Morgunblaðið - 26.09.2002, Page 4
HERMANN Hreiðarsson var fyrir-
liði enska knattspyrnuliðsins Ipswich
í fyrsta skipti þegar það sigraði Brig-
hton, 3:1, í deildabikarnum í fyrra-
kvöld. Hermann leysti Matt Holland
af hólmi en Holland missti í fyrsta
skipti af leik í fimm ár vegna meiðsla.
Holland hefur leikið 254 deildaleiki í
röð en tvísýnt er að hann nái þeim
næsta, gegn Derby á sunnudag.
KFÍ frá Ísafirði teflir fram banda-
rískum leikmanni í 1. deild karla í
körfuknattleik í vetur. Sá heitir Je-
remy Sargeant, 2,03 metrar á hæð,
og er væntanlegur til Ísafjarðar um
helgina.
MAGNUS Wislander, handknatt-
leiksmaðurinn snjalli, sem hefur leik-
ið með Kiel í Þýskalandi undanfarin
ár, lék vel í sínum fyrsta leik í Svíþjóð,
eftir heimkomuna – skoraði sex mörk
fyrir Redbergslid, sem vann Wasai-
terna á heimavelli í Gautaborg í úr-
valsdeildinni, 35:24.
CRAIG Bellamy framherji New-
castle var í gær úrskurðaður í þriggja
leikja bann í Evrópukeppninni en
hann skallaði mótherja sinn í andlitið í
leik Newcastle og Dynamo Kiev í
Meistaradeildinni í síðustu viku.
ALESSANDRO Del Piero heldur
naumlega því meti sínu að hafa skor-
að „sneggsta“ mark sögunnar í meist-
aradeild Evrópu. Del Piero skoraði
fyrir Juventus á 20. sekúndu í leik
gegn Manchester United árið 1997 en
Gilberto Silva skoraði fyrir Arsenal á
21. sekúndu gegn PSV í gærkvöld.
HERNAN Crespo tryggði Inter frá
Mílanó heldur óverðskuldaðan sigur
á Ajax, 1:0, í meistaradeildinni í gær-
kvöld. Þrátt fyrir erfiðar samgöngur
vegna verkfalla á Ítalíu mættu 66
þúsund manns á leikinn og sáu Fran-
cesco Toldo, markvörð Inter, halda
sínu liði inni í leiknum.
JERZY Dudek, markvörður Liver-
pool, er í slæmum málum eftir að hafa
sagt að félagar sínir hefðu spilað „eins
og stelpur“ þegar þeir töpuðu fyrir
Valencia í síðustu viku. Þjálfari
stúlknaliðs í borginni hefur skorað á
Dudek að mæta í vítaspyrnukeppni
hjá sínum stúlkum og bæta ráð sitt
með því að gefa 100 pund til góðgerð-
armála fyrir hvert mark sem þær
skora hjá honum.
EYJASTÚLKUR spiluðu með
sorgarbönd gegn Stjörnunni í Garða-
bænum í gærkvöldi. Það var til minn-
ingar um Þorvald Vigfússon föður
Þorvarðar formanns handknattleiks-
deildar ÍBV.
FÓLK
Gestirnir úr Eyjum sáu vart tilsólar til að byrja með því
Stjarnan spilaði 5-1 vörn auk þess
að fara langt út á
móti skyttunni Öllu
Gorkorian. Það
skilaði Garðbæing-
um 6:1 forystu eftir
níu mínútur. Þá loks komust Eyja-
stúlkur í gang og minnkuðu mun-
inn í eitt mark á skömmum tíma
en Jelena Jovanvic í marki
Garðbæinga sá til þess að þeim
tækist ekki að jafna og var staðan
13:10 í leikhléi.
Taflið snerist heldur betur við
eftir hlé því nú skoruðu Eyjastúlk-
ur úr sex fyrstu sóknum sínum og
náðu 14:16 forystu. Um miðjan
hálfleik tóku Garðbæingar sér loks
tak, stórbættu varnarleikinn og
hófu að útfæra eigin sóknarleik
betur, sem skilaði forystu á ný.
Þeir höfðu alltaf frumkvæðið en
þegar átta mínútur voru til leiks-
loka hvorki gekk né rak og þó að
Eyjastúlkur gerðu einnig mistök
voru þau færri.
„Við byrjuðum mjög vel en byrj-
un síðari hálfleiks varð okkur að
falli því þá var eitthvert einbeit-
ingarleysi og það gengur ekki á
móti liði eins og ÍBV,“ sagði Anna
Bryndís Blöndal fyrirliði Stjörn-
unnar eftir leikinn. Ásamt henni
áttu Jelena markvörður og Jóna
Margrét Ragnarsdóttir góðan leik.
Amela Hegic fór mikinn í fyrri
hálfleik en síðan bráði af henni.
„Þetta var ekki fallegur hand-
bolti en baráttusigur, sem er góð-
ur fyrir baráttuandann í liðinu,“
sagði Ingibjörg Jónsdóttir fyrirliði
ÍBV eftir leikinn. „Það er líka gott
að vinna þegar maður leikur ekki
vel en við verðum að koma betur
undirbúnar til leiks næst.“ Anna
Yakova gerði skemmtilega hluti en
dró sig oft of lengi í hlé. Alla Gor-
korian aftur á móti sló hvergi af þó
stundum væru tilburðir hennar
ekki uppá marga fiska. Vigdís Sig-
urðardóttir varði oft vel, Ingibjörg
barðist um á línunni og spilið gekk
vel á Sylviu Strass.
Spenna í Garðabæ
TÓNNINN var vonandi gefinn í kvennahandboltanum þegar Stjarn-
an fékk ÍBV í heimsókn í Garðabæinn í gærkvöldi en það var leikur
sem var frestað vegna veðurs. Þar var baráttuleikur með mörgum
mörkum og mistökum en eitt mark skildi að í lokin, Eyjastúlkur
unnu 24:23 með tveimur síðustu mörkunum og hafa því unnið alla
þrjá leiki sína í vetur.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Dennis Bergkamp hefur veriðsjaldséður í leikjum Arsenal á
meginlandinu vegna flughræðslu
sinnar. En Hollendingurinn lét sig
hafa það að keyra til Eindhoven í
þetta skiptið og hann átti drjúgan
þátt í góðri frammistöðu sinna
manna. Gilberto Silva gaf tóninn
þegar hann kom Arsenal yfir eftir að-
eins 20 sekúndna leik, Freddie
Ljungberg skoraði um miðjan síðari
hálfleik og Thierry Henry innsiglaði
sigurinn með tveimur mörkum undir
lokin.
Wenger vildi lítið gera úr sínum
þætti hjá Arsenal. „Ég er enginn
töfralæknir, bara fótboltaþjálfari. En
þetta eru afar mikilvæg úrslit fyrir
þróun liðsins. Við tökum eitt skref í
einu og sjálfstraustið í hópnum vex
stöðugt. Það er gífurlegur metnaður
í liðinu og löngun til að ná lengra.
Leikmennirnir vilja bæta sig og mér
finnst þeir gera það í hverjum leik.
Þessi úrslit færa okkur sanninn um
að við verðum jafn öflugir á útivöllum
í keppninni og við erum heima fyrir,
og sigurinn kemur okkur jafnframt í
mjög sterka stöðu í riðlinum,“ sagði
Wenger, en lið hans vann Dortmund
í fyrsta leik sínum í síðustu viku.
Liverpool varð að sætta sig við
óvænt jafntefli á heimavelli gegn Ba-
sel frá Sviss, 1:1, þrátt fyrir talsverða
yfirburði allan tímann. John Arne
Riise átti tvö hörkuskot í þverslá
svissneska marksins og Milan Baros
eitt. Baros kom Liverpool yfir en
Rossi jafnaði fyrir Basel rétt fyrir
hlé.
Gerard Houllier, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, hrósaði sínum
mönnum þrátt fyrir jafnteflið. „Þó ég
sé vonsvikinn fyrir þeirra hönd með
úrslitin, er ég stoltur af knattspyrn-
unni sem þeir sýndu. Hún var frábær
á köflum og þeir reyndu allt. Mark-
vörður Basel bjargaði liði sínu
nokkrum sinnum og við skutum
þrisvar í stöng. Það var allt annað að
sjá liðið en gegn Valencia á dögun-
um,“ sagði Houllier. Hann sagði enga
ástæðu til að fara á taugum þó Liver-
pool væri aðeins með eitt stig eftir
tvo fyrstu leikina. „Það er nægur
tími til stefnu, Basel mun eiga erfitt
uppdráttar gegn Valencia og við get-
um unnið í Sviss,“ sagði Houllier.
Árni bestur í
stórtapi Rosenborg
Árni Gautur Arason þurfti að
sækja boltann fimm sinnum í mark
sitt þegar Rosenborg fékk skell gegn
Lyon í Frakklandi, 5:0. Samkvæmt
norskum fjölmiðlum var Árni Gautur
besti leikmaður Rosenborg og forð-
aði liðinu frá mun stærra tapi. Ros-
enborg fékk eitt marktækifæri í
leiknum, vítaspyrnu, en Bent
Skammelsrud nýtti hana ekki.
„Þetta er versti leikur sem ég hef
séð hjá liðinu, við spiluðum hræði-
lega og Frakkarnir léku sér að okk-
ur. Við hefðum getað skipt öllum 11
leikmönnunum út af í hálfleik,“ sagði
Rune Bratseth, framkvæmdastjóri
Þrándheimsliðsins.
Stjörnulið Real Madrid fór illa
með Genk frá Belgíu og sigraði, 6:0, á
heimavelli sínum.
Enginn töfralæknir,
bara fótboltaþjálfari
Reuters
Thierry Henry skorar annað tveggja marka sinna fyrir Arsenal í Eindhoven í gærkvöld. Arsenal lék
PSV grátt og sigraði, 4:0. Ensku meistararnir standa þar með vel að vígi í sínum riðli.
ARSENAL vann langþráðan úti-
sigur í meistaradeild Evrópu í
gærkvöld, og gerði það á sann-
færandi hátt. Ensku meist-
ararnir fengu aðeins eitt stig í
sex útileikjum í keppninni í fyrra
og höfðu ekki unnið í átta ferð-
um í röð yfir á meginlandið. En
þeir skelltu hollenska liðinu
PSV Eindhoven, 4:0, og undir-
strikuðu orð framkvæmdastjóra
síns, Arsenes Wengers, að þeir
ætluðu sér stóra hluti í keppn-
inni í vetur.
Stórveldin
mætast á
HM í Kína
ÞESSA dagana stendur yfir
Heimsmeistarakeppni
kvennaliða í körfuknattleik,
en keppnin fer fram í Kína.
Það verða stórveldin Banda-
ríkin og Rússland sem leika til
úrslita, en bandaríkjamenn
vann Ástrali í undanúrslitum,
71:56. Rússar hinsvegar lögðu
Suður-Kóreu í hinni undan-
úrslitaviðureigninni, 70:53.
Liðin sem leika til úrslita hafa
bæði unnið HM sex sinnum áð-
ur, en liðin mættust í úrslitum
keppninnar fyrir fjórum árum
þar sem Bandaríkin unnu með
sex stiga mun. Liðin mættust í
riðlakeppninni á HM að þessu
sinni þar sem Bandaríkin
höfðu mikla yfirburði og
unnu, 89:55.
Arnar frá í
3-4 vikur
ARNAR Pétursson hand-
knattleiksmaður, sem
leikur með FH-ingum,
verður ekki með Hafn-
arfjarðarliðinu næstu
þrjár til fjórar vikurnar
vegna meiðsla. Arnar
fékk skurð á fingurinn í
leik FH og Stjörnunnar í
fyrstu umferð Íslands-
mótsins fyrir tíu dögum
en eftir leik liðsins við HK
um síðustu helgi fór hann
að finna fyrir miklum
verk í fingrinum. Í ljós
kom að sýking hafði
myndast í sárinu og var
hann lagður inn á sjúkra-
hús þar sem gera þurfti
tvær aðgerðir á fingri
hans. Arnar kom heim af
sjúkrahúsinu í gær en
ljóst er að FH-ingar verða
án leikstjórnanda síns í
næstu 4–6 leikjum.