Morgunblaðið - 26.09.2002, Blaðsíða 1
2002 FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
GLUGGAÐ Í UMDEILDA ÆVISÖGU ROY KEANE /C2,C3
Ríkharður Daðason, landsliðsmað-ur í knattspyrnu og leikmaður
Lilleström í Noregi, er ekki alvarlega
meiddur á hné eins og óttast var. Rík-
harður, sem missti af síðasta leik
Lilleström og hefur að mestu verið
frá æfingum í tvær vikur, fékk nið-
urstöður úr myndatökum í gær og í
ljós kom að hnéð hafði ekki skaddast.
„Það sást mar á beini við hnés-
bótina, sem veldur sársauka, og það
gæti tekið 6–8 vikur að jafna sig til
fulls en ég ætti samt að geta byrjað
að æfa af krafti eftir nokkra daga. Ég
geri þó ráð fyrir því að missa af leik
Lilleström við Stabæk um helgina en
ætti að komast í gang fljótlega eftir
það. En þótt það sé jákvætt að hnéð
skuli vera í lagi er slæmt að missa
svona úr þegar stutt er eftir af
mótinu hér í Noregi og mikilvægir
landsleikir framundan. Ég verð að
meta það fljótlega hvort rétt sé að ég
gefi kost á mér í landsleikina,“ sagði
Ríkharður við Morgunblaðið í gær.
Ríkharður kom til liðs við Lille-
ström síðsumars frá Stoke City og
hefur skorað 4 mörk í 7 leikjum með
liðinu í norsku úrvalsdeildinni. Hann
skoraði sitt 13. og 14. mark fyrir
landslið Íslands gegn Andorra í síð-
asta mánuði og er í 2.–3. sæti yfir
markahæstu landsliðsmenn Íslands
frá upphafi.
Meiðsli Ríkharðs
ekki alvarleg
BREIÐABLIK tapaði fyrir Bobruichanka frá
Hvíta-Rússlandi, 3:2, í fyrsta leik sínum í riðla-
keppni kvenna í UEFA-keppninni í knattspyrnu
í gær. Blikarnir leika í 6. riðli sem leikinn er í
Hvíta-Rússlandi ásamt heimaliðinu Bobruich-
anka, Fortuna Hjörring frá Danmörku og FC
Codru Anenil Noi frá Moldavíu.
Breiðablik náði tvívegis forystu í leiknum en
þær Margrét Ólafsdóttir og Hildur Sævars-
dóttir skoruðu mörkin í fyrri hálfleik. Staðan
var jöfn, 2:2, í leikhléi en Hvít-Rússarnir
tryggðu sér sigurinn í upphafi síðari hálfleiks.
Blikarnir sóttu nokkuð stíft það sem eftir lifði
leiks en allt kom fyrir ekki.
Breiðabliksliðið varð fyrir áfalli rétt fyrir
leik en Hjördís Þorsteinsdóttir, lykilmaður í
vörninni, varð fyrir því óláni að misstíga sig og
gat ekki leikið. Á morgun mætir Breiðablik liði
Fortuna Hjörring sem vann Codru, 5:0, í gær.
Naumt tap Blikanna
í Hvíta-Rússlandi
Bjarni lagði
upp mark
STOKE City lyfti sér upp í
13. sæti ensku 1. deild-
arinnar í knattspyrnu í gær-
kvöld með jafntefli á heima-
velli, 2:2, gegn Nottingham
Forest. Sergei Shtaniuk og
Mark Goodfellow skoruðu
mörkin fyrir Stoke. Bjarni
Guðjónsson lék allan leikinn
og lagði upp enn eitt markið
fyrir lið sitt en Goodfellow
jafnaði, 2:2, eftir fyrirgjöf frá
Bjarna.
Pétur Marteinsson kom inn
í leikmannahóp Stoke fyrir
Brynjar Björn Gunnarsson,
sem hóf afplánun þriggja
leikja banns, en Pétur kom
ekki við sögu í leiknum.
Flest bendir til þess að Borgnes-ingar muni gefa KKÍ jákvætt
svar en það liggur ekki fyrir fyrr
en í kvöld. Ólafur Helgason, for-
maður körfuknattleiksdeildar
Skallagríms, sagði við Morgun-
blaðið í gærkvöld að ákvörðunin
væri stór og að mörgu að hyggja.
„Allar okkar ráðstafanir fyrir
tímabilið, val á leikmönnum og
fjárhagsáætlanir, miðuðust við að
við yrðum í 1. deildinni í vetur.
Þetta erum við að endurskoða frá
grunni og þurftum meiri tíma til
að komast að niðurstöðu,“ sagði
Ólafur.
Í fréttatilkynningu sem Ísfirð-
ingar sendu frá sér í gærkvöld
segir meðal annars:
„Eftir að hafa fundað með stjórn
og leikmönnum þá varð niðurstað-
an sú að KFÍ ætlar sér að standa
við þá langtímaáætlun sem félagið
setti á sínum tíma og halda sæti
okkar í 1. deild í vetur. Unglinga-
starfið er að skila sér og áhuginn
er mjög mikill hér á Vestfjörðum.
Það er ætlun okkar að halda þess-
ari útbreiðslu- og uppbyggingar-
starfsemi áfram, og koma góðum
tökum á fjármálin í leiðinni.
KFÍ hefur verið í aðhaldsað-
gerðum og tekist að ná niður
skuldum félagsins eftir ýmsar erf-
iðar raunir í gegnum árin. Við telj-
um það heillavænlegt fyrir félagið
og bæjarfélagið í heild sinni að ná
góðum tökum á fjármálum félags-
ins og koma sterkir til leiks í efstu
deild þegar við erum tilbúnir til
þess.“
Mótanefndin kemur
saman í hádeginu
Pétur Hrafn Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri KKÍ, sagði að ef-
laust biði mótanefnd sambandsins
til kvölds eftir niðurstöðu frá
Skallagrími. „Nefndin mun hins-
vegar koma saman í hádeginu og
ræða stöðuna,“ sagði Pétur við
Morgunblaðið í gærkvöld.
Vegna mögulegs brotthvarfs
Skallagríms eða KFÍ úr 1. deild-
inni var þess farið á leit við Ak-
urnesinga að taka sæti þar á ný,
en ÍA féll í 2. deild í vor. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
er ólíklegt að Skagamenn þiggi
boðið og því óvíst að tíunda lið
finnist í 1. deildina ef Skallagrímur
þiggur úrvalsdeildarsætið.
KFÍ afþakkar úr-
valsdeildarsæti
KÖRFUKNATTLEIKSFÉLAG Ísafjarðar sækist ekki eftir sæti í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik, sem er laust í kjölfar þess að Þór frá
Akureyri ákvað að leika ekki í deildinni í vetur. Forráðamenn Skalla-
gríms úr Borgarnesi tóku sér hinsvegar sólarhrings frest í gærkvöld
til að ákveða hvort þeir gæfu kost á sér í úrvalsdeildina. KKÍ hafði
samband við bæði félög og bað þau að taka afstöðu til þess hvort
þau myndu þiggja sæti í úrvalsdeildinni.
Norska knattspyrnuliðið Lille-ström hefur boðið Emil Hall-
freðssyni, 18 ára leikmanni úrvals-
deildarliðs FH, að koma til
félagsins til reynslu. Emil er í 19
ára landsliðinu sem leikur vináttu-
leik á móti Norðmönnum í Osló 2.
október og eftir þann leik heldur
hann til Lilleström.
Hjá Lilleström hittir Emil fyrir
Loga Ólafsson, fyrrverandi þjálf-
ara FH, sem er aðstoðarþjálfari
norska liðsins, og þá leika með lið-
inu fjórir Íslendingar – Ríkharður
Daðason, Indriði Sigurðsson, Gylfi
Einarsson og Davíð Þór Viðarsson.
Logi, sem á eitt ár eftir af samn-
ingi sínum við Lilleström, sagði í
samtali við Morgunblaðið að Emil
yrði hjá Lilleström í allt að hálfan
mánuð og eftir það ætti að koma í
ljós hvert framhaldið yrði en hann
sagði að Lilleström væri að leita að
leikmanni í stöðu vinstri kant-
manns en það er einmitt staðan
sem Emil spilar.
Emil kom við sögu í fimm leikj-
um FH í úrvalsdeildinni í sumar og
skoraði tvö mörk – bæði á móti
Grindvíkingum.
Emil fer til
Lilleström
Morgunblaðið/Golli
Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði ÍBV, skorar fyrir lið sitt gegn Stjörnunni í 1. deildinni í gærkvöld án
þess að Amela Hegic fái rönd við reist. ÍBV lagði Garðbæinga í hörkuleik, 24:23. Sjá nánar C4.