Morgunblaðið - 13.10.2002, Blaðsíða 14
Góð gáta …
– Maður einn datt niður stiga með 50 tröppum og meiddi sig
ekki neitt. Hvernig stendur á því?
Hann stóð í neðstu tröppunni!
Fyrir viku átti Ævintýraland Kringlunnar 1 árs af-
mæli, og af því tilefni var börnum boðið í fullt af
skemmtilegheitum alla helgina.
Á laugardeginum mættu Benedikt búálfur og
besta vinkona hans mannabarnið Dídí í Ævintýra-
land og sögðu öðrum mannabörnum frá því hvern-
ig hlutirnir ganga fyrir sig í Álfheimum.
Á afmælisdeginum var síðan efnt til barnaskrúð-
göngu, sem ýmsar skemmtilegar fígúrur tóku þátt í
auk krakkanna sem voru fallega skreyttir í framan.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þessi trúður mætti hress í afmælispartí.
Þessar stelpur eru sko orðnar flottar!
Morgunblaðið/Jim Smart
Það er alltaf gaman hjá Dídí og Benedikt!
Hvað er þessi búálfur að gera?
Fyrsta afmælið!
Rosa stuð!
Ástrós Helga Hilmarsdóttir er
11 ára en verður 12 ára í desem-
ber. Hún er nemandi í Öldusels-
skóla sem hún segir að sé mjög
skemmtilegur skóli. En Ástrós er
ánægð með fleira. Hún fór nefni-
lega á bíómyndina Max Keeble’s
Big Move og fannst hún mjög
skemmtileg.
„Myndin er um strák sem er í
vinahóp sem er alveg sama hvað
öðrum finnst um sig. En hann
verður skotinn í stelpu og langar
þá að verða flottur og „kúl“ og
vinir hans verða mjög hissa á
honum. En hann kemst að því að
það skiptir ekki máli að vera
„kúl“ heldur það að eiga góða
vini og verður alveg sama um
þessa stelpu.“
—Ertu sammála því?
„Já, það skiptir engu máli hvort maður er töff, en
það er ekki töff að eiga ekki vini.“
—Var myndin almennt mjög góð?
„Já, ótrúlega fyndin. Skólastjórinn var alltaf að
refsa honum. Svo átti hann að flytja og var alltaf að
gera prakkastrik við þá sem höfðu gert honum eitt-
hvað, en komst síðan að því að foreldrar hans voru
hætt við að flytja! Svo hann var í miklum vanda.
Þetta var mjög fyndið, og brandararnir eru það
besta við myndina. Max var mjög skemmtilegur og
þetta er góður leikari,“ segir Ástrós sem mælið ein-
dregið með myndinni fyrir krakka svona 8—12 ára.
Krakkarýni: Max Keeble
Einn að reyna
að vera kúl?
Ótrúlega fyndin
Ástrós Helga —
bráðum 12 ára.
NEI, líklega ekki. En kannski
langalangalangafi þinn. Eða var
hann kannski hreppstjóri? Hér
kemur ein auðveldari; hvað heitir
langamma þín í föðurætt? Svar-
aðu nú!
Kannski veistu svarið, en sumir
krakkar vita það ekki. Sumir kalla
kannski ömmu sína ömmu Níní,
en vita ekki hvort hún heitir Jón-
ína, Hlín eða jafnvel Þórkatla
Þuríður Aðalsteina Mundína
Jósafatsdóttir Blöndal. Og hvað
hét svo mamma hennar? Ja, það
er nú það.
Ingólfur Arnarson
og Ari fróði
Við Íslendingar erum líklega
einir bestu ættfræðigrúskarar í
heimi – enda landið okkar lítið og
auðvelt að nálgast upplýsingar.
Ættfræðiáhuginn er mikill og
geta sumir – ekki endilega svo
gamlir – rakið ættir sínar tvö eða
þrjú hundruð ár aftur í tímann,
eða jafnvel allt aftur til landnáms-
mannsins Ingólfs Arnarssonar.
Þessi agalegi ættfræðiáhugi
varð m.a til af því að í gamla daga
þurfti nefnilega að rekja ættir
langt aftur til að vita hver átti hve
mikið í þessari og hinni jörðinni.
Elsta ættarskráin var gerð af Ara
fróða og heitir Íslendingabók.
Voru líka ekki allir að hefna
frænda sinna í Íslendingasögun-
um? Þá var nú eins gott að vita
hverjum maður var skyldur og
hvern átti að drepa!
Hverra manna ert þú,
vinur minn?
Oft spyrjum við Íslendingar
hvorn annan þessarar spurningar.
Veist þú svarið? Býr kannski lítill
ættfræðingur í þér? Byrjaðu á því
að fylla út nýja ættartréð þitt með
hjálp foreldra þinna, ef þú þarft.
Skrifaðu rétt nafn í reitina og
sumum finnst gaman að skrifa
líka fæðingarárið.
Kannski færðu engan áhuga á
ættfræði, en þú veist þó fyrir vikið
hverra manna þú ert.
HVAÐ VEISTU UM ÞIG OG FJÖLSKYLDU ÞÍNA?
Var langafi þinn sauðaþjófur?
NÝLEGA hélt barnablað Mogg-
ans ljósmyndakeppni og máttu
allir krakkar senda inn mynd
undir þemanu Gaman og gott.
Margir sendu inn flottar myndir,
en það var Einar Falur Ingólfsson
ljósmyndari og myndstjóri Mogg-
ans sem síðan valdi bestu mynd-
irnar.
Í fyrsta sæti valdi hann mynd-
ina hennar Birnu Óskar Harð-
ardóttur 8 ára og fékk hún ótrú-
lega flotta ljósmyndamyndavél á
stærð við lyklakippu að launum.
Myndavélin heitir Digital Dream
eða Stafrænn draumur og það er
fyrirtækið Hans Petersen sem
gefur hana.
Birna Ósk segist ekki taka
mikið af ljósmyndum. En þegar
hún var á Spáni í sumar fékk hún
einnota myndavél, og er verð-
launamyndin, sem hún tók af
vinkonu sinni, ein af fyrstu
myndunum sem hún tekur á æv-
inni.
Hún segist þó ætla að taka
fullt af myndum á nýju mynda-
vélina sína, þótt hún sé ekki búin
að ákveða hvort hún ætli að
verða ljósmyndari þegar hún
verður stór.
En Hans Petersen gefur líka
fern aukaverðlaun sem eru
Kodak Últra-stuttermabolur og
-bakpokar, og þeir krakkar sem
sjá ljósmyndina sína hér á síð-
unni, mega búast við að fá þau
send heim til sín á næstu dögum.
Takk fyrir þátttökuna, öll sam-
an, og til hamingju, vinningshaf-
ar!
Úrslit í ljósmyndasamkeppni
„Gaman og gott“ á svo sannarlega við um vinningsmyndina hennar Birnu.
Morgunblaðið/Kristinn
Birna Ósk er hæstánægð
með nýju myndavélina sína.
„Systir mín í Innstadal“ heitir myndin hans
Viktors Sævarssonar 5 ára.
Jóhanna Andrésdóttir 11 ára sendi inn
þessa skemmtilegu útilífsmynd.
Rán Flygenring 14 ára sendi inn
þessa flottu drullukökumynd.
Tók mynd í fyrsta sinn
Óþekktur ljósmyndari þessarar
fyndnu myndar hafi samband.