Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 11
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 2002 B 11 ÍT ferðir – IT Travel, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, sími 588 9900, póstfang: itferdir@itferdir.is www.itferdir.is Geymið auglýsinguna Knattspyrnufélög - þjálfarar - foreldraráð Knattspyrnuferðir Yngri flokkar 2003 Dæmi: Knattspyrnuskóli Bobby Charlton *Kynningarfundir í nóv. 2002* Tivoli Cup, Liverpool Classic og fjölmargir aðrir valmöguleikar í Evrópu og Bandaríkjunum 16 ára reynsla tryggir toppferð fyrir sanngjarnt verð. í Laugardal Hópa- og firmakeppni Breiðabliks haldin í Fífunni dagana 25.-26. október Vegleg verðlaun fyrir 1.-3. sæti. Spilaður 7 manna bolti. Verð 15.000 kr. á lið. Upplýsingar og skráning í síma 564 - 1990 og villi@breidablik.is ÚRSLIT Í öðru sæti voru þeir SighvaturSigurðsson og Andrés F. Gísla- son á Jeep Cherokee og í þriðja sæti voru nýliðarnir Sig- urður G. Jónsson og Einar Sigurjónsson á Toyota Corolla. „Ég hefði viljað sjá Escortinn lengur inni til að setja smá pressu á mann,“ sagði Baldur sem gat leyft sér að slaka á við akst- urinn og má segja að ekið hafi verið í rólegheitum á síðustu sérleiðinni um Skógshraun. „Eftir fyrri ferð um Hekluleið þá var þetta bara búið og bara spurning um að skila sér í mark. Mér tókst samt að fara sæmi- lega útaf á leiðinni til baka á Heklu- leið sem enn og aftur sýnir hvað það er vont að keyra með svona mikið forskot. Maður heldur engri einbeit- ingu og allur taktur dettur út hjá manni og maður fær ekkert út úr akstrinum. Þetta er búið að vera svolítið svona í sumar en það kemur sumar á eftir þessu sumri og eflaust eiga eftir að koma fleiri keppendur inn í þetta,“ sagði Baldur engu að síður ánægður með sigurinn þótt hann hafi lítið þurft að hafa fyrir honum. Baldur gerir fastlega ráð fyrir að hann muni aftur setjast í sæti aðstoðarökumanns við hlið Rúnars bróður síns næsta sumar líkt og þetta sumar hófst en hvort þeir mæta á Legacy eða Impreza verður tíminn að leiða í ljós. Margir áttu í vandræðum Allt leit út fyrir harða baráttu milli fjögurra áhafna í nýliðaflokkn- um en strax á Hekluleið töpuðu þeir Árni Jónsson og Halldór G. Jónsson á Toyota Corolla átján mínútum á keppinauta sína er þeir festu bifreið sína. Hjálpsemi Hilmars Erlings- sonar og Valdimars Péturssonar, sem aka á Trabant, hélt Árna og Halldóri inni í keppninni eftir að þeir hjálpuðu þeim að losa bílinn. Ekki er algengt að aðrir keppendur fórni tíma sínum í að hjálpa öðrum en ökumenn hafa mismunandi markmið og markmið þeirra Hilm- ars og Valdimars er að vera með og hafa gaman af þessu. Í síðari ferð- inni um Hekluleið töpuðu þeir Hlöð- ver Baldursson og Hannes Jónsson á Toyota Corolla miklum tíma þegar rúðuþurrkumótor bilaði og sökum rigningar sáu þeir ekki mikið út og voru þeir rúmlega fjórum og hálfri mínútu lengur að aka seinni ferðina um Hekluleið en þá fyrri og urðu möguleikar þeirra á sigri í flokknum að engu. Eftir síðari ferðina um Hekluleið var því eftirleikurinn auð- veldur fyrir Sigurð og Einar þar sem þeir höfðu náð að byggja upp rúmlega tveggja mínútna forskot á þau Daníel Sigurðsson og Sunnevu L. Ólafsdóttur á Honda Civic sem fyrir keppnina þóttu einnig nokkuð sigurstrangleg. „Það gekk allt upp,“ sagði Sigurður. „Þetta fór hálfilla hjá keppinautum okkar. Við unnum þetta að miklu leyti á því að aðrir lentu í vandræðum. Við vorum bún- ir að ákveða að fara Skógshraunið rólega og reyna að vinna eins mik- inn tíma og við gætum á Hekluleið og við náðum því,“ sagði Sigurður. Rallinu lauk í rólegheitum ÍSLANDSMEISTARINN Baldur Jónsson á Subaru Legacy vann Suð- urlandsrall Essó sem fram fór á laugardaginn en að þessu sinni með Arnar Valsteinsson sér við hlið sem ók með Baldri í fyrra. Keppnin fjaraði fljótt út þar sem einu keppinautar Baldurs, þeir Gunnar Viggósson og Björn Ragnarsson á Ford Escort, féllu úr keppni eftir að kviknað hafði í bíl þeirra á Hekluleið og er þetta atvik lýsandi fyrir þá óheppni sem þeir hafa þurft að kljást við í sumar. Til allrar hamingju brugðust þeir skjótt við og náðu að slökkva eldinn aður en meira tjón hlytist af en orðið var. Gunnlaugur Einar Briem skrifar Þetta var hörkuleikur, mikið ummistök og hraður bolti. Við vorum lengstum yfir en KR-stúlk- ur tóku leikinn í sínar hendur í byrjun þriðja leikhluta en þá fóru mínar stúlkur að spila vörn og leik- urinn var í járnum eftir það. Sig- urinn í svona leikjum lendir hjá þeim sem spilar betri vörn,“ sagði Eyjólfur Guðlaugsson, þjálfari Grindavíkur. Bestar í liði gestanna voru Hanna Kjartansdóttir og Helga Þorvaldsdóttir en hjá heima- stúlkum voru Yvonne Shelton og Sólveig Gunnlaugsdóttir bestar. Grindavík er með tvö stig að lokn- um tveimur umferðum líkt og KR. Nýliðar Hauka sóttu Njarðvík heim á sunnudag, en Haukar komu verulega á óvart með því að leggja Stúdínur að velli í fyrstu umferð. Leikurinn var jafn frá upphafi en Njarðvík tryggði sér nauman sig- ur, 63:58, undir lok leiks. Banda- ríski leikmaðurinn í liði Njarðvík- ur, Sacha Montgomery, skoraði 20 stig en þær Auður Jónsdóttir og Fjóla Eiríksdóttir komu þar næst- ar með 13 og 11 stig. Í liði Hauka var hin stórefnilega Helena Sverr- isdóttir best en hún var stigahæst Hafnarfjarðarliðsins með 15 stig en hún er aðeins fjórtán ára gömul. Birna Eiríksdóttir átti einnig góð- an leik en hún skoraði 14 stig. Lið- in hafa bæði unnið einn leik og tap- að einum það sem af er deildarkeppninni. Keflavík hristi ÍS af sér Birna Valgarðsdóttir reyndist Stúdínum erfiður ljár í þúfu þegar hún fór fyrir stöllum sínum með 24 stig og 10 fráköst í 63:47 sigri á ÍS í íþróttahúsi Kennaraskólans gær- kvöldi. „Það er aldrei auðvelt að spila hérna en þær hafa misst nokkra leikmenn og við höfðum það af sem betur fer,“ sagði Birna eftir leik. „Þeim tókst að saxa á forskotið. Það koma alltaf svona kaflar hjá okkur sem við verðum að rífa okkur upp úr þeim og við náð- um að halda haus í þessum leik.“ Gestirnir úr Keflavík, sem spáð er sigri í deildinni, náðu strax for- ystu en tókst ekki að hrista Stúd- ínur af sér. Engu að síður hafði Keflavík alltaf forskotið og 13 stiga forystu í hálfleik þegar fjögur af sjö þriggja stigum skotum þeirra rötuðu í körfuna en ekkert hjá ÍS. Í síðari hálfleik náðu Stúdínur sér loks á strik með ærinni fyr- irhöfn. Þeim tókst að minnka mun- inn niður í 9 stig og átta rétt fyrir lok þriðja leikhluta en lengra kom- ust þær ekki. Í fjórða leikhluta voru Keflvíkingar búnir að stilla betur strengi sína og með góðri vörn tókst þeim betur upp í sókn- arleiknum þar til munurinn varð 17 stig um miðjan síðasta leikhluta og eftirleikurinn auðveldur. Keflavík hefur þar með unnið báða leiki sína en Stúdínur eru án stiga. ÞAÐ var sannkallaður stórleikur sem háður var í Röstinni í Grinda- vík á laugardag í 1. deild kvenna í körfuknattleik þar sem Íslands- meistaralið KR beið lægri hlut fyrir sterku liði heimamanna sem voru yfir í hálfleik, 38:33, og sigruðu að lokum 73:66. Í íþróttahúsi Kennaraháskólans í gærkvöldi hafði Keflavík 63:46 sigur á ÍS. KR lá í Grindavík Alessandro Del Piero 39. – Predrag Mi- jatovic 27. – 55.000. Staðan: Ítalía 2 1 1 0 3:1 4 Wales 1 1 0 0 2:0 3 Finnland 2 1 0 1 3:2 3 Júgóslavía 1 0 1 0 1:1 1 Aserbaídsjan 2 0 0 2 0:5 0  Leikir á morgun: Júgóslavía – Finn- land, Wales – Ítalía. 10. RIÐILL: Georgía – Rússland ...................... frestað Hætt í hálfleik vegna bilunar í flóð- ljósum. Albanía – Sviss..................................... 1:1 Edvin Murati 78. – Hakan Yakin 37. – 12.000. Staðan: Sviss 2 1 1 0 5:2 4 Rússland 1 1 0 0 4:2 3 Albanía 1 0 1 0 1:1 1 Írland 1 0 0 1 2:4 0 Georgía 1 0 0 1 1:4 0  Leikir á morgun: Rússland – Albanía, Írland – Sviss. Vináttulandsleikir Eistland – Nýja-Sjáland ...................... 3:2 Anniste 9., Vikmaae 55., Zelinski 82. – Hickey 40., Lines 44. Portúgal – Túnis.................................. 1:1 Pedro Pauleta 5. – Ali Zitouni 43. England 1. deild: Bradford – Derby................................. 0:0 Burnley – Walsall ................................. 2:1 Ipswich – Sheffield Wednesday .......... 2:1 Millwall – Wimbledon .......................... 1:1 Rotherham – Gillingham ..................... 1:1 Watford – Grimsby .............................. 2:0 Portsmouth 12 10 1 1 28:10 31 Leicester 12 8 3 1 19:10 27 Norwich 12 7 4 1 21:7 25 Watford 13 7 3 3 20:18 24 Nottingham F. 12 7 2 3 24:13 23 Sheff. Utd 12 6 3 3 18:14 21 Coventry 12 6 3 3 17:15 21 Rotherham 13 5 4 4 23:18 19 Burnley 12 5 3 4 15:18 18 Reading 12 5 2 5 14:12 17 Derby 13 5 2 6 15:17 17 Bradford 13 3 7 3 13:17 16 Gillingham 13 4 4 5 14:19 16 Ipswich 11 4 3 4 15:12 15 Wolves 11 4 2 5 21:16 14 Stoke City 12 3 5 4 15:17 14 Walsall 13 4 2 7 16:20 14 Cr. Palace 12 2 7 3 15:15 13 Preston 12 2 7 3 15:18 13 Millwall 13 3 4 6 12:22 13 Wimbledon 13 3 2 8 11:19 11 Sheff. Wed. 13 1 6 6 11:19 9 Grimsby 13 2 2 9 9:23 8 Brighton 12 1 1 10 9:21 4 2. deild: Barnsley – Bristol City .........................1:4 Cardiff – Wycombe................................1:0 Chesterfield – Tranmere ......................1:0 Huddersfield – Notts County...............3:0 Luton – Cheltenham..............................2:1 Northampton – Brentford ....................1:2 Plymouth – Wigan .................................1:3 Port Vale – Oldham ..............................1:1 Stockport – Crewe.................................1:4 Swindon – Colchester............................2:2 Peterborough – Mansfield ....................0:0 Stockport – Peterborough ....................2:1 QPR – Blackpool .................................. 2:1 Cardiff 13 8 4 1 20:11 28 Wigan 13 8 3 2 24:10 27 Oldham 13 8 3 2 21:7 27 QPR 13 8 2 3 25:13 26 Crewe 13 7 4 2 21:9 25 Bristol City 13 8 0 5 25:14 24 Chesterfield 13 7 2 4 15:15 23 Blackpool 13 6 3 4 19:13 21 Brentford 13 6 3 4 15:16 21 Luton 13 5 3 5 23:21 18 Stockport 13 5 2 6 15:15 17 Port Vale 13 5 2 6 18:22 17 Plymouth 13 4 4 5 18:20 16 Northampton 13 4 4 5 12:16 16 Tranmere 13 5 1 7 13:22 16 Wycombe 13 4 3 6 16:19 15 Barnsley 13 4 3 6 14:22 15 Peterborough 13 3 4 6 15:15 13 Huddersfield 13 3 4 6 10:17 13 Notts County 13 2 6 5 17:20 12 Colchester 13 3 3 7 8:16 12 Swindon 13 3 2 8 13:20 11 Mansfield 13 3 2 8 19:35 11 Cheltenham 13 2 3 8 13:21 9 Íslandsmótið Skautahöllin, Laugardal: SR - Björninn .............................5:8 Mörk/ stoðsendingar: James Divine 2/0, Ingvar Jónsson 1/0, Kristján Óskarsson 1/0, Peter Bolin 1/0 – Jónas Breki Magn- ússon 3/2, Birgir Hansen 2/1, Sergei Zak 1/1, Ragnar Óskarsson 1/0, Marteinn Sig- urðsson 1/0, Snorri Sigurðarson 0/1. Punktamót KR Meistaraflokkur karla: Kjartan Briem - Matthías Stephensen ...3:0 Magnús Magnússon - Markús Árnason..3:2 Úrslit: Kjartan Briem - Magnús Magnússon .....3:2 Meistaraflokkur kvenna: Aldís R. Lárusdóttir - Gyða Guðmundsd3:0 Halldóra Ólafs - Kristín Hjálmarsd. .......3:2 Úrslit: Aldís Rún - Halldóra .................................1:3 Lancome-mótið Saint Nom la Breteche, Frakklandi: Alex Cejka, Þýskal. ..................................272 Carlos Rodiles, Spáni...............................274 Jean-Francois Lucquin, Frakkl..............275 Angel Cabrera, Argentínu ......................275 Thomas Levet, Frakkl. ............................276 Ian Poulter, Englandi ..............................276 Sergio Garcia, Spáni ................................276 Paul Eales, Englandi ...............................276 Robert Karlsson, Svíþjóð ........................276 Bradley Drege, Wales..............................276 Steen Tinning, Danmörku.......................276 Gordon Brand, Skotlandi.........................276 KNATTSPYRNA EM og Ólympíuleikur, U21: Akranes: Ísland - Litháen ....................15.30 HANDKNATTLEIKUR 1. deild kvenna, Essodeild: Vestmannaey.: ÍBV - Fylkir/ÍR...........19.20 Í KVÖLD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.