattspyrnusam-
bandsins hafa staðfest þessa frétt.
Samkvæmt heimild enska blaðsins
Mail on Sunday er um að ræða
Lundúnaliðið Chelsea, sem Eiður
Smári Guðjohnsen leikur með.
Fjögur lið sem leika í fyrstu deild
hafa einnig óskað eftir aðstoð til
þess að rétta skútuna við, en liðin
eiga það öll sameiginlegt að geta
ekki greitt laun leikmanna og greitt
niður skuldir á sama tíma. Skuld-
irnar hafa því setið á hakanum og nú
vilja lánardrottnar fá sinn hlut. Eitt
þessara liða er Leicester og hin sem
nefnd eru til sögunnar eru Cov-
entry, Bradford og Ipswich.
Chelsea er illa statt fjárhagslega
og á síðasta ári nam tap félagsins
um 1.800 milljónum króna. Auk þess
þurfa eigendur liðsins að standa í
skilum á láni sem nemur um 16,5
milljörðum króna fyrir árslok 2007.
Það er þekkt innan knattspyrnu-
heimsins að félagið hefur enn ekki
greitt spænska liðinu Barcelona fyr-
ir kaupin á Boudewijn Zenden og
Emmanuel Petit, en þeir voru
„keyptir“ fyrir rúmlega 820 millj-
ónir króna. Fyrirtækið sem sá um
að fjármagna þær fjárfestingar sem
Chelsea hefur ráðist í á undanförn-
um árum vill fá 1.100 milljónir í sinn
hlut á næstu fjórum mánuðum í
formi vaxtagreiðslna og forráða-
menn fyrirtækisins vilja nú fá gerð
upp sín mál eftir að Chelsea fékk
frest til þess að greiða afborgun af
lánunum í sumar, en um var að ræða
um 800 milljónir króna. Að undan-
förnu hefur verið mikið rætt um að
Jimmy Floyd Hasselbaink væri á
leið til Barcelona til þess að grynnka
á skuldum liðsins og til þess að gera
upp skuld Chelsea við spænska liðið.
Sultarólin hefur verið hert hjá
Leicester sem féll úr úrvalsdeild í
vor. Í fyrra fékk liðið um 3,3 millj-
arða ísl. kr. í sinn hlut vegna sjón-
varpstekna en á þessu tímabili fær
það aðeins um 120 milljónir króna í
sjónvarpstekjur. Gjaldþrot ITV
sjónvarpsstöðvarinnar vegur þungt
í þessum efnum og hafa forráða-
menn Leicester því selt leikmenn
fyrir um 1.800 milljónir króna til að
forðast gjaldþrot. Sala leikmanna er
hinsvegar ekki örugg tekjulind því
gríðarlegt framboð er á atvinnulaus-
um knattspyrnumönnum á Bret-
landseyjum þessa dagana, en eins
og áður er getið eru rúmlega 400
samningslausir þessa dagana.
MIKIÐ hefur verið rætt og skrifað um niðursveifluna sem á sér stað
í knattspyrnuhagkerfinu á enskri grund þessa dagana. Fimm sögu-
fræg félög í tveimur efstu deildum ensku deildarkeppninnar róa nú
öllum árum til að forðast gjaldþrot en á sama tíma eru 437 enskir
knattspyrnumenn án atvinnu. Þessi fjöldi gæti mannað 40 knatt-
spyrnulið.
Reuters
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea, og Marcel Des-
ailly, leikmaður félagsins, eiga ekki sjö dagana sæla ef marka
má fregnir af bágri stöðu félagsins um þessar mundir.
Chelsea í
skuldafeni
Það fer ekki eins mikið fyrirheimsmeistarakeppninni í
körfuknattleik og HM í knattspyrnu
sem fram fór í sumar en í dag hefst
HM í körfuknattleik í Indianapolis í
Bandaríkjunum og berjast 16 lið um
titilinn.
Bandaríkin eru að sjálfsögðu sig-
urstranglegasta þjóðin en liðið er
skipað atvinnumönnum úr NBA-
deildinni en þó ekki allra skærustu
stjörnum deildarinnar. Forráðamenn
bandaríska liðsins vildu stilla upp
sínu sterkasta liði en þegar á reyndi
var áhuginn takmarkaður hjá mörg-
um þeirra sem leitað var til.
Tracy McGrady, Kevin Garnett,
Vince Carter, Shaquille O’Neal, Jas-
on Kidd, Tim Duncan, Chris Webber
og Ray Allen gáfu ekki kost á sér
vegna meiðsla eða anna.
Keppt er í fjórum riðlum og er C-
riðilinn athyglisverður þar sem Kína,
Þýskaland og Alsír leika auk heima-
manna.
Í liði Þjóðverja ber mest á Dirk
Nowitzki sem leikur með Dallas Mav-
ericks en hann er sá eini úr þeirra
röðum sem leikur vestanhafs.
Flestra augu munu samt sem áður
beinast að hinum 2,26 metra háa mið-
herja kínverska landsliðsins, Yao
Ming, en hann er 22 ára gamall og var
valinn fyrstur allra af Houston Rock-
ets í nýliðavalinu í vor.
Júgóslavar leika í A-riðli en í þeirra
liði ber mest á skyttu NBA-liðsins
Sacramento Kings, Predrag Stojako-
vic. Spánverjar eru einnig í A-riðli og
í þeirra liði er nýliði árins í NBA
deildinni, Pau Gasol, leikmaður Van-
couver Grizzlies.
Tyrkir verða án efa sigurstrang-
legir í B-riðli þar sem bakvörðurinn
Hidayet Türkoglu verður allt í öllu
hjá liðinu en hann leikur með Sacra-
mento Kings.
D-riðilinn er óskrifað blað en þar
verða Rússar án efa sterkir en eins og
oftar á stórmótum í körfuknattleik er
aðeins spurt að því hvaða lið geta veitt
Bandaríkjamönnum verðuga keppni.
Bandaríkin
sigurstrangleg
! " ! # $%
#
' % ( %
)
*
+,-./0112
03+,-- 43+,--
--+,-.+
!
"
#$ %
!
!
"&
' ' ' '
()*+
) ,
-
.(*'/0.
12'$3(
/0.'14
$3('.(*
/0.'$3(
14'.(*
3+,--
506' 78
.*6'*/8
78'.*6
*/8'506
506'.*6
*/8' 78
53+,--
689'(48
*(:';6
;6'689
(48'*(:
689'*(:
;6'(48
63+,--
! #
.3+,--
5*6'81*
*6:'5*6
81*'94:
5*6'94:
*6:'81*
94:'*6:
Hjalti í
raðir Vals-
manna
ALLAR líkur eru á að
Hjalti Pálmason, fyrirliði
Víkings í handknattleik,
gangi til liðs við Val og
leiki með þeim á komandi
leiktíð. Hjalti hefur æft
með Hlíðarendaliðinu að
undanförnu og hafa Vals-
menn gert honum tilboð
sem hann er að skoða.
Hjalti leikur í stöðu miðju-
manns og skyttu og komi
hann til Vals, eins og flest
stefnir í, verður hann ann-
ar leikmaðurinn sem Val-
ur fær frá Víkingum. Hinn
er Þröstur Helgason, sem
lítið lék með á síðustu leik-
tíð vegna meiðsla.
Valsmenn þurftu að
horfa á eftir tveimur leik-
mönnum sem léku með lið-
inu á síðustu leiktíð. Sigfús
Sigurðsson fór til Magde-
burg og Einar Gunnarsson
er fluttur út á land.