Morgunblaðið - 26.09.2002, Síða 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
Viðbrögðin hafa verið mjög í stílvið söguhetjuna, ofsafengin.
Keane var úthrópaður í pressunni og
þess krafist að hann yrði dæmdur í
langt keppnisbann. Gary Neville,
samherji hans hjá Man. Utd, bað
menn um að sýna stillingu og bíða
eftir því að bókin kæmi út svo að
hægt væri að lesa ummæli Keane í
samhengi. „Ég veit hversu ranga
mynd nokkrar línur geta gefið,
kannski slitnar úr öllu samhengi,“
sagði Neville. „Í fyrra var mikið gert
úr ummælum Jaap Stam um mig og
bróður minn Phil, þar sem hann virt-
ist vera að hæða okkur. Við lestur
bókarinnar kom hins vegar á daginn
að Stam var mjög hlýtt til okkar og
var bara að gera góðlátlegt grín.“
Hafi einhverjir aðdáendur Keane
og Man. Utd. vonað að orð kappans
hafi verið slitin úr samhengi hvað
varðar digurbarkalegustu yfirlýs-
ingarnar, t.d varðandi viðskiptin við
Haaland og Mick McCarthy, lands-
liðsþjálfara Íra, verða þeir fyrir von-
brigðum við lestur bókarinnar. Sam-
hengið sýnir bara enn frekar hversu
„einbeittur brotavilji“ Keane gegn
Haaland var, og hversu brogaður
karakter hann er. Heift hans í garð
Haaland er gífurleg, þrátt fyrir að
hann játi það með mikilli iðrun að
hann hafi verið grúttimbraður í
leiknum gegn Leeds fyrir fjórum ár-
um er hann sleit krossbönd þegar
hann var að reyna að brjóta á Haa-
land, af því að sá síðarnefndi hafði
verið að „fokka“ í honum eins og
hann orðar það svo pent.
Í frásögn Keane um viðskiptin við
Haaland kristallast flest af því
merkilegasta við þessa bók: Hið
ofurmannlega keppnisskap Keane
sem liggur á mörkum mannlegrar
getu (og skynsemi), innsýn í hinn
lokaða heim ofurstjarna knattspyrn-
unnar, hetjusiðfræði kappans sem
helst mætti ætla að tekin væri úr
Hávamálum, og hin furðulaga ófag-
mennska sem oft virðist ríkja hjá
jafnvel ríkasta knattspyrnufélagi
heims. Yfirgengilegar yfirlýsingar
Keane um menn og málefni eru
nefnilega með þeim hætti að maður
trúir því hreinlega ekki að forsvars-
menn Manchester United hafi lesið
yfir bókina og veitt henni þegjandi
samþykki, eins og þeir segjast hafa
gert. Sé svo hlýtur dómgreind þeirra
að vera viðbrugðið því Keane heggur
í allar áttir og ljóst er að félagið og
hann persónulega eiga eftir að glíma
við eftirmál ummælanna um ókomna
tíð.
Sokkið í sama pytt
Þrátt fyrir að útgáfa bókarinnar
orki um margt tvímælis fyrir Keane
og Man. Utd verður að taka það fram
strax að hún er einhver áhugaverð-
asta ævisaga sem nokkur knatt-
spyrnumaður hefur sent frá sér.
Þetta finnst fleirum en undirrituðum
ef marka má sölutölur en bókin
stefnir í að verða ein söluhæsta fót-
boltabók allra tíma. Hún er á köflum
leiftrandi vel skrifuð og erfitt er ann-
að en að hrífast með þegar Keane
tekur á sprett. Hann talar af mikilli
ástríðu og þekkingu á leiknum og
styður mál sitt sterkum rökum
þannig að auðvelt er að sjá hans hlið
á málunum, jafnvel hreinlega halda
með honum gegn öllum þessum „vit-
leysingum og aumingjum“ sem hann
lætur kenna á því. Bókinni tekst hins
vegar ekki nema að litlu leyti að
varpa ljósi á rót hinna miklu skap-
bresta Keane og þá gríðarlegu reiði
sem býr innra með honum. Er því
sjálfsagt mest um að kenna að höf-
undurinn hefur ekki enn náð tökum
á sjálfum sér. Hann játar syndir sín-
ar fullur iðrunar á annarri hverri
síðu aðeins til að vaða á þeirri næstu
í sama foraðið á ný. Hverjum kafla
lýkur með heitstrenginum um það að
nú hafi hann lært að takast á við
hlutina og ætli að bæta ráð sitt, en
þeir lesendur sem hafa fylgst sæmi-
lega með boltanum undanfarin ár
vita að hann lærði auðvitað ekki neitt
og lenti bara í næsta skandal. Bók-
inni lýkur þar sem Keane telur sig
nú aldeilis vera búinn að gera upp við
Mick McCarthy og írska landsliðið
auk þess sem hann telur sig vera
reiðubúinn að leiða villuráfandi fé-
laga sína í Man. Utd til stórra afreka
eftir að hafa lesið þeim pistilinn um
það hve ömurlegt hugarfar þeirra
hafi verið síðan þeir urðu Evrópu-
meistarar 1999 (óverðskuldað reynd-
ar að mati Keane). Þeir sem fylgst
hafa með því sem gerst hefur í kjöl-
far útkomu bókarinnar vita að
Keane er ekki kominn á neinn leið-
arenda í sjálfsþerapíu sinni, þvert á
móti hefur hann sokkið enn dýpra í
myrkviði heiftarinnar og ferill hans
hefur aldrei staðið tæpar en nú.
Skrásetjarinn æskuhetja
Flestar ævisögur knattspyrnu-
snillinga eru fremur einhæf lesning.
Hver kannast ekki við að hafa rennt
hratt í gegnum væmnar lýsingar úr
æsku, þar sem lýst er hvernig ótví-
ræðir hæfileikar snillingsins komu
fljótt fram og hann rústaði öllum
skólamótum þar til hann var upp-
götvaður snemma af útsendara ein-
hvers stórliðsins? Þessu er ekki
svona farið í bók Keane og bestu
kaflar hennar eru þeir sem lýsa upp-
vexti hans og fyrstu skrefum sem at-
vinnumanns. Þessir kaflar eru lang-
best skrifaðir af hálfu skrásetjarans,
Eamon Dunphy, og það læðist að
manni sá grunur að heldur hafi verið
kastað til höndunum með seinni
hluta verksins til þess að nýta sér
eftirvæntinguna eftir frásögn Keane
af því sem gerðist rétt fyrir HM í
sumar. Eða þá að Keane sjálfur hafi
ekki getað beðið eftir því að „jafna
málin við helvítin.“
Skrásetjarinn Dunphy er ekki síð-
ur umdeildur karakter en Keane.
Ævisaga Roy Keane, fyrirliða Manchester United, hefur að geyma
Sokkið enn
dýpra í
myrkviði
heiftarinnar
David Beckham og dómarinn Uriah R
manns Sunderland, eftir að þeim lent
sína, og þau ummæli urðu ti
’ Keane finnst sexmenningaklíka kórdrengjann
Beckham, Scholes, Butt
Giggs og Neville-bræðr
heldur bragðdaufur fé-
lagsskapur ‘
’ Stærilæti þolir Keaneekki og fær danski land
liðsmarkvörðurinn mark
vörðurinn Peter
Schmeichel nokkrar
meinhæðnar pillur fyrir
mont og almenn leiðindi
‘
Fáar knattspyrnubækur hafa vakið
jafnmikla úlfúð og athygli og nýútkomin
ævisaga Roy Keane, fyrirliða Manchester
United. Einar Logi Vignisson las bókina,
sem hafði verið beðið með mikilli eftirvænt-
ingu eftir að bresk blöð hófu að birta kafla
og glefsur úr henni, og segir hvernig honum
finnst bókin, þar sem Keane lætur ýmislegt
flakka um samferðamenn sína í fótbolta-
sirkusnum. Sérstaklega vöktu ummæli hans
um frægt brot hans á Alf Inge Haaland
athygli og er þeirri sögu fjarri því lokið
því Keane hefur verið kærður af enska
knattspyrnusambandinu og verður málið
tekið fyrir um miðjan október.
’ Heift Keane ígarð Haaland er
gífurleg, þrátt fyr-
ir að hann játi það
með mikilli iðrun
að hann hafi verið
grúttimbraður í
leiknum gegn
Leeds ‘
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
A-RIÐILL:
Dortmund - Auxerre ............................... 2:1
Jan Koller 6., Marcio Amoroso 78. - Ben-
jamin Mwaruwaru 83.
PSV Eindhoven - Arsenal....................... 0:4
Gilberto Silva 1., Fredrik Ljungberg 66.,
Thierry Henry 81., 90.
Staðan:
Arsenal 2 2 0 0 6:0 6
Dortmund 2 1 0 1 2:3 3
Auxerre 2 0 1 1 1:2 1
PSV 2 0 1 1 0:4 1
B-RIÐILL:
Spartak Moskva - Valencia .................... 0:3
Miguel Angel Angulo 6., Miguel Mista 70.,
Juan Sanchez 85.
Liverpool - Basel...................................... 1:1
Milan Baros 34., - Juilio Rossi 43.
Staðan:
Valencia 2 2 0 0 5:0 6
Basel 2 1 1 0 3:1 4
Liverpool 2 0 1 1 1:3 1
Spartak M. 2 0 0 2 0:5 0
C-RIÐILL:
AEK - Roma.............................................. 0:0
Real Madrid - Genk ................................. 6:0
Didier Zokora 44. (sjálfsm.), Michel 45.,
Luis Figo 54. (víti), Guti 64., Albert Celades
73., Raúl 76.
Staðan:
Real Madrid 2 2 0 0 9:0 6
AEK 2 0 2 0 0:0 2
Roma 2 0 1 1 0:3 1
Genk 2 0 1 1 0:6 1
D-RIÐILL:
Inter Mílanó - Ajax .................................. 1:0
Hernan Crespo 74.
Lyon - Rosenborg .................................... 5:0
Tony Vairelles 25., 45., Eric Carriere 5.,
Sonny Anderson 34., Peguy Luyindula 75.
Staðan:
Inter 2 1 1 0 3:2 4
Ajax 2 1 0 1 2:2 3
Lyon 2 1 0 1 6:2 3
Rosenborg 2 0 1 1 2:7 1
Evrópukeppni kvennaliða
Riðill í Hvíta-Rússlandi:
Bobruichanka (Hv.R) - Breiðablik ..........3:2
Fortuna (Dan) - Anenil Noi (Mold)......... 5:0
England
1. deild:
Sheffield Wed. - Crystal Palace .............. 0:0
Stoke - Nottingham Forest ..................... 2:2
Ítalía
Bikarkeppnin:
Vicenza - Parma........................................ 2:0
Bari - Udinese........................................... 4:1
Sampdoria - Atalanta............................... 1:0
Triestina - Como....................................... 1:0
Ternana - Piacenza................................... 1:1
Ancona - Brescia....................................... 1:1
HANDKNATTLEIKUR
Stjarnan - ÍBV 23:24
Ásgarður, 1. deild kvenna:
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 6:1, 8:3, 9:8, 10:9,
13:10, 13:14, 14:16, 16:16, 16:18, 18:18,
19:20, 21:20, 23:22, 23:24.
Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét Ragn-
arsdóttir 10/6, Anna B. Blöndal 4, Amela
Hegic 3, Kristín Clausen 2, Margrét Vil-
hjálmsdóttir 2, Hind Hannesdóttir 1, El-
ísabet Gunnarsdóttir 1.
Varin skot: Jelena Jovanovic 16/1 (þar af
fóru 6 aftur til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk ÍBV: Anna Yakova 7/1, Alla Gorkori-
an 6/3, Ingibjörg Jónsdóttir 4, Sylvia
Strass 4, Björg Ó. Helgadóttir 3.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 11 (þar af
fóru 5 aftur til mótherja).
Utan vallar: 12 mínútur.
Dómarar: Valgeir Ómarsson og Bjarni
Viggósson.
Áhorfendur: Um 240.
Staðan:
Haukar 3 3 0 0 90:63 6
ÍBV 3 3 0 0 79:62 6
Stjarnan 3 2 0 1 63:52 4
Valur 3 2 0 1 70:65 4
Víkingur 3 2 0 1 58:53 4
Grótta/KR 3 2 0 1 57:60 4
FH 3 1 0 2 66:54 2
Fylkir/ÍR 2 0 0 2 28:43 0
KA/Þór 4 0 0 4 78:105 0
Fram 3 0 0 3 55:87 0
Þýskaland
HSV Hamburg - Willst./Schutt........... 24:17
Alþjóðlegt mót í Noregi
Noregur - Grænland .............................29:20
Danmörk - Grænland............................29:19
Noregur - Danmörk ............................. 25:24
Lokastaðan:
Noregur 2 2 0 0 54:44 4
Danmörk 2 1 0 1 53:44 2
Grænland 2 0 0 2 39:58 0
KÖRFUKNATTLEIKUR
Reykjanesmót karla:
Keflavík - Haukar............................... 104:82
Breiðablik - Grindavík ......................... 68:84
Staðan:
Njarðvík 4 3 1 315:290 6
Keflavík 4 3 1 343:299 6
Grindavík 4 3 1 323:314 6
Breiðablik 4 1 3 276:324 2
Haukar 4 0 4 303:327 0
Njarðvík og Keflavík mætast í úrslitaleik
mótsins.