Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 8
HANDKNATTLEIKUR
8 B ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir barning fyrstu mínúturnarnáði Grótta/KR forystu og fékk
nokkur færi til að auka forskotið í
meira en þrjú mörk
en Helga Torfadóttir
í marki Víkinga kom
í veg fyrir það með
góðri markvörslu.
Það dugði til að halda gestunum úr
Víkinni á floti þangað til varnarleik-
urinn skánaði og mínútu fyrir leiks-
lok tókst þeim að jafna 10:10. Síðari
hálfleikur var afar sveiflukenndur og
sem fyrr segir komu mörg mistök
beggja liða í veg fyrir að mörkin yrðu
mörg. Sérstaklega voru Gróttu/KR
stúlkunum mislagðar hendur og
höfðu aðeins skorað tvö mörk eftir
rúmlega fimmtán mínútur. Víkingar
voru aðeins betri í vörninni, sem
dugði liðinu til að ná tveggja marka
forskot en af fimm mörkum þeirra
eftir hlé komu þrjú eftir hraðaupp-
hlaup – hin tvö komu úr vítum. Þegar
rúmar sjö mínútur voru til leiksloka
höfðu Víkingsstúlkur enn tveggja
marka forskot, 15:13. Þá tók þjálfari
Gróttu/KR leikhlé og það virtist duga
til að stilla strengina því tvö mörk
fylgdu strax í kjölfarið. Síðasta mín-
útan var mjög spennandi, staðan var
15:15 og hvort lið fékk tvö tækifæri til
að ná forskoti þar til Gerður gerði út
um leikinn.
„Við erum ánægð með þriðja sæt-
ið, höfum tekið lið eins og Hauka og
Víkinga hérna heima en erum samt
ósátt við að detta út úr bikarkeppn-
inni,“ sagði Aðalsteinn K. Eyjólfsson,
þjálfari Gróttu/KR, eftir leikinn. „Ég
er púsla saman liði, sem kemur héðan
og þaðan auk þess að Þórdís Brynj-
ólfsdóttir er að koma eftir meiðsli og
er ekki alveg komin inn í leikinn og
sóknarleikur þar af leiðandi stirður.
Það verður mitt helsta hlutverk að
láta liðið fá reynslu en líka ná stöð-
ugleika. Við ætlum ekki að fara segja
ef, hefði og kannski heldur fram-
kvæma hlutina inni á vellinum. Ann-
ars sýndum við styrk með að halda
mörkunum við fimmtán.“
Helga, markvörður Víkinga, var
ekki eins sátt við stöðu mála. „Við
gerðum ekki eins og okkur var ætlað
– of mikið af mistökum, sem Grótta/
KR nýtti sér svo að við lendum í basli
og töpuðum. Það þýðir ekkert að
hætta þegar komið er tveggja marka
forskot. Við lögðum upp með að spila
rólega og ekki flýta okkur um of, bíða
eftir að færin opnast og síðan leggja
áherslu á að hjálpa hvor annarri í
vörninni,“ sagði Helga eftir leikinn.
Gerður hetja Gróttu/KR
GERÐUR Einarsdóttir var hetja Gróttu/KR á laugardaginn þegar
hún skoraði sigurmark gegn Víkingum í 16:15 sigri þremur sek-
úndum fyrir leikslok. Leiksins verður helst minnst fyrir aragrúa
mistaka en var engu að síður ágæt skemmtun, sérstaklega síðasta
mínútan með fimm sóknum og sigurmarkinu. Leikurinn fleytir
Gróttu/KR upp í þriðja sæti deildarinnar en Víkingar tóku sæti
þeirra, þaðsjötta.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Katar fékk
brons-
verðlaun
KATAR, einn mótherja Ís-
lands í heimsmeist-
arakeppninni í handknatt-
leik sem fram fer í Portúgal
í vetur, sigraði Japan, 28:21,
í úrslitaleik um brons-
verðlaunin á Asíuleikunum í
Suður-Kóreu í morgun. Suð-
ur-Kórea hreppti gull-
verðlaunin með því að sigra
Kúveit, 22:21, í úrslitaleik.
Ísland mætir Katar í
fjórða leik sínum í heims-
meistarakeppninni, þann 25.
janúar, en hefur þá áður
leikið við Ástralíu, Græn-
land og Portúgal.
Þess má geta að As-
íuleikameistarar Suður-
Kóreu komust ekki í loka-
keppni HM, mjög óvænt, en
Katar, Kúveit og Sádi-
Arabía eru fulltrúar Asíu í
keppninni.
Íslandsmeisturum KA var ekkispáð frægð og frama áður en
mótið hófst og því hlýtur nýr þjálf-
ari þeirra, Jóhannes
Bjarnason, að vera
ánægður með strák-
ana. „Það er ekki
búnar nema sex um-
ferðir en staðan er vissulega vel
viðunandi. Þetta var mikilvægur
sigur í dag en ég verð að segja eins
og er að ég er afar óánægður með
dómgæsluna í þessum leik. Ég ætla
ekki að segja að það hafi hallað
mjög mikið á okkur en þeir voru sí-
fellt að flauta, leikurinn fékk aldrei
að fljóta og það er erfitt að halda
dampi við slíkar aðstæður. En við
komumst yfir á hárréttu augna-
bliki, þegar leiktíminn var liðinn,“
sagði Jóhannes.
Leikurinn var afar jafn og spenn-
andi, KA-menn skrefinu á undan
allt þar til undir lok fyrri hálfleiks
er staðan breyttist úr 15:13 í 15:16.
Stjarnan komst á bragðið og jók
forystuna í upphafi seinni hálfleiks.
Staðan var 16:20 eftir 9 mínútna
leik og stefndi í óefni. En KA-menn
hafa löngum höndlað spennu vel og
þeim tókst að jafna leikinn; skor-
uðu fjögur mörk gegn engu marki
gestanna á 9 mínútna kafla. Stjarn-
an komst aftur yfir og hélt foryst-
unni þar til í blálokin. Staðan var
24:26 þegar tæpar 4 mín. voru eftir
en KA tókst að jafna og Petkevicius
varði skot frá Vilhjálmi Halldórs-
syni þegar 12 sekúndur voru eftir.
Arnór tryggði síðan sigurinn af
vítalínunni.
Andrius Stelmokas var bestur
KA-manna eins og svo oft í vetur.
Hann skoraði 10 mörk og fiskaði
vítið sem tryggði sigurinn. Arnór,
Jónatan og Baldvin Þorsteinsson
áttu ágætis spretti en sáralítið kom
út úr hægri vængnum sem hlýtur
að vera áhyggjuefni fyrir þjálfar-
ann. Hjá Stjörnunni hélt Vilhjálm-
ur Halldórsson áfram að blómstra.
Hann skoraði 14 mörk og hefur á
skömmum tíma breyst úr efnilegu
varnartrölli í óstöðvandi stór-
skyttu. David Kekelia og Þórólfur
Nielsen voru ógnandi og raunar var
sóknin oft hreyfanleg og skemmti-
leg. Allt fór hins vegar forgörðum á
síðustu mínútunum.
Öruggur sigur HK-inga
í Vestmannaeyjum
HK-ingar gerðu góða ferð tilEyja á laugardaginn og sigr-
uðu heimamenn með þremur mörk-
um, 24:21. Jafnræði
var með liðunum
fyrstu tíu mínútur
leiksins en um mið-
bik hálfleiksins
náðu gestirnir þriggja marka for-
ystu sem þeir héldu má segja út
leikinn. Eyjamenn náðu ekki að
ógna forystu HK-liðsins þrátt fyrir
mikla baráttu og virtust gestirnir
hafa þetta allt í hendi sér. Þó má
segja að mesti munurinn á liðunum
hafi verið markvarslan en Arnar
Freyr Reynisson var í miklu stuði
hjá HK. Hinn ungverski markvörð-
ur ÍBV, Viktor Gigov, náði sér hins
vegar engan veginn á strik og varði
aðeins tíu skot, þar af fjögur á síð-
ustu mínútum leiksins þegar úrslit-
in voru ráðin. Arnar Freyr var
ásamt Ólafi Víði Ólafssyni bestur í
fersku liði HK og eins var Jaliesky
Garcia öflugur þrátt fyrir að vera
tekinn úr umferð meginpart leiks-
ins.
Eyjamenn áttu slæman dag, Ro-
bert Bognar var þeirra besti maður
og eins átti danski hornamaðurinn
Michael Lauritsen góða spretti þær
mínútur sem hann lék. Sigurður
Ari Stefánsson, sem hefur verið
með betri leikmönnum ÍBV í vetur,
náði sér engan veginn á strik og
skoraði fjögur mörk úr 17 tilraun-
um. HK-liðið heldur sér því í efri
hluta deildarinnar en Eyjamenn
sitja sem fastast í tólfta sæti
Aðeins 5 mörk
í fyrri hálfleik
Það tók FH-inga aðeins hálftímaað gera út af við leikmenn Aft-
ureldingar í heimsókn sinni að
Varmá á sunnudag-
inn. Sterkur varnar-
leikur Hafnfirðinga
í fyrri hálfleik kæfði
nær alla tilburði
leikmanna Aftureldingar til sóknar
með þeim afleiðingum að heima-
mönnum lánaðist aðeins að skora
fimm sinnum á sama tíma og FH-
ingar skoruðu 11 mörk. Hefði ekki
komið til stórleikur Ólafs H. Gísla-
sonar í marki Mosfellinga er óhætt
að fullyrða að staða þeirra hefði
verið enn vonlausari en raun varð á.
Ólafur varði alls 13 skot og var eini
leikmaður Aftureldingar sem eitt-
hvað kvað að. Í síðari hálfleik var
nær því formsatriði fyrir FH að
tryggja sigurinn enda reyndist það
liðinu ekki erfitt, úrslitin 19:15 sem
í raun var betri staða en Aftureld-
ing verðskuldaði því sex mínútum
fyrir leikslok var staðan 18:11.
FH-ingar töpuðu fyrir leikmönn-
um Aftureldingar í fyrstu umferð
bikarkeppninnar á sama stað á dög-
unum. Voru þeir greinilega stað-
ráðnir í að láta það ekki endurtaka
sig. Þeir tóku fast á Mosfellingum
frá fyrstu mínútu með sterkri vörn
og öflugri markvörslu Magnúsar
Sigmundssonar. „Eftir tapið í bik-
arleiknum þurfti ekki mikið til þess
að fá menn til að einbeita sér að
þessari viðureign, enginn vildi tapa
tvisvar í röð fyrir Aftureldingu,“
sagði Magnús í leikslok. „Byrjunin
var góð, vörnin feikisterk og það sló
öll vopn úr höndum leikmanna Aft-
ureldingar. Við töpuðum aðeins
niður þræðinum í upphafi síðari
hálfleiks, en tókum hann fljótlega
upp á ný og þá var ekki að sökum að
spyrja,“ sagði Magnús sem var afar
ánægður með sigurinn og sagði
hann kærkominn undirbúning fyrir
næstu viðureign sem verður við ÍR
um næstu helgi. „Þá reikna ég með
meiri mótspyrnu,“ sagði Magnús
sem varði 17 skot í leiknum.
Það er skemmst frá því að segja
að eftir slakan sóknarleik í fyrri
hálfleik tókst leikmönnum Aftur-
eldingar lítt að rétta úr kútnum í
þeim síðari. Sem fyrr segir geta
Mosfellingar þakkað Ólafi mark-
verði að ekki fór enn verr. FH-ing-
ar höfðu leikinn allan tímann í
hendi sér en á lokasprettinum slök-
uðu þeir verulega á klónni og því
tókst Aftureldingu að minnka mun-
inn í fjögur mörk sem gefur ekki
rétta mynd af yfirburðum FH í
leiknum.
Ljóst er að Afturelding mun eiga
á brattan að sækja í vetur. Liðið
gengur nú í gegnum kynslóða-
skipti. Mikið af ungum mönnum er
að koma inn í liðið og þeir þurfa
sinn tíma til að sjóast, en það sem
er verst er að reyndari menn liðsins
ná sér lítt á strik ellegar eru meidd-
ir og nýtast lítt eða ekkert af þeim
sökum.
FH-ingar virðast vera að rétta úr
kútnum og skríða upp stigatöfluna.
Vörnin er að eflast en sóknarleik-
urinn er enn lítt slípaður.
Morgunblaðið/Golli
Daði Hafþórsson, leikmaður Aftureldingar, sækir að marki FH,
KA-MENN skutust upp í 2. sæti 1. deildarinnar eftir frækilegan sig-
ur á Stjörnunni sl. laugardag, 27:26. Þeir skoruðu síðustu þrjú
mörkin í leik sem virtist tapaður, komust yfir í eina skiptið í seinni
hálfleik og tryggðu sér sigurinn með marki Arnórs Atlasonar úr víta-
kasti þegar leiktíminn var liðinn. KA er þar með komið með 9 stig en
Stjarnan er áfram með 6 stig.
Stefán
Sæmundsson
skrifar
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar
Ívar
Benediktsson
skrifar
Sigurmark
Arnórs á síð-
ustu sekúndu