Morgunblaðið - 06.03.2003, Qupperneq 6
6 B FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI ATHAFNALÍF Markaðsmenn reyna alltaf að leita nýrra og áhrifamikilla leiða til
að kynna vöru. Mankiw, hagfræðiprófessor við Harvardháskóla,
hefur tekið við sem aðalefnahagsráðgjafi Bandaríkjaforseta.
Markaðskostnaður lyfjageirans
og hagfræðiprófessor í nýju starfi
FJÖLDI þeirra sem starfa við að mark-
aðssetja lyf í Bandaríkjunum nærri þrefald-
aðist á tímabilinu frá 1995 til 2002. Í ný-
legri grein í The Economist segir að
samtals hafi um 90 þúsund manns starfað á
þessu sviði í fyrra í Bandaríkjunum. Segir í
greininni að þessi fjölgun eigi sér eðlilegar
skýringar. Hefur blaðið eftir markaðssér-
fræðingi að reynslan hafi kennt lyfjafyr-
irtækjunum að beint samband sé á milli
lyfjasölu og markaðssetningar, sem ekki
kemur svo mjög á óvart.
Markaðssetning lyfjafyrirtækjanna bein-
ist ekki í meginatriðum að neytendum
þeirrar vöru sem þau framleiða, heldur að
læknum. Þeim hefur hins vegar ekki fjölgað
nærri eins mikið og sölumönnunum. Eco-
nomist vitnar í markaðsrannsóknarfyrir-
tækið Verispan, sem hefur komist að þeirri
niðurstöðu að lyfjafyrirtækin í Bandaríkj-
unum hafi varið nærri 9,4 milljörðum
Bandaríkjadala á síðasta ári í það eitt að
reyna að fá lækna til að vísa á þau lyf sem
viðkomandi fyrirtæki framleiða. Segir blað-
ið að fyrirtækin séu að reyna að þræða sig
eftir þeim þrönga stíg sem sé á milli eðli-
legrar markaðssetningar, annars vegar, og
óeðlilegra viðskiptahátta, hins vegar.
Vegna hinnar miklu fjölgunar sölumanna
lyfjafyrirtækjanna, langt umfram fjölgun
lækna, svo og vegna minni fjölgunar nýrra
lyfja sem koma á markað á hverjum tíma,
segir Economist að markaðssetning á lyfj-
um sé að verða nokkuð flókin starfsemi. Sí-
fellt sé þörf á nýjum leiðum í þeim efnum.
Danska blaðið Jyllandsposten greindi
fyrir nokkru frá því hvernig danska lyfja-
fyrirtækið Novo Nordisk fékk hárgreiðslu-
konur í Ástralíu til liðs við fyrirtækið við að
markaðssetja lyf þar í landi, sem ætlað var
miðaldra konum sem eiga við kynlífsvanda-
mála að stríða samfara breytingaraldrinum.
Auglýsingastofa í Ástralíu, sem vann með
Novo Nordisk, komst að þeirr niðurstöðu
að konur vilji frekar ræða við hárgreiðslu-
konur sínar um þessi vandamál en lækna.
Hágreiðslukonur voru því teknar á nám-
skeið þar sem þeim var kennt hvernig best
væri að ræða um þessi mál. En að auki
voru þeim útvegaðar svuntur sem á var
letruð slóð á Netinu, þar sem hægt væri að
fá lausn Novo Nortis við vandamáli
kvennanna.
Á sama hátt og orðið „sjúkrabíll“ er öf-
ugt framan á sjúkrabílum, til að bílstjórar
sjái betur í baksýnisspeglinum hver er fyrir
aftan þá, þá var slóð Novo Nortis á Netinu
öfug á svuntum hárgreiðslukvennanna í
Ástralíu, svo viðskiptavinirnir sæju hana
rétta í speglinum á hárgreiðslustofunni.
Lyfjafyrirtækin deyja nefnilega ekki ráða-
laus.
ll MARKAÐSSETNING Grétar J. Guðmundsson
Lyfjageirinn á
hárgreiðslustofunni
Novo Nordisk fékk hárgreiðslukonur í Ástralíu til liðs við
fyrirtækið við að markaðssetja lyf þar í landi
gretar@mbl.is
HVER vildi ekki fá þá einkunn um sjálfan
sig, að hann sé „hinn nýi Samuelson“? Þá
umsögn fékk N. Gregory Mankiw, hagfræði-
prófessor við Harvardháskóla. Mankiw (bor-
ið fram „Mankjú“, með áherslu á fyrra at-
kvæði) er höfundur einnar vinsælustu
kennslubókar hagfræðinnar, „Principles in
Economics“, sem kennd hefur verið í fram-
haldsskólum víða um heim, m.a. hér á landi.
Sú bók hefur smám saman verið að taka við
af „Economics“ eftir Paul Samuelson og
vegna þess hefur Mankiw hlotið þann titil
sem getið var hér í byrjun.
Mankiw hlaut líka annan, og kannski
virðulegri, titil í síðustu viku. Hann var þá
skipaður aðalefnahagsráðgjafi Bandaríkja-
forseta. Mankiw tekur við af R. Glenn
Hubbard og fyrsta verk hans verður að
reyna að sannfæra bandaríska þingið um að
rétt sé að samþykkja frumvarp forsetans
um 674 milljarða innspýtingu í efnahagslífið.
Hubbard hafði verið mikið gagnrýndur fyrir
að hafa sett saman frumvarpið og sakaður
af hagfræðingum um að láta fagleg vinnu-
brögð víkja fyrir pólitískum markmiðum
George W. Bush. Þar hefur fremstur í flokki
verið Paul Krugman, sem segir að halla-
rekstur á hinu opinbera hafi neikvæð áhrif á
vaxtastig til langs tíma.
Mankiw er talinn til frjálslyndari hag-
fræðinga. Hann er 45 ára gamall, og af
flestum álitinn vera skarpgáfaður. Meðal
lærifeðra hans í hagfræði eru Larry Summ-
ers, fyrrverandi fjármálaráðherra Banda-
ríkjanna, og Alan Blinder, sem var áður hjá
bandaríska seðlabankanum. Hans bíður erf-
itt verk, sem á ef til vill meira skylt við
stjórnmál en hagfræði. Þegar á þennan víg-
völl er komið er viðbúið að gera verði mála-
miðlanir.
ll HAGFRÆÐI Ívar Páll Jónsson
Hinn nýi Samuelson
er mættur
N. Gregory Mankiw þarf að reyna að sannfæra bandaríska
þingið um að rétt sé að samþykkja frumvarp forsetans
ivarpall@mbl.is
◆
ELVAR Þorkelsson, framkvæmdastjóri
Microsoft á Íslandi, segir að Microsoft
standi ekki ógn af notkun Linux hér á landi.
„Frá árinu 2001–2002 varð 118% aukning í
sölu Windows-miðlara hér á landi.
Það er því ekki að sjá að Linux hafi nokkur
einustu áhrif, nema í jákvæða átt,“ segir Elv-
ar en aukning sölu Microsoft á milli þessara
ára hér á landi almennt var 97% að hans
sögn. Elvar segir að Linux hafi fyrst og fremst
verið notað hér á landi sem stýrikerfi áhuga-
manna, en einnig undir vefi eða önnur kerfi
sem ekki teljast „mission critical“. „Þekking
á Linux er takmörkuð, sem veldur því að út-
breiðsla þess er minni en ætla mætti, hvort
heldur hér á landi eða annars staðar.“ Að-
spurður segir hann að Microsoft hafi enga
ákveðna stefnu varðandi það hvernig hugs-
anlegri samkeppni vegna aukinnar út-
breiðslu opins hugbúnaðar verði mætt. „Í
sjálfu sér höfum við enga stefnu í þessa
veru, aðra en þá að vera með besta hugbún-
aðinn á hverjum tíma, sem styður opna
staðla og réttlætir hina hóflegu verð lagn-
ingu sem í gangi er. Stefna okkar er eins og
ég segi er að vera ávallt með besta og hag-
kvæmasta hugbúnaðinn sem völ er á.“ Eitt
verkefni Elvars í starfi sínu hjá Microsoft á
Íslandi er að ýta undir umræðu um löglega
notkun hugbúnaðar en Elvar segir að Íslend-
ingar séu flestir
fengnar útgáfur
sé ekki eingöng
frá Microsoft.
„Flytji menn s
hvort heldur óke
menn eftir sem
Það er rangt hu
að svíkja einhve
ur skv. gildandi
er eins og með g
hafir ekki borga
til útlanda og bo
skuldar þú ennþ
segir Elvar.
Hann segir að
soft á markaðnu
gæðum, þekkin
og hagkvæmni.
hæfir til að met
hverju sinni. Þa
bjóða alltaf bes
verði,“ sagði Elv
ll HUGBÚNAÐUR
Engin ógn fyrir Micro
L
INUX og annar opinn hugbún-
aður svokallaður hefur hrist
upp í tölvuheiminum síðustu
misserin, jafnvel svo að hug-
búnaðarrisanum Microsoft,
sem margir gagnrýnendur hafa sagt sjálfu
lýðræðinu stafa ógn af, er farið að volgna
undir uggum.
Linux-stýrikerfið, sem kalla má flagg-
skip opna hugbúnaðarins, er ókeypis og
hægt er að hlaða því niður af Netinu. Fyr-
irtæki kjósa þó mörg að fá kerfið ásamt vél-
búnaði og kaupa þá þjónustu með, en hug-
búnaðurinn er alltaf frír og kóðinn opinn.
Helsta fyrirtækið sem selur Linux-tengdar
vörur er Red Hat Inc., en önnur fyrirtæki
eru SuSE og Turbolinux.
Viðmælendur Morgunblaðsins hérlendis
sem og fyrirtæki, sem erlendir fjölmiðlar
hafa fjallað um, nefna öll hinn mikla sparn-
að sem hlýst af innleiðingu kerfisins sem
eina höfuðástæðuna fyrir innleiðingu þess,
auk þess sem kerfið er að mestu leyti sam-
bærilegt í gæðum við lausnir Microsoft og
annarra stýrikerfa. Hér á landi nemur
sparnaður einstakra fyrirtækja milljónum
til milljónatuga á ári hverju en erlendis
getur sparnaður numið margföldum þeim
upphæðum í stórum fyrirtækjum eða
stofnununum, en jafnt skólar sem ríkis-
stofnanir um allan heim hafa annaðhvort
innleitt kerfið eða eru að hugleiða innleið-
ingu.
Í nýlegri grein í USA Today er rætt um
útbreiðslu opins hugbúnaðar og nefnd ýmis
dæmi. Meðal annars er sagt að Brasilía,
Perú og Argentína séu að horfa á opinn
hugbúnað sem fyrsta kost til að mæta
tæknilegum þörfum stjórnvalda auk þess
sem Kína hefur lagt áherslu á Linux og op-
inn hugbúnað til að ýta undir innlendan
hugbúnaðariðnað. Ennfremur er Evrópu-
sambandið að kanna það fyrir nokkrar rík-
isstjórnir að skipta á Microsoft-kerfi og
Linux-kerfi. Þá er ræt
fjórum mánuðum hafi m
ar og lítil fyrirtæki í Ban
ókeypis opnum hugbúna
Samkvæmt Goldman
39% bandarískra fyrirt
hverju marki.
13,7% hlutdeild
Nú er svo komið að mar
ux í miðlurum (servers)
um vaxið nánast úr eng
af alheimsmarkaðnum s
talinn vera 50,9 milljar
kvæmt markaðsrann
IDC er búist er við að hl
25,2% fyrir árið 2006 s
Linux yrði þá næststæ
fyrir miðlara. IDC segir
dag er fremst á þessu sv
59,9% markaðshlutdei
markshlutdeild á þessu
dala hægt og sígandi.
Notkun Linux í stýrik
tölvur er ekki orðin nán
menn, og hefur Micro
markaðshlutdeild. Þó g
Linux í einkatölvum sín
sem eru að mestu sam
forrit eins og Word og
Linux-forritarar úti um
við að endurbæta og s
uppfærslur af Linux-h
sjón einni saman. Því m
möguleika að hlutdeild
Milljónas
fyrirtækja
Opnum ókeypis hugbúnaði með flaggskipið
Linux í broddi fylkingar vex ört ásmegin
Linux og annar opinn hugbúnaður svokall-
aður hefur hrist ærlega upp í tölvuheim-
inum síðustu misserin. Þóroddur Bjarnason
kynnti sér málið og ræddi við íslensk fyrir-
tæki sem tekið hafa Linux opnum örmum.
Elvar Steinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri
Microsoft á Íslandi.