Morgunblaðið - 08.10.2002, Qupperneq 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 8. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
U
M ÁRABIL hafa fast-
eignasalar verið að velta
fyrir sér einhvers konar
samtengingu en tæknin
hefur ekki verið til staðar fyrr en
núna á allra síðustu árum með til-
komu Netsins, sem gegnir þar
miklu hlutverki. Nú hafa fjórar
fasteignasölur tekið í notkun sam-
eiginlegan, miðlægan eignagrunn
fasteigna.
Þetta koma fram í viðtali við þá
Pálma B. Almarsson hjá Bifröst,
Jón Guðmundsson hjá Fasteigna-
markaðnum, Sverri Kristjánsson
hjá Fasteignamiðlun og Ingileif
Einarsson hjá Ásbyrgi, en þeir eru
allir löggiltir fasteignasalar. Þeir
telja þetta byltingu á markaðnum.
„Hugmyndin með þessu sam-
starfi er sú að þegar eign kemur í
sölu á einni þessara fjögurra fast-
eignasala er hún skráð í eigna-
grunninn og þá geta allar sölurnar
boðið hana til sölu, en á þeim öllum
eru samtals um 15–20 sölumenn,“
segja þeir félagar.
Mikil undirbúnings-
vinna að baki
Fram að þessu hafa verið í notk-
un þrjú til fjögur sölukerfi fyrir
fasteignir. „Það hefur lengi verið
draumur margra aðila í þessari
grein, að eitt tölvukerfi væri notað
á þessu sviði, einfaldlega vegna
þess að markaðurinn fyrir slík kerfi
er ekki stór og þróun og viðhald á
kerfum er dýr,“ segja þeir félagar.
„Eins væri það til mikilla bóta fyrir
þær fasteignasölur, sem reka fast-
eignavefi og birta auglýsingar að
eitt kerfi væri á þessum markaði.“
Á haustmánuðum árið 2000 var
komin upp sú staða að hugbúnaðar-
húsið Kuggur, sem á og rekur fast-
eignasölukerfið Húsval, var komið
langt með að búa til miðlægan
eignagrunn, netútgáfu af Húsvali.
Kaupþing hafði forgöngu um að
kynna þetta kerfi fyrir 10–15 sér-
völdum fasteignasölum á höfuð-
uborgarsvæðinu og varð niðurstað-
an sú að fjórar fasteignasölur lýstu
yfir áhuga að að fara í samstarf og
keyptu þær 85% í kerfinu af Kuggi.
Þessar fasteignasölur voru Ásbyrgi,
Bifröst, Fasteignamarkaðurinn og
Fasteignamiðlun Sverris Kristjáns-
sonar.
Undirbúningur og breytingar
hafa síðan staðið yfir frá því í maí
2001 og var kerfið prófað og reynt í
byrjun árs 2002. Í mars sl. var það
svo sett upp hjá þessum fjórum
fasteignsölum, en tekið í notkun
fyrir skömmu.
Nú eiga og reka þessar fjórar
fasteignasölur tvö tölvukerfi; ann-
ars vegar miðlægan eignagrunn í
félagi við Kugg og hins vegar fast-
eignavefinn hus.is. Kerfin eru vist-
uð hjá Anza og tengjast fasteigna-
sölurnar Anza með svokallaðri
Frame relay línu. Miklar öryggis-
kröfur eru varðandi tengingar og
varnir.
Hagræði fyrir seljendur
og kaupendur
„Eignagrunnurinn felur í sér
mikið hagræði fyrir bæði seljendur
og kaupendur fasteigna,“ segja þeir
félagar. „Fyrir utan þann ávinning
fyrir seljendur, sem felst í því sam-
kvæmt framansögðu að allar þessar
fjórar fasteignasölur geta boðið
eignirnar til sölu, en á þeim starfa
Fjórar fasteignasölur taka upp
miðlægan eignagrunn fasteigna
Eign, sem er skráð í einkasölu hjá einni af fjórum fast-
eignasölum, er um leið boðin til sölu hjá þeim öllum af
fjölda sölumanna. Magnús Sigurðsson kynnti sér
þessa samvinnu, sem á að fela í sér mikið hagræði
bæði fyrir seljendur og kaupendur.
Skipurit yfir eignagrunninn. Allar eignir sem þessar fjórar fasteignasölur eru
með á skrá eða koma á skrá eru í eignagrunninum og hægt er að vista hvers
konar skjöl og upplýsingar um þær í grunninn.
Alltaf á fimmtudögum
EINBÝLI
MARÍUBAUGUR - GRAFARHOLT Í sölu
206 fm einbýlishús/keðjuhús með inn-
byggðum bílskúr á góðum stað innst í
botnlanga. Húsið afhendist fulleinangrað
að innan en að öðru leyti fokhelt. Verð
16,9 millj.
REYKJANESBÆR - INNRI NJAÐVÍK
Vorum að fá í sölu 153,5fm einbýlishús
bílskúr ásamt hesthúsi á lóðinni. Húsð
hefur nýlega verið klætt að utan með
Garðastáli. Sveit í bæ. Eign sem bíður upp
á mikla möguleika. Verð 10,9 millj.
EKKERT ÁKVÍLANDI.
BIRKIHVAMMUR - KÓPAVOGUR
Vorum að fá í sölu 157 fm töluvert end-
urnýjað einbýli á tveimur hæðum með
sérinngangi á neðri hæð á þessum
gróna og vinsæla stað í Kópavogi.
Sjón er sögu ríkari. Verð 21,5 millj.
Áhv. 1,6 millj.
FOSSVOGUR - FYRIR VANDLÁTA
Gott 245 fm einbýlishús innst í botn-
langa á eftirsóttum stað, heildarstærð
ca 400 fm. 4 rúmgóð svefnherb.
tómstundaherbergi, miðjurými, stofa,
sjónvarpsherb., eldhús og glæsilegt
baðherbergi. Gólfefni eru að mestu
náttursteinn og vandaðar flísar. Verð
29,7 millj.
RAÐ- OG PARHÚS
VÆTTABORGIR - GRAFARVOGUR Í
sölu 178 fm parhús á tveimur hæðum með
innbyggðum bílskúr, á rólegum útsýnis-
stað í Borgarhverfi. Húsinu verður skilað
nánast fullbúnu. Stutt í skóla og verslun.
SÉRHÆÐIR
4RA - 5 HERB.
VESTURBERG - 4RA HERB. Vorum að
fá í einkasölu 4 herb. 102 fm íbúð á jarð-
hæð. Falleg íb. m. 32 fm verönd. Þvotta-
hús í íbúðinni, parket á gólfum. Verð 12,9
millj.
4RA HERB.
VEGHÚS - 4 HERB. - 97 FM Vorum að
fá í sölu 4 herb. íbúð á 2. hæð skammt frá
íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi. Gott ská-
papláss, parket á gólfum, stórar svalir,
gott útsýni. Verð 12,9 millj. Áhv. 6 millj.
VESTURBERG - 4RA HERB. Góð
105 fm íb. með stórkostlegu útsýni í
húsi sem hefur nýlega verið tekið í
gegn að utan. Þrjú svefnherb.. Sam-
eign í toppstandi. VERÐ 11,7 MILLJ.
LANGHOLTSVEGUR MEÐ AUKAÍB.
Erum með í sölu 166,1 fm á Langholts-
vegi sem skiptast í 96,1 fm 3 herb. íb. í
kj. ásamt 70 fm bílsk. sem er innr. sem
íb. Verönd m. heitum potti í grónum,
fallegum garði. Verð 15,7 millj.
FJÁRFESTAR
ÞINGHOLTSSTRÆTI - FJÁRFESTAR
Tæpl. 500 fm húsnæði sem er í langtíma-
leigu 550.000 pr. mán. VERÐ TILBOÐ.
NÝBYGGINGAR
KÓRSALIR - KÓPAVOGUR Glæsilegar 4
herb. íbúðir ásamt stæði í bílageymslu.
Skilast fullbúnar án gólfefna. Verð frá
16,4 millj. BYGGINGARAÐILI LÁNAR
ALLT AÐ 85% KAUPVERÐS!
ÞRASTARÁS - HAFNARF. Í sölu raðhús
á tveimur hæðum með innbyggðum bíl-
skúr í Áslandi. Húsin skilast fullbúin að ut-
an með grófjafnaðri lóð, en fokheld að
innan.
MARÍUBAUGUR - GRAFARHOLT! Í
sölu 148 fm raðhús á einni hæð með bíl-
skúr. Húsið er með mikilli lofth.og er sér-
hannað með útsýni og birtu í huga.
TEIKN. Á SKRIFSTOFU! Verð 14,7 millj.
NAUSTABRYGGGJA - GRAFAR-
VOGUR Ný, glæsileg 83 fm íbúð á 2.
hæð í góðu fjölbýlishúsi á þessum frá-
bæra stað. Innr. og gólfefni úr hlyn.
AKRALIND - SKRIFSTOFUHÚS-
NÆÐI 400 fm skrifstofuhúsnæði með
hágæða tölvulögnum, öryggiskerfi,
brunakerfi og dyrasíma, tilbúið til notk-
unar. Til leigu eða sölu. Nánari upplýs-
ingar veitir Hinrik á skrifstofu.
OKKAR METNAÐUR - ÞINN ÁRANGUR
KLEPPSVEGUR - 4 HERB. Mjög falleg
108 fm íb. á 3. hæð með fallegu útsýni. Ný-
leg eldhúsinnrétt., parket á gólfum. Eign
sem vert er að skoða. Verð 12,3 millj.
3JA HERB.
ÆSUFELL - MIKIÐ ÚTSÝNI Vorum að
fá í sölu snyrtilega 3 herb. íbúð á 2 hæð
með útsýni yfir Reykjavík. Parket á
gólfum,tengi fyrir þvottavél á baði.
Snyrtileg íbúð. Verð 9,7 millj.
2JA HERB.
SÚLUHÓLAR - ÚTSÝNI Vorum að fá í
einkas. fallega 2ja herb. íb. á 2. hæð.
Parket á gólfum frábært útsýni. Verð 7,4
millj.
EINSTAKLINGS-
ÍBÚÐIR
NJÁLSGATA Í sölu 32 fm ósamþ. ein-
staklingsíb. sem er nýuppgerð. Verð 4,5
millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI
KRINGLAN - STÓRI TURN „Penthou-
se“ skrifstofuhæð - 9. hæð - á tveimur
hæðum. Stórkostlegt útsýni til allra átta!
Vandaðar innréttingar og gólfefni. Mögu-
leiki er að kaupa hæðina eða leigja hana.
HÚSNÆÐIÐ ER LAUST!
HESTAMENN - HESTHÚS Í sölu nýtt 10
hesta hús við Sörlaskeið í Hafnarf. (nálægt
Íshestum). Teikningar á skrifstofu.
KRINGLAN - STÓRI TURN í einkasölu
glæsilegt skrifstofurými á 5. hæð. Hús-
næðið er ca 65 fm fyrir utan sameign.
Verð tilboð. Uppl. gefur Karl, 896 2822.
BLÁSALIR Erum með í sölu 2ja, 3ja og
4ra herb. íbúðir í 12 hæða lyftublokk,
ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðirnar
skilast fullbúnar en án gólfefna. Allur frá-
gangur mjög vandaður og er sérstök
gæðahljóðeinangrun í öllu húsinu. VERÐ
FRÁ 13,1 MILLJ.
TÆKIFÆRI
MARIBERGSVEGEN - SUÐUR-SVÍ-
ÞJÓÐ! Einstakt tækifæri! Í sölu einbýlis-
gistihús, um 250 fm, sem stendur á eigna-
lóð. Allt innbú fylgir m.a. rúm fyrir átta og
tæki. SJÖ GÓÐIR GOLFVELLIR Í
NÆSTA NÁGRENNI. VERÐ MEÐ ÖLLU
7,5 millj.
SUMARBÚSTAÐIR
GRÍMSNES - NORÐURKOTSLAND
Vorum að fá í sölu fallegan ca 51 fm
sumarbústað sem er aðeins um 55 km
frá Reykjavík. Húsið skiptist í tvö
svefnherbergi, stofu, eldhús og bað-
herbergi. Stór viðarverönd í kringum
húsið. Kalt vatn en húsið en hitað er
upp með gasi. Rafmagn við lóðarmörk.
ALLT INNBÚ FYLGIR. Verð 4,4 millj.
GRAFARHOLT - STÓRKOSTLEGT
ÚTSÝNI Vorum að fá í sölu 3ja - 5
herb. íbúðir í 3ja hæða fjölbýli, ein íb.
á hæð. Stórkostlegt útsýni yfir Reykja-
vík og sundin. Þetta eru vandaðar sér-
hæðir með útsýni sem mun ekki verða
tekið frá þér! Verð frá 13,7 millj.