Morgunblaðið - 27.03.2003, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003 B 5
NFRÉTTIR TRYGGVI Jónsson fráfarandi
stjórnarformaður Samtaka versl-
unar og þjónustu, SVÞ, sagði á að-
alfundi samtakanna í liðinni viku
að undanlátssemi yfirvalda væri á
meðal þess sem gert hafi versl-
unar- og þjónustufyrirtækjum erf-
itt fyrir á síðasta ári. „Laun hafa
hækkað umfram umsamda taxta og
athyglisvert er að ástæðan fyrir
því er ekki markaðsaðstæður,
heldur er mikilvæg ástæða sú,
undanlátssemi ríkis og sveitarfé-
laga um óeðlilega hækkun launa
opinberra starfsmanna sem hefur
áhrif á almennum markaði,“ sagði
Tryggvi í ræðu sinni.
Hann gerði einnig leiðbeinandi
reglur um viðskipti birgja og mat-
vöruverslana sem Samkeppnis-
stofnun gaf út sl. haust að umtals-
efni. „Fordæmi sem þessar reglur
gefa hljóta að vera áhyggjuefni
fyrir viðskiptalífið í landinu.
Stjórnvöld verða að gæta sín að
fara ekki offari í reglusetning-
unni.“
Tryggvi sagði að verslunarrými í
landinu væri nú töluvert umfram
þarfir og rekstrarkostnaður væri
því of hár í greininni. „Þannig er
eftirtekja eftir hverja sölu ekki
viðunandi.“
Öðruvísi fjallað um verslun
Tryggvi sagði það undarlegt að
embættismenn fjalli ekki um versl-
un og þjónustu sem samkeppnis-
greinar við erlend fyrirtæki á
sama hátt og þeir gera um sjávar-
útveg og iðnað. „Þetta er undarleg
afstaða þegar horft er til alþjóða-
væðingar á þessu sviði.“
Tryggvi sagði að þó svo að engin
starfsgrein hér á landi veitti jafn
mörgum atvinnu og verslunar- og
þjónustufyrirtæki gera þurfi þau
að mestu leyti sjálf að sjá um end-
urmenntun sinna starfsmanna.
„Þarna teljum við að fræðsluyfir-
völd hafi brugðist.“
Tryggvi ræddi þar næst nýút-
gefna stefnumótun SVÞ til þriggja
ára en þar segir meðal annars að
SVÞ vilji sameina öll hagsmuna-
samtök verslunar- og þjónustu í
ein landssamtök.
Þörf á siðareglum
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra fjallaði á
fundinum um viðskiptasiðferði.
Sagði hún að fyrirtækin sjálf og
stjórnendur þeirra þyrftu að setja
sér nánari samskiptareglur sem
byggðu á þeim siðferðisviðhorfum
sem æðsta stjórn fyrirtækisins vill
hafa að leiðarljósi. Hún sagði að
fyrirtæki og stofnanir horfðu nú æ
meir til setningar viðskiptasiða-
reglna með það að markmiði að
taka á sem flestum málaflokkum í
starfsemi fyrirtækja, tengslum við
starfsmenn, hluthafa, viðskiptavini,
birgja, stjórnvöld svo og atriðum
er varða hollustu starfsmanna.
„Stjórnvöld geta ekki og eiga ekki
að taka að sér að móta innihald
síkra reglna fyrir fyrirtæki,“ sagði
Valgerður.
„Samkeppni fer vaxandi og fyr-
irtæki kunna að freistast til að slá
af kröfum og almennum siða-
reglum til að ná viðskiptalegum yf-
irburðum. Gæðaleikföng sem neyt-
endur geta keypt á góðu verði en í
raun eru framleidd af börnum í
þrældómi í fjarlægu landi er eitt
dæmi um slíkt vandamál,“ bætti
hún við.
Hún sagði að fyrirtæki þyrftu að
setja sér siðferðileg viðmið í sam-
skiptum sínum við starfsmenn og
samkeppnisaðila.
„Í vaxandi samkeppni þurfa fyr-
irtæki líka að huga að tengslum við
samkeppnisaðila sína og setja
starfsmönnum skýr mörk um að
nálgast t.d. aldrei upplýsingar með
óheiðarlegum aðferðum.“
Sigurður Jónsson framkvæmda-
stjóri SVÞ sagði í sínu erindi að
verslunin væri þjökuð af reglu-
verki og ófrelsi og sagði jafnframt
að verslun beri að hafa áhrifasæti í
þjóðfélaginu vegna stöðu sinnar
sem stærsti vinnuveitandinn í sam-
félaginu. Sigurður gagnrýndi
áhugaleysi menntamálayfirvalda til
að koma að menntun fólks í versl-
un og sagði að það skapaði mis-
munun innan greinarinar þar sem
aðeins stærri fyrirtæki hafi bol-
magn til að mennta sitt starfsfólk.
Erfiðleikar vegna
undanlátssemi ríkis
og sveitarfélaga
Morgunblaðið/Kristinn
Tryggvi Jónsson, fráfarandi stjórnarformaður SVÞ, sagði fræðsluyfirvöld hafa
brugðist í menntamálum verslunarfólks.