Morgunblaðið - 06.11.2002, Síða 4
FÓLK
TRONDHEIMS-Ørn varð á laugar-
dag norskur bikarmeistari kvenna-
liða í knattspyrnu er það lagði Arna-
Bjørnar á Ullevaal-vellinum, 4:3, í
framlengdum leik.
ENGLENDINGURINN Ian
Poulter sigraði á opna ítalska meist-
aramótinu í golfi í Róm. Þetta er í
annað sinn á sl. þremur árum sem
hann vinnur mótið. Poulter var í efsta
sæti frá fyrsta keppnisdegi þar sem
hann lék á 61 höggi en hann lauk leik
á 19 undir pari.
ÞESS má geta að Poulter, 26 ára,
fór holu í höggi á laugardag og er það
í þriðja sinn sem hann afrekar það á
móti hjá atvinnumönnum. Poulter lék
lokhringinn á 70 höggum en hann
fékk harða keppni frá Skotanum Paul
Lawrie, en hann fór illa að ráði sínu á
lokaholu dagsins og var tveimur
höggum á eftir Poulter.
BANDARÍSKA ólympíunefndin
hefur ákveðið að New York muni
sækjast eftir að halda Ólympíuleik-
ana árið 2012, en valið stóð á milli
New York og San Francisco. Borg-
aryfirvöld í New York hafa lagt fram
áætlanir sem tryggja það að allar
keppnisgreinar stærsta íþróttavið-
burðar heims verði innan borgar-
markanna. Næstu sumarleikar verða
árið 2004 í Aþenu og fjórum árum síð-
ar í Peking í Kína.
DIMITRI Filippov, fyrrverandi
leikmaður Stjörnunnar í handknatt-
leik, hefur ákveðið að ganga til liðs við
þýska 2. deildar liðið SV Anhalt
Bernburg en hann leikur nú um
stundir með keppinauti þess HC
Empor Rostock. Samningur hans við
Rostock-liðið rennur út í desember.
Þess má geta að þjálfari liðsins er
Lothar Doering, forveri Alfreðs
Gíslasonar í stól þjálfara Magdeburg.
GHENADI Khalepo, félagi Ró-
berts Sighvatssonar og Sigurðar
Bjarnasonar hjá þýska handknatt-
leiksliðinu Wetzlar, hefur verið úr-
skurðaður í sex mánaða leikbann, en
hann kastaði bolta í dómara eftir
33:17 tap fyrir Gummersbach á dög-
unum. Bannið er mikið áfall fyrir
Wetzlar sem ekki hefur vegnað of vel
á leiktíðinni en Khalepo er einn besti
leikmaður liðsins. Enginn hefur verið
úrskurðaður í lengra keppnisbann til
í þýskum handknattleik.
ÞÁ var Velimir Petkovic, þjálfari
Wetzlar, úrskurðaður í þriggja leikja
bann fyrir að missa stjórn á sér við
mótmæli.
ROY Keane, fyrirliða Manchester
United, hefur gengið illa að fá sig góð-
an af meiðslum í mjöðm en leikmað-
urinn gekkst undir aðgerð vegna
þeirra í september. Alex Ferguson,
stjóri United, var að vonast til þess að
gera teflt fyrirliða sínum fram í leik á
móti Leverkusen í Meistaradeildinni
í næstu viku en nú segja læknar að
Keane verði að fara hægt í sakirnar
og ekki sé hægt að búast við því að
hann verði klár í slaginn fyrr en í jan-
úar.
MICK McCarthy, landsliðsþjálfari
Íra í knattspyrnu, sagði starfi sínu
lausu í gær. Írar hafa tapað tveimur
fyrstu leikjum sínum í undankeppni
EM og skapaðist óeining um störf
McCarthys af þeim sökum og eins um
viðskilnað Roy Keane við landsliðið
en eins og frægt lentu hann og lands-
liðsþjálfarinn í harkalegum deilum
fyrir HM í sumar.
TEAM Bath tókst að tryggja sér
sæti í ensku bikarkeppninni í knatt-
spyrnu hvar það mætir Mansfield í
fyrstu umferð 16. eða 17. nóvember.
Það væri svo sem ekki í frásögur
færandi nema sökum þess að Team
Bath er fyrsta skólaliðið sem kemst í
keppnina í 122 ár eða allt frá því að
skólalið Oxford og Cambridge tóku
þátt í henni leiktíðina 1879/1880,
reyndar komst Oxford-liðið alla leið
í úrslit vorið 1880 en tapaði þá fyrir
Clapham Rovers í úrslitaleik.
Team Bath vann sér keppnisrétt í
bikarkeppninni með því að vinna
áhugamannaliðið Horsham í fjórðu
umferð sérstakrar undankeppni.
Viðureignin fór fram á heimaveli
Team Bath að viðstöddum 1.581
tryggum stuðningsmanni liðsins.
Eftir heðfbundinn leiktíma og fram-
lengingu var jafnt, 1:1, en leikmenn
Team Bath höfðu heppnina með sér
í vítaspyrnukeppni sem þeir unnu,
4:2.
Leikmenn Team Bath ætla sér
lengra í keppninni og telja ekki úti-
lokað að komast í aðra umferð bik-
arkeppninnar því Mansfield hafi
ekki náð sér á strik í deildarkeppn-
inni og sé nú í neðsta sæti 2. deildar.
Skólalið
í bikar-
baráttu
Að sögn Viggós Sigurðssonar,þjálfara Hauka, fer hann með
sveit sína í flugi til Parísar á föstu-
daginn og að því loknu tekur við níu
stunda bið eftir flugi til Napolí. Frá
Napolí liggur leið Haukamanna til
Conversano og er áætlað að sú ferð
taki um fimm tíma. Það er því ljóst
að liðið verður ekki komið á áfanga-
stað fyrr en aðfaranótt laugardags.
Leikurinn hefst síðan síðdegis á
sunnudag og að honum loknum verð-
ur stutt hvíld áður en haldið verður á
ný til Napolí. „Við megum ekki
leggja seinna af stað til Napolí með
rútu en klukkan eitt eftir miðnætti
aðfaranótt mánudags til þess að ná
flugi frá Napolí til Parísar árdegis á
mánudag,“ sagði Viggó og bætti því
að Haukar hefðu óskað eftir frestun
á leik sínum við FH sem fram á að
fara á miðvikudeginum, tveimur sól-
arhringum eftir að heim verður kom-
ið. „Það stendur í mönnum að fresta
leiknum, en það verður gert. Ef ná
skal árangri í Evrópukeppni þá verð-
ur að koma til móts við þá sem taka
þátt í henni,“ sagði Viggó.
Fjölþjóðlegt lið Conversano
Viggó sagði að illa hefði gengið að
afla upplýsinga um Conversano en
úr væri að rætast. „Ég hef beðið í
tvær vikur eftir spólu með upptöku
af leik liðsins og bíð enn,“ sagði
Viggó í gær þar sem hann beið þess
að sjá útsendingu frá ítalskri sjón-
varpsstöð í gegnum móttökudisk
sinn, en stöðin ætlaði að sýna upp-
töku frá leikjum í ítalska handknatt-
leiknum sem fram fóru um síðustu
helgi.
„Það er þó alveg ljóst að við mæt-
um ekki dæmigerðu ítölsku hand-
knattleiksliði heldur nokkuð sterku
fjölþjóðlegu liði sem er mjög öflugt,“
sagði Viggó og benti á í liði Convers-
ano leika sex útlendingar og þeir
gæfu því annan blæ en venjulega
væri á ítölsku handknattleiksliðum.
„Það verður við raman reip að draga
hjá okkur,“ sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka.
Síðari leikur Hauka og Convers-
ano verður háður á Ásvöllum laug-
ardaginn 16. nóvember.
Morgunblaðið/Þorkell
Robertas Pauzuolis leikur Evrópuleikinn með Haukum á Ítalíu.
Strangt ferða-
lag hjá Haukum
LÖNG og ströng ferð er framundan hjá handknattleiksmönnum
Hauka sem leika á sunnudaginn við ítalska liðið Conversano í þriðju
umferð Evrópukeppni bikarhafa ytra. Þetta er fyrri leikur liðanna.
Selfyssingar áfrýja í Pauzuolis-málinu
HANDKNATTLEIKSDEILD Selfoss hefur áfrýjað
til áfrýjunarnefndar HSÍ niðurstöðu dómstóls HSÍ
frá síðasta föstudegi en þá ákvað dómstóllinn að
veita Robertas Pauzuolis leikheimild með Haukum
en hann ákvað í sumar að yfirgefa herbúðir Sel-
fyssinga. Við þá ákvörðun Pauzuolis sættu Selfyss-
ingar sig ekki þar sem þeir töldu hann með samn-
ing við félagið. Síðan hefur málið þvælst frá
Heródesi til Pílatusar og til baka aftur.
Reiknað er með að áfrýjunarnefndin taki málið
fyrir í næstu viku og geti að þessu sinni afgreitt
það en síðast var því vísað heim vegna formgalla.