Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 B 7  FRAKKAR hafa fundið skotskóna á ný eftir markalausa heimsmeistara- keppni í sumar. Þeir sigruðu Slóv- ena, 5:0, í París í undankeppni EM á laugardaginn og virðast vera að ná fyrri styrk á ný. Steve Marlet, sókn- armaður Fulham, skoraði tvö mörk, Arsenalmennirnir Patrick Vieira og Sylvain Wiltord gerðu sitt markið hvor og varamaðurinn Sydney Govou skoraði fimmta markið.  MARCEL Desailly lék sinn 100. landsleik fyrir Frakka á laugardag- inn en við hliðina á honum í vörninni lék félagi hans frá Chelsea, William Gallas, sinn fyrsta landsleik fyrir Frakklands hönd.  ÞULURINN sem lýsti leik Frakka og Slóvena á Eurosport, sagði að franska liðið léki vel – á sama róli og Arsenal.  FILIPPO Inzaghi, hinn mark- sækni leikmaður Ítala, dró sig út úr landsliðshópi þeirra vegna meiðsla eftir 1:1 jafntefli gegn Júgóslavíu í Napólí á laugardaginn. Massimo Maccarone kemur í hópinn í hans staða en Ítalir sækja Wales heim annað kvöld.  ALESSANDRO Del Piero skoraði mark Ítala, jafnaði beint úr auka- spyrnu skömmu eftir að Predrag Mijatovic hafði komið Júgóslövum yf- ir.  STEFFEN Iversen tryggði Noregi góðan útisigur í Rúmeníu, 1:0, með marki sex mínútum fyrir leikslok. Hann skoraði með skalla eftir horn- spyrnu frá John Arne Riise. Leikur- inn var lítið fyrir augað á vatnsósa leikvangi í Búkarest.  THOMAS Myhre, markvörður Norðmanna, meiddist á mjöðm í leiknum og það eru slæmar fréttir fyrir félag hans, Sunderland. Aðal- markvörður liðsins, Thomas Sören- sen, markvörður Dana, meiddist á dögunum og er úr leik framyfir ára- mótin.  ZLATAN Ibrahimovic, sóknar- maðurinn ungi frá Ajax, var bjarg- vættur Svía þegar þeir gerðu jafn- tefli, 1:1, við Ungverjaland í Stokkhólmi. Ibrahimovic jafnaði metin 14 mínútum fyrir leikslok. Ungverjar sýndu að sigurinn á Ís- lendingum í síðasta mánuði var engin tilviljun og náðu forystunni með marki frá Krisztián Kenesei strax á 5. mínútu.  DANIR lentu í mesta basli með Lúxemborg á Parken og náðu ekki að skora fyrr en í síðari hálfleik. Hafnfirðingurinn Jon Dahl Tomas- son braut ísinn með marki úr víta- spyrnu og Ebbe Sand bætti öðru marki við, 2:0.  ALLAN Simonsen, danski dýrling- urinn frá árum áður, stjórnar nú liði Lúxemborgar og var ánægður með sína menn. Hann taldi vítaspyrnuna vafasama en sagði að lið sitt hefði lært mikið af leiknum.  RUBEN Baraja skoraði tvívegis fyrir Spánverja sem áttu ekki í telj- andi vandræðum með Norður-Íra í Albacete og sigruðu, 3:0.  LETTAR komu mjög á óvart með því að sigra Pólverja á útivelli í Varsjá, 1:0. Juris Laizans skoraði sigurmarkið með glæsilegu langskoti sem Jerzy Dudek, markvörður Liv- erpool og Póllands, réð ekki við.  FLÓÐLJÓS á Lokomotiv-leik- vanginum í Tbilisi brugðust og hætta varð leik Georgíu og Rússlands af þeim sökum. Þegar leikmenn gengu af velli í hálfleik slokknaði á ljósum vallarins öðru sinni. Staðan var 0:0. Nýr leikdagur hefur ekki verið fund- inn.  NORSKA knattspyrnusambandið hefur úrskurðað knattspyrnudómar- ann Roy Helge Olsen í eins leiks bann en hann komst í fréttirnar í síðustu viku eftir að hann sýndi stuðnings- manni Strømsgodset „fingurinn“ eft- ir að leik lauk þar sem Strømsgodset tapaði fyrir Tromsø í norsku 1. deild- inni. Olsen mun ekki ætla að áfrýja úrskurði knattspyrnusambandsins. FÓLK KNATTSPYRNA Það var óneitanlega nokkuð áfallað fá mark á sig snemma í leikn- um, en það var auðvitað ekkert annað að gera en halda áfram. Við sköpuð- um okkur nokkur færi en boltinn datt einhvern veginn ekki fyrir okkur í dag. Vörnin var líka nokkuð óörugg hjá okkur framan af en Skotarnir sköp- uðu sér engin færi upp úr því þannig að það kom ekki að sök. Völlurinn var gríðarlega erfiður, háll og erfitt að ná góðu gripi á honum. Það kom auðvit- að niður á báðum liðum,“ sagði Her- mann. Það gekk erfiðlega að koma bolt- anum fram öðru vísi en með löngum háum sendingum. Hver er skýringin á því? „Já, þetta fór ekki alveg eins og við ætluðum. Skotar skora snemma og eftir það eru það þeir sem geta bakk- að en það er sú staða sem við hefðum gjarnan viljað lenda í. Við urðum að færa menn framar og reyna að setja þá undir pressu. Þetta var lagt þannig upp að Haukur Ingi nýtti sér hraða sinn með því að skjótast upp kantinn og draga þannig mann úr þriggja manna varn- arlínu þeirra með sér. Við þetta hefði losnað aðeins um Eið Smára á miðj- unni og hann fengið þannig meira pláss. Eftir að þeir skoruðu markið gátu þeir leyft sér að bakka þannig að aftasta vörnin varð mun þéttari en ella og því nýttist þessi aðferð ekki eins og til stóð,“ segir Hermann. Varðandi miðjuna sagði Hermann að það hefði verið óvitlaust að hafa þrjá menn þar í baráttunni á móti þremur Skotum. „Þetta gekk ein- hvern veginn ekki upp hjá okkur í dag, alveg sama hvað við reyndum. Það voru miklar væntingar til okk- ar og við gerðum kröfur líka og erum því hundfúlir yfir að tapa enda ætl- uðum við ekki að tapa leik á heima- velli í þessari keppni. Við förum með fullri virðingu fyrir Skotum til leiks og leikur þeirra á móti Færeyingum kemur okkur nákvæmlega ekkert við. Þetta er allt annar hlutur og við vitum að það er valinn maður í hverju rúmi hjá Skotum, en við vitum jafn- framt að við eigum að geta unnið þá og það eru mestu vonbrigðin í dag, að hafa ekki lagt að velli lið sem við eig- um að geta unnið.“ Hvað með leikinn á miðvikudag- inn, verður lagt upp með sama leik- kerfi þá? „Ég veit ekkert um það. Það verð- ur að koma í ljós hvernig við förum í þann leik.“ Þú gerir bara eins og þér er sagt? „Já, auðvitað. Við erum allir 100% á bak við það sem þjálfarinn er að gera. Þetta er einn hópur og ein heild og verðum að standa saman í þessu, sama á hverju gengur,“ sagði Her- mann. Hermann Hreiðarsson segir að ekki hafi vantað viljann og baráttuna Hund- fúlir yfir að tapa „AUÐVITAÐ er maður hundsvekktur yfir að tapa og eins yfir leik okkar en hvað það var sem fór úrskeiðis er ekki gott að segja svona strax eftir leik. Ekki vantaði viljann og baráttuna,“ sagði Hermann Hreiðarsson eftir tapið fyrir Skotum. Hermann sagðist hafa verið fullkomlega heill fyrir leikinn og ekki kenna sér meins en hann hef- ur átt við eymsli í baki að stríða. Eftir Skúla Unnar Sveinsson Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í nattspyrnu, kaus að fara þá leið ftir tapið fyrir Skotum að segja að mfjöllun sú sem fram fór fyrir leik- nn hefði orðið íslenska liðinu að alli. Íslenskir fjölmiðlar hafi „étið“ pp fregnir skoskra fjölmiðla dag- na fyrir leikinn þar sem landsliðs- jálfari Skota, Berti Vogts, sagði ráfaldlega að Íslendingar væru sig- rstranglegri. Þessi umfjöllun hefði íast inn í vitund íslensku leik- mannana. Umfjöllun íslenskra fjöl- miðla í gegnum þá skosku hefði skrúfað“ upp væntingar leikmanna g alls almennings. Vogts hefði síð- n þakkað skoskum fjölmiðlum eftir eikinn fyrir að halda þessum áróðri“ úti og þannig stutt við bak- ð á skoska landsliðinu. Þannig efðu hann og leikmenn hans fengið að olnbogarými sem þurfti til að ísa úr öskustónni. Vissulega þakk- ði Vogts fyrir stuðninginn á blaða- mannafundi í Baldurshaga eftir leik- nn. En að Vogts hafi farið í gegnum ikuna gagnrýnislaust og að skoskir ölmiðlamenn hafi fylgt honum eftir em rakkar í bandi og etið úr lófa ans vikuna fyrir leikinn er rangt. að vita þeir m.a. sem voru við- taddir blaðamannafund með skoska andsliðsþjálfaranum á Grand hóteli föstudag. Þar kom Vogts sínu á ramfæri, en hann fékk líka harðar purningar s.s. hvort hann fyndi kki fyrir köldum nægðingi á bak- nu, hvort hann ætlaði sér að segja starfi sínu lausu strax eftir vænt- anlegt tap fyrir Íslendingum o.s.frv. Ekki er ég viss um að Atli hefði kært sig um sambærilegar spurn- ingar fyrir leikinn, þær hefðu þótt neikvæðar, einhver hefði sagt að þær væru ekki við hæfi og með öllu ástæðulausar. Vogts svaraði hins vegar þessum „leiðinlegu“ spurning- um af sömu yfirvegun og öðrum. Glöggt mátti heyra að ekki voru all- ir skoskir fjölmiðlamenn á bandi landsliðsþjálfarans. Það er m.a. hlutverk landsliðs- þjálfara og byggja upp þá stemn- ingu sem hann vill hafa þegar geng- ið er til leiks. Er það ekki hans hlutverk að koma skilaboðum á framfæri í fjölmiðlum. Hann hafði næg tækifæri til þess með því að vara við bjartsýni og segja að öll umræða um að það væri nánast formsatriði fyrir íslenska liðið að vinna leikinn væri úr lausu lofti gripin. Íslenska landsliðið ætti í vændum erfiðan leik þar sem allt gæti gerst. Allt tal um að Skotar kæmu hingað til þess eins að fá í besta falli eitt stig á góðum degi væri hættulegt. Er það vilji landsliðsþjálfarans að þeir sem starfa við fjölmiðla hætti að hafa trú á íslenska landsliðinu þegar það tekur þátt í kappleikjum? Á þjóðinni bara að vera alveg sama? Eiga einvörðungu að koma á völlinn sérvitringar sem telja að hver leikur sé tapaður áður en flautað er til leiks? Er ekki bara best að fara „kínversku leiðina“ og loka Netinu af því að jákvæð ummæli í garð ís- lenska landsliðsins gætu orðið at- vinnumönnum þess fjötur um fót? Jóhannes Eðvaldsson, bróðir Atla, sagði í samtali við Morgunblaðið á miðvikudaginn í síðustu viku að nú væri meiri möguleiki en oft áður á að vinna Skota. Jóhannes sagði m.a.; „Í liði Skotanna í dag eru margir ungir og óreyndir leikmenn og þeg- ar ég skoða íslenska liðið tel ég það mun sterkara.“ Telur landsliðsþjálf- arinn að með þessum ummælum sé stóri bróðir að ganga erinda skoska knattspyrnusambandsins og styðja þannig við bakið á andstæðingnum og mynda það sem einhvers staðar var kallað í fjölmiðlum um helgina „öfuga pressu“? Af nokkurra ára veru minni í stétt íþróttafréttamanna er ég ansans ári hræddur um að hljóð heyrðist úr Laugardalnum ef hið jákvæða fengi ekki að fljóta með í umfjöllun fyrir landsleiki í knattspyrnu og fyrir hendi væri trúin á sigur. Sem betur fer hafa Íslendingar áhuga á landsliði sínu og vilja vöxt þess og velgengni sem mesta. Þegar kemur að íþróttum skín þjóðern- ishyggjan úr andliti þjóðarinnar og vissulega hefur okkur á stundum orðið hált á braut bjartsýni þar sem Golíat hefur fyrir fram verið felldur. Skotar eru hins vegar ekki Golíat knattspyrnunnar. Að kenna bjart- sýni um þegar illa fer er ódýr afsök- un sem ekki sæmir vinsælustu íþróttagrein landsins og jafn sjóuð- um manni og Atla Eðvaldssyni. Íslendingar eiga að vera og eru stoltir af landsliði sínu. Það á að gera til þess kröfur, ekki síst þegar í hlut eiga íþróttamenn sem hafa það að fullri atvinnu að stunda íþrótt sína og geta þar með betur en ella staðið flestum mótherja sinna á sporði. Án kröfunnar um árangur verður harla lítil framþróun. Nú er bara að bíða eftir því að landsliðsþjálfarinn þakki íslenskum fjölmiðlum þegar Litháar verða lagðir á morgun. Alveg eins og það var þeim að kenna að landsliðið tap- aði fyrir Skotum á laugardaginn þá hlýtur það að vera þeim sömu að þakka þegar sigur fellur í skaut. Ívar Benediktsson Væntingar iben@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.