Morgunblaðið - 06.11.2002, Síða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HJÓNIN Jónína Olesen, Íslandsmeistari
til margra ára fyrir tæpum áratug, og
Konráð Stefánsson búa í Danmörku en
gerðu góða ferð á Íslandsmótið um
helgina. Jónína vann gull í –57 kílóa
flokki og brons í opnum flokki en hún
keppti síðast í kumite 1993. „Ég man
varla hvað er gaman að vinna. Ég hef
undirbúið mig undanfarna þrjá mánuði
með það markmið að þetta sé síðasta
keppni, sem ég tek þátt í og það er mjög
gott að finna að líkaminn er tilbúinn í
þetta mót,“ sagði Jónína kampakát eftir
mótið. „Það er sérstaklega gaman að
hitta fólk og sjá nýja kynslóð, ef ekki kyn-
slóðir. Ég hef ekki fylgst með karate á Ís-
landi í mörg ár en sé miklar breytingar í
karatelífinu á Íslandi en ekki samt inni á
vellinum. Það er meðal annars vegna
þess að fólk með reynslu, til dæmis ég,
hefur ekki haldið sér inni í greininni og
þess vegna lítið gefið af sér.“
Hjónin m
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
B-RIÐILL:
Spartak Moskva - Basel ...........................0:2
Hernan Rossi 18., Christian Gimenez 89. -
3.000.
Staðan:
Valencia 5 4 1 0 14:4 13
Basel 5 2 2 1 9:9 8
Liverpool 5 2 1 2 9:5 7
Spartak M. 5 0 0 5 1:16 0
Lokaumferð, 12. nóvember: Basel - Liv-
erpool, Valencia - Spartak.
England
Deildabikarinn, 32-liða úrslit:
Birmingham - Preston .............................0:2
- Ricardo Fuller 59., Eddie Lewis 80.
Wigan - Manchester City .........................1:0
Neil Roberts 35.
Wimbledon - Rotherham .........................1:3
Patrick Agyemang 35. - Andy Monkhouse
51., Richard Barker 75., Alan Lee 85.
Manchester United - Leicester ...............2:0
David Beckham 80. (víti), Kieran Richard-
son 90.
Spánn
Bikarkeppnin, 32-liða úrslit:
Hercules - Mallorca...................................0:0
Mallorca áfram eftir vítakeppni.
Novelda - Terrassa....................................0:3
Racing Ferrol - Deportivo La Coruna ....3:4
Þýskaland
Bikarkeppnin, 32-liða úrslit:
Freiburg - Dortmund................................3:0
Hamburger SV - Duisburg.......................2:0
Hansa Rostock - Frankfurt......................1:0
Hoffenheim - Köln.....................................1:5
1860 München - Wolfsburg ......................2:2
1860 áfram eftir vítakeppni.
Oberhausen - Bielefeld .............................1:0
Unterhaching - Union Berlin ...................1:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
Kjörísbikar karla, 8-liða úrslit, síðari leikir:
Grindavík - Tindastóll 88:74
27:26, 52:37, 69:57.
Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 26, Páll
Axel Vilbergsson 20, Helgi Jónas Giðfinns-
son 18, Guðmundur Bragason 13, Jóhann
Þ. Ólafsson 5, Pétur R. Guðmundsson 5,
Nökkvi M. Jónsson 1.
Stig Tindastóls: Clifton Cook 26, Michail
Antropov 17, Kristinn Friðriksson 8, Axel
Kárason 6, Einar Ö. Aðalsteinsson 6, Óli
S.B. Reynisson 6, Maurice Carter 4, Helgi
R. Viggósson 1.
Grindavík áfram, 178:164 samanlagt.
KR - Hamar 100:88
29:23, 49:42, 63:65.
Stig KR: Darrell Flake 32, Óðinn Ásgeirs-
son 19, Skarphéðinn Ingason 13, Magni
Hafsteinsson 10, Arnar Kárason 8, Magnús
Helgason 5, Jóel Sæmundsson 5, Tómas
Hermannsson 4, Steinar Páll Magnússon 4,
Jóhannes Árnason 2.
Stigahæstur Hamars: Svavar Birgisson 26,
Svavar P. Pálsson 19.
KR áfram, 185:170 samanlagt.
Njarðvík - Haukar 97:89
15:17, 29:29, 52:37.
Stigahæstur Njarðvíkinga: Pete Philo 21.
Stigahæstur Hauka: Stevie Johnson 24,
Marel Guðlaugsson 18.
Haukar áfram, 174:150 samanlagt.
Keflavík - Breiðablik 96:92
Keflavík áfram, 216:190 samanlagt.
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Toronto – Chicago .............................109:105
Eftir framlengdan leik.
New York – Milwaukee ........................88:97
New Jersey – Minnesota ....................106:82
Memphis – San Antonio....................101:103
Eftir framlengdan leik.
Dallas – Golden State........................107:100
Phoenix – Detroit ..................................82:84
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Bikarkeppnin, 3. umferð:
Ahlener - N-Lübbecke......................... 25:28
Slóvenía - Ísland 31:22
Vináttulandsleikur kvenna, mánudag:
Mörk Íslands: Hanna Stefánsdóttir 9/5,
Guðmunda Kristjánsdóttir 5, Kristín Guð-
mundsdóttir 2, Dagný Skúladóttir 2,
Hrafnhildur Skúladóttir 2, Inga Fríða
Tryggvadóttir 1, Harpa Melsted 1.
Slóvenía - Ísland 29:24
Vináttulandsleikur kvenna, þriðjudag:
Mörk Íslands: Hanna Stefánsdóttir 7,
Dröfn Sæmundsdóttir 6, Dagný Skúladótt-
ir 4, Hrafnhildur Skúladóttir 3, Guðmunda
Kristjánsdóttir 3, Ragnhildur Guðmunds-
dóttir 1.
Keppt var í tveimur þyngdar-flokkum kvenna og kom fáum á
óvart þegar Fylkiskonan Jónína Ol-
sen sigraði í –57
kílóa og Edda í +57
kílóa flokki. Spennan
var öllu meiri í opn-
um flokki þar sem
Jónína mátti sætta sig við brons því
Arna Steinarsdóttir, Þórshamri,
vann sér inn silfurpening. Í sveita-
keppni vann Þórshamar fyrsta bar-
dagann og Fylkir gaf næsta bardaga
svo að kvennasveit Þórshamars
fagnaði sigri. „Ég átti ekki von á
sigri, það geri ég aldrei,“ sagði Edda
eftir mótið. „Ég hef ákveðna reynslu
fram yfir aðra keppendur en á aldrei
von á sigri. Það eru alvarleg mistök
að hugsa þannig. Þegar og ef það
gerist verð ég að hugsa minn gang.
Það er alltaf bæði andlegur og lík-
amlegur bardagi inni á vellinum og
maður þarf að vera góður í hvoru
tveggja. Það var gaman að fá Jónínu
Olsen í heimsókn frá Danmörku. Það
skapaði spennu því hún er forveri
minn í karate og ég þurfti að takast á
við hana en það var mjög gaman og
setti skemmtilegan svip á mótið að fá
hana hingað. Hún var óþekkt stærð í
mótinu en gaman að sjá hvað okkur
hefur farið fram síðan hún fór. Þetta
var góður undirbúningur fyrir mót í
Tékklandi um næstu helgi og síðan
heimsmeistaramót eftir mánuð.“
Má ekki slá of fast
Alls voru keppendur um fjörutíu,
25 í karlaflokki og 15 konur, svo að
allt besta karatefólk landsins var
mætt í slaginn. Hver bardagi stend-
ur yfir í tvær eða þrjár mínútur, eftir
flokkum en þó skemur ef annar
keppandinn nær fullnaðarsigri, 8
stigum. Gefin eru stig fyrir högg og
spörk, mest er fyrir fléttu af högg-
um, næst fyrir spark í höfuð sem gef-
ur 3 stig og síðan spark í búk, sem
gefur tvö stig. Högg gefa eitt stig.
Engu að síður má ekki slá of fast því
samkvæmt nýlegum alþjóðareglum
gefur of fast högg, svo að sér á kepp-
anda, vítur sem geta leitt til þess að
viðureign tapast. Að sögn læknis,
sem fylgist með keppninni sam-
kvæmt reglum mótsins, var ekkert
um alvarlega pústra og vildi hann
þakka það nýju reglunum.
Varð að sanna að
ég væri betri
Úrslit í þyngdarflokkum karla
voru nokkuð eftir bókinni. Daníel
Pétur Axelsson úr Þórshamri vann í
–65 kílóa flokki, Halldór Svavarsson
Fylki í –73 kílóa, Jón Ingi Þorvalds-
son í –80 og Ingólfur í +80 kílóa
flokki. Í opnum flokki mætti Ingólfur
gríðarlega einbeittur til að endur-
heimta titil sinn og tókst það með
sigri á félaga sínum Sverri Sigurðs-
syni en Jón Ingi mátti sætta sig við
brons. „Jón Ingi vann mig í fyrra í
úrslitaglímu og það kom mörgum á
óvart þá. Jón Ingi er góður og hættu-
legur. Því var ég mjög stressaður,
enda ekki tapað mörgum glímum á
Íslandi undanfarin ár. Ég hef haft
það að tilfinningunni að margir væri
byrjaðir að efast um mig – hafa talið
að ég væri kominn yfir hæðina. Ég
sýndi það nú, að svo er ekki. Það
gerði ég og á auk þess nóg eftir og
ætla að halda þessum titli, það er á
hreinu. Í þessari íþrótt hefur þú
þrjár mínútur til að sýna hvor er
betri og ef maður kemur ekki af full-
um krafti inn á völlinn tapar maður.
Ég varð að sanna það í dag hvor væri
betri og það er ég,“ sagði Ingólfur
eftir mótið og vonandi að sigurinn nú
efli hann fyrir komandi verkefni.
„Nú er heimsmeistaramót framund-
an. Ég hef tvisvar keppt á slíku móti
og náði síðast í 16 manna úrslit. Ég
hef stefnuna á að komast lengra en
hef ekki getað keppt nægilega mikið
erlendis til að hita mig upp, sem er
nauðsynlegt til að halda sér skörp-
um. Þess vegna fer ég inn í heims-
meistaramótið með minni undirbún-
ing en stærra hjarta.“
Ingólfur lagði sitt af mörkum til að
Fylkir nældi sér í sigur í sveita-
keppni. „Það var mikið í húfi í dag.
Fylkir er lítið félag með fáa iðkendur
miðað við til dæmis Þórshamar en
við höfum unnið mjög uppbyggilegt
starf í keppniskarate og einsettum
okkur í haust að fara á Íslandsmót til
að gera jafn vel eða betur en árið áð-
ur. Við unnum liðakeppnina í fyrra
og urðum að sýna nú að það var eng-
in tilviljun. Við vorum með samstillt-
an hóp og skynjuðum öll að það voru
allir að berjast fyrir sig en líka hóp-
inn. Það skiptir máli því þó að karate
sé einstaklingsíþrótt er maður hluti
af heild,“ sagði Ingólfur.
Sveitakeppnin í karlaflokki var
æsispennandi. Ingólfur og Halldór
unnu fyrstu tvo bardagana og næsta
lauk 4-4 jafntefli en í þeim fjórða
hafði Konráð Stefánsson 9-6 sigur
eftir miklar sviptingar þar sem
hvergi var slegið af höggunum.
Ingólfur
kom, sá
og sigraði
ATGANGURINN var harður í Fylkishöllinni á laugardaginn þegar
karatemenn héldu Íslandsmót sitt í kumite, sem er bardagahluti
íþróttarinnar. Það var ekki bara keppt um verðlaunagripi heldur var
spennan mikil þegar kom að sveitakeppninni í lok mótsins því þar
réðst einnig hvaða lið yrði stigahæst. Edda Blöndal úr Þórshamri
varði titilinn í sínum þyngdarflokki, opnum flokki og með stöllum
sínum í sveitakeppni, sem skilaði félaginu mörgum stigum en Fylk-
ismaðurinn Ingólfur Snorrason sigraði einnig í sínum þyngdarflokki
og í sveitakeppni auk þess að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn í
opnum flokki úr höndum Jóns Inga Þorvaldssonar úr Þórshamri.
Þegar upp var staðið urðu Fylkismenn stigahæstir í fyrsta sinn í
sögu félagsins en hingað til hafa einungis tvö félög náð því.
Ingólfur Snorrason og Edda Blöndal með verðlaunagr
Stefán
Stefánsson
skrifar
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson,
landsliðsmarkvörður í handknatt-
leik, lék ekki með liði sínu, Con-
versano, um síðustu helgi þegar
það vann Trieste, 29:25 á útivelli, í
ítölsku 1. deildinni í handknattleik.
Þetta var fimmti leikurinn á leiktíð-
inni sem Guðmundur hlýtur ekki
náð fyrir augum þjálfara síns og er
látinn fylgjast með leiknum úr
áhorfendastúkunni. Guðmundur
hefur aðeins staðið í marki Con-
versano í tveimur leikjum af sjö í
deildinni til þessa. Hann lék fyrstu
þrjá leiki íslenska landsliðsins á
heimsbikarmótinu í Svíþjóð í síð-
ustu viku en hélt á föstudaginn til
Ítalíu til liðs við félaga sína
vegna leiksins við Trieste
sem hann fékk svo ekki að
taka þátt í. Sex útlendingar
eru á mála hjá félaginu um
þessar mundir en aðeins má
tefla fram fimm útlendingum í
hverjum leik og því hefur þjálf-
ari Conversano oftar en ekki
tekið þann kostinn að nota
ítalska markverði og nýta út-
lenda leikmenn liðsins til þess að
styrkja sóknarleikinn. Liðið er í
efsta sæti deildarinnar, hefur unn-
ið sex af sjö leikjum sínum til
þessa og hefur 18 stig en veitt
eru þrjú stig fyrir sigur.
Guðmundur
lék ekki með
Conversano
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Guðmundur Hrafn-
kelsson landsliðs-
markvörður fær fá
tækifæri á Ítalíu.
AUÐUN Helgason, knattspyrnu
maður, sem á dögunum fékk si
lausan frá belgíska félaginu
Lokeren, er þessa dagana stad
í Svíþjóð þar sem hann er til
reynslu hjá sænska úrvalsdeild
arliðinu Halmstad. Auðun verð
við æfingar hjá Halmstad út vi
una og eftir það kemur í ljós
hvort honum verður boðinn sam
ingur.
Jonas Thern, þjálfari Halmst
sem á sínum tíma gerði garðin
frægan með sænska landsliðinu
segir í viðtali við Expressen að
Auðun sé áhugaverður leikmað
„Hann er með góða tækni og
hefur getu til að spila bæði sem
bakvörður og miðvörður,“ segi
Auðun
hjá Ha
ÍÞRÓTTIR
Herrakvöld Fram
verður haldið föstudaginn 8. nóvember í
íþróttahúsi Fram við Safamýri kl. 20.
Ræðumaður kvöldsins er Jón Steinar
Gunnlaugsson, veislustjóri Sigurður Tóm-
asson og Karl Ágúst Úlfsson skemmtir.
FÉLAGSLÍF
ÚRSLIT