Morgunblaðið - 07.02.2003, Page 1
F Ö S T U D A G U R 7 . F E B R Ú A R 2 0 0 3 B L A Ð B
LITLI NEYTANDINN/2 SJÖ HÖNNUNARVERÐLAUN FÍT/4
SANNLEIKURINN SAGNA BESTUR? – AÐ SEGJA EÐA EKKI SEGJA/6
LÍKAMSRÆKT OG MANNGERÐIRNAR/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
ÞRÓUNIN í fjarskiptum tekur á sigmargvíslegar myndir. Eitt nýjasta af-brigðið, a.m.k. hérlendis, er bók-
staflegt spjall á PoppTíví, sem líður áfram á
um fjórðungi skjásins frá klukkan ellefu á
kvöldin til sjö á morgnana. Á sama tíma og
með sama hætti er líka lagakosning í beinni,
en þannig geta áhorfendur haft áhrif á hvaða
tónlist er leikin á sjónvarpsrásinni.
Þátttakendur verða að eiga eða hafa að-
gang að gsm-síma. Í fyrsta skipti senda þeir
inn sms-forskeytið POPP NAFN í þjónustu-
númer 1848 hjá Símanum eða í 1415 hjá Tali.
Síðan nafnið, sem þeir kjósa að
nota í spjallinu, þá sms-
forskeytið POPP SPJALL og
loks skilaboðin, sem birtast eiga
á skjánum. Ef þeir ætla að kjósa
lag, senda þeir inn forskeytið
POPP LAG og síðan númer lags-
ins, sem þeir finna á sjónvarpsskjánum. Sé
síminn frá Íslandssíma þarf að fara inn í
gluggann NÝTT og viðhafa að öðru leyti
sams konar aðferðir.
Að sögn Steins Kára Ragnarssonar, dag-
skrárstjóra PoppTíví, er svona útfærsla vel
þekkt erlendis og allmargar sjónvarps-
stöðvar reknar eingöngu með þessu sniði, en
líka margar sem, eins og PoppTíví, bjóða upp
á sms á skjánum utan hefðbundinnar dag-
skrár. Hann segir hugmyndina runna undan
rifjum forvera síns í starfi, Björns Þóris Sig-
urðssonar, sem nú er dagskrárstjóri á Stöð 2.
„Upphaflega snerist hugmyndin um að
gefa fólki kost á að spjalla á skjánum í gegn-
um irkið, en síðan duttum við niður á þessa
lausn, sem er í margan stað mun betri vegna
þess að miklu fleiri af okkar markhópi hafa
beinan aðgang/afnot af gsm-síma en irkinu,“
segir Steinn Kári og upplýsir jafnframt að
hvert skeyti kosti 59 krónur. Ennfremur að
yfir tíu þúsund manns hafi náð sér í notanda-
nafn frá því útsendingar skilaboðanna hófust
í desember síðastliðnum, en flestir þeirra,
eða um 85%, taki þátt í lagavalinu.
„Mismunandi er hversu margir virkir þátt-
takendur eru hverju sinni, en flestir eru um
helgar. Oft má ráða í aldur notenda af orða-
lagi og inntaki skilaboðanna. Framan af
nóttu eru unglingar, en þegar á líður kemur
oft inn eldra fólk í stefnumótahugleiðingum.
Þar sem ekki er hægt að senda
lengra skeyti, en sem nemur 160
slögum, samanstendur málfar
unglinganna af skammstöfunum
og er mörgum með öllu óskilj-
anlegt. Geðveikt verður gegt,
maður verður mar, gerðu það
(please) verður plz, þetta verður teta og þar
fram eftir götunum,“ nefnir Steinn Kári sem
dæmi.
Hann viðurkennir að brögð séu að því að
fólk reyni að læða inn alls konar dónaskap.
Verði menn uppvísir að slíku eða að birta
símanúmer á skjánum, séu þeir umsvifalaust
settir í bann og eigi ekki kost á að gerast
þátttakendur á nýjan leik.
„Við viljum losna við allt svona rugl. Til
þess að sporna við ljótu orðbragði, birtingu
símanúmera og þvíumlíku hefur verið sett
upp orðsía, sem nú inniheldur 300 orð og
verður æ umfangsmeiri,“ segir Steinn Kári.
Hann neitar því ekki að að nokkur alvarleg
tilvik hafi komið upp. Til dæmis hafi eitt sinn
verið skilaboð um sölu á „grasi“ og komið
hafi fyrir að annað hafi verið boðið falt, sem
hvorki má selja né kaupa með lög-
legum hætti. Í slíkum tilfellum segir
hann að brugðist sé hart við og ekki
hikað við að tilkynna lögreglunni
símanúmer viðkomandi.
„Við leggjum áherslu á að byggja
upp öflugt varnarkerfi gegn ósæmi-
legum skilaboðum og förum á
hverjum morgni yfir skilaboð næturinnar til að
fyrirbyggja að viss orð og orðtök nái aftur í
gegn,“ segir Steinn Kári og heldur áfram: „Vand-
inn er sá að unga fólkið er snjallt að finna leiðir til
að sneiða hjá orðsíunni. Þegar hún stoppaði síma-
númerin af, brugðu sumir á það ráð að setja
punkt á milli tölustafanna. Ég get tekið sem dæmi
að ef orðið rass færi í orðsíuna er allt eins líklegt
að fólk færi að skrifa rasss, þ.e. með þremur ess-
um, ef því fyndist alveg bráðnauðsynlegt að nota
þetta orð. Við verðum því stöðugt að vera á varð-
bergi og bregðast við lymskubrögðum af þessu
tagi,“ segir Steinn Kári.
Yfir tíu þúsund
manns hafa náð
sér í notendanafn
til þess að geta
„essemmessast“
eða tekið þátt í
lagakosningu á
PoppTíví.
Bókstaflegtspjall
Essemmessast
„gegt“
á skjánum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
í sjónvarpi