Morgunblaðið - 01.11.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 01.11.2002, Síða 1
2002  FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A KEFLVÍKINGAR SKORUÐU 137 STIG Í HVERAGERÐI / C2 KRISTINN Tómasson, knattspyrnumaður, sem á dögunum sagði skilið við Fylki er í við- ræðum við Framara og er líklegt að hann gangi í raðir Safamýrarliðsins sem á dög- unum fékk Ragnar Árnason til liðs við sig frá Stjörnunni. Kristinn, sem er 30 ára gamall, er fæddur og uppalinn Fylkismaður og hefur leikið síðustu 13 árin með meistaraflokki fé- lagsins. Hann lék 11 leiki í sumar með Árbæj- arliðinu en hefur leikið samtals 81 leiki með liðinu í efstu deild og skorað 23 mörk. „Ástæðan fyrir því að ég ákvað að fara frá Fylki er fyrst og fremst sú að ég vil fá að spila meira. Ég hef ekkert gaman af því að horfa á íslenskan fótbolta hvort sem það er af bekknum eða í sjónvarpinu. Ég skil við Fylki í góðu. Ég verð alltaf Fylkismaður og hef átt góðar stundir hjá félaginu,“ sagði Kristinn. Kristinn Tómas- son til Framara? KARL-Heinz Rummenigge, fram- kvæmdastjóri Bayern München, segir að félagið verði að draga verulega úr kostnaði á næstu mánuðum í framhaldi af því að ekki tókst að komst í 16-liða úr- slit Meistaradeildar Evrópu. Talið er að fyrir vikið verði Bayern af um 1,3 milljarða króna tekjum en á síðustu leiktíð voru tekjur fé- lagsins af þátttöku í keppninni rúmlega 2,7 milljarðar. Þá komst Bayern alla leið í undanúrslit en árið áður náði það að vinna Meistaradeildina og því er ljóst að niðurstaðan á yfirstandandi leiktíð er verulegt fjárhagslegt áfall. Allar áætlanir félagsins hafa miðað af því að komast a.m.k. í átta liða úrslit. Nú hafa þær áætlanir hrunið til grunna. Sú staðreynd að félagið fær held- ur ekki sæti í Evrópukeppni fé- lagsliða er síðan enn til þess að strá salti í sárin. Þótt tekjur af þeirri keppni séu talsvert lægri en af Meistaradeildinni þá geta þær þó verið nokkur sárabót fyr- ir þau félög sem ná alla leið í úr- slit. „Við verðum að stíga á heml- ana til að mæta verulegum tekju- missi,“ segir Karl- Heinz Rumm- enigge. Allar fjárhagsáætlanir fyrir næstu framtíð verði nú að endurskoða. Bregðast verði við tekjutapinu. Rummenigge vill ekki segja í hverju aðgerðirnar felist, enn sé of snemmt að segja til um hvort Bayern neyðist til að selja leikmenn ellegar þá að lækka laun. Bayern dregur saman seglin Eftir langar og góðar samninga-viðræður töldum við ekkert því til fyrirstöðu að ganga frá samning- um en þá snerist Burley skyndilega hugur,“ sagði Gunnar Þór en Burley sat við hlið hans á leik Stoke og Wat- ford í fyrrakvöld. Ýmsar ástæður eru nefndar til þess að Burley ákvað að hætta við á síðustu stundu. Ein er sú að hann líti hýrum augum til Sheffield Wednes- day sem ákvað í gær að reka knatt- spyrnustjórann Terry Yorath og önnur að hugur hans stefni á úrvals- deildina og hann vilji bíða eftir að eitthvað losni á þeim vígstöðvum í stað þess að ráða sig með hálfum huga hjá Stoke Haft var eftir Burley í gær að hann hefði gengið til viðræðna við stjórnarmenn Stoke með opnum huga en hann segist ekki hafa verið tilbúinn að gera langtímasamning eins og Stoke vildi gera. Gunnar Þór vildi í samtali við Morgunblaðið í gær ekki greina frá því hvers konar samningur var á borðinu. Hann sagði að allir aðilar hafi verið orðnir sáttir og enginn ágreiningur um neitt atriði þegar Burley öllum að óvörum hefði til- kynnt að hann vildi ekki taka að sér starfið. „Það þýðir ekkert að svekkja sig meira á þessu. Við höldum áfram eins og frá var horfið og nú tekur bara við að finna annan mann, “ sagði Gunnar Þór. Mörgum nöfnum hefur verið velt upp í sambandi við stjórastöðuna hjá Stoke nú þegar Burley er genginn úr skaftinu. Þeir sem helst eru nefndir eru: Bryan Robson, Peter Reid, Adr- ian Heath, Tony Pulis, Lou Macari, Sammy McIlroy og Steve McMahon. Burley snerist skyndilega hugur GUNNAR Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke City, segir það mikil vonbrigði að George Burley skyldi á síðustu stundu hafa snúist hugur um að taka að sér starf knattspyrnustjóra hjá Stoke en í þann mund sem breska pressan var að gera sig klára að sækja blaða- mannafund á Brittania leikvanginum í Stoke um hádegisbilið í gær – þar sem tilkynna átti ráðningu Burleys, kom tilkynning frá stjórn Stoke þess efnis að Burley hefði snúist hugur og vildi ekki taka starfið að sér. Morgunblaðið/Mikael Forslund Patrekur Jóhannesson, fyrirliði íslenska landsliðsins, er hér búinn að skjóta Zikica Milosavljevic ref fyrir rass og skorar eitt af níu mörkum sínum gegn Júgóslövum í gærkvöldi, 34:29. Sjá umsögn um leikinn og viðtöl á C3 og C4. „ÞETTA var allt annað núna en í hinum tveimur leikjunum enda vorum við harðákveðnir að landa einum sigri í riðlakeppninni hér í norsku Dölunum,“ sagði Gústaf Bjarnason sem skoraði sjö mörk þegar Júgóslavar voru lagðir að velli á heimsbikarmótinu í Svíþjóð í gærkvöldi, 34:29. Hann kom inn í byrj- unarliðið í fyrsta sinn í mótinu og átti góðan leik og var öryggið uppmálað á vítalínunni en sá staður hef- ur ekki reynst íslenska liðinu vel í mótinu til þessa. Spurður um hvort landsliðsþjálfarinn hafi ekki vitað hversu góð vítaskytta hann væri sagði Gústaf: „Ég veit það nú ekki en þetta var ákveðið inni á vell- inum þegar við fengum fyrsta vítið. Maður verður bara að vera kaldur og hæfilega kærulaus.“ Þrátt fyrir sigurinn er sóknin enn dálítið höktandi á stundum? „Það er alveg rétt enda er liðið best þegar Dagur er á miðjunni eða vinstra megin, þannig höfum við leikið langmest og það tekur tíma að slípa liðið sam- an þegar nýir menn koma inn. Við höfum ekki haft neinar æfingar til að fínpússa þetta, bara þessa tvo leiki og þetta verður betra og betra en samt er margt sem við þurfum að fínpússa enn frekar. Annað sem gekk betur í dag en í hinum leikjum eru hraðaupphlaupin. Við fórum vel yfir þau og ákváðum að menn yrðu að meta stöðuna hverju sinni og róa sig aðeins niður þegar það átti við í stað þess að fara framúr okkur eins og hefur gerst hjá okkur.“ Sætur sigur í Svíþjóð ■ Íslendingar …/C3 ■ Mæta Svíum/C4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.