Morgunblaðið - 06.10.2002, Blaðsíða 12
12 B SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SAUÐÁ kemur úr
lónum við rönd
Brúarjökuls og
getur verið all-
mikið vatnsfall.
Nú fellur mikið af
vatninu í Kring-
ilsá, en fyrir um
20 árum var
Sauðá mun vatns-
meiri, að því er
fram kemur í
grein Helga Hall-
grímssonar um
Gljúfrin miklu og
Kárahnjúka
(Glettingur, 11.
árg. 2.–3. tbl.
2001). Á sumrin er
Sauðá oft blönduð
jökulvatni og því
gráhvít að lit.
Hluti Sauðár og
Sauðárdals mun
fara undir Hálslón
verði af Kárahnjúkavirkjun. Ætlunin er
að byggja um 1.200 m langa og 25 m háa
stíflu á mörkum Sauðarárdals og
Laugavalladals, um 900 m langa og 60
m háa stíflu í Desjarárdalsdrögum auk
hinnar risavöxnu stíflu í gljúfri Jökulsár
á Dal við Fremri-Kárahnjúk sem verð-
ur allt að 190 m há og 800 m löng.
Sauðá steypist fram í Jökulsá á Brú/
Dal (Jöklu) innan við Sandskeið og
Sauðárgíga. Nokkru ofar fellur Sauðá í
klettagili sem endar í Sauðárfossi, um
15–20 metra háum. Ofan og neðan við
fossinn hafa verið
kláfstæði. Á leið
sinni til Jöklu
myndar áin nær
samfelldar flúðir
og rennur í
grunnum en
breiðum farvegi
um 70 metra fall.
Þegar áin er
vatnsmikil þykja
þessar flúðir
mjög mik-
ilfenglegar. Ekki
er ólíklegt að áin
dragi nafn af
þeim sjóðandi
streng. Gilið og
flúðirnar bjóða
upp á síbreytilegt
sjónarspil og
mikla fjölbreytni.
Sauðárfoss mun
verða sýnilegur
fyrrihluta sumars
en hverfa síðan undir yfirborð lónsins
er það fyllist. Við gilið utanvert eru
skellur af ósamfelldu ljósu hvera-
hrúðri, sem eru merki um jarðhita. Í
umsögn Náttúruverndar ríkisins til
Skipulagsstofnunar segir að jarð-
hitasvæðið við Sauðárfoss sé „eitt af
fáum kulnuðum lághitasvæðum á
landinu með hverahrúðurbreiðum
sem bera vott um hærri hita og meiri
virkni á fyrri tíð.“
Sauðárfoss. Í fjarska sést í Fremri Kárahnjúk. Horft niður Sauðárgljúfur í átt til Sandfells t.v.
Landslag við Sauðá er mjög fjölbreytt. Fremri Kárahnjúkur er fyrir miðri mynd og Sandfell til hægri.
Eyrarrós við Sauðá. Horft út Sauðárdal en hluti hans fer undir Hálslón. Í fjarska t.v. eru Hvannstóðsfjöll, Kárahnjúkarnir t.h. og Lambafell á milli. Neðan við Sauðárfoss. Sauðá fellur um gljúfur og flúðir þar s
!
"#
Landið sem hverfur II
Sauðá
Sauðá og Sauðárdalur hverfa að hluta undir
Hálslón verði Kárahnjúkavirkjun að veruleika.
Ragnar Axelsson lagði land undir fót og tók
myndir af landi sem hverfur.
rax@mbl.is