Morgunblaðið - 06.10.2002, Blaðsíða 14
Audi A4
Fjórhjóladrifinn
lúxusbíll upp-
fullur af tækni og
öryggisbúnaði.
ROFAÐ hefur til í sölu á nýjum fólksbílum ef marka má nýj-
ustu sölutölur frá Skráningarstofunni. Þar kemur fram að
11,3% söluaukning varð í september miðað við sama mánuð í
fyrra en samdrátturinn fyrstu níu mánuði ársins er 9%.
Þegar einstakar undirgerðir eru skoðaðar kemur í ljós að í
september er Toyota RAV4 söluhæsti bíllinn. Alls seldust 38
slíkir bílar en í öðru sæti er Volkswagen Golf með 33 selda bíla.
Í næstu þremur sætum eru Toyota Yaris, 29 bílar, Subaru Leg-
acy, 23 bílar, og Toyota Corolla, 20 bílar.
11,3% meiri sala í september
en á sama tíma í fyrra
FRANSKIR bílahönnuðir
standa framarlega þessa
dagana og sýndu mátt sinn
og megin á bílasýningunni í
París sem nú stendur yfir.
Mikla athygli vakti lítill borg-
arbíll frá Peugeot sem heitir
Sésame. Hann er 3,70 m á
lengd og er fyrsti bíllinn af
þessari gerð sem státar af
tveimur rafstýrðum renni-
hurðum sem opna upp á
gátt hliðar bílsins. Bíllinn er
eitt rými með fjórum sætum
með góðu aðgengi. Að utan
eru ýmis útlitseinkenni sem
minna á jeppa, eins og vara-
hjól á afturhleranum og svo
er bíllinn á 17 tomma felgum.
Að innan er hann klæddur
leðri og gulu alcantara og
skreyttur með áli.
Peugeot hefur einmitt orð
á sér fyrir að smíða hug-
myndabíla sem menn telja
næsta víst að verði fram-
leiddir og það
gæti eins vel
átt við Sésame,
eða hug-
myndabíla sem eru fjarri
veruleikanum og enginn trúir
að eigi framtíð fyrir sér. Það
á við um slökkvibílinn sem
vakti jafnt kátínu og ánægju
á sýningunni. Bíllinn kallast
H2O sem auðvitað er efna-
fræðitáknið fyrir vatn. Bíllinn
er frumlegur í laginu og eld-
rauður og með krómi eins og
slökkvibílar í New York. Bíll-
inn er með efnarafala sem
leiðir saman vetni og súrefni
svo úr verður raforka.
Citroën sýndi líka laglegan
fjölnotabíl sem heitir C-
Airdream. Tæknin er nýstár-
leg í bílnum þar sem allt er
rafstýrt, t.a.m. stýri, elds-
neytisinngjöf og hemlar og
þykir bíllinn til marks um
hvernig Citroën sér fyrir
sportlegan, hátæknivæddan
bíl í efri verðflokkum eftir
svo sem einn áratug. Pluriel
er hins vegar lengra á veg
kominn, enda smíðaður á
sama grunni og smábíllinn
C3. Pluriel er fjórir bílar í
einum. Í fyrsta lagi þrennra
dyra hlaðbakur með sætum
fyrir fjóra, í öðru lagi opinn
blæjubíll með því að renna
tauþakinu aftur með rafstýr-
ingu, í þriðja lagi er hægt að
fella blæjuna og bakhlutann
niður í farangursrýmið og í
fjórða lagi fella niður aft-
ursæti og afturhlera og er
þá bíllinn orðinn að litlum
skutbíl. Þeir hjá Citroën eru
sannfærðir um ágæti og
frumleika Pluriel og undirbúa
nú framleiðslu á 72 þúsund
bílum á áir og á framleiðslan
að hefjast næsta vor.
Citroen C-Airdream-hugmyndabíllinn. Peugeot-slökkvibíll með efnarafala.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Rautt lakk og króm og óvenjulegt lag.
Frönsk hönnun og nýjungar
Með varadekkshlíf á afturhleranum. Sésame er fyrsti bíllinn með rennihurðir í sínum stærðarflokki. Pluriel er óvenjulegur, líka að innan.
MAYBACH-lúxusbíllinn var afhjúpaður á bílasýn-
ingunni í París. Nú hefur fyrirtækið tilkynnt að eig-
andi fyrsta bílsins sem kemur af framleiðslulínunni
verði frú Maybach. DaimlerChrysler, eigandi May-
bach-merkisins, ætlar að selja fyrsta bílinn til 78
ára dóttur stofnanda Maybach. Hún heitir Irmgard
Schmid-Maybach og býr í San Francisco. Líklegt er
þó að bíllinn verði áfram í Evrópu þar sem hún er
löngum stundum.
Frú Maybach fær fyrsta bílinn
FÓLKSBÍLAR frá Japan eru algengastir hér á landi. Í árslok 2001
voru flestir skráðir fólksbílar á Íslandi af Toyota-gerð, alls 28.169
bílar. Næstmest var skráð af Mitsubishi, 12.022, Nissan, 12.984,
VW, 10.944, Subaru, 10.663, Ford, 7.010, Opel, 5.153, Hyundai,
5.085 og Daihatsu, 4.970. Aðeins 20 bílategundir af 56, sem til-
greindar eru með skráða bíla í árslok 2001 á vef Skráningarstof-
unnar, eru skráðar í yfir 2.000 eintökum. Skráðir fólksbílar í árslok
2001 voru 159.865, samkvæmt tölum Skráningarstofunnar.
Japanskir bílar algengastir hérlendis
!
"
# $
% &
'
()*++
,-*
+.-
/01
/0+
/0/
/-(
/+-
(01
(02
(-2
(*.
(12
((1
(21
*/(
Samkvæmt lögum er skylda að nota handfrjálsan
búnað ef talað er í farsímann við akstur.
Mundu 1. nóvember!
Handfrjáls búnaður í bíla fyrir flestar
gerðir GSM-síma. Ísetning á staðnum.