Morgunblaðið - 06.10.2002, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 2002 B 9
ferðalög
Kanada
Skemmti- og verslunarferð
til St. John’s í Kanada
Ferðaskrifstofa Vestfjarðaleiðar
býður ferð til St. John’s, höf-
uðborgar Nýfundnalands í Kan-
ada, fimmta árið í röð dagana 21.–
24. nóvember. Flogið er með leigu-
flugi Atlanta að morgni
fimmtudags og komið til baka á
sunnudagskvöldi. Í miðborginni
geta gestir upplifað sögu og arf-
leifð tengda sjó-
ferðum, með
bogadregnum
strætum þar sem
eru minja- og
listasöfn, sögu-
frægar byggingar,
lystigarðar
ásamt fjölda veit-
ingastaða, kráa
og lítilla sérversl-
ana. Verðlag er
lægra en í öðrum
stórborgum Kan-
ada. Auk verslana í miðborginni
gefst kostur á að fara í versl-
unarmiðstöðvar, en gjarnan eru
sértilboð í tilefni komu Íslending-
anna. Hægt verður að njóta ým-
issa menningarviðburða, m.a er á
sunnudeginum stór jólaskrúð-
ganga með um 40 þús. þátttak-
endum þar sem jólasveinar ganga
um miðbæinn í fylgd skreyttra
vagna og þar verður jólamarkaður.
Þá verður mikill handverksmark-
aður með handverksfólki af Ný-
fundnalandi og Labrador. Um
þessa helgi eða 21.–24. nóvember
stendur yfir sjávarútvegssýningin
Marine 2002 sem er sú stærsta á
Atlantshafsströnd Kanada, en þar
sýna fyrirtæki alls staðar að frá
Bandaríkjunum og Kanada. Boðið
verður upp á skoðunarferðir um
borgina og utan hennar undir leið-
sögn heimamanns og með ís-
lenskri túlkun. Fararstjórar Vest-
fjarðaleiðar verða farþegum til
aðstoðar og leiðsagnar í ferðinni
England
Menningarferð
til Manchester
Ferðaskrifstofan ÍT ferðir í Laug-
ardal býður upp á menningarferð í
tengslum við beint flug fyrirtæk-
isins með Atlanta til Manchester
29. nóvember til 1. desember nk.
Bergþór Pálsson óperusöngvari
mun leiða áhugasama í Óperuna
föstudaginn 30. nóvember til að
sjá hina kraftmiklu óperu Norma
eftir Bellini. Fyrir sýningu verður
Bergþór með kynningu á verkinu
og undirbýr þátttakendur undir
það sem í vændum er svo þeir
njóti þess betur.
Daginn eftir er óperan Aida eftir
Verdi á fjölunum, en þá stendur
fólki einnig til boða að sjá söng-
leikinn The Beauty and the Beast.
Á sunnudegi verður á dagskránni
hádegisverður,
„brunch“, með
Bergþóri, en
innihald sam-
komunnar og
fyrirkomulag
verður ekki
kynnt fyrr en
stuttu fyrir
ferð.
Manchester
hefur upp á
miklu meira að
bjóða en bara
knattspyrnu og í þessari ferð er
leitast við að uppfylla þarfir sem
flestra þannig að ferðin standi
undir nafni sem menningar-,
skemmti- og verslunarferð.
TUI og TerraNova-Sól með
ferðir um allan heim
TerraNova-Sól býður nú í sam-
starfi við TUI, stærstu ferðaskrif-
stofu í heimi, upp á ferðalög til
ótal áfangastaða. Flogið er héðan
til Frankfurt með Flugleiðum og
síðan áfram með TUI.
Í boði eru ferðir til ýmissa staða í
Asíu, Afríku, Suður-Ameríku, Ástr-
alíu og ferðir í Karíbahafi eru sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá Terr-
aNova-Sól á á hagstæðu verði. Þar
kemur fram að tólf daga ferð til
Máritíus í Indlandshafi kostar frá
136.400 krónum þegar gist er í
tvíbýlli og 14 nátta ferð til Tælands
kostar frá 129.400 krónum í tví-
býli. Sé áfangastaðurinn Balí kost-
ar 12 daga ferð þangað í tvíbýli frá
134.900 krónum.
TerraNova-Sól er umboðsaðili TUI
á Íslandi og er ferðaskrifstofan
beinlínutengd við bókunarmiðstöð
TUI í Hannover í Þýskalandi.
Starfsmenn TUI taka alltaf á móti
farþegum TerraNova-Sól erlendis.
TerraNova-Sól
Stangarhyl 3a
Sími: 5919000
Fax: 5919001
Veffang: www.terranova.is
Netfang: info@terranova.is
Allar nánari upplýsingar eru
veittar á ferðaskrifstofu Vest-
fjarðaleiðar sem er að flytja í
nýtt húsnæði Hópferða-
miðstöðvarinnar að Hesthálsi
10, 110 Reykjavík.
Símar: 5629950 og 587 6000.
Fax. 562 9912.
Netfang: info@vesttravel.is
Heimasíða: www.vesttravel.is
Frekari upplýsingar um ferð-
ina til Manchester eru á vefsíðu
ÍT ferða, www.ittravel.is og á
skrifstofunni í Laugardalnum,
sími 588 9900. Umsóknir í sjóði RANNÍS
Rannsóknarráð Íslands, Laugavegi 13,
101 Reykjavík, sími 515 5800,
bréfsími 552 9814, netfang rannis@rannis.is,
heimasíða http//www.rannis.is
Umsóknir í TÆKNISJÓÐ OG VÍSINDASJÓÐ RANNÍS
Umsóknarfrestur um almenna
styrki Tæknisjóðs og Vísindasjóðs RANNÍS er 1. nóvember nk.
Auglýst er eftir umsóknum um verkefnisstyrki Tæknisjóðs
og verkefnis- og rannsóknarstyrki Vísindasjóðs.
Vakin er athygli á því að nýir öndvegisstyrkir Vísindasjóðs
verða ekki auglýstir í haust.
Minnt er á að verkefnisstyrkir Vísindasjóðs
eru ýmist 1 m. kr. eða 1,5 m. kr. á ári og
rannsóknarstöðustyrkur verður 2,5 m. kr. árið 2003.
Umsóknarferlið hjá Vísindasjóði og Tæknisjóði verður
með sambærilegum hætti og undanfarin ár.
Ítarlegri upplýsingar og umsóknareyðublöð
fyrir Tæknisjóð og Vísindasjóð er að finna á heimasíðu RANNÍS,
www. rannis.is, og á skrifstofu Rannsóknarráðs, Laugavegi 13, 4. hæð.
CREEDENCE CLEARWATER REVIVAL
The Very Best Of - 2 diskar á verði eins.
Klassik Cúbu tónlist blús o.fl.
Einnig hágæða hljómtæki.
2 fyrir 2.200 kr.
af völdum titlum í tilefni jazzhátíðar
Jazz
í miklu úrvali
Heimasíða http://www.simnet.is/rafgrein/
Opið mánudaga-föstudaga kl. 16-18, laugardag kl. 12-15 og sunnudag kl. 12-15.
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
Mikið úrval
af nýjum vörum
Erum að taka upp
samkvæmisfatnað
ÚTSÖLUMARKAÐUR
Hefst á morgun kl. 12.00 í Síðumúla 35.
Ótrúlegt verð