Morgunblaðið - 20.12.2002, Qupperneq 4
FÓLK
OWEN Hargreaves, enski lands-
liðsmaðurinn í knattspyrnu, hefur
framlengt samning sinn við Bayern
München til ársins 2006, en hann
hefur verið orðaður við Liverpool
og Arsenal.
KNATTSPYRNUSAMBAND
Evrópu, UEFA, hefur úrskurðað
Craig Bellamy, leikmann New-
castle, í þriggja leikja bann vegna
brottreksturs hans gegn Inter í
meistaradeild Evrópu fyrir
skömmu. Bellamy hefur þegar tek-
ið út einn leik í banni, og verður
ekki með í leikjum Newcastle gegn
Leverkusen sem fram fara í febr-
úar. Bellamy tók einnig út þriggja
leikja bann í keppninni fyrr í
haust.
ROBERT Pires, leikmaður Ars-
enal, telur ekki líklegt að Liver-
pool verði enskur meistari í vor.
Pires segir að keppnin muni tví-
mælalaust standa á milli Arsenal,
Manchester United, Chelsea og
Everton.
FORRÁÐAMENN Barcelona
segja ekkert vera hæft í fréttum
enskra fjölmiðla um að félagið
hyggist kaupa Paul Robinson,
markvörð Leeds, þegar opnað
verður fyrir leikmannamarkaðinn
eftir áramót.
FORRÁÐAMENN enska knatt-
spyrnuliðsins Aston Villa hafa beð-
ið stuðningsmenn liðsins afsökunar
á töfinni sem varð á leik liðsins
gegn Liverpool í Worthington bik-
arkeppninni í gær en leiknum var
seinkað um 80 mínútur.
UM 17 þúsund áhorfendur voru
fyrir utan Villa-Park kl. 19.45 í
fyrradag þegar leikurinn átti að
hefjast. Fyrirtækið sem sér um að
selja miða á völlinn fyrir Villa
hafði ekki sent miðana sem keyptir
voru í forsölu til þeirra sem keyptu
þar sem óttast var að miðarnir
kæmust ekki til skila á réttum
tíma, en gríðarlegt álag er á póst-
þjónustu á Englandi. Enska knatt-
spyrnusambandið hefur farið fram
á rannsókn á atvikinu en aðeins má
selja 500 miða á leiki Villa á sjálf-
um vellinum.
RALF Rüssmann, framkvæmda-
stjóra Stuttgart, var óvænt sagt
upp starfi sínu í gær, en hann átti
eitt ár eftir af samningi sínum.
Rüssmann kom til félagsins fyrir
tæpum tveimur árum og tók þá við
afar þröngu búi þar sem fjárhagur
félagsins var í molum. Þrátt fyrir
þrengingar hefur Rüssmann tekist
ásamt þjálfaranum Felix Magath
að byggja upp ungt og gott lið hjá
Stuttgart sem nú er í fimmta sæti
þýsku úrvalsdeildarinnar og í
fjórðu umferð UEFA-keppninnar.
Stjórnarmenn Stuttgart töldu sig
ekki ekki lengur geta unnið með
Rüssmann og því var honum sagt
upp.
SKOTINN Colin Montgomerie
hefur sagt að hann hafi hug á því
að verða fyrirliði Ryder-liðs Evr-
ópu árið 2006 þegar keppnin fer
fram á Írlandi. Montgomerie segir
við BBC að hann hafi nú þegar tal-
að við áhrifamenn innan evrópska
golfsambandsins um málið og geri
sér grein fyrir því að keppnin um
fyrirliðastöðuna geti verið hörð.
„Ég ætla ekki að stíga á tærnar á
neinum en þetta er verkefni sem
ég hef áhuga á að taka að mér,“
segir Montgomerie.
ÁSTRALSKI knattspyrnumark-
vörðurinn Mark Bosnich, sem verið
hefur á mála hjá Chelsea, gæti átt
yfir höfði sér þunga refsingu þar
sem B-sýni hans reyndist einnig já-
kvætt. Sýnin tvö taka af allan vafa
um að Bosnich hafi neytt kókaíns í
einhvern tíma. Eftir að niðurstaða
úr A-sýni hans var gerð opinber
fór hann á stofnun fyrir þunglynda
og dvelur þar nú um stundir.
FYRSTA æfing íslenska landsliðs-
hópsins í handknattleik í loka-
undirbúningi liðsins fyrir HM í
Portúgal verður 23. desember og
verður leikið gegn „pressuliði“
laugardaginn 28. des. Hinn 4. jan-
úar á næsta ári verður fyrsti leik-
ur liðsins af þremur gegn liði
Slóveníu hér á landi í Laug-
ardalshöll en 5. og 7. janúar
verður leikið í Kaplakrika.
Leikið verður í Danmörku á
fjögurra landa móti, 10.–12. jan-
úar, gegn Pólverjum, Dönum og
Egyptum. Haldið verður að
kveldi 12. janúar til Íslands á ný.
Svíar verða mótherjar Íslands
hinn 16. janúar í Landskrona í
Svíþjóð og verður það lokaleikur
liðsins fyrir keppnina sem hefst
20. janúar þegar liðið mætir
Ástralíu. Daginn eftir er leikið
gegn Grænlendingum, hinn 23.
gegn Portúgal, Quatar 25. janúar
og Þýskalandi hinn 26. Milliriðl-
arnir hefjast 29. janúar.
Lokaprófið í Svíþjóð
Við byrjuðum okkar undirbúningviku fyrr fyrir EM, en við því er
ekkert að gera, þetta er bara
svona,“ sagði Guð-
mundur og bætti við
að ekki væru leiknir
æfingaleikir á milli
jóla og nýárs líkt og fyrir EM. „Það
er auðvitað ekki það sem við stefnd-
um að en við leikum gegn „pressu-
liði“ í staðinn og fáum síðan lið Slóv-
eníu í upphafi janúar. Slóvenar eru
verðugur andstæðingur og eru að
mörgu leyti líkir Portúgal í leikstíl
sínum. Í þessum þremur leikjum á
ég von á því að margir leikmenn fái
að spreyta sig og þar munum við sjá
hvernig staðan er á mönnum. Vissu-
lega verða æfingarnar margar á
þessu tímabili en þar munum við
leggja áherslu á leikfræðileg atriði í
sambland við „þéttar“ æfingar þar
sem menn þurfa að taka aðeins á
því.“
Þarf að finna
réttu blönduna
Guðmundur sagði það vera vanda-
verk að finna rétta blöndu af æfing-
um sem efla þol og atgervi leik-
manna í slíkum undirbúningi.
„Flestir okkar leikmanna búa við
það að vera undir miklu álagi með
sínum félagsliðum. Það er okkar
verkefni að halda þeim á tánum án
þess að álagið verði of mikið.“
Íslenska liðið tekur þátt í fjögurra
landa móti í Danmörku 10.–12. jan-
úar þar sem leikið verður gegn Pól-
verjum, Dönum og Egyptum. „Þar
fáum við að glíma við góð lið sem
mörg hver leika á svipaðan hátt og
Þjóðverjar, Portúgal og Quatar.
Danir eru með mjög sterkt lið, skip-
að leikmönnum að mestu úr þýsku
deildinni. Þeir leika 6/0 vörn líkt og
Þjóðverjar. Það sama má segja um
Pólverja en aftur á móti geta Egypt-
ar farið í sama ham og við getum bú-
ist við af liði Quatar á HM. Ég veit
ekki mikið um Ástralíu eða Græn-
land á þessari stundu en það er deg-
inum ljósara að í þeim leikjum þarf
kollurinn að vera í lagi hjá leik-
mönnum liðsins.“
Að loknu mótinu í Danmörku
heldur íslenska liðið til Íslands í þrjá
daga og verður flogið á ný til Kaup-
mannahafnar og farið yfir til Sví-
þjóðar til að leika gegn Svíum í
Landskrona. „Ferðalagið er stutt og
um Svía þarf ekki að segja margt.
Þar sjáum við svart á hvítu hvar við
stöndum.“
Guðmundur sagði að íslenska liðið
mætti búast við ýmsu á HM sem
hefði gefist vel á EM í Svíþjóð.
„Við getum átt von á því að lokað
verði á hraðaupphlaupin sem við
höfum notað mikið, þar sem knett-
inum er leikið í gegnum þá Ólaf
Stefánsson og Patrek Jóhannesson.
Við erum með ákveðnar lausnir í
huga fari svo að liðin „pressi“ á
sendingu markvarðar á þá Ólaf og
Patrek. Í öðru lagi megum við búast
við því að Ólafur Stefánsson verði
tekinn úr umferð. Það á ekki að
koma okkur á óvart þegar við mæt-
um til leiks í Portúgal og á næstu
vikum förum við ítarlega í gegnum
lausnir sem við getum notað ef þess-
ar stöður koma upp. En við getum
þakkað góðri og vel skipulagðri vörn
árangur okkar hingað til og hraða-
upphlaupin verða ekki til ef þann
þátt vantar.Vörnin verður því stór
þáttur í okkar undirbúningi og má
aldrei gleymast.“
Guðmundur vildi ekki segja hver
markmið íslenska liðsins væru fyrir
HM, allavega ekki á þessum tíma-
punkti. „Við eigum eftir að hittast
sem hópur og þar tökum við okkar
stefnu, hvert við ætlum okkur að
fara á HM og ekki síst hvernig við
ætlum að gera það og með hvaða að-
ferðum. Markmiðssetning er sam-
suða margra þátt og ég vil að leik-
menn liðsins verði með í þeirri
umræðu frá upphafi,“ sagði Guð-
mundur.
Það er að mörgu að hyggja á stór-
móti sem þessu og á EM fyrr á
þessu ári var Guðmundur á öllum
vígstöðvum dag og nótt. „Ég sat
mikið yfir efni frá öðrum liðum sem
til var á myndbandsspólum. Að
þessu sinni fæ ég aðstoðarmann með
mér í þessa hluti, en það er Gunnar
Magnússon. Við erum að reyna að
efla okkar þekkingu á þessu sviði,
afla upplýsinga um næstu mótherja
og afgreiða þá hluti á fagmannlegan
hátt með aðstoð tölvuforrita. Að
auki búum við vel hvað huglæga
þáttinn varðar. Jóhann Ingi Gunn-
arsson er formaður landsliðsnefndar
og við höfum fengið aðstoð frá hon-
um af og til. Þessi þáttur er afar
mikilvægur á stórmóti sem þessu en
ég finn að leikmenn liðsins eru það
miklir atvinnmenn í dag að það er
mjög auðvelt að vinna með þá á
þessu sviði. Menn eru einbeittir yfir
því verkefni sem er í gangi þessa
stundina og eru ekki að láta hugann
reika til Portúgals á meðan við erum
að leika gegn Slóveníu.“
Að venju er það mikið púsluspil að
finna æfingatíma fyrir landsliðið í
undirbúningi sem þessum og sagði
Guðmundur að hann ýtti þeim snjó-
bolta aðeins á undan sér. „Félagslið-
in eru okkur innan handar en það er
ekki hægt að skipuleggja þennan
þátt í þaula þar sem ýmislegt kemur
uppá. Hinsvegar tekst okkur alltaf
að finna stað og stund til að æfa en
oftar en ekki er það gert á síðustu
stundu. Þetta er líklega einstakt hjá
landsliði að þurfa að standa í slíku
en við því er ekkert að gera úr
þessu,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, kallar
sína menn saman þrisvar á dag yfir hátíðarnar í HM-undirbúningi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, er að hefja undirbúninginn fyrir HM í Portúgal.
Okkar að halda
mönnum á tánum
UNDIRBÚNINGUR íslenska landsliðsins í handknattleik fyrir Heims-
meistarakeppnina í Portúgal hefst af fullum krafti á Þorláksmessu,
þar sem 26 manna landsliðshópur mun koma saman allt að tvisvar
á dag um hátíðarnar. Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfari liðsins
sagði að liðið hefði haft aðeins rýmri tíma fyrir ári er undirbúning-
urinn hófst fyrir Evrópumeistaramótið í Svíþjóð, sem fór fram í lok
janúar og byrjun febrúar á þessu ári.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar