Morgunblaðið - 27.03.2003, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARS 2003 B 11
NFRÉTTIR ● VÍSITALA byggingarkostnaðar,
reiknuð eftir verðlagi um miðjan
mars, lækkaði um 0,25% frá fyrra
mánuði samkvæmt útreikningum
Hagstofu Íslands. Síðastliðna tólf
mánuði hefur vísitala bygging-
arkostnaðar hækkað um 3,3%.
Samkvæmt upplýsingum frá Guð-
rúnu Jónsdóttur hjá Hagstofunni er
meginskýringin á lækkun vísitöl-
unnar sú að ýmis tilboð hafi verið í
gangi á byggingavörum að undan-
förnu.
Vísitala bygging-
arkostnaðar
lækkar um 0,25%
● HÁSKÓLINN í Reykjavík hefur
valið LiSA vefstjórnarkerfið til að
halda utan um aðalvef skólans og
mun innleiðing fara fram á næstu
vikum. Innn mun sjá um alla for-
ritun og uppsetningu vefsvæðanna
sem hýst verða af skólanum sjálf-
um. Innn mun einnig sjá um ráð-
gjöf og útlitshönnun fyrir vef skól-
ans, sem verður að finna á
www.ru.is.
HR og Innn
með samning
● MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft-
irfarandi athugasemd frá Þorsteini
Vilhelmssyni við frétt í Morg-
unblaðinu eftir aðalfund Þormóðs
ramma–Sæbergs hinn 7. mars síð-
astliðinn:
„Í fréttinni er greint frá því að Atli
Árnason hafi gengið úr aðalstjórn og
í varastjórn, hið rétta er að Atli Árna-
son var varamaður og er það áfram.
Hins vegar var Þorsteinn Vilhelms-
son aðalmaður í stjórn og gekk úr
henni á síðasta aðalfundi. Þannig að
tilkynningin frá Þormóði ramma–
Sæbergi var röng. Óska ég hér með
eftir leiðréttingu á þessu.“
Athugasemd frá Þor-
steini Vilhelmssyni
● VÖRUHÓTELIÐ ehf. og Skelj-
ungur hf. hafa gengið frá samningi
um birgðahalds- og vörudreifing-
arþjónustu. Skeljungur úthýsti öllu
sínu lagerhaldi árið 1996. Vöruhót-
elið ehf er dótturfyrirtæki Eimskips
ehf. og TVG Zimsen hf. Vöruhót-
elið, sem jafnframt er dreifing-
armiðstöð, annast móttöku, skrán-
ingu, geymslu, afhendingu og
dreifingu á vörum fyrir viðskiptavini
sína. Hægt er að geyma vörur toll-
afgreiddar, ótollafgreiddar og á frí-
svæði.
Vöruhótelið og
Skeljungur semja
● AÐFÖNG, innkaupa- og vörudreif-
ingarfyrirtæki Baugs Ísland, hafa tek-
ið í notkun Cognos-stjórnenda-
upplýsingakerfið. Lárus Óskarsson,
framkvæmdastjóri Aðfanga, segir að
markmiðið með því að taka upp
þetta kerfi sé að bæta afhending-
arhlutfall vara frá birgjum inn í vöru-
húsið þannig að minna verði um að
vörur vanti í verslunum Baugs Ísland.
Hann segir að til lengri tíma litið
batni afhending á vörum til Aðfanga
og birgðir minnki. Það muni hafa í för
með sér hagræðingu og betri þjón-
ustu bæði fyrir birgja og við-
skiptavini.
Að sögn Lárusar fór þetta verkefni
af stað í samstarfi við 23 birgja sem
Aðföng kaupa vörur af og standa fyrir
um 87% af veltu innlendra birgja fyr-
irtækisins. Hann segir að í upplýs-
ingakerfinu séu nokkrar skýrslur
sem birgjarnir hafi aðgang að um sín-
ar vörur í gegnum Netið. Þar komi
fram birgðastaða frá deginum áður,
brotin niður á vörutegundir. Hægt sé
að sjá hve viðkomandi vara muni
endast lengi miðað við söluspár Að-
fanga, sem hægt sé að sjá fyrir
næstu sex mánuði. Birgjarnir geti því
út frá eigin lagerstöðu svo og lag-
erstöðu Aðfanga séð hvenær þeir
þurfa að panta vörur. Fjölmargar aðr-
ar upplýsngar sé einnig hægt að fá
úr kerfinu, svo sem hver sala ákveð-
inna vara er á tilteknum dögum, vik-
um eða mánuðum, og í keðjum eða
ákveðnum verslunum Baugs Ísland.
Aðföng taka
upp Cognos
● ÁFENGIS- og tóbaksverslun rík-
isins (ÁTVR) hefur gengið til samn-
inga við AcoTæknival (ATV) um nýj-
an afgreiðslubúnað í verslunum
fyrirtækisins um land allt. Samið
var við ATV að undangengnu útboði
en tíu fyrirtæki gerðu tilboð í bún-
aðinn sem settur verður upp í fjöru-
tíu verslunum ÁTVR og tekur til
120 afgreiðsluvéla. Nýtt af-
greiðslukerfi ÁTVR er lokaáfanginn
í endurnýjun upplýsingakerfa fyr-
irtækisins en sú endurnýjun hófst
fyrir þremur árum. Ætlunin er að
nýta ýmsar nýjungar í afgreiðslu-
kerfum til aukinnar þjónustu við
viðskiptavini og einnig að sam-
ræma og treysta innviði upplýs-
ingakerfa ÁTVR.
ÁTVR semur við ATV
Stefán Rúnar Dags-
son hefur hafið störf
sem vörustjóri IKEA.
Stefán er stúdent frá
Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ. Hann hefur
stundað nám hjá Tækni-
skóla Íslands við rekstr-
ardeild. Stefán hóf störf
hjá IKEA 1992.
Ingvi Þór Magnússon
hefur hafið störf sem
rekstrarstjóri veitinga-
staðar IKEA.
Ingvi Þór útskrifaðist
sem matsveinn frá
Menntaskólanum í
Kópavogi 2002. Hann
hóf störf hjá IKEA 1993.
Sambýliskona Ingva er Sigurjóna Harð-
ardóttir og eiga þau eina dóttur.
Ingibjörg Sverr-
isdóttir hefur hafið störf
sem sölustjóri hús-
gagnadeildar IKEA. Ingi-
björg hefur lokið sveins-
prófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík, stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Hamrahlíð
og hefur stundað nám í Háskóla Íslands
undanfarið.
Hún hóf störf hjá IKEA 1998. Sambýlis-
maður Ingibjargar er Sölvi Ólafsson prent-
rekstrarfræðingur. Ingibjörg á fjögur börn.
Svanborg Kjart-
ansdóttir hefur hafið
störf sem sölustjóri
smávörudeildar IKEA.
Svanborg er stúdent frá
Borgarholtsskóla. Hún
hóf störf hjá IKEA 1999.
Sambýlismaður Svan-
borgar er Helgi Kr. Jak-
obsson.
Stöðubreytingar
hjá IKEA
IMG Deloitte hefur tekið upp samstarf
við Maríu Ellingsen leikkonu, Geir Sveins-
son handknattleiksþjálfara og Þorstein J.
Vilhjálmsson dagskrárgerðarmann. Þau
munu kenna á námskeiðum fyrirtækisins.
María Ellingsen er
með BA-próf í leiklist og
hefur starfað sem leik-
kona, við dagskrárgerð
og fleira. Hún mun m.a.
sjá um námskeið í fram-
komu og ræðu-
mennsku, auk fjölmiðla-
framkomu.
Geir Sveinsson er
MBA-nemi í Háskóla Ís-
lands og þjálfari meist-
araflokks karla hjá Val.
Hans sérsvið er keppn-
isandi og uppbygging
liðsheildar.
Þorsteinn J. er með
BA-próf í almennri bók-
menntafræði og starfar
sem frétta- og þátta-
gerðarmaður. Hann
mun koma að kennslu í
skapandi skrifum og
skapandi hugsun.
IMG Deloitte sérhæfir
sig í stjórnendaþjálfun
og símenntun. Meðal leiðbeinenda fyr-
irtækisins eru stundakennarar við Há-
skóla Íslands, Háskólann í Reykjavík og
Háskólann á Akureyri, sem allir hafa jafn-
framt víðtæka hagnýta reynslu úr atvinnu-
lífinu.
Liðstyrkur
til IMG Deloitte
Bryndís R. Há-
konardóttir hefur verið
ráðin deildarstjóri þjálf-
unardeildar Hreyfingar,
heilsuræktar. Sem
deildarstjóri þjálf-
unardeildar hefur Bryn-
dís m.a. umsjón með
markaðs- og sölumálum
einkaþjálfunar og hóptíma.
Bryndís er viðskiptafræðingur frá The Am-
erican College í Los Angeles. Undanfarin
ár hefur hún starfað sem sjálfstæður ráð-
gjafi í útflutnings-, sölu og markaðsmálum.
Meðal verkefna hennar eru erlend mark-
aðsleit fyrir ljósmyndavef, markaðssetning
á kvikmynd erlendis, heimildaöflun á er-
lendum mörkuðum vegna útflutnings á ís-
lensku hugviti og sósum, sýningin Matur
2002 o.fl. Á árunum 1995–2000 starfaði
Bryndís sem útflutningsstjóri og einnig
sem forstöðumaður sölu- og markaðs-
deildar Kjötumboðsins hf.
Sambýlismaður Bryndísar er Víðir Krist-
ófersson og eiga þau þrjú börn.
Nýr starfsmaður
í Hreyfingu,
heilsurækt
Daði Jóhannesson
hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Navision
Ísland. Starfið felur í sér
daglegan rekstur og um-
sjón fyrirtækisins. Navi-
sion Ísland er dreifingar-
og umboðsaðili hugbún-
aðar frá Microsoft Bus-
iness Solutions. Navision er dótturfyr-
irtæki Kögunar hf.
Daði tekur við starfi Katrínar Olgu Jóhann-
esdóttur sem gegnt hefur fram-
kvæmdastjórastarfi hjá Navision und-
anfarin fjögur ár.
Daði er fæddur á Selfossi 1967, sonur
hjónanna Jóhannesar Helgasonar og
Kristínar Karlsdóttur, garðyrkjubænda í
Hvammi í Hrunamannahreppi. Daði lauk
meistaragráðu í véla- og rekstrarverkfræði
frá Álaborgarháskóla árið 2001.
Hann hefur starfað hjá Navision und-
anfarin tvö ár sem vörustjóri en áður starf-
aði Daði hjá Deiglunni hf. og Landssíma
Íslands. Daði er í sambúð með Erlu Soffíu
Björnsdóttur sjúkraliða og eiga þau sam-
an þrjú börn.
Nýr fram-
kvæmdastóri
Navision Ísland
RANNSÓKNASTOFNUN fiskiðnaðarins
og Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu
þjóðanna (SSþ) hafa gert samning um að
Rf taki að sér að semja kennsluefni fyrir
háskóla í Víetnam. SSþ tók til starfa fyrir
5 árum og hefur Rf séð um hluta kennsl-
unnar við skólann.
Undanfarin fjögur ár hefur DANIDA
(Danish International Development Ass-
istance), sem er hluti af þróunarhjálp
Dana, aðstoðað Víetnama við að koma á
GÁMES kerfi í fiskiðnaði. Aðstoðin hefur
aðallega falist í þjálfun og ráð-
gjafastörfum.
Í ljós hefur komið að þörf er á að auka
menntun þeirra gæðastjóra sem starfa
hjá fiskvinnslufyrirtækjum í Víetnam,
þrátt fyrir að þeir séu háskólamenntaðir.
Vegna þessa var leitað til SSþ og þar sem
Rf hefur séð um þennan hluta kennsl-
unnar var samið um að Rf tæki að sér að
annast gerð kennsluefnis sem tengist
vinnslutækni, gæða- og öryggismálum
matvæla. Þetta efni verður síðan notað af
Víetnömum við endurmenntun gæða-
stjóra fyrirtækjanna.
Nokkrir starfsmenn frá Rf munu fara
til Víetnam í byrjun apríl vegna þessa
verkefnis og starfa þar með fulltrúum
DANIDA og víetnömskum háskóla.
Rf semur kennslu-
efni fyrir Víetnama
Fermingargjafir
Skarthúsið, s. 562 2466, Laugavegi 12
Perlunni. Opið alla daga kl. 10 -18
fyrirtaeki.is
Frá hugmynd
að fullunnu verki
Katlaþjónusta
H
ön
nu
n:
G
ís
li
B
.
Vandaður kvöldklæðnaður
Bendum frímúrurum sérstaklega á síðuna okkar
Harvey Malcolm Clothing Co - Liverpool England
www.harvey-malcolm.co.uk
Sími 0044 151 236 0043 Fax 0044 151 236 0582