Morgunblaðið - 06.11.2002, Side 1
Arnar, sem gekk til liðs við Dund-ee United í sumar frá Stoke og
hefur aðeins komið við sögu í tveim-
ur leikjum liðsins á leiktíðinni, segir
að hann eigi enga framtíð hjá félag-
inu. Eftir að Alex Smith, knatt-
spyrnustjórinn sem ákvað að fá Arn-
ar til liðs við félagið, var rekinn fyrir
mánuði, hefur Arnar ekki verið í
leikmannahópi liðsins. Paul Hegarty
tók við stjórn liðsins af Smith, fyrst
til bráðabirgða en í gær var hann
formlega skipaður knattspyrnustjóri
liðsins.
„Ég nenni ekki að standa í þessu
lengur. Ég ætlaði að bíða eftir því
hver tæki við og nú þegar það er frá-
gengið er mér óhætt að hringja í um-
boðsmann minn og láta hann kanna
markaðinn,“ sagði Arnar í samtali
við Morgunblaðið í gær en hann seg-
ir að stjórinn hafi farið þá leið að
tefla frekar fram ungum leikmönn-
um uppöldum hjá félaginu.
„Ég hef ekki verið í betra formi
síðan ég var hjá Bolton og þegar ég
sé að ég er ekki inni í myndinni hjá
stjóranum er ekki annað að gera en
að reyna að finna annað félag til að
fara í. Það er samt hægara sagt en
gert. Með nýju félagaskiptareglun-
um er orðið erfiðara um vik að fara á
milli félaga en vonandi hleypur eitt-
hvað á snærið innan tíðar. Mig lang-
ar mest að komast aftur til Englands
og fá að spila sem framherji en það
var einhver skrýtinn misskilningur
þegar ég kom hingað. Ég var látinn
spila sem varnartengiliður og þeir
sem þekkja mig sem leikmann vita
að sú staða hentar mér alls ekki,“
sagði Arnar.
Arnar á enga fram-
tíð hjá Dundee Utd.
ARNAR Gunnlaugsson, knattspyrnumaður, sem er á mála hjá
skoska úrvalsdeildarliðinu Dundee United, er mjög ósáttur við
stöðu sína hjá félaginu og hann hyggst komast í burtu þaðan þegar
leikmannamarkaðurinn opnast að nýju í janúar.
2002 MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÞRÓTTUR OG HAUKAR MEÐ TVÖ SAMEIGINLEG LIÐ / C3
Berglind
varði 21 í
Slóveníu
BERGLIND Hansdóttir varði
21 skot í gærkvöld þegar
kvennalandsliðið í hand-
knattleik tapaði, 29:24, fyrir
Slóveníu í vináttulandsleik.
Þetta var þriðja og síðasta
viðureign þjóðanna í Slóven-
íuferð íslenska liðsins og
vann heimaliðið þá alla en
leikurinn í gærkvöld var
mjög góður af hálfu Íslands,
að sögn fararstjóra. Hanna
Stefánsdóttir skoraði 7 mörk
og Dröfn Sæmundsdóttir,
sem lék sinn fyrsta landsleik,
gerði 6 mörk.
SVEN Göran Eriksson lands-
liðseinvaldur Englendinga í
knattspyrnu hefur mikinn
áhuga á að velja Wayne Rooney,
táninginn í liði Everton, í lands-
lið sitt og sjá hvernig piltur
spjari sig en Rooney er á allra
vörum á meðal knattspyrnu-
áhugamanna á Bretlandseyjum,
og þótt víðar væri leitað, eftir
glæsilega innkomu í leikjum
Everton á leiktíðinni. Rooney,
sem á dögunum hélt upp á 17
ára afmæli sitt, skoraði eftir-
minnilegt sigurmark þegar
Everton batt enda á sigurgöngu
Arsenal í síðasta mánuði og um
helgina skoraði hann eina mark
Everton í sigri á Leeds með frá-
bæru einstaklingsframtaki.
Englendingar spila tvo vin-
áttuleiki í febrúar á móti Dönum
og Austurríkismönnum og er
talið mjög líklegt að Rooney fái
að spreyta sig í öðrum hvorum
leiknum og þá yrði hann yngsti
leikmaðurinn til að klæðast
ensku landsliðstreyjunni frá því
á 19. öldinni. Michael Owen
framherji Liverpool er sá yngsti
en hann var 18 ára og 59 daga
þegar hann lék sinn fyrsta
landsleik á móti Chile í febr-
úarmánuði 1998.
Rooney mun á næstu dögum
skrifa undir þriggja ára samn-
ing við Everton.
Rooney
undir
smá-
sjánni
Reuters
David Beckham ákvað að þiggja ekki boð knattspyrnustjóra Manchester United, Alex Fergusons,
sem ætlaði að gefa honum vikufrí þegar upp komst um áætlanir um að ræna eiginkonu hans og
sonum. Beckham lék því með United gegn Leicester í enska deildabikarnum í gærkvöld og skor-
aði fyrra mark liðsins í 2:0 sigri. Hér sendir hann stuðningsmönnum liðsins fingurkoss.
ÓLAFUR Gottskálksson, markvörður hjá enska
knattspyrnufélaginu Brentford, hafnaði í gær
boði um að leika með íslenska landsliðinu gegn
Eistlandi í Tallinn þann 20. nóvember. Ólafur
fór í aðgerð vegna meiðsla á öxl í haust og er
ekki búinn að ná sér. Frá þessu var skýrt á
heimasíðu Brentford í gær en félagið hafði þá
fengið beiðni frá KSÍ um að fá Ólaf lausan í
leikinn.
„Það eru mér mikil vonbrigði að geta ekki
svarað kallinu og tekið þátt í leiknum. Um leið
er ég mjög ánægður með þann heiður sem mér
er sýndur með þessu, það er gott að vita að ég
skuli enn vera inni í myndini, en það væri ekki
rétt af mér að fara í leikinn og geta ekki lagt
mig 100 prósent fram,“ sagði Ólafur við Morg-
unblaðið í gær.
„Það hefði verið tilvalið að fá Ólaf í þennan
leik, við ætluðum að skoða hann í Tallinn og
það er miður að hann skuli ekki geta komið
þangað,“ sagði Guðmundur Hreiðarsson, mark-
varðaþjálfari landsliðsins.
Ólafur komst
ekki til Tallinn
VIÐRÆÐUR um möguleg kaup
þýska knattspyrnufélagsins Nürn-
berg á landsliðsmanninum Marel
Baldvinssyni frá Stabæk í Noregi
stóðu yfir síðdegis í gær og fram á
kvöld. Marel gekkst undir læknis-
skoðun á mánudag, norskir fjöl-
miðlar sögðu í gær að hann hefði
staðist hana en Marel sagði við
Morgunblaðið í gær að hann hefði
ekki fengið neina niðurstöðu sjálfur
og að hann biði fregna af viðræðum
umboðsmanns síns við forráðamenn
Nürnberg.
Erik Loe, formaður Stabæk, sagði
við netútgáfu Asker og Bærums
Budstikke í gær að norska félagið
biði eftir næstu viðbrögðum frá
Nürnberg. „Það væri ekki rétt að
segja að hann væri á förum en við
bíðum átekta. Við erum ekki með
það á stefnuskránni að selja Marel
en hann er til sölu ef um gott tilboð
er að ræða,“ sagði Loe. Ennfremur
var eftir honum haft að Nürnberg
hefði fylgst grannt með Marel í
haust, meðal annars í leikjum Sta-
bæk við Molde og Anderlecht.
Mjög mismunandi upphæðir
hefðu verið nefndar í sambandi við
möguleg kaup þýska félagsins á
honum, eða allt frá 40 til 150 millj-
óna íslenskra króna. Stabæk greiddi
Breiðabliki á fjórða tug milljóna fyr-
ir Marel þegar hann fór til norska
félagsins fyrir rúmum tveimur ár-
um.
Viðræður
um Marel í
Nürnberg