Morgunblaðið - 06.11.2002, Side 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 2002 C 3
NJARÐVÍKINGAR, sem sigruðu í
Kjörísbikarnum í fyrra, féllu úr
keppninni í gærkvöldi þegar þeir
töpuðu fyrir Haukum. KR, Grinda-
vík og Keflavík eru einnig komin í
undanúrslit keppninnar.
Njarðvíkingar tóku á móti Hauk-
um í síðari leik liðanna í átta liða úr-
slitum keppninnar í Ljónagryfjunni í
gærkvöldi. Haukar lögðu Njarðvík-
inga í fyrri leiknum með átta stigum
og í gærkvöldi urðu lokatölur 77:61
fyrir gestina úr Hafnarfirði. Stevie
Johnson gerði 24 stig fyrir Hauka og
Marel Guðlaugsson 18 en hjá heima-
mönnum var Pete Philo með 21 stig.
Grindavíkingar og Tindastóll
gerðu 90:90 jafntefli í fyrri leiknum á
Sauárkróki en í gærkvöldi voru það
heimamenn í Grindavík sem höfðu
betur, 88:74. Darrel Lewis fór mik-
inn í liði Grindavíkinga, gerði 26 stig
eins og Clifton Cook gerði fyrir
Tindastól.
KR lagði Hamar í heimabæ Kjör-
íss, Hveragerði í fyrri leiknum, 85:82
og í gærkvöldi höfðu KR-ingar aftur
betur og sigruðu 100:88. Nafnarnir
Svavar Birgisson og Pálsson voru at-
kvæðamestir, sá fyrrnefndi gerði 26
stig og sá síðarnefndi 19.
Loks tryggðu Keflvíkingar sér
áframhald í keppninni með því að
leggja Breiðablik 96:92 en Keflavík
vann með 22 stiga mun í fyrri leikn-
um.
Konráð stóð einnig fyrir sínu, mikill
keppnismaður og langelstur keppenda 45
ára gamall. Hann fékk silfur í –80 kílóa
flokki en hampaði gulli í sveitakeppninni
með félögum sínum í Fylki.
Ákveðinn í að hætta
„Ég æfi að jafnaði þrisvar í viku en er
nú ákveðinn í að hætta. Ég er kominn í
þannig vinnu að það er erfitt fyrir mig að
æfa mikið á kvöldin og af því ég kominn á
þennan aldur verð ég að æfa þrefalt á við
aðra. Ég hef æft í tuttugu ár en byrjaði
tuttugu og fimm ára, einmitt á aldri þeg-
ar maður ætti að vera hætta að keppa.
Læknar hafa sagt mér að það gæti skýrt
hvers vegna það hefur verið svona lítið
um meiðsli hjá mér á ferlinum, sér-
staklega varðandi álagsmeiðsli,“ sagð
Konráð og víst að sjónarsviptir verður að
honum – ef hann mætir þá ekki galvaskur
að ári.
með gull
DAVID O’Leary, hefur verið orð-
aður við starf Micks McCarthys sem
landsliðsþjálfara Írlands. Hann
sagði hins vegar í gærkvöldi eftir að
ljóst varð að McCarthy myndi hætta
að hann hefði ekki áhuga á starfinu.
„Einhvern tíma langar mig að þjálfa
landslið heimalandsins en ekki núna.
Mér finnst svo gaman að vera í þessu
daglega stússi sem fylgir því að vera
hjá félagsliði,“ sagði fyrrverandi
knattspyrnustjóri Leeds.
ÞAÐ kom fyrir lítið þó Kevin
Keegan stillti upp svo til sínu sterk-
asta liði í deildabikarkeppninni
ensku í gær þegar Manchester City
heimsótti Wigan. Allt kom fyrir ekki
annarrardeildarliðið náði að skora
eitt mark en strákarnir hans Keeg-
ans ekkert.
DAVID Beckham afþakkaði fríið
sem United ætlaði að gefa honum
vegna atburða helgarinnar við heim-
ili þeirra hjóna. Hann skoraði fyrra
mark United sem lagði Leicester 2:0
úr víti tíu mínútum fyrir leikslok og
Kieran Richardson gerði síðara
markið á síðustu mínútunni.
JOE Royle, nýr knattspyrnustjóri
Ipswich sem Hermann Hreiðarsson
leikur með, leitar nú logandi ljósi að
framherja til láns, en mikil afföll
hafa orðið á sóknarmönnum liðsins
upp á síðkastið, bæði vegna meiðsla
og leikbanns.
GARY Megson, knattspyrnustjóri
WBA, segir það vera mestu áskorun
sem hann hafi tekist á við í lífinu að
tryggja félaginu áframhaldandi veru
í ensku úrvalsdeildinni.
ANDREI Shevchenko fer ekki til
Manchester United, en hann hefur
lengi verið undir smásjánni hjá Alex
Ferguson sem nú er sagður ætla að
kaupa sóknarmann þegar leik-
mannamarkaðurinn opnast í byrjun
nýs árs. Shevchenko mun hafa rætt
við Andrei Kanchelskis sem lék í
eina tíð undir stjórn Fergusons hjá
Manchester. Ljóst er að Kanchelsk-
is hefur ekki borið Ferguson vel sög-
una því Shevchenko missti allan
áhuga á að fara frá AC Milan til
enska liðsins að því loknu.
NICOLAS Anelka er enn og aftur
orðinn til vandræða. Nú hefur hann
lent upp á kant við Kevin Keegan,
knattspyrnustjóra Manchester City,
eftir að Keegan meinaði honum að
taka þátt í góðgerðarleik í Nimes í
Frakklandi á mánudaginn.
KEEGAN sagði það ekki koma til
greina að Anelka tæki þátt í leikn-
um, hann yrði að vera sprækur og
klár í deildabikarleik með Manchest-
er-liðinu gegn Wigan sem fram fór í
gærkvöldi. Anelka er mjög ósáttur
við ákvörðun Keegans og sendir
honum tóninn á heimasíðu sinni á
Netinu.
FÓLK
Þróttur og Haukar hyggjasttefla fram tveimur sameigin-
legum liðum á næsta tímabili, einu
í úrvalsdeild og einu í 1. deild. Þau
sendu KSÍ ósk um að leika undir
nafninu Þróttur/Haukar í úrvals-
deildinni og Haukar/Þróttur í 1.
deildinni. Halldór B. Jónsson,
varaformaður KSÍ og formaður
mótanefndar sambandsins, sagði
við Morgunblaðið í gærkvöld að
beiðni félaganna um að senda sam-
eiginleg lið í báðar deildirnar hefði
verið samþykkt.
Heimilt að senda tvö
lið frá sama félagi
„Við fengum einnig beiðni frá
Breiðabliki um að fá að senda
aukalið í 1. deild kvenna og á þetta
hefur mótanefnd fallist. Þróttur/
Haukar og Breiðablik geta því
sent lið bæði í Símadeild og í 1.
deild næsta sumar, og sama gildir
um öll önnur félög í Símadeild
kvenna. Ég á hinsvegar von á að
um undanþáguákvæði verði að
ræða, með það að markmiði að
auka breiddina í kvennaknatt-
spyrnunni. Það er eftir að setja
upp nánari reglur um þetta en ég
býst við því að félagaskipti á milli
liðanna verði á svipuðum nótum og
í fyrra þegar venslasamningar
voru leyfðir á milli liða í efri og
neðri deildum,“ sagði Halldór B.
Jónsson.
Íris Björk hefur þegar stjórnað
fyrstu æfingunum hjá hinu nýja
úrvalsdeildarliði. „Þetta er stór
leikmannahópur, yfir 30 stúlkur,
og verkefnið er mjög spennandi.
Með þessu fá sterkustu leikmenn
félaganna tækifæri til að spila í
efstu deild á meðan efnilegar
stúlkur í þeim öðlast reynslu með
því að leika í 1. deildinni. Ég tel að
þetta sé kvennaknattspyrnunni
mjög til framdráttar,“ sagði Íris
Björk við Morgunblaðið.
Þróttur og
Haukar með tvö
sameiginleg lið
ÞRÓTTUR í Reykjavík og Haukar í Hafnarfirði hafa gengið frá samn-
ingum sín á milli um að sameina meistaraflokka sína í knattspyrnu
kvenna. Jafnframt hefur Íris Björk Eysteinsdóttir verið ráðin þjálf-
ari hins nýja liðs til tveggja ára en hún var þjálfari og leikmaður
Þróttar sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni í haust eftir baráttu við
Hauka. Ekki er um hefðbundna samvinnu tveggja félaga að ræða
því þau ætla eftir sem áður að senda tvö lið til keppni næsta sumar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ripina sem þau tryggðu sér á Íslandsmótinu í kumite.
ÍSLENSKIR fimleikamenn
verða í eldínunni á Norður-
Evrópumótinu sem haldið
verður í Stokkhólmi um
næstu helgi. Valin hefur ver-
ið tíu manna keppnissveit til
fararinnar. Kvennasveitin er
skipuð Sif Pálsdóttur, Birtu
Benónýsdóttur, Ingu Rós
Gunnarsdóttur, Hörpu Snæ-
dísi Hauksdóttur og Krist-
jönu Sæunni Ólafsdóttur.
Þetta er ungt lið sem sést
best á því að Harpa er fædd
árið 1989 og Kristjana Sæ-
unn tveimur árum síðar.
Elst er Inga Rós, fædd árið
1985. Þess má geta að Tanja
B. Jónsdóttir var valin í liðið
en hún fótbrotnaði fyrir
stuttu og var þá Kristjana
kölluð inn í sveitina í hennar
stað.
Karlasveitin er skipuð
þeim Rúnari Alexanders-
syni, Grétari K. Sigþórssyni,
Antoni H. Þórólfssyni, Jón-
asi Valgeirssyni og Gunnari
Sigurðssyni.
Þjálfarar hópsins eru Ás-
dís B. Pétursdóttir, Björn M.
Tómasson og Mati Kirmes,
sem er einkaþjálfari Rúnars.
Þá taka tveir íslenskir
dómarar einnig þátt í mót-
inu, þau Bryndís Guðmunds-
dóttir og Heimir J. Gunnars-
son.
Fimleikafólk
á faraldsfæti
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Rúnar Alexandersson býr sig undir keppni á tvíslá.
u-
ig
dur
d-
ður
k-
mn-
tad,
n
u,
ð
ður.
g
m
ir
Thern en lærisveinar hans höfn-
uðu í sjötta sæti í sænsku úrvals-
deildinni sem lauk í liðinni viku.
Auðun, sem er 28 ára gamall og
á að baki 27 leiki með íslenska A-
landsliðinu, var á dögunum til
reynslu hjá AaB í Danmörku og
æfði þar undir stjórn síns gamla
þjálfara hjá Viking Stavanger,
Poul-Erik Andreassen.
„AaB er góður kostur en fyrst
vil ég láta á það reyna hvernig
mér tekst upp hér hjá Halmstad í
þessari viku. Ég hef sett mér það
markmið að komast í landsliðið að
nýju og ef það á að takast verð ég
að komast að hjá góðu liði sem
spilar í efstu deild,“ segir Auðun í
samtali við Hallandsposten.
til reynslu
almstad
Meistarar
fallnir út
SVISSNESKA félagið Basel styrkti
stöðu sína í meistaradeild Evrópu í
knattspyrnu í gærkvöld með því að
sigra Spartak í Moskvu, 2:0. Þar með
dugir Basel jafntefli gegn Liverpool
á heimavelli í hreinum úrslitaleik lið-
anna í lokaumferð riðlakeppninnar
næsta þriðjudag. Leikurinn í
Moskvu átti að fara fram síðasta
miðvikudag en var þá frestað vegna
gíslatökunnar í borginni.
Valencia hefur þegar unnið riðil-
inn og er með 13 stig en Basel er með
8 stig og Liverpool 7.
Það voru tveir Argentínumenn í
liði Basel sem tryggðu því þennan
dýrmæta sigur. Hernan Rossi skor-
aði snemma leiks og Christian Gim-
inez, sem leysti hann af hólmi um
miðjan síðari hálfleik, gerði síðara
markið rétt fyrir leikslok.
Frammistaða svissneska liðsins í
keppninni hefur komið mjög á óvart
en fyrirfram var talið að Valencia og
Liverpool færu auðveldlega áfram
úr B-riðlinum. Nú er pressan hins-
vegar á enska liðinu sem þarf að
knýja fram sigur á hinum glæsilega
heimavelli Basel, St. Jakobs Park,
næsta þriðjudag.
Basel
í góðri
stöðu